Alþýðublaðið - 03.11.1976, Page 3
sssr Miðvikudagur 3. nóvember 1976.
VERKALÝDSMÁL 3
Mikil þátttaka
Akureyringa f
iðnkynningarviku
■4t, ■+
iWfmwTffitr
— Það eru allir afar
ánægðir með þessa iðn-
kynningarviku og telja
hana hafa heppnazt eins
vel og hægt var að vona i
upphafi, sagði Jón Arn-
þórsson formaður sam-
sta rf snef ndar um
iðnkynningu á Akureyri
i samtali nýverið. Eins
og kunnugt er af
fréttum hefur staðið yfir
umfangsmikil kynning á
iðnvarningi og mál-
efnum iðnaðar i eina
viku á Akureyri.
Jón sagði bæjarbúa hafa tekið
mjög virkan þátt i öllu sem fram
fór i bænum i tilefni iðnkynn-
ingar. Mikill mannfjöldi var i
miðbænum flesta daga vikunnar,
þar sem gat að lita sýningu á
margskonar framleiðsíu akur-
eyskra iðnfyrirtækja. bá fjöl-
menntu skólanemar bæjarins i
fyrirtæki og skoðuðu þau, en þess
má geta i þvi sambandi, að efnt
hefur verið til samkeppni i
skólum þar um beztu ritgerðina
um „íslenzkan iðnað, stöðu hans
og.framtið”. Þá var mikið fjöl-
menni á fundi iðnaðarráðherra i
Sjalfstæðishúsinu s.l. föstudag,
þar sem fjallað var um iðnað,
uppbyggingu hans og mikilvægi.
Einnig vöktu kvöldskemmtanir
og tizkusyningar mikla eftirtekt
Uppgjöri ekki lokið
Jón sagði, að uppgjöri vegna
iðnkynningarinnar væri ekki
lokið og væru reikningar vegna
hennar enn að berast forsvars-
mönnum. Hann sagði að erfitt
væri að segja til um f járhagslega
útkomu kynningarinnar, enda
væri erfitt að meta nákvæmlega
allar tekjur af henni. Til dæmis
sagði hann að út hefði verið gefið
vandað rit um iðnað á Akureyri
upp á 85 blaðsiður, þar sem akur-
eysk fyrirtæki eru kynnt. Þetta rit
væri bæði merkileg og söguleg
heimild, en ekki siður góð auglýs-
ing fyrir iðnaðinn i bænum. Sagði
Jón, að jafnvel þó svo færi að
litilsháttar tap yrði á iðnkynn-
ingunni, þá yrði það varla
umtalsvert.
— Ég vil svo þakka öllum sem
lögðu hönd á plóginn hér við
undirbúning og framkvæmd þess-
arar iðnkynningar okkar.
—ARH
Óánægðir
kennarar
Alþýðublaðinu hefur borizt
fréttatilkynning frá Kennarafé-
lagi Egilsstaðaskóla. Félagið
lýsir yfir megnustu óánægju sinni
og furðu með þá rangsleitni að
kennurum grunnskólans skuli
mismunað svo hrapallega sem
kjaranefndardómur gagnvart fé-
lögum SÍB ber með sér.
. Fundurinn skorar á háttvirtan
menntamálaráðherra að beita
sér nú þegar fyrir leiðréttingu
þessara mála, þar sem hér sé um
réttlætismál að ræða, sem enga
bið þoli varðandi leiðréttingu.
Fundurinn hvetur kennara um
land allt til samstöðu um launa-
mál sin almennt sem nú eru
komin i hreinar ógöngur og heitir
á stjórnvöld að koma strax til
móts við launakröfur stéttarfé-
laga kennara áður en fjöldaupp-
sagnir taki að berast.
— AB
‘4'vv4i mmwxi fl
W-r . m
Júlíus Havsteen kominn til Húsavíkur
Þetta glæsilega togskip bættist nýverið I skipastól
Húsvikinga. Skipið er smlðað hjá Þorgeir & Ellert
h/f á Akranesi og hefur hlotið nafnið Július Hav-
steen ÞH I, Skipið er 285 brl. að rúmlestalölu og
mjög fullkomið að öllum tæknibúnaði. Þá 'ná nefna
að það cr sérstaklega styrkt til sigling?. f fs.
Fylgist með ráðstefnu
um auðgunarglæpi
Ðagana 15.-18. nóvember
verður haldin i Strasbourg ráð-
stefna stofnana á sviði sakfræði.
Ollum rikjum Evrópuráðsins er
boðið að senda fulltrúa. Fyrir
Islands hönd sitja ráðstefnuna
þeir Jón Thors ráðuneytisstjóri
og Þórður Björnsson rikíssak-
sóknari.
Er þetta 12. fundurinn sem
haldinn er á vegum stofnana á
sviði sakfræði, en annað hvert
ár er Evrópuráðsrikjum boðin
þátttaka.
Ráðstefnan mun að þessu
sinni taka fyrir auðgunarglæpi
(economic crime). — Við
munum fylgjast með hvað
þarna er á ferðinni, sagði Jón
Thors i samtali við blaðið.
Þau mál sem tekin verða fyrir
á ráðstefnunni eru meðal
annars, skilgreining auðgunar-
afbrota, þjóðfélagslegir og sál-
fræðilegir þættir auðgunar-
afbrota, stefna og hegningarað-
ferðir sem snerta auðgunar-
glæpi, orsakir auðgunarafbrota
ogað ferðir til að koma i veg fyr-
ir þá.
Umræöur verða alla þrjá
dagana um mál þessi.
—AB
Ekki vitað hver verkefni
Sumargjafar verða
Eins og frá hefur veriö
greint/ mun Reykjavikur-
borg taka að sér yfirstjórn
þeirra dagvistunarstofn-
ana, sem Barnavinafé- Berg Felixson, fram-
lagiö Sumargjöf hefur rek- kvæmdarstjóra Sumar-
ið fram til þessa. Alþýöu- gjafar, og innti hann eftir
blaðið hafði samband við gangi mála.
Yfir 100 starfsmenn Flugleiða
við pílagrímaflutninga í Afríku
I ágústmár.uði s.l. voru undir-
ritaðir i Lagos i Nigeriu samning-
ar um að Loftleiðir tækju að sér
að flytja pilagrima milli Nigeriu
ogSaudi-Arabiu. Gert er ráð fyrir
að lágrnarkstala verði 10.000 en til
greina komi, að mun fleiri pila-
grimar verði fluttir milli þessara
staða.
Undirbúningur að pilagrlma-
flutningunum hefur staðið siðan
samningar voru undirritaðir og
27. október var haldinn kynning-
arfundur fyrir áhafnir og annað
starfsfólk, sem dveljast mun
syðra og starfa við flugið.
Alfreö Eliasson flytur erindi á kynningarfundinum.
Fundurinn var haldinn i ráð-
stefnusal Hótels Loftleiða, og þar
gerðu þeir Alfreð Eliasson, for-
stjóri, Jóhannes Einarsson,
framkvæmdastjóri flug- og
tæknideildar, Þórarinn Jónsson,
forstöðumaður flugdeildar,
Baldur Mariusson og Guðlaugur
Helgason, flugstjóri, grein fyrir
flutningum og tilhögun i Kano og
Jeddah (Mecca).
Allir, sem þátt taka i flutning-
unum og dveljast i Nigeríu ög
Saudi-Arabiu, hafa verið bólu-
settir gegn ýmsum hitabeltis-
sjúkdómum, svo og gegn „iifra-
virus, sem þar hefur oröið vart að
undanförnu. A sunnudaginn var
hélt aðalhópurinn, um 70 manns
frá Islandi og flaug til Kano með
viðkomu i Luxemburg. Flutn-
ingar pilagrimanna hófust svo 1.
nóvember. Tvær DC-8-63 þotur
verða notaðar við flutningana og
verða farnar þrjár ferðir á sólar-
hring. Milli Kano i Nigeriu og
Jeddah i Saudi-Arabiu eru
rúmlega tvö þúsund sjómflur og
tekur flugið milii staðanna
rúmlega fjórar og hálfa klukku-
stund. Frá Kano er flogiö yfir
N’djamena, yfir Sudan og Kart-
oom, yfir Rauða hafið og til
Jeddah. Ahafnir munu hafa
samastað f Kano, en á báðum
stöðum verða afgreiðslumenn fé-
lagsins starfandi.
Ráögert er að flutningar þeirra
10.000 pilagrima til Jeddah, sem
samið hefur verið um, taki 16
sólarhringa og koma þá áhafnir
og flugvélar til Evrópu.
Flutningar pilagrimanna til baka
til Nigeriu hefjast svo aftur hinn
5. desember og lýkur seinni hluta
desember. Verði hins vegar fleiri
en 10.000 manns fluttir framleng-
ist dvöl áhafna og afgreiðslufólks
syðra um nokkra daga i hvort
skipti.
Alls munu 109 manns taka þátt i
þessum flutningum, áhafnir Loft-
leiða og afgreiðslufólk Flugleiða.
Yfirstjórnandi flutninganna
verður Þórarinn Jónsson, yfir-
maður flugliðs Guðlaugur Helga-
son, yfirflugfreyja Erla Agústs-
dóttir, rekstrarstjóri Baldur
Mariusson, stöðvarstjóri i Jeddah
Jón Öskarsson og yfirflugvirki
Jóhannes Jónsson.
Sagði Bergur að málið væri á
umræðustigi enn og ekki búið að
dagsetja hvenær borgin tæki við
rekstri barnaheimilanna, en lik-
lega yrði það nokkuð fljótlega.
„Enn hefurekkert verið ákveð-
ið um hvaða verkefnum Sumar-
gjöf mun snúa sér að, þegar
breytingin verður, sagði Bergur
enn fremur. Það hefur ekki verið
haldinn almennur félagsfundur
hjá félaginu eftir að þetta var
ákveðið.
Sumargjöf á nú þrjú hús, sem
hafa verið rekin sem dagvistun-
arheimili og verða það væntan-
lega áfram. Hins vegar hefur ekki
verið endanlega ákveðið, hvort
Sumargjöf fer með yfirstjórn
þeirra áfram, eða hvort borgin
mun taka að sér reksturinn.
Aðspurður um hvort einhverjar
hugsanlegar breytingar yröu á
rekstri, kvaðst Bergur ekki telja
að svo yrði. Sagðist hann álita aö
borgin hefði allan hug á að halda
sama formi og verið hefði, þó að
yfirstjórnin færðist úr einum staö
i annan. — JSS.
Spærlings- og kol-
munnaverð ákveðið
Nú i vikunni ákvað Verðlagsráð
sjávarútvegsins eftirfarandi lág-
marksverð á spærlingi og kol-
munna til bræöslu frá 1.
nóvember til 31. desember þ.á.:
Hvert kg.....kr. 8.25.
Ludvig Hjálmtýsson
ferðamálastjóri
Samgöngumálaráðherra hefur
ráðið Ludvig Hjálmtýsson, fram-
kvæmdarstjóra, til að gegna
starfi ferðamálastjóra frá og með
1. þ.m. að telja til 1. oktober 1980,
samkvæmt 6. gr. laga nr. 60/1976,
um skipulag ferðamála.