Alþýðublaðið - 25.11.1976, Síða 1
Lífeyrissjóður verzlunarmanna lánar:
FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER
32 MILLJONIR
ARINNAR
I HUS
VERZLUN-
- auk annarra framlaga
til smfði hússins
Svo sem kunnugt er,
er nú hafin bygging á
svokölluðu húsi
verzlunarinnar, en
aðilar að þeirri
byggingu eru Lifeyris-
sjóður verzlunarmanna,
Verzlunarmannaféiag
Reykjavíkur,
Verzlunarbankinn,
Kaupmannasamtök
Islands, Félag íslenzkra
stórkaupmanna,
Verzlunarráð íslands og
Bílgreinasambandið.
Stærsti eignaraöilinn aö
þessari byggingu mun vera
Verzlunarbankinn, sem á um
40%, en sá næst stærsti
Lifeyrissjóður verzlunar-
manna með um 23% eignar-
aðild.
Hjá Hirti Jónssyni,
formanni stjórnar Lifeyris-
sjóðs verzlunarmanna, fékk
blaðið þær upplýsingar, að það
sem af er þessu ári hefði Lif-
eyrissjóðurinn, auk framlaga
sinna til húsbyggingarinnar,
lánað til hennar 32 milljónir
króna. Ekki er þetta lán
verðtryggt en á þvi eru, að
sögn Hjartar, hæstu út-
lánsvextir.
Húsbyggingarsjóður
rikisins
Á sinum tima ritaði fjár-
málaráðherra stjórnum
Lifeyrissjóða i landinu bréf,
þar sem sett var fram sú ósk,
að Lifeyrissjóðirnir verðu sem
næmi 20% áætlaðra
ráðstöfunartekna sinna ár
hvert til kaupa á annað hvort
skuldabréfum Byggingarsjóðs
rikisins, eða skuldabréfum
Framkvæmdasjóðs. Það skal
tekið fram að umrædd
skuldabréf eru verðtryggð.
Árið 1975 voru ráð-
stöfunartekjur Lifeyrissjóðs
verzlunarmanna samtals 850
milljónir króna, en það ár
varði sjóðurinn 90 milljónum
til kaupa á skuldabréfum
Byggingarsjóðs, eða um 10,6%
af ráðstöfunartekjunum.
Aætlað ráðstöfunarfé
Lifeyrissjóðs verzlunarmanna
i ár, er að sögn Hjartar
Jónssonar rúmlega 1000
milljónir króna og þvi ætti
framlag sjóðsins til
Byggingarsjóðs, ef fylgt væri
20% reglunni, að nema um 200
milljónum króna. Frá 2. april
s.l. (en sjóðsárið er frá 1 april-
31. marz),hefur sjóðurinn
keypt skuldabréf af
Bygggingarsjóði rikisins fyrir
70 milljónir króna, og
skuldabréf af Framkvæmda-
sjóði fyrir 20 milljónir. Ekki
treysti Hjörtur sér til að gizka
á hvað Lífeyrissjóður
verzlunarmanna myndi kaupa
mikið af skuldabréfum rikis-
sjóðs, en gat þess að reynt yrði
að auka eitthvað við þá
upphæð sem þegar hefði verið
keypt fyrir. GEK
Búið að ganga frá
Elliðaárnar
Talsverðar breytingar frá fyrra ári
veiðisamningum fyrir
Enn um Kröfluvirkjun:
GUFUHLUTFALL HÆRRA
EN ÁÐUR ÞEKKTIST
„Vandamál, sem unnt ætti að yfirstíga”
I fyrradag var
samþykktur í borgarráði
Reykjavíkur samningur
um veiði í Elliðaám fyrir
næsta veiðitímabil.
Að sögn Hauks
Pálmasonar hjá
Raf magnsveitu
Reykjavíkur voru ekki
gerðar stórvægilegar
breytingar á samningnum
frá fyrra veiðitímabili,
nema að stangaf jöldanum
var breytt frá 1. júlí n.k.
Þá f jölgar stöngunum úr 5
í 6. Samkvæmt fyrra
samningi var leyfilegur
stangaf jöldi í ánum 4 og 5 á
sömu tímum.
Auk þess voru gerðar
breytingar á veiðivörzlu. Nú er
það borgin sem annast alla veiði-
vörzlu, en i fyrra var einn veiði-
vörður frá hvorum aðila. Veiði-
varzlan hefur jafnframt verið
hert, ogverfiurnú samfelld varzla
allan daginn, meðan veiðitíminn
stendur yfir.
Þá eru i samningnum tvö ný
ákvæði um veiðitakmarkanir,
sem blaðið hefur raunar sagt frá
áður. Hið fyrra kveður á um, að
eigi megi veiða fleiri en átta laxa
á hverjum hálfum veiðidegi, i
hinu siðara segir, að aðeins megi
veita sama manninum 4 hálfa
veiðidaga á veiðitimabilinu.
Sagði Haukur, að mjög ströng
ákvæði væru i samningnum
varðandi ólöglega veiði og hefðu
þau haldist óbreytt. Megin
vandinn væri að kenna fólki að
umgangast ána með aðgát, þvi
þarna væru oft unglingar á ferð
með köllum og grjótkasti, þvi þeir
áttuðu sig ekki á þvi hve
óæskilegt slikt væri i námunda
við veiðiár.
—JSS
Alþýðublaðið hafði
samband við Valgarð
Stefánsson hjá Orkiistofnun
og innti hann eftir þvi hvað
liði rannsóknum þeim sem
farið hafa fram á gas- og
vatnsinnihaldi gufunnar á
Kröflusvæðinu.
Sagði Valgarður aö upp-
lýsingar bærust nú jafnt og
þétt, en þegar væri ljóst, að
gufuhlutfall hola númer 6 og
7 væri mjög hátt og hærra en
áður hefur orðið vart við á
Islandi. Vegna þessa giltu
þær reikningsaðferðir sem
þeir hefðu hingað til notað,
ekki lengur og þvi hefðu þeir
orðið að útbúa sér ný
„prógröm”.
Þrátt fyrir hátt gufu-
hlutfall hola 6 og 7 taldi
Valgarður það vera innan
þeirra marka sem vélarna’-
við Kröflu þyldu og þvi ætti
að vera unnt að yfirstiga
þetta vandamál.
Þá fullyrti Valgarður, að
frétt sú sem birtist i Alþýðu-
blaðinu i gær, en þar var
sagt að þrjár holur hefðu
lokast, væri ekki á rökum
reist. Sagði hann að engin
hola hefði lokast, en hins
vegar hefði hola fimm
bognað. Að visu væru
áverkar á fleiri holum, en
hvers eðlis þeir áverkar
væru vissi hann ekki, þar eð
enn væri verið að rannsaka
það mál. —GEK