Alþýðublaðið - 25.08.1976, Síða 16
Ekki hægt að móta
söluna með tilliti
til smáverzlananna
— segir formaður Kaupmannasamtakanna
Eins og Alþýðublaöiö hefur
greint frá, gætir nú nokkurrar
óánægju meðal smákaupmanna
vegna væntanlegrar lokunar
mjólkurbúða. Segjast margir
þeirra þess fullvissir að þessar
aðgerðir miði einkum aö þvi að
beina viðskiptum til stærri
verzlananna, þ.e.a.s. þeirra,
þar sem aðstaða er til mjókur-
sölu. „Kaupmaðurinn á horn-
inu” verði þvi aö sætta sig við að
horfa á eftir gömlum viðskipta-
vinum inn um dyr stórverzlan-
anna i nágrenninu án þess að fá
rönd við reist.
Gunnar Snorrason formaður
Kaupmannasamtaka Islands
sagði i viðtali viö blaöið I gær,
að hann hefði ekki heyrt margar
óánægjuraddir varðandi þetta
mál. Aö visu hlytu slikar að-
gerðir alltaf að koma við ein-
hverja, a .m.k. til að byrja með,
en menn vonuöust tii að það yrði
aðeins um byrjunarörðugleika
að ræða.
„Við gerum allt sem við get-
um til að hvetja þá kaupmenn
sem hafa aðstöðu, til að taka
mjólkina inn, sagði Gunnar enn
fremur Viö vitum að mestu
vandamálin skapast þar, sem
mjólkurbúðin er ekki við hliðina
á verzluninni, en viðsjáum okk-
ur ekki fært að móta sölu vör-
unnar með tilliti til nokkurra lit-
illa verzlana.
Við höfum fram til þessa
dreift ýmsum landbúnaðarvör-
um og okkur finnst það ekki
nema eðlilegt að mjólkin sé
tekin meö úr þvi að hún er orðin
svo vel innpökkuð sem raun ber
vitni. Þáð hljóta allir að vera
sammála um að sala mjólkur i
almennum verzlunum sé það
sem koma skal.
En ef einhverjar grunsemdir
eru uppi um að nú eigi að vega
að smáverzlununum, þá er það neinum á kné, sagði Gunnar
mikili misskilningur. baðer alls Snorrason formaður Kaup-
ekki ætlunin að koma einum eða mannasamtakanna að lokum.
□ 10 þúsund undirskriftir gegn lokun mjólkurbúðanna
Undirskriftasöfnunin hefur
gengið einstaklega vel og hlotiö
mjög góðar undirtektir fólks,
sagði Elisabet Bjarnadóttir
meðlimur i „Starfshóp um lok-
un mjólkurbúöa" i samtaU við
blaöiö i gær.
Nú liggja listarnir ekki ein-
ungis frammi i verzlunum,
heldur er einnig gengið með þá i
hús á kvöldin og fólki þannig
gefinn kosturá að rita nafn sitt i
mótmælaskyni gegn lokun
mjólkurbúða.”
Þá sagði Eiisabet að vitað
væri um fjölmarga full-undir-
skrifaða lista sem legið hefðu
frammi i verzlunum viðsvegar
um borgina, auk allra þeirra
undirskrifta sem safnast hefðu í
heimahúsum. Væri þvi óhætt að
áætla að nú hefðu safnast yfir
10.000 undirskriftir, en tak-
markið væri 20.000 nöfn.
„Við ætlum að haida áfram
eitthvað fram yfir næstu helgi,
sagði Elisabet, og ég vil itreka
það, að sjálfboöaliöar, fjár-
styrkir og stuðningsyfiriýsingar
eru alltaf vel þegin”
JSS
Norræn sjónvarpssam-
vinna um gervihnetti
— meðal umræðuefna á þrem norrænum þingum í Reykjavik þessa dagana
Dagana 24. og 25. ágúst eru
haldin hér i Reykjavik þrjú sam-
norræn þing á vegum menningar-
málaskrifstofu Norðurlanda.
Ráðstefnur þessar eru um nor-
ræna samvinnu á sviði sjónvarps-
og menntamála og visindarann-
sókna.
Sjónvarpssamvinna um
gervihnetti
Nefnd, sem skipuð er af ráð-
herranefnd Noröurlanda, ræðir
þessa dagana norræna sjónvarps-
samvinnu — m.a. á hvern hátt
mætti nota gervihnetti viö út-
sendingar efnis.
Ráðherranefndin ákvað i
desember 1975, að kanna skyldi
möguleika þess að senda útvarps-
og sjónvarpsefni milli Norður-
landa, með aðstoð gervihnattar.
Gert er ráö fyrir að könnun
þessi taki eitt ár og skal nefndin
skila úrskuröi snemmaárs 1977.
Meðal annars þarf að athuga
ýmis tæknileg atriði i þessu sam-
bandi, auk kostnaðar og dreifing-
ar hans á hina ýmsu aðila. Enn-
fremur þarf aö ákveða hvers kon-
ar efni samvinnan á aö ná yfir og
hvernig bezt sé að haga þessu
samstarfi.
Samvinna á sviði vis-
inda.
Samnorræn nefnd, sem fjallar
um norrænt visindasamstarf,
heldur fundi sina aö Hótel Sögu.
Islenzku nefndarmennirnir eru
prófessorarnir Jónas Kristjáns-
son og Sigurður Þórarinsson.
Sigurður Þórarinsson sagði
þessa nefnd vera ráðgefandi
nefnd um norrænt samstarf á
sviði allra greina visindanna. Nú
eru reknar samnorrænar visinda-
stofnanir viðsvegar á Norður-
löndum. Má m.a. nefna Norrænu
eldfjallastöðina I Reykjavik.
Kjarnavisindastöðina i Dan-
mörku og Asiustööina, sem einnig
er i Danmörku.
Hlutverk nefndarinnar er m.a.
að veita ýmsar ráðleggingar
varðandi þessar norrænu visinda-
stofnanir — hvort breyta eigi
starfsemi þeirra, stækka þær,
bæta fleiri stofnunum við og þar
fram eftir götunum.
Eitt af málefnum þeim, sem
rædd verða á þessari ráðstefnu,
eru rannsóknir á Atlantshafs-
botninum, hvenær timabært sé aö
hefja þær og hvernig bezt sé að
haga þeim rannsóknum.
Alls taka þátt I ráðstefnunni 12
visindamenn — 3Sviar, 3. Finnar
og 2 frá Danmörku, Noregi og
Islandi.
Skólamál á Norðurlönd-
um
Ráðstefna um norræna sam-
vinnuá sviði skólamála er haldin
i Melaskólanum.
Andri Isaksson sagði ráðstefnu
þessa vera haldna I tilefni af þvi,
að stjórnarnefnd samræmingar-
stofnunarinnar i norrænum
skólamálum heldur hér fund sinn
þessa dagana. Þetta væri gert til
að kynna starfsemi hennar og
þaö, sem ofarlega er á baugi i
skólamálum.
Alls munu um 75 islenzkir
skóla- og fræöslustjórar sitja ráð-
stefnuna, auk 10 gesta frá öðrum
Norðurlöndum.
Sagði Andri, að rætt yrði um
markmið og skipulagningu fram-
haldsskóla á Norðurlöndum,
tengsl framhalds- og grunnskóla
og samskipan sérkennslu og al-
mennrar kennslu I norrænum
grunnskólum, þannig aö sér-
kennsla yrði ekki um of aðgreind
frá almennu námi.
Siðar I haust er svo fyrirhugað
að gefa út skýrslu með upplýsing-
um um það, sem fram mun koma
á þessum fundum. AV
Hrafn Bragason skipaður umboðsdómari
tgærkvöldi kom loksins að þvi,
að sérstakur umboðsdómari var
ráðinn, til að sjá um rannsókn
ávisanamálsins fræga. Tilkynn-
ing dóms — og kirkjumálaráðu-
neytisins var svohljóðandi:
Svo sem fram hefur komið i
fréttum, hefur að undanförnu
staðið yfir frumrannsókn út af
umfangsmikilli notkun á inni-
stæðulausum tékkum, og hefur
Seðlabankinn m.a. skitað til yfir-
sakadómarans i Reykjavik
skýrslu um þetta efni. Vegna
mikils málaálags við saka-
dómaraembættið hefur yfirsaka-
dómari farið þess á leit, að sér-
stökum umboðsdómara verði fal-
in meöferö máis þessa, svo að
rannsókn þess geti farið fram
með nægilegum hraða.
Hefur ráðuneytiö fallizt á til-
mæli yfirsakadómara og hefur
Hrafn Bragason, borgardómari, i
dag verið skipaður sérstakur
dómari til að fara með rannsókn
þessa.
ATA
MIÐVIKUDAGUR
25 ÁrziiST 1976.
alþýöu
blaðiö
Heyrt: Skammt frá Kröflu
eru tveir nafntogaðir
sprengigigar, Litla-Viti og
Stóra-Viti. Nú hafa gárung-
ar fundið nafn á borholuna
frægu, sem breyttist i hver
og kallað hana „Sjálfskap-
arviti”.
o
Tekið eftir: Vegna heim-
sóknar Einars Agústsson-
ar, utanrikisráðherra, til
Tékkóslóvakiu og funda
hans með tékkneskum
starfsbróður, hefur verið
skýrt tekið fram, að engin
vandamál séu I sambúð Is-
lands og Tékkóslóvakiu. —
Islenski utanrikisráðherr-
ann heimsækir hins vegar
ekki Pólland, en samskipti
Islands og Póllands eru
ekki jafn vandræðalaus.
Pólverjar hafa margitrek-
að óskir sinar um veiöi-
heimildir innan 200 milna
landhelginnar við Island.
Þeir hafa bent á, að þeir
hafi virt útfærzluna, en Is-
lendingar hafi samið við
Breta og Vestur-Þjóðverja,
sem beitt hafi þá ofbeldi.
Arni Tryggvason, sendi-
herra Islands i Póllandi,
hefurfengið að heyra þenn-
angremjutón.en Pólverjar
eiga stóran togaraflota og
hafa veitt djúpt útaf Norð-
urlandi, t.d. grálúðu. Utan-
rikisráðherra Póllands er
væntanlegur i opinbera
heimsókn til tslands i
haust, og má ætla að hann
ræði þessi mál af mikilli al-
vöru við islenzk stjórnvöld.
o
Frétt: Að fjórir islenzkir
þingmenn sæki fund Al-
þjóða þingmannasam-
bandsins, sem haldinn
verður i Madrid á Spáni
næstu daga.
o
Lesið: I Dagblaðinu um
rannsókn Seölabankans á
g jald eyr isvi ðskiptum
vegna skipakaupa erlendis
frá: „Dagblaðiöhefur fyrir
satt að bankinn hafi óskað
eftir upplýsingum erlendis
frá um aö minnsta kosti
fimmtán skip, þ.e. kaup-
verð þeirra og greiðslu-
kjör”.
o
Heyrt: Að mikið sé nú um
það rætt að Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna
verði formlega lögð niður á
landsfundi Samtakanna i
haust. Ýmsir Samtaka-
menn séu þeirrar skoðun-
ar, að flokkurinn dreifi
krö'ftum vinstri manna
meira en ástæða sé til.
Honum hafi ekki tekizt ætl-
unarverkið að sameina
vinstri menn I einum flokki
og þvi sé grundvöllurinn
brostinn.