Alþýðublaðið - 27.07.1976, Síða 7
VIDHORF 7
Snarpar orðahnippingar vegna
ferða Alþýðuflokksfólks til Eyja:
„betlikerlingar A
FERД SEGIR DAGSKRA
OPIÐ BRÉF TIL RIT-
STJÓRANS HEFUR
EKKI VERIÐ BIRT
Blaöiö Dagskrá í Vestmannaeyjum birti forsíöu-
grein 16. júli síðast liðinn, þar sem f jallaö er um ferð
Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur til Vestmannaeyja.
Greinin var birt undir fyrirsögninni //Betlikerlingar á
ferö". Hún er á þessa leið:
Um seinustu helgi sóttu Eyj- Alþýðuflokknum. Hvernig sem
arnar heim fjöldi fólks af
„meginlandinu” og notuðu
margir tiðar ferðir Herjólfs á
laugardegi og sunnudegi. Það
vakti nokkra athygli og furðu,
að eitt pólitiskt félag auglýsti
sérstaklega helgarferðir
Herjólfs, þessa fyrstu helgi,
sem hann átti ferð milli Eyja og
Hafnar. Gekk þetta svo langt að
sögn farþega, að fólk sem
hingað ætlaði að koma til að
heimsækja ættingja og vini um
leið og það reyndi hið nýja skip,
varð af tvennu illu að leita á
náðir Alþýðuflokksins, svo það
allra náðarsamlegast kæmist til
Eyja. Með þessu fyrirkomulagi
mun Alþýðufokknun hafa tekizt
það sem þeir ætluðu sér, en það
er að gripa fyrstu helgarferð
skipsins og geta svo flaggað
með „góðri þátttöku” i sumar-
ferð Alþýðuflokksins til Eyja.
Helztu forkólfar flokksins hér
létu sitt ekki eftir liggja og var
gaman að fylgjast með
„alþýðubrosinu” þeirra og litil-
látlegum skrifum í Alþýðu-
blaðinu. Að sjálfsögðu fylgdu
þessu eftir helztu „agitatorar”
flokksins, og munu fljótlega
hafa brugðið sér hér i Eyjum i
gervi betlikerlinga og sent út
um bæinn betlibréf til styrktar
á þvi stendur hafa þeir i klaufa-
skap sinum eða fávizku sent
ábyrgaðmanni DAGSKRÁR
eitt slikt.
Til að veita lesendum DAG-
SKRAR svolitla innsýn i vinnu-
brögð þessa flokks, leyfum við
okkur að birta hér glefsur úr
bréfinu:
„A siðastliðnu hausti var
stofnað i Reykjavik félag, sem
hlaut nafnið — Styrktarmanna-
félagið — Ás.
Eins og segir i hjálögðum
lögum félagsins er tilgangur
þess, ,,Að styðja og efia starf-
semi Alþýðuflokksins.
Felagið var stofnað af fólki
hvarvetna af landinu.
Fyrir hönd stjórnar félagsins
leyfi ég mér að senda þér lög
féiagsins og frimerkt umslag
með óútfylltri inntökubeiðni,
sem stjronin væntir, að þú út-
fyllir og sendir til baka”.
Seinna verður þér svo sendur
reikningur (giróseðill) fyrir þvi
árgjaldi, sem þú samþykkir að
greiða.
Samkvæmt lögum félagsins
eru 6.000,00 kr. lágmarks ár-
gjald. Við sendum þér þrjá
miða, ef þú kynnir að vita um
einhverja aðra, sem gerast
vildu styrktarmenn félagsins.”
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Dagskrár er Hermann
Einarsson. — Reynir Guðsteinsson, skólastjóri í Vest-
mannaeyju/ ritaði honum bréf og var þaö svar við
fyrrnefndri grein. Þetta bréf hefur enn ekki birzt í
Dagskrá/ og hefur Alþýðublaðinu verið sent það til
birtingar. Það fer hér á eftir:
Kæri Hermann.
Þótt reynsla annarra hafi
sýnt, að tilgangslitið sé að senda
þér greinarstúf til birtingar i
blað þitt, ef snefill af gagnrýni á
þina merku persónu eða blaðið
er þar að finna, — þú virðist
ekki þola gagnrýni sjálfur, þótt
þú gagnrýnir aðra látlitið og
ótæpilega þá ætla ég nú að láta
reyna á það i þetta sinn, og sjá
menn þá endanlega hvort hið
„óháða” blað þitt kafnar ekki
undir þvi nafni.
Fer ég þess á leit við þig að þú
birtir bréf mitt til þin, án
afbökunar eða „gleraugna-
leturs” i næsta tölublaði
Dagskrár.
Ef þú ert of viðkvæmur til þess
mun ég áreiðanlega hafa ein-
hver ráð önnur til að koma
þessu bréfi til þin á framfæri,
enda er það öllum opið.
Tilefni þess er, eins og þú
getur nærri, illkvittnisleg og
alls ósönn frásögn blaðs þins
(þin eigin ritsmið) um heim-
sókn Alþýðuflokksfólks og gesta
þeirra helgina 10. og 11. júli.
Þetta er að visu ekki i fyrsta
sinn, sem þú berð á torg tilfinn-
ingar þinar gagnvart Alþýðu-
flokknum. Einstaka fylgismenn
hans virðistu að auki vera
kominn með á heilann, eins og
Magnús H„ enda hefur það ekki
farið fram hjá neinum frá þvi þú
varst fyrir þvi áfalli að falla i
bæjarstjórnarkosningunum
1970, fyrir frambjóðenda
Alþýðuflokksins, að þú ert bæði
heiftrækinn og langrækinn.
Ég hef að vísu aldreí gælt víð
þá hugmynd, að þú dillaðir
okkur i blaði þinu i sama mæli
og þú dillaðir Sigfinni, þann
stutta tima, sem þér yar það
fært, en tæpast óraði nokkurn
fyrir þvi að þú létir eins og
skrattinn sjálfur væri að ásækja
þið, i hvert sinn sem Alþýðu-
flokksmaður hætti sér inn fyrir
radius skilningarvita þinna.
Látum það vera, þótt þú sért
óþreytandi við að kasta skit i
okkur, sveitunga þina, sem
vitum ástæðuna fyrir óvild
þinni.
Við erum ekkert að erfa við
þig þennan skapbrest, þótt
leiður sé, að þola ekki að biða
lægri hlut i lýðræðislegum kosn-
ingum. Menn eru misstórir i
sniðum. En að vera að kasta
skit i gesti sem hingað koma i
heimsókn, jafnvel þótt á vegum
Alþýðuflokksins sé, finnst mér
vera fyrir neðan allt velsæmi.
Hefur þetta ágæta fólk, sem
margt var að heimsækja Vest-
mannaeyinga, sem það skaut
skjólshúsi yfir i gosinu gert þér
eitthvað?
Ertu svo blindaður af óvild,
að þeir mannasiðir, sem þú
lærðir i æsku, svo ekki sé talað
um venjulegar siðareglur blaða-
manns, að flytja sannar fréttir i
stað lygi, mega sin einskis,
þegar hefndarþrá þin þarf að fá
útrás.
Illa er komið rómaðri gest-
risni okkar Eyjamanna, ef
hópar sem hingað koma eiga
von á slikum kveðjum sem,
þinum. Sem betur fer eru þær
einsdæmi.
Það er reyndar vissa min, að
Vestmannaeyingar munu taka
vel á móti hverjum þeim hópi
landa okkar, sem hingað,
kemur, jafnvel þótt þeir yrðu að
umbera það að sálufélagar
þinir, ef einhverjir eru, yrðu þar
á meðal.
Alkunn forvitni þin virðist
ekki hafa hrokkið til við að afla
réttra upplýsinga um ferðir
Herjólfs umrædda helgi.
Hið rétta er að Herjólfur átti
að fara tvær áætlunarferðir
hvorn dag, en var fenginn til
þess að fara sérstakar auka-
ferðir (leiguferðir) með þá tvo
hópa manna, sem virðast hafa
sett taugakerfi þitt úr skorðum.
Þessar ferðir voru ekki
áætlunarferðir.
'Aætlunarferðir voru auðvitað
einnig farnar eins og útgerðin
hafði auglýst. Skipið fór þvi
fjórar ferðir i stað tveggja, eins
og áætlun gerði ráð fyrir.
Tæpast hefur það hindrað fólk i
að heimsækja ættingja og vini,
nema siður væru. öllum var
frjálst að koma með skipinu
þessar ferðir. Það eru ómerki-
leg ósannindi, að fólk hafi orðið
að skrá sig i gegnum
Alþýðuflokkinn til þess að kom-
ast með þessum aukaferðum.
1 hópferð Alþýðuflokksfélag-
anna voru liðlega 700 manns
(þörn meðtalin). Svo báðar
leiðir flutti skipið um 1400 far-
þega á vegum flokksins þessa
tvo daga. I sömu aukaferðum
flutti skipið 365 aðra farþega,
sem greiddu fargjöld sin með
venjulegum hætti.
Alþýðuflokksfélögin þurftu
þvi ekkert á þvi að halda að
„flagga” með þessa farþega,
þátttakan var nógu glæsileg
samt. Það hefur greinilega
komið við kviku i þér. Að ein-
hver hafi logið einhverju öðru i
þig eins og þú segir, trúi ég ekki.
Hópurinn sem fór hér i göngu-
ferðir leyndi sér ekki. Þú hlýtur
að hafa séð hann. Hann var alls
staðar um bæinn.
Um betlikerlingar.
Betlikerlingahjal þitt læt ég
mér i léttu rúmi liggja. Fyrir-
sögn þin gefur lesendum þinum
ástæðu til að ætla að þú hafir
talið fólk þetta fylla þann flokk.
Það verður auðvitað að vera þitt
mat, en tæplega held ég að
nokkur heimamaður annar
hefði haft smekk til þess að
draga sómamenn eins og Þor-
vald Sæmundsson i dilk með
betlikerlingum.
Án þess að v-ita um öll afrek
þin, fullyrði ég að þú komst
aldrei með tærnar þar sem hann
hefur hælana.
Fjármálastarfsemi stjórn-
málaflokka flettast inn i frásögn
þina. Ég þakka þér fyrir að
vekja athygli á þvi hvernig Al-
þýðuflokkurinn starfar fyrir
opnum tjöldum á þvi sviði —
það er vist nógu margt unnið i
skúmaskotum á þeim vettvangi,
ef marka má frásagnir blaða.
Þeir sem fylgja stjórnmála-
flokkum greiða með gleði fram-
lög þeim til framdráttar. Hafir
þú aldrei innt slikar greiðslur af
höndum meðan þú rúmaðist
innan viðra veggja Fram-
sóknarflokksins, ertu niskari en
ég hélt.
Hafir þú fengið bref frá
Styrktarmannafélaginu Ás. sem
fyrst og fremst er ætlað flokks-
bundnum Alþýðuflokksmönn-
um, er þar hvorki um að ræða
„fávizku eða klaufaskap”.
Einhver flokksbundinn
hrekkjalómur hefur sent þér
þetta bréf af einskærri ertni. ser
til gamans.
Af viðbrögðum þinum geta
allir séð að hrekkjabragðið hef-
ur heppnast fullkomlega. Skotið
hefur hæft þig beint i hjartastað
og áreiðanlega hlær gárunginn
dátt að þér. Það er ekki svo oft
sem menn gefa tilefni til al-
menns aðhláturs!
Hollráð að lokum.
Þetta er nú orðið lengra en ég
ætlaði upphaflega. en ég held.
Hermann minn góður, að þú
sérlærður i sálar- og uppeldis-
fræðum. hljótir að gera þér
grein fyrir þvi að þetta viðhorf
þitt til okkar Alþýðuflokks-
manna er tæpast eðlilegt and-
legt ástand. Alþýðuflokkurinn
er orðinn að króniskri þrá-
hyggju hjá þér, slikt ástand er
óhollt til lengdar.
Ég ráðlegg þér þvi að leita þér
bata við þessu og að minu viti
áttu aðeins um tvær leiðir að
velja.
Að ganga i Alþýðuflokkinn
eða leita lækninga við þessu.
Okkar vegna sem erum i Al-
þýðuflokknum og ætlum að vera
þar áfram. vona ég að þú takir
seinni kostinn.
Með kveðju,
Revnir Guðsteinsson.
sEííir
Þriðjudagur 27. júlí 1976.