Alþýðublaðið - 25.11.1976, Qupperneq 5
Fimmtudagur 25. nóvember 1976
VETTVANGUR 5
:álagsfundur Dagsbrúnar:
Fagnarfrumkvæði
verðlagsstjóra
Verkamannafélagið Dags-
brún hélt félagsfund sunnudag-
inn 21. nóvember s.l.
Á 1 undinum var samþykkt að
breyta innheimtufyrirkom.ulagi
félagsgjalda frá og með næstu
áramótum, þannig að félags-
gjöld verði ákveðinn hundraðs-
hluti af dagvinnukaupi og inn-
heimt um leið og iðgjald til lif-
eyrissjóðs Dagsbrúnar.
Á fundinum voru m.a. sam-
þykkt samhljóöa eftirfarandi
tillögur frá stjórn félagsins:
Fundur i Verkamannafélag-
inu Dagsbrún, haldinn 21 .
nóvember 1976, telur að kaup-
máttur launa almenns verka-
fólks sé nú orðinn algerlega ó-
viðunandi. Helstu ástæðuna fyr-
ir þessum lélegu kjörum telur
fundurinn vera stefnu rikis-
stjórnarinnar i efnahagsmál-
um, verðlags- og skattamálum.
Á siðustu tveimur árum þegar
rikisstjórnin hefur beitt hinni
hörðustu kjaraskerðingarstefnu
gagnvartlaunafólki hafa fjárlög
verið hækkuð meira en nokkru
sinni og endalausar verð-
hækkanir dunið yfir. Þannig
hefur rikisstjórnin átt drýgstan
þátt i vexti og viðgangi verð-
bólgunnar á sama tima og hún
hvetur til samstöðu i baráttu
gegn henni.
Verkamannafélagið Dags-
brún telur nauðsynlegt að
verkalýðshreyfingin undirbúi
nú vandlega nýja sókn i kjara-
baráttunni, sem miði að stór-
bættum lifskjörum. Eitt megin-
verkefni þessarar baráttu hlýt-
ur að vera að rétta hlut þeirra,
sem vinna eftir hinum lágu töxt-
um almennu verkalýðsfélag-
anna og bættum kjörum elli-og
örorkulifeyrisþega.
1 undirbúningi kjarabarátt-
uniiar telur fundurinn að meðal
annars þurfi vandlega að
athuga hvort ekki beri að beita
þvi ákvæði kjarasamninga, sem
heimila uppsögn þeirra á samn-
ingstimabilinu vegna verulegr-
ar gengisfellingar.
Fundur i Verkamannafélag-
inu Dagsbrún, haldinn 21.
nóvember 1976, fagnar þvi
frumkvæði verðlagsstjóra, sem
fram kom i rannsókn hans á
innkaupum heildsala erlendis
frá og i ljós leiddi ótrúlegan
mismun á verði sem heildsölur i
London kaupa vörur á og þvi
verði sem islenskir heildsalar
greiða fyrir sömu vörur.
Fundurinn skorar á viðkom-
andi stjórnvöld að fylgja fast á
eftirþessu frumkvæði verðlags-
stjóra og láta fram fara itarlega
rannsókn á þessum málum, þar
með á umboðslaunum og gjaid-
eyrismálum islenskra innflytj-
enda.
Eðvarð Sigurðsson,
formaður Dagsbrúnar
Fundur i Verkamannafélag-
inu Dagsbrún, haldinn 21
nóvember 1976, itrekar sam
þykkt trúnaðaráðs félagsins frá
18. október s.l., sem mótmælir
harðlega hugmyndum að breyt-
ingum á gildandi vinnulöggjöf,
sem félagsmálaráðherra hefur
látið semja án nokkurs samráðs
við verkalýðshreyfinguna
Meginefni þeirra hugmynda.
sem hér um ræðir stefna að
skerðingu verkfallsréttarins og
að þrengja frelsi verkalýðs-
félaganna.
Fundurinn varar mjög ein-
dregið við að frumvarp i þessa
átt verði lagt fyrir Alþingi.
Jafnframt skorar fundurinn
33. þing ASt og verkalýðs-
hreyfinguna i heild að beita sér
eindregið gegn þessu frumvarpi
og mótmæla þvi harðlega.
an námið og atvinnulifið, beina
náminu að helstu atvinnuþáttum
þjóðarinnar og tryggja með þvi
að menntunin komi að sem
bestum notum fyrir þjóðarheild-
ina, með þvi að gera mannaflaspá
sem verði siðan unnið eftir. Verk-
legt nám hefur verið hornreka
fram að þessu, þó svolitið hafi
rofað til siðustu ár. Af þeim sök-
um verður að leggja sérstaka
áherslu á þennan þátt með bygg-
ingu verknámsskóla sem byggðir
yrðu og staðsettir eftir heildar-
skipulagi um landshlutaskóla
sem taki mið af þörfum hvers
landshluta. Þessa verknámsskóla
skal búa sem allra bestu tækjum
til kennslunnar og skal þá haft i
huga að nýta þessi tæki sem best i
skyldum námsbrautum. Þá skal
lögð mikii áhersla á menntun og
nýtni kennara.
1 þessum verknámsskólum fari
fram verkleg kennsla frá grunn-
skólastigi til háskólastigs þ.á m.
ýmiss konar námskeið fyrir verk-
smiðjuiðnað, bæði sjálfstæð, og
einnig hugsanlega sem hluti af
iðnnámi, — iðnnám — endur-
menntun og viðbótarmenntun
vegna breytinga og tækninýjunga
i iðngreinunum, — verkstjóra-
nám og meistaranám.
Við skipulagningu og gerð
verknámsskóla og verknáms-
kennslu skal haft fullt samráð við
samtök launafólks. Þingið telur
að eitt grundvallaratriði þess að
verklegt nám sé framkvæmt
þannig að nemendur læri viðkom-
andi verk eins og best verður á
kosið, sé að ýtarlegar og vel unn-
ar námsskrár séu fyrir hendi,
sem gildi fyrir landið allt.
Tryggja verður að þetta atriði
komist i framkvæmd, að öðrum
kosti nýtast verknámsskólarnir
ekki eins og til er ætlast. Grund-
vallarstriði er að fyrir liggi hvað
kenna á, þá fyrst er hægt að fylgj-
ast með að nemendur fái nauð-
synlega kennslu, sama gildir um
iðnnám, sem framkvæmt er sam-
kvæmt meistarakerfinu.
Að nafninu til hefur verið unnið
að gerð námsskrár undanfarin
ár, en augljost er að stjórnvöld
hafa ekki gert sér grein fyrir þýð-
ingu þessa verks, þvi þau hafa
alls ekki veitt þvi fé til verksins
sem nauðsynlegt er. Þarna verð-
ur að vera alger stefnubreyting
og á þennan þátt starfsins þarf að
leggja mikla áherslu, svo hægt sé
að ljúka honum. Siðan þurfa
fræðslunefndirnar að starfa
áfram og taka jafnóðum inn i
námsskrár þær nýjungar sem
aukin tækni leiðir af sér.
Við tilfærslu iðnnáms frá
meistarakerfinu yfir i verknáms-
skóla ber að sjá um að nemandinn
fái jafnframt verklega þjálfun á
almennum vinnumarkaði til þess
að hann fái nægjanlega innsýn inn
i störfin á vinnumarkaðinum.
Þarna væri fyrst og fremst um
skipulagða sumarvinnu að ræða
og auk þess önnur skipulögð dvöl
eftir þvi sem fræðslunefndirnar
teldu þörf á eftir eðli námsins.
Eftir verkskólanám og fyrir
sveinspróf verði 6 til 12 mánaða
starfsreynslutimabil, sem skólinn
sér fyrir, misjafnt eftir iðngrein-
um, metið af fræðslunefnd i sam-
ráði við aðila viðkomandi iðn-
greinar á vinnumarkaðinum.
Um sveinspróf.
Það er staðreynd sem öllum má
ljós vera að sveinspróf i núver-
andi mynd er ekki eðlilegur próf-
steinn á námsárangur manna að
loknu 4ra ára námi.
Eins og verklegt sveinspróf er
framkvæmt i dag ætti það miklu
frekar heima sem inntökupróf til
iðnnáms að loknum reynslutima
nemans.
Það verður ekki séð að eðlilegt
og nauðsynlegt eftirlit með fram-
kvæmd verklegs iðnnáms verði
framkvæmt við núverandi að-
stæður.
Nauðsynlegt er að áfangapróf
verði tekin upp i verklega iðn-
náminu og að þau verði skipulögð
i takt við bekkjapróf iðnskólanna
i viðkomandi grein.
Mun eðlilegra er að prófnefndir
sjái um þetta eftirlit, i stað iðn
fulltrúa, þar sem þar er um að
ræða menn með sérþekkingu á
viðkomandi greinum.
Mikið starf
óunnið í
fræðslustarfi
ingarinnar
Um fræðslustarf á vegum
MSÍ og félaganna.
Þingið telur að mikið starf sé
óunnið á vettvangi MSt i fræðslu-
málum, sem beri að leggja
áherslu á.
Má þar m.a. nefna:
1. Uppfræðsla og menntun trún-
aðarmanna á vinnustöðum og
annarra trúnaðarmanna félag-
anna.
2. Verkleg endurmenntun i formi
námskeiða.
3. Upplýsingar og kynni um að-
búnaðarmál, heilsuverndarmál
og öryggismál, þar með þáttur
MÁLMS og hlutverk hans við
þessa uppfræðslu.
Um þessa þætti vill þingið
árétta eftirfarandi:
1. Áriðandi er að þeir menn sem
veljast til trúnaðarstarfa hafi
staðgóða þekkingu á hlutverki
trúnaðarmanna, þar með góða
þekkingu á réttindum og skyldum
trúnaðarmanna og réttarfars-
legri stöðu þeirra samkvæmt lög-
um og venjum. Einnig þurfa þeir
að hafa góða þekkingu á rétt-
indum og skyldum almennra fé-
lagsmanna. Þessi þekking er
grundvöllur þess að trúnaðar-
maðurinn geti framkvæmt starf
sitt eins og vera ber. Fyrir þvi
telur þingið að MSl og félögin
þurfi að beita sér fyrir að haldin
séu námskeið fyrir trúnaðar-
menn, þar sem þessi fræðsla færi
fram, og jafnframt að útbúnar
séu trúnaðarmannamöppur, þar
sem i væru öll helstu gögn, sem
trúnaðarmaður þarf á að halda.
2. Verkefni i málmiðnaði á siðari
árum eru mörkuð af tæknilegri
þróun, breyttri framleiðslu og
breyttum framleiðsluaðferðum.
Þetta leiðir til þess að nauðsyn-
legt er að endurhæfa og auka
þekkingu málmiðnaðarmanna
samfara breyttum kröfum starfs-
ins. Þekking sú, sem málmiðn-
aðarmenn þurfa á að halda, er
orðin meiri en það að hægt sé að
ætlast til að hver og einn starfs-
maður kunni skil á henni til
hlitar. Af þeim sökum er mikil
nauösyn á að endurmenntun sú,
sem hófst með samningum frá 30.
júni 1970, haldi áfram m.a. i þvi
formi að kynna þær nýjungar sem
efstar eru á baugi hverju sinni
með námskeiðum. Þessi endur-
menntun eykur gildi hvers ein-
staklings og gerir hann hæfari til
þess að gegna sinu starfi.
3. Um aðbúnað og öryggismál er
fjallað á öðrum vettvangi á þing-
inu svo ekki er ástæða til þess að
fjölyrða um þau mál hér. Þó vill
þingið benda á þá fræðslu sem
þegar er hafin um þessi mál i
Málmi og telur að þarna hafi
verið stigið rétt spor. Þingið telur
að Málmur sé réttur vettvangur
til þess að fjalla um og kynna
þessi mál, en kynning á þessum
málum er mjög brýn. Þarna þarf
að koma til alger hugarfarsbreyt-
ing, bæði hjá okkar eigin félags-
mönnum og einnig, og ekki siður,
hjá atvinnurekendum.
Þvi telur þingið eðlilegt að
vinna að fjölgun árlegra tölu-
blaða Málms úr 2 eins og verið
hefur nú i 3-4. Jafnframt að vinna
að aukinni útbreiðslu blaðsins,
þannig að tryggt sé að öll málm-
iðnaðarfyrirtækin kynnist við-
horfum okkar og þessari fræðslu.
7. þing Málm- og skipasmiða-
sambands Islands mótmælir
harðlega þeim vinnubrögðum
sem menntamálaráðherra hefur
viðhaft með þvi að skipa nefnd
ofaná nefnd til þess að f jalla um
verkmenntun. t sumum tilfellum
án samráðs og vitundar þeirra er
starfa i atvinnulifinu. Slik vinnu-
brögð eru ekki til þess fallin að
auka veg verkmenntunar i land-
inu.
Þingið telur jákvæð þau spor
sem nú þegar hafa verið stigin i
fræðslustarfsemi verkalýðs-
hreyfingarinnar. Má þar fyrst og
fremst nefna starf M.F.A. og það
samstarf sem náðst hefur milli
þeirrar stofnunar og verkalýðsfé-
laga og sambanda.
Sá áfangi i fræðslustarfinu sem
Félagsmálaskóli alþýðu er, hefur
nú þegar reynst visir að vænleg-
um árangri, sem óhætt er að
binda miklar vonir við og þvi ber
að skora á aðildarfélög sam-
bandsins að vinna að eflingu hans
á allan hátt og nýta þau tækifæri
sem þar bjóðast.
Það er alþýða þessa lands sem
fyrst og fremst leggur til fé i
menntunarkerfi þjóðarinnar og
þvi á hún betra skilið en að verða
sjálf hornreka og þola þá raun að
sifellt sé dregið úr opinberum
fjárstyrk til hennar eins og skeð
hefur nú tvö undanfarin ár.
Á það má benda að fullorðins-
fræðsla til bóklegs náms, svo sem
öldungadeildir menntaskóla-
stigsins er rekin að öllu leyti af
opinberu fé og er það þvi skýlaus
krafa launafólks i landinu að
framlög til félagslegrar fræðslu á
vegum verkalýðshreyfingarinnar
sitji þar við sama bórð.
1 ályktun 6. þings Málm- og
skipasmiðasambands Islands, i
nóvember 1974, um atvinnu og
kjaramál, er eindregið mótmælt
löggjöf um afnám verðlagsupp-
bótar á vinnulaun sem jafnframt
ógilti kjarasamninga, sem gerðir
höfðu verið til tveggja ára i
febrúar 1974.
Þá þegar höfðu þessar aðgerðir
rikisstjórnar og meirihluta henn-
ar á Alþingi, skert verulega um-
samin vinnulaun málmiðnaðar-
manna og skipasmiða, og þeir
ekki fengið kjaraskerðingarbætur
(launajöfnunarbætur), 1. oktober
1974, eins og annað verkafólk,
samkvæmt bráðabirgðalögum
nr. 88, 24. september 1974.
Jafnframt var ljóst i nóvember
1974, að framundan væru hörð
átök milli verkalýðshreyfingar-
innar annars vegar og rikis-
stjórnar og þingmeirihluta henn-
ar, hins vegar, um þann kaup-
mátt vinnulauna sem samið var
um i febrúar 1974.
Atök þessi hafa staðið siðan, og
þeim lýkur ekki fyrr en kaup-
máttur vinnulauna verkafólks,
verður ekki minni en hann var á
II. ársfjórðungi 1974.
Með varnar-kjarasamningum
undir forystu Alþýðusambands
Islands sem gerðir voru 26. mars
og 13. júni 1975, eftir boðun vinnu-
stöðvana og 28. febrúar 1976, eftir
tveggja vikna allsherjarvinnu-
stöðvun, tókst verkalýðshreyf-
ingunni að knýja fram um 76%
launakækkanir, sem kjaraskerð-
ingarbætur miðað við 1. nóvem-
ber 1976.
Rikisstjórnin með löggjafar-
valdið i hendi sér, hefur hins veg-
ar gjörbreytt þessum árangri
verkalýðshreyfingarinnar. Að-
ferðin hefur verið gengisfelling og
gengissig gjaldmiðilsins, hömlu-
lausar verðhækkanir lifsnauðs-
ynja ásamt stórfelldum hækkun-
um söluskatts, vörugjalds og
vaxta.
Þessi stefna núverandi stjórn-
valda hefur hækkað framfærslu-
kostnað samkvæmt framfærslu-
visitölu sem var 261,5 stig 1. mars
’74, i 645,0 stig 1. nóv. 1976, eða um
147%. A siðustu átta mánuðum
eða frá siðustu samningagerð i
febrúar 1976, hefur meðal gengis-
sig verið um 8,5%
Það ástand sem hér er lýst kall-
ar á viðtæka samstöðu og tafar-
lausar aðgerðir verkalýðshreyf-
ingarinnar gegn rikisvaldi, sem á
opinskáan hátt hefur sýnt launa-
fólki fullkominn fjandskap.
Kaupmáttur umsaminna kaup-
taxta verkafólks hefur þvi hrunið
[) Sjá bls. 6