Alþýðublaðið - 29.06.1976, Side 7

Alþýðublaðið - 29.06.1976, Side 7
blaSíð1* Þriðjudagur 29. |ún[ 197ó. VUDH0RF7 Neytendalög- gjöf er það sem koma skal Rætt við Rúnar Armanns- son. formann Nevtendasamtakanna Neytendasamtökin hafa verið mikið til umræðu og hafa menn ekki verið á eitt sáttir um hvort þau gegndu umsvifamiklu hlut- verki, eða hvort þyrfti að auka starfsemi þeirra til muna, svo þau megi þjóna sinu hlutverki. Alþýðublað- ið hafði samband við Rúnar Ármannsson formann Neytenda- samtakanna og bað hann að segja frá starf- semi þeirra og fleiru þeim viðkomandi. „Neytendasamtökin voru stofnuö áriö 1953 og er tala fél- agsmanna nú um þaö bil 3700. Samtökin eru i Alþjóöasam- bandi neytanda I.O.C.U. og eru viöurkennd sem málsvari ísl. neytenda út á viö. Þau starfa einkum i Reykjavik, en neyt- endur úti á landsbyggöinni geta leitaö til þeirra og gera þaö lika i mörgum tilfellum.” „Hafa Neytendasamtökin einhverjar tekjur, eöa hvernig er starfsemin fjármögnuö? „Þau eru einkum fjármögnuö. meö félagsgjöldum meölima, en félagsgjöldin eru um þaö bil 75% af tekjum samtakanna. Þá eru þau styrkt af riki og borg, og er þá allt upptaliö. Til saman- buröar má geta þess aö Neyt- endasamtökin i Danmörku taka 90% f jármagns þess er þau nota til starfsemi sinnar, frá Kaup- mannahafnarborg og eins og sést er hér um mikinn mismun aö ræöa milli landa.” „í hverju er starfsemin fólg- in?” „Þaö má segja aö starfsemin sé þriþætt. I fyrsta lagi varöar hún hagsmuni meölima og neytenda almennt i þjóöfélaginu. I ööru lagi miöast hún aö þvi aö leiö- beina neytendum og hafa veriö gefnir út sérstakir bæklingar til leiöbeiningar um kaup á vöru og þjónustu. Þá.höfum viö gefiö út eitt blaö, Neytendablaöiö, og hefur þaö komið eins oft út og ástæöur hafa leyft. Sl. tvö ár hefur jafnframt veriö unniö aö þvi að byggja upp fjárhagslegan grundvöll fyrir slika útgáfu- starfsemi og er ætlunin að auka hana meö timanum.” „1 þriöja lagi veitum viö svo lögfræðilega aöstoö þegar orkar tvimælis hvoru megin rétturinn er, þ.e. hvort hann er neytand- ans eöa seljandans. Þá má nefna sjálfstæöar rannsóknir sem Neytendasamtökin hafa gert á nokkrum málaflokkum, svo sem banaslysum á heimil- um, matvælaeftirliti, banaslys- um I umferöinni o.fl. Hvaö starfsliði viökemur þá höfum við einn fastan starfs- mann, sem tekur á móti kvört- unum, og svarar fyrirspurnum neytenda. Er þetta eini starfs- maðurinn á vegum samtak- anna, sem er launaöur. öll þau mál, sem ganga lengra en til skrifstofunnar eru unnin I sjálf- boöavinnu og er þaö stjórnin sem sér um þá hliö málsins. „Hvaða leiðir eru farnar þeg- ar leita þarf réttar neytanda? Ef neytandi kemur meökvörtun vegna gallaörar vöru eöa vegna slæmrar þjónustu er það frum- skilyröi aö hann hafi sjálfur reyntaöleita réttar sins hjá viö- komandi seljanda, áöur en viö hefjumst handa. Hafi neytandi hins vegar gert þetta fyllir hann út þar til gert eyðublað, þar sem fram þurfa aö koma allar upp- lýsingar um máliö. Skýrslan er siöan send tjl þess stjórnar- manns sem hefur með þann málaflokk aö gera sem viökom- andi heyrir undir og hann sér til þess aö neytandinn nái þeim rétti sem honum ber. Þá er rétt aö þaö komi fram aöþaö kemur ósjaldan fyrir, aö seljendur snúi sér til samtak- anna til aö fá upplýsingar um rétt viðskiptavina.” „Hver er staða Neytenda- samtakanna á Islandi, saman- boriö viö sams konar stofnanir I öðrum löndum?” „Ég álit aö þaö séu svo marg- ir þættir sem þar koma inn i aö sá samanburöur veröi alls ekki raunhæfur. Ef Neytendasam- tökin I Bandarikjunum eru tekin sem dæmi, þá var þeim sýndur mjög takmarkaöur skilningur I fyrstu, en þau voru stofnuð 1936. Þeim var hvaö eftir annaö stefnt þegar þau birtu opinber- lega niöurstööur á gæöamati. En nú hefur þetta snúizt þannig viö að ef þau telja einhverju vera ábótavant viö framleiöslu vörunnar, þá rýkur viðkomandi framleiðandi upp til handa og fóta og lætur lagfæra gallann. En við erum fámenn þjóö, og allt slikt á miklu erfiöara upp- dráttar hér hjá okkur en I stærri löndum.” „Hver eru helztu baráttumál ykkar um þessar mundir?” „Tvimælalaust er það krafan um neytendalöggjöf. Nú er ver- ið aö vinna að henni, svo það er erfitt aö útskýra hana i einstök- um þáttum. En með tilkomu hennar stóreykst réttarstaða neytenda og viö teljum nauð- synlegt aö þessi áfangi náist sem fyrst. Þá þarf aö vinna aö þvi aö efla samtökin, að þau verði fjölmennari en nú er. Þau þurfa aö verða svo öflug aö þau geti jafnvel vænzt þess aö geta haft áhrif á efnahagsráðstafanir stjórnvalda. Auk þessa þarf að færa starfsemina út fyrir Reykjavikursvæðið, þannig að Neytendasamtökin verði engu aö siöur virk úti á landsbyggð- inni en hér i Reykjavik.” „Ég tel að Samtökunum hafi orbiö mikið ágengt i starfi, frá þvi að þau voru stofnuð. Og þau eiga eftir að veröa enn áhrifa- meiri með tilkomu neytendalög- gjafarinnar. En fyrst ég hef tækifæri til, vil ég þakka þeim sem hafa verið brautryöjendur I starfi samtak- anna. Vil ég sérstaklega nefna Svein Asgeirsson sem hefur unnið mikiö og fórnfúst starf i þágu þeirra. JSS Lágkúra Alþýðuflokkurinn hefur fram aö þessu stutt þá stefnu, enda átt rikan þátt I aö móta hana, aö íslendingar tækju þátt I varnar- samstarfi vestrænna þjóöa. Rökin fyrir inngöngu Islands 1 Atlantshafsbandalagiö voru þau aö þaö var talin eina færa leiöin til þess að sporna gegn útþenslu kommúnismans undir grimmd- arstjórn Stalins. Gamli maðurinn tók ekki mark á neinu friöarkjaftæöi og skirröist ekki viö aö ganga á bak oröa sinna ef svo bar undir. Þaö eina sem hann skildi var vald gegn valdi — hótun gegn hótun. Þá fyrst gaf hann sig þegar vestrænar þjóöir sameinaðar i Atlantshafsbandalaginu lýstu þvl afdráttarlaust yfir aö árás á eina þeirra væri sama og árás á þær allar. I þessari yfirlýsingu er kjarni bandalagsins sem varnarsam- taka þjóöa þess fólginn. Með tilkomu bandalagsins og I krafti fyrrnefndrar yfirlýsing- ar var sókn kommúnista I Vest- ur-Evrópu stöðvuð — a.m.k. I bili. Innbyrðis deilur þjóöa At- lantshafsbandalagsins um rétt til fiskveiða á tilteknum haf- svæöum eru annars eölis og verða ekki ræddar hér. Dvöl varnarliösins i landinu er svo annar þáttur I öryggis- málum landsins. Eins og kunn- ugt er kom þaö hingaö i tengsl- um viö Kóreustrlöiö áriö 1951. Var það skoöun margra þá að sá neisti gæti áöur en varöi oröiö aö alheimsbáli. Sem betur fór varö svo ekki. Hins vegar varö sú skoðun ofan á aö varnarliöiö dveldi hér á- fram og ræki hér eftirlitsstöö sem hlekk I varnarkeöju vest- rænna þjóöa, yröi eins fámennt og frekast væri unnt, hefði af- girt svæöi út af fyrir sig og skipti sér á engan hátt af innan- rikismálum Islendinga. Þetta er sú stefna sem Al- þýöuflokkurinn og reyndar aör- ir fylgjendur Atlantshafsbanda- lagsins hafa fylgt og frá henni hefur ekki veriö hvikaö. Nú gerast þær raddir hins vegar æ háværari sem krefjast vilja ákveöins gjalds fyrir varn- arsamstarfið. Hefur eitthvað breytzt sem réttlætir sllka stefnubreytingu? Er eöli og inntak þessa varn- arsamstarfs annaö nú en þaö var i upphafi? Ekki fæ ég séö að svo sé. Hér er um að ræöa gagn- kvæma samvinnu þeirra þjóba sem Atlantshafsbandalagið mynda til varöveizlu þess frels- is og þeirra mannréttinda sem þær fyrir enga muni vilja glata. Ef viö viljum halda reisn okk- ar eigum við að taka þátt I þessu samstarfi meö þaö eitt I huga aö tryggja öryggi og framtíð þjóöarinnar, en ekki til þess aö græöa peninga. Nú risa hins vegar upp spá- menn — og eru ráðherrar og al- þingismenn i hópi þeirra — sem vilja fara aö verzla með ör- yggismál þjóðarinnar i anda aronskunnar. Heiöursmenn þessir segja sem svo: Ef þiö, kæru Banda- rikjamenn, leggið fram nægi- lega marga milljarða til vega, hafna og flugvalla megiö þiö vera hér áfram, en ef þiö gerið þaö ekki, þá snautiö heim, þá er engin þörf á dvöl ykkar hér til starfa að varnar- og öryggis- málum vestrænna þjóða. Er hægt aö hugsa sér öllu meiri lágkúru? Ég efast um þaö. Hvar endar slik pólitik? Hvað kemur næst? Þaö er i hæsta máta óeðlilegt, óráðlegt og ber átakanlegan vott um skort á þjóöhollustu að þiggja ems konar mútur af varnarliöinu sem hingað er komið og dvelur hér samkvæmt okkar ósk og með okkar sam- þykki. Var þaö kannski tilgang- urinn meö öllu saman? Væri nú ekki nær aö taka öll þessi mál til rækilegrar endur- skoöunar, finna þeim e.t.v. nýj- an farveg i samvinnu viö nær- liggjandi þjóöir við Noröur-At- lantshaf, svo sem Norömenn og Kanadamenn? Núverandi skipan þessara mála þarf ekki aö vera sú bezta, ef á annaö borö er nauösynlegt aö hafa samstarf viö aðrar þjóö- ir um öryggismál þjóðarinnar. Þvi miöur eru allar horfur á nauðsyn slikrar samvinnu enn um sinn og má I þvi sambandi minna á sistækkandi flota Ráö- stjórnarrikjanna á hafinu kringum landið. En umfram allt þarf og verö- ur slik samvinna i viökvæmustu málum þjóöarinnar aö byggjast á heiöarleika og gagnkvæmri virðingu, en ekki gróöahyggju og mútuþægni. Guðmundur Magnússon.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.