Alþýðublaðið - 03.11.1976, Qupperneq 5
SlHXfö’ Miðvikudagur 3. nóvember 1976.
ÚTLÖND 5
Gleðileg umskipti?
1 svari sr. Jakobs segist hann
gleðjast af þvi, hversu drengi-
lega ég kannist við skoðana-
skipti min á herforingjastjórn-
inni. — Ég get ekki sagt, að það
sé mér neitt gleðiefni, að von
min um endurreisn heilbrigðra
stjórnarhátta i Chile hafi brugð-
izt. Það er reyndar ekki
merkingin i or'ðum prestsins
enda hefur hann ekki viður-
kennt, að Morgunblaðsgreinar
minar frá haustinu 1973 hafi
grundvallazt á góðum óskum i
garð Chileþjóðar. En það, sem
ég er að freista þess að koma
honum i skilning um, er einmitt
það, að hugur minn til chilisku
þjóðarinnar hefur ekki breytzt
þvi að hann var frá upphafi vel-
viljaður, heldur er það mat mitt
á herforingjunum, sem, eðli
málsins samkvæmt hefur hlotið
að breytast — einfaldlega vegna
breyttrar afstöðu þeirra sjálfra
og þess athæfis, sem af þvi
hefur leitt. Þeirraer ábyrgðin á
þvi, að menn, sem i góðri trú
vildu réttlæta byltinguna 1973,
eru knúðir til að fordæma for
ystumenn hennar, sem
upprunalega komu fram sem
bjargvættir landsins, en hafa
siðar sannazt að vera svikarar
við þjóð sina og óskammfeilnir
harðstjórar.
Sáttaboð mitt
Þér verðið nú að gera það upp
við yður, séra Jakob, hvort þér
ætlið að halda þvi til streitu að
bera mér á brýn ósannindi með
málsvörn minni eða draga til
baka fullyrðingar yðar sjálfs.
Á grundvelli virðingar okkar
beggja fyrir heilum og óskiptum
sannleika þessa máls, en ekki
takmörkuðum hluta hans all-
eina, vil ég af mestu ánægju
sættast við yður, svo að það
mál, sem þér hófuð með ófar-
sælum hætti og eigið enn eftir að
segja yðar síðasta orð um, megi
enda á farsælan hátt.
Það er vist og satt, að sundr-
ung vegna gagnstæðrar vilja-
stefnu manna hefur oft sorgleg-
ar afleiðingar i för með sér. En
sundrun, sem stafar af mis-
skilningi einum saman, er ekki
siður hörmuleg, með þvi að hún
er þarflaus og myndi leysast
með sannri þekkingu. Þetta
hygg ég að Jakob Jónsson sem
skoðanabróðir minn varðandi
kristin grundvallarviðhorf hljóti
að vera mér sammála um og sé
maður til að breyta samkvæmt
þvi.
Með beztu óskum
Jón Valur Jensson.
Sölufólk!
Hringið til okkar
og pantið föst
hverfi til að
selja blaðið í
Alþýðublaðið -
afgreiðsla
sími 14900
Kaupið bíimerki
Landverndar
r&KUMl
lEKKII
JTANVEGA
Til sölu hjá ESSO og SHELL
berlsinafgreiöslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöröustig 25
DANSKIR LÆKNAR:
Vara sterklega
við notkun
úðabrúsa með
astmalyfium
Misnotkun á ný|um
úðunarlyfjum við
astma, getur haft alvar-.
legar afleiðingar í för
með sér, þvi að þau geta
leitt í Ijós hvenær sjúk-
dómurinn er kominn á
það stig, að hann þarfn-
ast sérstakrar með-
ferðar, segir sér-
fræðingur við þekkta
einkastof nun f yrir
astmasjúklinga í
Danmörku.
Dauðsföll af völdum astma
jukust skyndilega i mörgum
löndum um miðjan 7. áratuginn.
Þá fjórfaldaðist til dæmis tala
þeirra er létu lifið i Englandi af
völdum sjúkdómsins, og i
aldursflokknum 7-14 ára, sjö-
faldaðist þessi tala, miðað við
það sem venjulega hafði verið.
Menn voru sifellt að ganga
fram á astmasjúk börn liggj-
andi látin, með tóma úðabrúsa
i hendi. Þvi var það að sumir
vildu álykta sem svo, að orsök
látsins hefði verið ofneyzla
lyfsins, en i þessum brúsum er
aðalinnihaldið lyfið isoprenalin.
Hinn danski sérfræðingur
hefur dregið þetta álit mjög i
efa, á grundvelli enskra rann-
sókna á slikum dauðsföllum.
Hann álitur hins vegar, að efni
þetta, sem annars getur verið
astmasjúklingum mikil hjálp,
geti einnig virkað þannig, að
það beinlinis hjálpi til að dylja
sjúkdóm sem kominn er á það
stig, að nauðsyn sé á með-
höndlun á sjúkrahúsum.
Það að margir sjúklingar
finnast látnir með úðabrúsa i
hendi sannar ekki að úðinn sé
orsök látsins, álitur sérfræðing-
urinn. Hann segir að menn gætu
þá allt eins kennt vatni um
dauða manns, sem finnst látinn
i eyðimörkinni og sem hefur
tóman vatnsbrúsa i hendi.
Varað við úðabrúsum
Hin skyndilega aukning
dauðsfalla af völdum astma i
Englandi, varð til þess að heil-
brigðisyfirvöld þar i landi sendu
frá sér aðvaranir um að mikil
notkun úðabrúsa gæti verið var-
hugaverð. Þetta varð til þess að
i lok 7. áratugsins hafði sala á
úðabrúsum með isoprenalini -
minnkað um 20%. A sama tima
fækkaði dauðsföllum um helm-
ing.
Eftirtektarvert er i þessu
sambandi, að i Bandarikjunum
lækkaði tala látinna astmasjúk-
linga á sama tima og hún
hækkaði i flestum öðrum
löndum. Sala á úðabrúsum fór
samt vaxandi, en er að var gáð,
var innihald þeirra mun veikara
en annars staðar tiðkaðist.
Mörg dauðsföll
i Danmörku-
A árunum 1968-73 var heil-
brigðisyfirvöldum í Danmörku
kunnugt um 15 dauðsföll, sem
voru rakin til úðabrúsanna.
Eldri tölur eru ekki til, og ekki
nýrri tölur heldur.
Siðan þetta var hafa ný lyf við
astma litið dagsins ljós, en
danski sérfræðingurinn hefur
bent á þá staðreynd í lækna-
timariti einu, að dauðsföll sjúk-
linga af völdum isoprenalin-úða
og t.d. salbutamol-úða eru álika
tið. Er álit hans stutt talfræði-
legum upplýsingum.
Sérfræðingurinn dregur þvi þá
ályktun, að sérhver tegund af
úðalyfi geti verið hættuleg sé
um að ræða misnotkun á lyfinu.
Fölsk öryggiskennd
Sérfræðingurinn danski segir,
að hið hættulegasta við úðaefnin
sé, að menn fyllist falskri
öryggiskennd vegna þeirra,
vegna sýnilegra áhrifa þeirra á
sjúkdóminn á vissum stigum
hans. Þegar veikin svo kemst á
hærra stig, er skammturinn
bara aukinn sem þvi nemur, en
það hefur hins vegar sýnt sig
vera gagnlausttil langframa, sé
sjúkdómurinn kominn af
byrjunarstigi.
1 Danmörku koma árlega upp
um 5000 ný astmatilfelli. Auk-
þess koma upp þúsundir nýrra
tilfella hliðstæðra sjúkdóma,
segir i forystugrein læknatima-
ritsins i Danmörku. Siðustu ár
hafa verið reistar nokkrar
stofnanir i landinu, til þess að
fást við sjúkdóma af þessu tagi,
en þær anna samt aldrei eftir-
spurn.
Þvi segja danskir læknar, að
þörf sé fyrir enn aukið framlag
hins opinbera til þessa hóps
sjúklinga. Segir að árlega
glatist milljónir króna vegna
þess, að sjúklingar randi frá
einum lækni til annars án þess
aðfá fram rétta sjúkdómsgrein-
ingu, og þar af leiðandi ekki rétta
meðhöndlun.
Vandmeðfarinn
sjúkdómur
1 læknaritinu kemur fram, að
venjulegar höfuðverkjatöflur
geti kallað fram astmakast. Þá
er það ekki óalgengt að fólk
bregðist illa við meðferð með
acetylsalicaylsýru, þannig að
öndunarfæri lokist jafnvel
algerlega, eða að menn fái
stöðugar hóstakviður. Sjúk-
lingar fá stundum sveppæxli
jafnhiiða þessu. I mörgum til-
fellum eru sjúklingar þessir
fullorðnar konur.
Oft er talað um að nota mörg
önnur lyf við astma. Vandinn er
bara sá, að sjúklingar fá margir
hverjir ofnæmi fyrir lyfjum, svo
sem gula duftinu tartrazin og
natriumbenzoat. Þessi lyf eru
yfirleitt ónauðsynleg, nema i
sérstökum tilfellum, og segja
læknar að ekki skuli blanda
þeim saman við mat, likt og
gert er við mörg slik lyf.
—ARH
GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ
Lægra verð og betra veður í
nóvember og fyrri hluta desember
laus sæti 18. nóv . 3 vikur — verð fró kr. 65,500.-
laus sæti 2. des. 2 vikur — verð fró kr. 57,300.-^
FLUCFÉLAC LOFTLEIDIR URVAL LANDSYN UTSYM
ISLANDS
Lækjargötu 2
Sími 25-100
Eimskipafélagshúsinu Skólavörðustlg 16
Slmi 26-900 Simi 2-88-99
Austurstræti 17
Simar 2-66-n & 20-100