Alþýðublaðið - 05.06.1976, Síða 4

Alþýðublaðið - 05.06.1976, Síða 4
4 OTLÖND Laugardagur 5. júní 1976. blaSfó' SKORTUR A HREINU VATNI ÞJAKAR 1 dag 5. júnl er dagur um- hverfisins, og er þetta annað áriö sem Sameinuðu Þjööirnar standa fyrir sllkum degi. Er ætlunin að minna jaröarbúa á nauðsyn þess að nýta skyn- samlega auðliiidir jaröar, og að þjóðirnar verði að standa saman ef slikt á aö takast. Aö þessu sinni er dagurinn helgaður vatninu undir kjör- orðinu: Vatn er lifsnauðsyn. Witer- Vítal Resource For Life lllustration by Bakry Tag El Din, Egypt UnLbsd Nations Enwonment Programme World Envjronment Day June 5.1976 Astæðan fyrir þvl að dagurinn er sérstaklega helgaður vatninu að þessu sinni, eru þær fjöl- mörgu og hrikalegu staðreyndir sem þegar liggja fyrir. Þaö er talið að 70% ibúa jaröar búi viö skort á hreinu vatni, einnig er talið að um 25000 manna deyji dag hvern, vegna smits sem borist hefur með vatni. 25000 deyja af völdum mengaðs vatns á hverjum degi. Vatn er nauðsyn, ekki aðeins til ræktunar, heldur einnig til matseldar, drykkjar, þvotta, iönaðar flutninga, og sem orku- gjafi svo eitthvað sé nefnt. Þaö er því ekki aö ástæöulausu sem ÍSLENZ VATNSE A Náttúruverndarþingi sem haldið var 1975, var samþykkt svohljóðanditillaga um vatna- og jarðhitasvæði á tslandi: „Náttúruverndarþing 1975 telur nauösynlegt, að gerð sé úttekt á vatna- og jarðhita- svæðum landsins. Verði einnig gerð heildaráætlun um friöun þeirra fossa, hvera, vatna- og jarðhitasvæða, sem réttmætt þykir aö vernda. Telur þingið koma til álita að greina verndarsvæði I tvo flokka: 1) svæöi sem rétt sé að friða varanlega og 2) svæði sem sæta skuii tfma- bundinni friðun, þar til endanleg ákvörðun hafi veriö tekin, hvernig með þau skuli fara. Þingir felur Náttúru- m verndarráöi aö hafa forgöngu um þessi mál, og leita um það samvinnu við þá aðila er hlut eiga að máli”. Munu þessar athuganir nú vera á byrjunarstigi. Það er þvi ljóst að hér á islándi eru menn einnig aö vakna til meðvitundar um, að verndun vatns og votlendis er fyililega timabært athugunarefni. Notkun Gvendar- brunna hætt. Uppi i Heiðmörk, er Vatns- veita Reykjavikur um þessar mundir aö prufudæla úr tveimur borbolum, af fjöl- mörgum sem þeir hafa verið aö bora undanfarin ár. Er aö þvi stefnt, að hætta nýtingu Gvendarbrunna innan fárra ára. Astæöan til þess, aö nú er ákveöið að hætta að notast við vatn þaðan er, aö Gvendar- brunnar eru opið vatnsból, sem iiggur lágt miðaö við um- hverfið, er vatnið þar þess vegna ávallt I hættu vegna utanaðkomandi áhrifa. Þess VATNIÐ ÞEKKIR ENGIN LAN N áttúruverndamef nd Evrópuráðsins, hefur sett fram stefnuskrá varöandi ferskvatn i Noröurálfu. Er meö þessari skrá ætlað að vekja athygli á þeim vandamálum semstafa af stööugt vaxandi mengun, og af auknum kröfum hins sið- menntaða þjóöfélags fyrir nægt og gott vatn. Einnig er þessari stefnuskrá æthaöaðvera til leið- beiningar um meðferö vatns- forðans, og verndun hans. Er stefnuskráin i 12 liðum, og birt- um við hér úrdr.æitti úr þeim. 1) Ekkert lif getur þrifist án vatns. Þaö er auölind, sem er ómissandi aliri mannlegri starfsemi. 2) Birgðir ferskvatns eru ekki óþrjótandi. Þvi er höfuðnauðsyn að vernda þær, skipuleggja notkun þeirra og auka þær eftir megni. 3) Að valda mengun á vatni er sama sem að vinna manninum tjón og öðrum þeim lífverum, sem vatninu eru háöar. 4) Gæöi vatnsins veröur að tryggja, svo þaö sé hæft til þeirra nota, sem þvi eru ætluö, og sér i lagi verður það aö sam- svara þeim almennu hollustu- kröfum.sem til þess eru geröar. 5) Þegar neyziuvatnið hverfur til uppruna sins, verður þaö að vera I þvl ástandi, aö mögulegt sé aö nýta það aftur. 6) Viðhald gróðurþekjunnar, einkum skógargróöurs, er öllu ööru þýöingarmeira fyrir verndun vatnsforðans. 7) Meta þarf vatnsforöann. 8iSkipuleggja þarf meöferö vatnsforöans, af réttum stjórn-

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.