Alþýðublaðið - 27.07.1976, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 27.07.1976, Qupperneq 4
4 IÞRÚTTIR Stórstjörnur til íslands Sem kunnugt er kemur sovézkt fimleikafólk hingað til lands, í byrjun næstu viku. 1 fiokknum eru ellefu manns og þeir ekki af lakara taginu. Sovétmenn senda hingað flest af sinu bezta fimleikafólki. Frægastar eru þær Nelli Kim og Maria Filatova en hún er aðeins 14 ára gömul og 1,37 m á hæð. Tveir af keppendunum eru „akrobatar”. Það eru þeir Vladimir Korchin sem er 29 ára og Anatoli Lavrenkov sem er 30 ára. Báðir eru þeir nýorðnir sovézkir meistarar. Maria Fiiatova, yngst sovézka fimleikafólksins, sem hingað kemur. Guilverðlaunahafi á Olympiuleikunum i Montreal. Sjö af niu í Ol.-Iiði USSR 1 liðinu eru fimm stúlkur og eru þær allar úr sovézka fim- leikaliðinu sem vann gullverð- launin i Montreal i siðustu viku. Karlmennirnir i liðinu, sem hingað kemur, voru i liði Sovét- rikjanna sem hlaut silfurverö- launin á 01 að einum undan- skildum, sem mun hafa verið varamaður. Karlaliðið var að- eins broti úr stigi á eftir Japön- um, sem sigruðu. Hér á eftir verða talin upp nöfn þeirra sem hingað koma fyrirutan „akrobatana” sem að framan var getið: Nelli Kim.hún er 18 ára og hefur unnið til fjölda titla. Tvenn gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun á Ólympileikun- um. Bikarhafi Sovétrikjanna 1976. Hún var i liði Sovétrikj- anna sem vann Evrópu- meistaratitilinn i flokkakeppn- inni. Elvira Saadi, 23 ára. Hún hef- ur verið i heimsmeistaraliði Sovétrikjanna og eins og stöllur hennar i 01 liði Sovétrikjanna, þá er hún verðlaunahafi frá Sovétmeistaramótinu 1976. Svetlana Grazdova, 16 ára. Hún kemur hingað með Sovét- meistaratitil upp á vasann. Hún skaut aftur fyrir sig ekki ó- merkari konum en Lyudmilu Tourischevu og Olgu Korbut. Svetlana er sögð mjög góð i sky lduæfingunum. Maria Filatovaer 14ára. Hún ásamt hinni rúmensku Nadiu Comanecu hafa vakið hve mesta athygli áhorfenda á 01- leikunum. Filatova er nú tali mesta fimleikaefni i heiminum. A Sovétmeistaramótinu hlaut hún verðlaun. Hún var önnur á alþjóðlegu fimleikamóti sem fréttamenn stóðu fyrir. Irina Davina, 16 ára. Hún er fimleikameistari Sovétrikjanna i nútima fimleikum. Hún var sigurvegari á mjög sterku al- þjóðlegu fimleikamóti sem sjónvarpsstöðvar i Evrópu héldu. Gennadi Krysin 18 ára. Hann var i silfurliðinu i Montreal og er margfaldur verðlaunahafi i Sovétrikjunum. Vladimir Marchenko er 24 ára. 1 01-liðinu i Montreal. Verðlaunahafi i Riga 1976 og þar að auki margfaldur verðlauna- hafi I heimalandi sinu. Vladimir Sofronov, 25 ára. 1 Ol.-liði Sovétrikjanna i Montre- al. Varðannará fimleikamótinu i Riga 1976. Auk þess margfald- ur verðlaunhafi. Alekcander Tkachev, 18 ára. Hann varð unglingameistari Sovétrikjanna 1976. Er i lands- liði lands sins og var varamaður i ólympiuleikunum. Þrjár sýningar A blaðamannafundi sem Fim- leikasambandið hélt i gær i til- efni komu sovézka fimleika- hópsins sagði Asgeir Guðmundsson formaður, aö þeir hefðu leitað til Sovétmanna fyrir um ári siðan. Asgeir sagði að sovézka sendiráðið heföi verið mjög hjálplegt við að reyna að fá fim- leikafólkið hingað til lands. Það að 01-leikarnir fara nú fram i Montreal og hve FSI hefði skrif- að snemma út hefði, að sögn As- geirs, ráðið úrslitum um að þetta fólk kæmi hingað til lands. Hér verða haldnar þrjár sýn- ingar allar i Laugardalshöllinni. Fyrsta sýningin verður þriðju- daginn 3. ágúst önnur sýning á miðvikudaginn og siðasta sýn- ingin verður svo á föstudaginn 6. ágúst. Allar byrja sýningarn- ar kl. 20.30. Forsala aðgöngumiða fer fram i Laugardalshöllinni á morgun, miðvikud., fimmtud., og á föstudag frá kl. 17.00 til kl. 19.00. Það má fullyrða að þetta er stærsti iþróttaviðburður ársins ef ekki lengra aftur i timann. Nú gefst islenzkum áhorfendum tækifæri á.að sjá það bezta sem þekkist i fimleikum i heiminum. Framarar gerðu jafn- tefli upp á Skaga Framarar og Skagamenn deildu með sér stigunum i leik á laugardag uppi á Skipaskaga. Var leikurinn nokkuð vel leikinn og skemmtilegur. Skagamenn voru sterkari að- ilinn i fyrri hálfleik. Snemma i leiknum skoraði Karl Þórðarson mark fyrir Skagamenn. Var það fast skot af nokkuð löngu færi og kom i Framara á leið inni i mark- ið, þannig að það truflaði Arna markvörð. Kristinn Jörundsson jafnaði' siðan á 15. minútu i siðari hálfleik með skalla. Skagamenn voru öllu nær sigri i þessum leik, en ekki er hægt að segja aö jafnteflið hafi verið ó- sanngjarnt. I. DEILDIN NU 0PIN I ENDfl Nú hefur aldeilis opnast bar- áttan á toppinum í 1. deild Keflavikingar unnu Valsmenn nefnilega i Keflavík I gær. Komu þau úrslit mjög á óvart, þar sem Vaismenn hafa ekki tapaft leik til þe ssa- og auk þess hafa Sufturnesjamenn átt mjög lélega leiki aft undanförnu. Valsmenn áttu öllu meira i leiknum, en þeir Einar Gunnars- son og Þorsteinn Ólafsson áttu góöan leik og gáfu hinum sókn- djörfu Valsmönnum ekkert eftir. Mark Keflvikinga kom á 15. minútu i siðari hálfleik og var þar Steinar Jóhannsson aö verki eftir góöan undirbúning Jóns Ólafs Jónssonar. BAÐfl Hjá Keflvikingum voru Einar og Þorsteinn beztir, sem fyrr segir en beztir Valsmanna voru þeir Siguröur Dagsson og Ingi Björn Albertsson. Þriðjudagur 27. júlí 1976. biS&ð' Úrvalsliðin valin I gær boðaði KSI til blaðamannafundar. Tilefnið var að kynna þau tvö úrvalslið sem hér munu leika gegn Southamton nú í þessari viku. Þá var einnig á fund- inum skýrt f rá fyrirhugaðri landsliðskeppni 14 -16 ára sem hér verður háð. Alþ.bl. mun síðar skýra frá þeirri keppni. I Reykjavík og á Akureyri Eins og fram hefur komið i fréttum mun Southamton leika hér tvo leiki, annan i Reykjavik á fimmtudagskvöldið kl. 20.00, en hinn á Akureyri á föstudagskvöldið kl. 19.30. Úrvalslið KSt sem leika mun gegn „Dýrlingunum” i Reykjavik veröur skipað eftirtöldum mönn- um: Arni Stefansson, Sigurður Dagsson, Viðar Halldórsson, Marteinn Geirsson, Öttó Guðmundsson, Jón Pétursson, Ingi Björn Albertsson, Atli Eðvaldsson, Ólafur Júliusson, Elmar Geirsson, Hermann Gunnarsson, Guðmundur Þorbjörnsson, Sigurður Indriðason, Gisli Sigurðsson, Magnús Bergs, Vilhjálmur Kjartansson og Kristinn Björnsson. Lið það sem mæta mun ensku bikarmeisturunum fyrir norðan verður þannig skipað: Arni Stefánsson, Sigurður Dagsson, Ólafur Sigurvinsson, Jón Gunnlaugsson, Einar Þórhalls- son, Janus Guðlaugsson, Karl Þórðarson, Arni Sveinsson, Teit- ur Þórðarson, Halldór Björnsson, Asgeir Eliasson, Hinrik Þórhalls- son, Rúnar Gislason, Hörður Hilmarson og Ólafur Danivals- son. Atta úr Val I úrvalsliðinu sem leika mun i Reykjavik verða átta leikmenn úr Val og þar á meðal markaþrenn- ingin, Hermann, Guðmundur og Ingi Björn. Á blaðamannafundinum kom fram að ekki reyndist unnt að fá atvinnumennina til leikjanna. Og þar sem ekki var hægt að stilla upp okkar sterkasta liði var þvi ákveðið að gefa sem flestum kost á að spreyta sig. Tony Knapp sagði á fundinum að þarna gæfistöllum okkar beztu knattspyrnumönnum tækifæri á að sýna getu sina hvað i þeim byggi. Við þann hóp sem keppa mun á Akureyri eiga e.t. eftir að bætast við nokkrir.leikmenn. jeg Breiðablik vann KR, 1-0 Ásunnudaginn áttust við i 1. deildinni, KR-ingar og Breiðablik úr Kópavogi. Fór leikurinn fram á Laugardalsvel li. Úrslit leiksins urðu þau, að Blik- arnir sigruðu með einu marki gegn engu. Blikarnir betri í fyrri hálfleik léku Blikarnir undan golunni. Voru þeir mun betri aðilinn i hálfleiknum, fljótir á boltann, ákveðnir og náðu auk þess oft upp gullfallegu spili. KR- inga vantaði hins vegar þann bar- áttuvilja, sem gefiö hefur liðinu stig og mörk i sumar. KR-ingar áttu sárafá færi og voru þeir mest litið með knöttinn. UBK-menn aftur á móti börðust eins og ljón, og gekkboltinn hratt og vel á milli hjá þeim á stundum. En þegar þeir komu að vitateig andstæðinganna, fór allt i handa- skolum hjá þeim. Virtust þeir ekki vita hvernig reka ætti enda- hnútinn á sóknir sinar. Fá tækifæri Af þessum orsökum voru mark- tækifærin i hálfleiknum harla fá. Leikurinn var samt ekki beinlinis leiðinlegur og var það að mestu leyti aö þakka fallegu spili, sem oft á tiðum sást hjá Blikunum. Seinni hálfleikur I seinni hálfleik snerist dæmið við. KR-ingar voru nú sneggri og áhugasamari en i fyrri hálfleik. Virtist einnig sem mesti vindur- inn væri úr Kópavogsmönnunum. Fór nú að bera meira á lang- spyrnum út i loftiö hjá þeim, en þá leikaöferö kunni vesturbæjar- liðiö vel að meta. Fóru þeir nú aö sækja nokkuð stift og sköpuðu sér allsæmileg færi. Ekki var samt mikill broddur i sókn KR-inga, og virðist fjarvera Jóhanns Torfasonar hafa haft slæm áhrif á sóknina. Sá, sem mest bar á i sókninni, var Björn Pétursson. Litiö bar á Hálfdáni örlygssyni, sem er lagnasti mað- ur KR liðsins. Kom á óvart Eftir að nokkuð lengi haföi legið á Blikunum, kom á óvart þegar þeir skoruðu. Markið kom á 35. minútu. Var þar að verki Heiöar Breiðfjörð. Átti hann hálfmis- heppnað skot úr góðu færi og skoppaði boltinn yfir Magnús Guðmundsson i marki KR-inga. Kom Heiðar nokkuð mikið við sögu þessa leiks, þvi skömmu sið- ar var hann bókaður, fyrir að brjóta af sér og mótmæla siðan dómnum. Liðin Blikarnir komu nokkuð á óvart, einkum i fyrri hálfleik. Þeir reyndu að leika vel saman og börðust allan timann. Þeir voru fljótari á alla bolta, léku fast án þess að vera grófir. Einna beztir voru þeir Einar Þórhallsson, bróðir hans Hinrik og Gisli Sigurðsson. Tveir þeir siðar- nefndu reyndu þó á stundum að gera meira en þeir gátu. Ef Blik- arnir fá mann, sem getur rekiö endahnútinn á sóknir þeirra, geta þeir orðið hættulegir hvaða liði sem er. Sigur þeirra á sunnudag- inn var ekki óverðskuldaður, en jafntefli hefði verið sanngjarnast. KR-ingar komu einnig nokkuð á óvart i þessum leik. Baráttuvilji þeirra og leikgleði, sem hefur fleytt þeim i gegnum marga leiki, sást ekki i þessum leik. KR-ingar eru undarlega lausir við að reyna aö leika saman. Þeirra leikaðferð er sú, að sparka knettinum nógu fast og nógu langt fram. Svo er aðeins að vona, að þar sé staddur einhver KR-ingur sem á siðan aö hlaupa eins og brjálaður maður. Slika knattspyrnu er ekki gaman að horfa á. Beztir i KR-liðinu á sunnudaginn, voru, að vanda, þeir Halldór Björnsson og Ottó Guðmundseon og i sókninni var Björn Pétursson skæðastur. Dómari leiksins var Óli Olsen og dæmdi hann sæmilega. ATA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.