Alþýðublaðið - 19.08.1976, Síða 14
14 FRÁ MORGNI
Fimmtudagur 19. ágúst 1976 ssssr
Útvarp
FIMMTUDAGUR
19. ágúst
7.00 Morgunútvarp. Veöurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl.
7.30, 8.15 (ogforustugr. dagbl.),
9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.
55. Morgunstundbarnannakl.
8.45: Ragnar Þorsteinsson les
„Útungunarvélina” eftir
Nikolaj Nosoff (9). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriöa. Viö sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson sér
um þáttinn. Tónleikar. Morg-
untónleikar kl. 11.00: Gyorgy
Sandor leikur Pianósónötu nr. 4
i c-moll op. 29 eftir Sergej
Prokofjeff/Lucienne Devallier
syngur sex Ljóðsöngva við
gömul þýzk ljóð op. 29. eft-
irWalter Courvoisier/Juillard
kvartettinn leikur Strengja-
kvartett nr 2 eftir Béla Bartók.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Til-
kýnningar. A frfvaktinni,
Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miödegissagan: „Blómið
blóðrauða” eftir Johannes
Linnankoski Axel Thorsteinson
les (13).
15.00 Miðdegistónleikar Jascha
Heifetz og Filharmoniusveit
Lundúna leika Fiðlukonsert i d-
moll op. 47 eftir Sibelius: Sir
Thomas Beecham stjórnar.
Filharmoniusveitin i Moskvu
leikur Sinfóniu nr. 1 i es-moll
eftir Rodion Schedrin: Nikolaj
Anosoff stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir). Tónleikar.
16.40 Litii barnatiniinn. Finnborg
Scheving hefur umsjón með
höndum.
17.00 Tónleikar.
17.30 „Áttabarningur”, smásaga
eftir Sigurð Ó. Pálsson.
Höfundur les.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45. Veðurfregnir. Dagskrá-
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Nasasjón. Arni Þórarinsson
og Björn Vignir Sigurpálsson
ræða við Alfreð Flóka mynd-
listarmann.
20.10. Gitarleikur I útvarpssal:
Snorri örn Snorrason leikur-í-
gitarverk eftir Turina, Brouw-
er og Albeniz.
20.30 Leikrit: „i skuld við skratt-
ann” eftir Seamus Fail.
Þýðandi: Óskar Ingimarsson.
Leikstjóri: Steindór Hjörleifs-
son. Persónur og leikendur:
Fróði/ Gisli Halldórsson, Lilja/
Hrönn Steingrimsdóttir, Sá
ókunni/ Jón Sigurbjörnsson,
Ragnhildur/ Briet Héðinsdótt-
ir, Rósamunda/ Guðrún As-
mundsdóttir, Lögregluþjónn/
Guðmundur Pálsson, Nornin/
Herdis Þorvaldsdóttir, Vig-
lundur/ Knútur R. Magnússon,
Hagbarður/ Ævar R. Kvaran.
21.15. „Hnotubrjóturinn” ballett-
svita eftir Tsjaikovský.
Sinfóniuhljómsveitin i Málmey
leikur: Janos Furst stjórnar.
21.40 Skottið á skugganum.
Kaútur R. Magnusson les úr
ljóðabók Sigurðar Nordals.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsagan:
„Mariumyndin” eftir Guð-
mund Steinsson, Kristbjörg
Kjeld leikkona les (6).
22.40 A sumarkvöldi. Guðmundur
Jónsson kynnir tónlist um haf-
ið.
23.30. Fréttir. Dagskrárlok.
I
í útvarpinu í kvöld:
Leikur frá Irlandi
Að venju er á dagskrá út-
varpsins I kvöld leikrit. Að
þessu sinni verður flutt leikrit
Seamus Fail „ I skuld við
skrattann”. Þýðinguna gerði
Óskar Ingimarsson en leikstjóri
er Steindór Hjörleifsson. Með
helztu hlutverk fara þau GIsli
Halldórsson, Hrönn Steingríms-
dóttir, Jón Sigurbjörnsson, Bri-
et Héðinsdóttir og Guðrún Ás-
mundsdóttir.
Fáfróöir en hjartahlýir
„í skuld við skrattann” er
gamanleikur. Hann gerist I af-
skekktri sveit á írlandi. Ibúarn-
ir eru fáfróðir og trúa á hvers
kyns hindurvitni, en einlægir og
hjartahlýir, að minnsta kosti á
yfirboröinu.
Héraöslækninum þykir sopinn
góður og hann er ófeiminn við
Frá æfingu á leikritinu „t skuld við skrattann” Briet Héðinsdóttir,
Hrönn Steingrimsdóttir og Ævar R. Kvaran.
Tveir góðkunningjar íslenzkra leikritaunnenda, Guö-
mundur Pálsson og Gísli Halldórsson, við upptöku á
leikritinu sem er á dagskrá útvarpsins í kvöld.
aö blanda kröftug lyf handa
sjúklingum sinum. En dag
nokkurn fær hann heimsókn,
sem kennir honum, að það er
betra að fara varlega.
1 leikritinu skopast höfundur
óspart að ýmsu I fari landa
sinna, en ljóst er að gamni hans
fylgir nokkur alvara. Seamus
Fail er litt kunnur hér á landi,
og þetta er fyrsta leikritið sem
útvarpiö flytur eftir hann.
Útsending hefst klukkan hálf
nlu I kvöld og stendur I þrjú
korter.
jeg.
Útvarp kl. 19,30:
Nasa-
sjón
af
Flóka
Að loknum fréttum og til-
kynningalestri i kvöld er þáttur-
inn „Nasasjón” I umsjón þeirra
Björns Vignis Sigurpálssonar og
Arna Þórarinssonar.
í þessum þætti munu þeir
ræða við Iistamanninn Alfreð
Flóka. Ekki er að efa að gaman
verður að hlusta á þátt þeirra
félaga.
Þessir þættir „Nasasjón”
hafa hingað til verið meö þvi
áheyrilegra sem útvarpið hef-
ur boðið uppá. Hafa þættirnir
verið einstaklega vel unnir og
borið merki þess að höfundar
leggi mikla vinnu I gerð þeirra.
jeg
IMI
K0STAB0Ð á kjarapöllum KJÖT & FISKUR B reiðholti í TROLOFUNARHRINGA Joliiiimrs lcifsson W0 lUuiwUr(Tl 30 &III1I 19 209 L - Birgir Thorberg málarameistari simi 11463 önnumst alla málningarvinnu
f§§): Dúnn Síðumúla 23 /ími 94900 Heimiliseldavélar, S litir - 5 gerðir Yfir 40 ára reynsla
Sími 74200 — 74201 ' Rafha við Oðmstorg Simar 25322 og 10322 — úti og inni — gerum upp gömul hútgögn >
I