Alþýðublaðið - 27.08.1976, Side 16
Kona
gær-
kvöld
fannst látin í íbúð í
- Rannsóknarlögreglan leitaði vopna
A ellefta timanum I gærkvöld
fannst lik af konu I ibúö á Miklu-
braut 26 hér i borg. Konan haföi
komið i ibúð þessa til að vökva
blóm, en eigendur Ibúðarinnar
voru fjarverandi.
Þegar Alþýðublaðið fór i prent-
un var ekki ljóst hvernig konan
hafði látist, en taldar voru nokkr-
ar líkur á að áverkar hefðu verið
á likinu.
Af þeim sökum var Alþýðublað-
inu kunnugt um að rannsóknar-
lögreglan leitaði vopna, sem
hugsanlega hefðu getað orðið
konunni að bana, i nágrenninu, en
ekki tókst að fá nánari upplýsing-
ar um málið i gærkvöld. — JSS
LEIÐRETTING
VEGNA GENGISSIGS ÍS-
LENZKU KRÓNUNNAR
„Hér er ekki um að ræða
beina hækkun á fargjöldum,
heldur leiðréttingu vegna
gengissigs islenzku krónunnar
gagnvart erlendum gjaid-
miðli”. Þetta sagði Sveinn Sæ-
mundsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða, er blaðamaður innti hann
eftir þvi, hvort fyrirhugaðar
væru fargjaldahækkanir á
þessu hausti.
„Hér áður fyrr voru fargjöld
jafnan ákveðin á tveggja ára
fresti, en verðbólguþróunin hef-
ur haftþað iför meðsér, aðtaka
þarf flugfargjöld til sifelldrar
endurskoðunar. Þau flugfar-
gjöld sem i gildi hafa verið frá 1.
april voru ákveðin haustið áður,
en vegna gengissigs islenzku
krónunnar hefur gætt töluverðs
misræmis i verði hér heims og
Flugfargjöld
20% hærri eftir
1. október
erlendis. Nú er til dæmis um
40% dýrara að fljúga frá Dan-
mörku til tslands en frá tslandi
til Danmerkur.
Þaðer þetta misræmi sem nú
á að leiðrétta. Leiðréttingin hef-
ur i för með sér um 20% hækkun
i islenzkum krónum, en verð
farðseðla i erl. gjaldmiðli t.d.
BandarikjadoDurum, breytist
ekki.
Þessi leiðrétting flugfar-
gjalda mun taka gildi 1. október
næstkomandi. Nýjar gjaldskrár
varðandi breytingarnar verða
væntanlega sendar ferðaskrif-
stofum i næstu viku,” sagöi
Sveinn Sæmundsson að lokum.
AV
MS ber hönd fyrir höfuð sér:
Mj ólkursamsalan er ekki
að svíkja neytendur
— en henni ber að fara að lögum, segir Stefán Björnsson, forsljóri
I vikunni boðaði stjórn Mjólk-
ursamsölunnar til fundar með
fréttamönnum vegna mjölkur-
málsins svonefnda, en það hefur
eins og kunnugt er verið ofar-
lega á baugi undanfarið.
Agnar Gislason rakti sögu
Samsölunnar i stuttu máli, og
siðan gerði Stefán Björnsson
grein fyrir afstöðu hennar til
væntanlegra breytinga á sölu
mjólkur.
Sagði Stefán m.a. að mjög
hefði verið vegið að Samsölunni
vegna þessa máls og hefði hún
sætt ómaklegri gagnrýni. Vildi
hann minna á að forsvarsmenn
hennar hefðu verið skammaðir
eins og hundar siðustu 3 áratug-
ina vegna einokunar á mjólkur-
sölu og lélegrar þjónustu. „En
með þessu var verið að undir-
byggja að við hættum þessari
starfsemi einn góöan veðurdag,
sagði Stefán ennfremur. Þó var
það ekki fyrr en kom til kasta
Alþingis aö alvara fór aö færast
i þetta mál. Það kom fram
frumvarp til laga um breytingu
ámjólkursölu. Siðan var skipuð
nefnd, sem skyldi fjalla um
málið og ég vU vekja athygli á
þvi, að það var ekki Mjólkur-
samsalan sem skipaði þá nefnd,
eða átti þar hlut að máli, heldur
var það landbúnaðarráðherra.
Kaupmenn vildu
mjólkina
Þá sagði Stefán að ne&idin
hefði talið rétt að breyta sölu-
fyrirkomulagi mjólkur þannig
að Mjólkursamsalan yrði heild-
söluaðili, Þetta hefði orðið þró-
unin i nágrannalöndunum og
hefði hún gengið hávaðalaust
fyrir sig á sinum tima. Siðan
hefði þessi breyting verið sett i
lög, sem tóku af öll tvfmæli um
að Samsalan yrði heildsöluaðili.
Stefán kvað það ekkert laun-
ungamál, að nokkrir kaupmenn
hefðu róið að þvi öllum árum að
fá mjólkina i verzlanir sinar og
hefðu þeir verið hinn sterki aðili
sem stóð að baki þessum breyt-
ingum
Þeir hefðu taliðsig fullfæra að
veita viðskiptavinunum þessa
þjónustu.
„Okkur datt þvi ekki annað i
hug, en að fólk myndi fagna
þessum breytingum, sagði Ste-
fán. En þess i stað hefur það
tekið upp harða baráttu gegn
þeim og ekki er annað að sjá en
að við séum þeir einu sem get-
um veitt þessa þjónustu, en
kaupmennirnir séu hins vegar
ekki verðir neins lofsné trausts.
Það virðist svo sem fjöldi
fólks hafi skilið málið svo, að
hér geti þróast tvö mjólkursölu-
kerfi þ.e.a.s. annars vegar
kaupmenn með tilskilin leyfi og
hins vegar Samsalan. En það
hefur sýnt sig erlendis að þeir
kaupmenn sem hafa selt mjólk
ásamt fleiri vörum hefur gengið
vel. En hinir sem enga mjólk
hafa selt hafa dáið hægum
dauödaga. Það gefur þvi auga
leið að ekki er grundvöllur fyrir
rekstri svo einhæfra búöa sem
mjólkurbúða.
vaji til að
leysa vandann
Þá vék Stefán aö dreifingu
mjólkur eftir breytinguna.
Sagði hann m .a. að liklega yrðu
þau hverfi fá, sem yrðu illa úti
hvað dreyfinguna snerti. Kaup-
menn sæju sæng sma útbreidda
með það að að þeir yrðu aö taka
mjólkina inn til að halda
verzlununum gangandi. Þó að
nú liti óneitanlega illa út sum-
staðar, þá væri vilji fyrir hendi
að leysa vandann.
Þá sagði Stefán það vera
skoðun sina, að nú þegar kaup-
mennirnir væru búnir að ná þvi
takmarki sem þeir hefðu stefnt
að, þá gætu þeir og ættu að
standa við orð sin hvað varðaði
þjónustu við viðskiptavinina.
Það væri opin leið fyrir þá sem
ekki teldu sig hafa aðstöðu til að
taka mjólkina inn, að taka á
leigu eða kaupa mjólkurbúðirn-
ar i viðkomandi hverfum tii að
leysa þann vanda sem ella
kynni að skapast.
„Við gerðum okkur strax i
upphafi grein fyrir þvi vanda-
máli sem myndi skapast i sam-
bandi við atvinnumissi búða-
stúlknanna, hjá okkur. Þetta
var m .a. það mál sem við rædd-
um fyrst við kaupmennina. Við
fórum fram á það við þá að þeir
tækju þessar stúlkur til sin i
vinnu. Þetta reyndum við að fá
þá til að samþykkja en þeir sáu
sérþaðekkifært. Þess i stað lof-
uðu þeir að koma á vinnumiðlun
sem væri þessum stúlkum til
þjónustu i a.m.k. eitt ár og þá
jafnaframt að stúlkurnar
gengju fyrir störfum hjá þeim ef
einhver losnuðu.
Verðum að vona
hið bezta
Hinsvegar verða atvinnulaus-
ar stúlkur ekki eins margar og
margir halda. Sumar þeirra eru
þegar búnar að segja upp hjá
ókkur vegna þess að þær hafa
fengið aðra vinnu. Aðrar eru að
leita fyrir sér um atvinnu og er i
mörgum lilfellum kominn skirð-
ur þar á.
Þó sagði Stefán að þvi væri
ekki að neita að sumar af-
greiðslustúlknanna væru orðnar
það fullorðnar að það yrði erfitt
fyrir þær að fá vinnu I stað
þeirrar sem þær nú misstu.
Það yrði bara að vona allt hið
bezta fyrir þeirra hönd og reyna
að aðstoða þær eftir föngum.
Varðandi þá undirskriftasöfn-
un sem nú er i gangi, sagði Ste-
fán að þeim hjá Samsölunni
hefði ekki borizt einn einasti
slikur listi, enda væri enginn til-
gangur með þvi að senda þá til
Samsölunnar. Það væri nær að
senda slikar áskoranir til Al-
þingis eða ráðherra þar sem all-
ar breytingar væru i hendi lög-
gjafans, Samsalan gæti engin á-
hrif haft á málin úr þvi sem
komið væri.
—JSS
FOSTUDAGUR
27. ÁGÚST 1976
alþýdu
blaðiö
Lesið: 1 fundargerð borg-
arráðs Reykjavikur: „Al-
bert Guðmundsson óskaði
bókað vegna vals á feg-
ursta einbýlishúsi borgar-
innar i ár: ,,Ég tel fráleitt
val á húsinu Njarðargötu 9,
sem fegursta húsi borgar-
innar, en tel hins vegar að
hinir nýju eigendur hafi
unnið tU viðurkenningar
fyrir snyrtilegan frágang
hússins og lóðarinnar, sem
gott fordæmi ö'órum, sem
breyta vilja og lagfæra
gömul hús og mannvirki”.
o
Heyrt: Að hugmynd Arons
Guðbrandssonar um leigu-
gjald fyrir aðstöðu banda-
riska varnarliðsins, aukizt
stöðugt fylgi. Ýmsir telja,
að þetta geti orðið eitt helzta
kosningamálið i næstu
þingkosningum og að óháð
framboð, sem setti þetta
mál á oddinn myndi fá
mikiðfylgi. Þá er ekki talið
óliklegt, að einhver óháður
stjórnmálaflokkur sjái
dagsins ljós áður en langt
um liður.
o
Séð: Að Omar Einarsson
hefur verið ráðinn fulltrúi
hjá Æskulýðsráði Reykja-
vikur.
o
Frétt: Að ráðin sé sú gáta
hvers vegna Norðmenn
hafi svo feitt hár, sem raun
ber vitni. Olian hefur stigið
þeim til höfuðs.
o
Heyrt: Að mikil rógsher-
ferð hafi verið sett i gang
gegn þeim mönnum i
Seðlabankanum, sem heið-
urinneiga af þvi að hulunni
hefur verið svipt af ýmsum
fjárglæframálum að und-
anförnu. Oddamenn her-
ferðarinnar eru þeir, sem
telja sig eiga um sárt að
binda vegna aðgerða
Seðlabankans.
o
Frétt: Að mikil reiði sé nú i
röðum starfsmanna Orku-
stofnunar, sem telja, að
iðnaðarráðuneytið hafi
beinlinis reynt að varpa á-
byrgðinni á Kröflu-ævin-
týrinu yfir á Orkustofnun
með brengluðum og ósönn-
um upplýsingum um rann-
sóknir og niðurstöður
Orkustofnunarmanna. Þeir
muni ekki una þessum til-
tektum ráðuneytisins og
birta harðorð andmæli
gegn þeim.