Alþýðublaðið - 03.11.1976, Síða 7
bia^jð' Miðvikudagur 3. nóvember 1976. _ FRÉTTIR 7
Greinargerð bæjarstjórnarinnar í
Görðum vegna þjóðvega í Garðabæ
I. Ljúka þarf við
Reykjanesbraut til
Reykjavikur.
Brýn þörf er á þvi að fá sem
allra fyrst eðlilega vegatengingu
á milli Suðurnesja, Hafnarfjarö-
ar, Garðabæjar og Bessastaða-
hrepps annars vegar og Suður- og
Vesturlandsvegar og nýrra, ört
vaxandi ibúðar-, iðnaðar og
byggingarsvæða i Reykjavik hins
vegar. Með lagningu Reykjanes-
brautar úr Breiðholti að Kapla-
krika i Hafnarfirði og Arnarnes-
vegar á milli Hafnarfjarðarvegar
og fyrirhugaðrar Reykjanes-
brautar (eins og gert var ráð fyrir
i skipulagi) verður veganetið á
þessu svæði miklum mun betra og
hagkvæmara fyrir umferðina
heldur en það nú er. Þeir vegfar-
endur og þau atvinnutæki, sem
milli þessara svæða þurfa að
komast i dag, þurfa að taka á sig
stóran krók við að aka Hafnar-
fjarðarveg, og Kringlumýrar-
braut og Miklubraut, sem bæði er
tafsamt og mjög kostnaðarsamt
fyrir umferðina.
Tæknilega ætti ekkert að vera
þvi til fyrirstöðu að Reykjanes-
braut úr Breiöholti i Kaplakrika
komist i notkun innan tveggja
ára, sömuleiðis Arnarnesvegur,
þar sem vegstæðið er að mestu
melur. Oryggissjónarmið mæla
eindregið með þvi, að sem allra
fyrst verði lokið við lagningu
Reykjanesbrautar, og naumlega
er verjandi, aö öll umferð sunnan
Kópavogs verði að fara um
Hafnarfjarðarveg. Stór slys, mik-
il snjóþyngsli eða náttúruhamfar-
ir gætu teppt alla umferö um
Hafnarfjarðarveg um lengri tíma
með alvarlegum afleiðingum.
Yrði á næstu árum hal'dið
áfram endurbyggingu Hafnar-
fjarðarvegar sem hraðbrautar
suður I Engidal með tilheyrandi
tengimannvirkjum verður óhjá-
kvæmilegt að ráðast i fram-
kvæmdir viö Reykjanesbraut og
Arnarnesveg i beinu framhaldi af
þvi. Ljóst er, að heildarfjárfest-
ing þjóðarinnar yrði meö þessu
miklum mun meiri en með þvi að
ljúka strax lagningu Reykjanes-
brautar, ef með þvi móti má
fresta um jnörg ár endurbygg-
ingu Hafnarfjarðarvegar sunnan
Amarneslækjar, þótt gera þyrfti
á þeim kafla nokkrar lagfæring-
ar.
Dreifing umferðar-
þungans.
Áætlað hefur verið, að þriðj-
ungur þeirra 18 þúsund bila, sem
daglega fara um Hafnarfjarðar-
veg í Garðabæ mundi færast yfir
á Reykjanesbraut, væri hún til úr
Breiðholti að Kaplakrika.
Umtaisverður hluti þessarar um-
ferðar væru vinnuvélar og þunga-
flutningar. Reykjanesbrautin og
Arnarnesvegurinn myndu einnig
létta þessari umferð af Kringlu-
mýrarbraut en á mótum hennar
og Miklubrautar eru þegar um-
ferðarerfiðleikar, sem vaxa með
umsvifum i miðbæjarkjarnanum
við þessi gatnamót. Ætla verður,
að með tilkomu Reykjanesbraut-
arog Arnarnesvegar megi einnig
fresta i nokkur ár gerð mjög
kostnaðarsamra umferðarmann-.
virkja við þessi gatnamót. Þá má
einnig benda á að Norðurbærinn i
Hafnarfirði er senn fullbyggður.
Byggðaþróun í Hafnarfirði verð-
ur þvi á næstu árum i suðurhluta
bæjarins, sunnan umrædds hluta
Reykjanesbrautar.
Með lagningu tengibrautar i
Garðabæ milli Vifilsstaðavegar
og fyrirhugaös Arnarnesvegar á
Arnarneshæð verður unnt að
beina verulega umferð úr og i
Garðabæ af Hafnarfjarðarvegi
norðan Arnarneslækjar, þ.e.a.s. á
þann hluta Hafnarfjarðarvegar-
ins, sem verður hraðbraut.
Þriðjudaginn 19. október
s.l. var haldinn borgara-
fundur i Garðabæ um
þjóðvegi um byggðar-
lagið. Fundurinn gerði
Þegar Reykjanesbraut hefur
verið lögð ætti að nást aukið um-
ferðaröryggi á Hafnarfjarðar-
veginum sunnan Arnarneslækjar
með umferðarljósum.
Með þessari röðun fram-
kvæmda má segja, að núverandi
Hafnarfjarðarvegur endi, a.m.k.
um sinn sem hraðbraut I tengi-
mannvirkjun á Arnarneshæö i
stað Engidals eins og eldri hug-
myndir gerðu ráð fyrir.
Umferðarmannvirkin
i Kópavogi.
Ýmsum þykir óeðlilegt, vegna
kostnaöarsamra umferöarmann-
virkja viö Hafnarfjarðarveg i
Kópavogi, að vegurinn endi sem
hraðbraut i Arnarneshæö og verði
þaðan til suðurs i þjóðbrautar-
flokki um Garðabæ og i gegnum
Hafnarfjörð. Ætti það sjónarmið
eitt að ráða að nýta sem bezt um-
ferðarmannvirkin i Kópavogi ætti
hraðbrautin aö sjálfsögöu að fara
i gegnum Garöabæ og miðbæ
Hafnarfjarðar með nauðsynleg-
um brúm og slaufum og tengjast
Suðurnesjavegi við Straumsvik.
Aðra vegi ætti siöan ekki að
leggja fyrir þessa umferö, fyrr en
mannvirkin i Kópavogi þyldu
ekkimeiriumferö.væntanlega þá
eftir nokkra áratugi.
Staðreyndin er hinsvegar sú, aö
umferöarmannvirkin i Kópavogi
voru gerð til þess að aðgreina
umferðina I gegnum Kópavog frá
innanbæjar umferð þar, en þess
var talin þörf af umferöar- og
skipulagsástæöum i Kópavogi.
eínróma svohljóðandi
samþykkt:
1. Fundurinn lýsir eindregnum
stuðningi við þá stefnu bæjar-
stjórnarinnar að hraða beri sem
mest lagningu Reykjanesbrautar
Aðalatriðið var ekki, hvort um-
ferðin sunnan Kópavogs kæmi
eftir vegum i þjóðbrautar- og
hraðbrautarflokki, heldur hitt að
umferðin þurfti að komast greiö-
lega i gegnum Kópavog.
Tvöföldun Hafnarfjarð-
arvegar leysir ekki
vandann.
Nokkrir freistast til að mæla
gegn þvi, að lokið verði við
Reykjanesbraut, þ.e.a.s. vegar-
kaflann á milli Kaplakrika og
Breiðholts, vegna þess að þessi
vegarkafli sé 6.7 km, en hinsveg-
ar þurfi aðeins að endurbyggja
2.5 km i Hafnarfjarðarvegi til
þess að tvöföid akbraut verði á
milli Hafnarfjarðar og Reykja-
vikur. — Þá vantar reyndar þau
tengimannvirki, sem gert var
ráö fyrir á Arnarneshæð, við
Vifilsstaðaveg og i Engidal, en
þau kosta stórfé og eru nauðsyn
leg til þess að Hafnarfjarðarveg-
urinn gegni þvi hlutverki, sem
honum væri ætláð. Þangað til
tengimannvirkin kæmu yröi
vegurinn stórhættulegur* gang-
andi vegfarendur ættu i miklum
erfiðleikum meö aö komast yfir
þennan breiða veg og bifreiðar
með að komast upp á veginn og af
honum.
Sjónarmiðin við ákvörð-
un röðunar fram-
kvæmda.
Frá þröngu tæknilegu sjónar-
miði kann að vera skiljanlegur
áhugi á þvi að ljúka tvöföldun
úr Breiðholti, vestan Vffilstaða-
vegar að Kaplakrika við Hafnar-
fjörð.
2. Fundurinn telur útilokað að
endurbyggja Hafnarfjarðarveg
suður i Engidal sem hraðbraut i
núverandi legu vegarins.
Hafnarfjarðarvegar til Hafnar-
fjarðar, og eflaust væri þetta
nokkuð þægileg lausn fyrir þá
umferð, sem komast þarf af
Reykjavikurvegi i Hafnarfirði i
átt til Reykjavikur og til baka, en
hinsvegar erfið fyrirumferö til og
frá Suðurnesjum, Alftanesi og
Garðabæ. — Bæjarstjórnin leyfih
sér að ætla að ákveða skuli fram-
kvæmdaröðun við veganetiö á
svæðinu i talsvert viðara sam-
hengi. Hún telur að fyrst og
fremst eigi að lita á arðsemi
vegamannvirkjanna, þ.e.a.s.
heildarfjárfestinguna og hvað sé
umferðinni og svæðinu i heild og
ibúum þess hagkvæmast. Bæjar-
stjórnin hefur ekki nægar upplýs-
ingar til þess að framkvæma
slika athugun, og er ekki kunnugt
um að hún hafi verið gerð af
vegagerð rikisins eða öðrum
opinberum aðilum. Það er engu
að slður skoðun bæjarstjórnar-
innar, að niðurstaðan yrði sú, aö
strax skuli ráðizt i framkvæmdir
við Reykjanesbraut úr Breiðholti
— og þótt fyrr hefði verið.
II. Erfiðleikar við
undirbyggingu Hafnar-
fjarðarvegar.
Útilokað er að Hafnarfjarð
arvegur verði lagður sem hrað-
braut i núverandi legu vegarins.
Af skipulagsástæðum i Garðabæ
er það mjög óæskilegt, vegna
óhagræðis sem hraðbrautin
mundi skapa sunnan Vifilsta.öa-
vegar. Þetta er einróma álit ibúa
Garðarbæjar.
öllum er ljóst, að endurbygging
3. Vegna væntanlegrar byggöar á
Alftanesi veröi við yfirstandandi
endurskoöun aöa Is ki pul a g s
bæjarins tekiö frá landi fyrir
hugsanlega hraöbraut vestan nú-
verandi Hafnarfjaröarvegar meö
tengingu við Álftanesveg.
Hafnarfjarðarvegar með tilheyr-
andi tengimannvirkjum er mjög
dýr framkvæmd og yrði aö vinn-
ast i áföngum á mörgum árum.
ófullgerð mundi hraðbrautin þvi
árum saman valda verulegum
umferðarvandræðum og mikilli
slysahættu, sem ekki hefur verið
sýnt fram að væru leysanleg á
viðunaadi hátt. Þessir erfiðleikar
skapast m.a. af þvi, að vestari
akbrautin á milli Arnarneslækjar
og Engidals, sem rætt hefur verið
um sem næsta áfanga vegarins,
og er i talsvert annarri hæðarlegu
en vegurinn er i núna. Einnig er
ljóst að öll vinnuaðstaða viö
framkvæmdirnar yrði mjög erf-
ið, vegna þeirrar miklu umferðar
sem um veginn yrði jafnframt að
komast, þar sem önnur leið býðst
ekki. Forráðamönnum vega-
gerðarinnar eru þessir erf iðleikar
fullljósirog þeirsækjastekki eftir
þvi að endurbyggja veginn i nú-
verandi legu.
III. Byggð á Álftanesi.
Ekki er gert ráð fyrir þvi, að
byggð i Garðabæ á Alftanesi vaxi
fyrr en um aldamót, og uppbygg-
ing i Bessastaðahreppi er hæg.
Vaxandi byggð á Alftanesi verður
að sjálfsögðu siðar að fá eðlilega
vegatengingu við nærliggjandi
svæði. Meö þaö i huga er bæjar-
stjórnin fús til þess að taka frá
land vestan núverandi Hafnar-
fjarðarvegar fyrir hraöbraut,
verði hennar þörf siðar.
Garöabæ i október 1976.
Bæjarstjórinn I Göröum
Garöar Sigurgeirsson.