Alþýðublaðið - 25.11.1976, Page 6
6________________________________________
Ályktanir 7. þings Málm- og skipasmiðasam-
bands íslands Framhald af bls. 5
niður á timabilinu 1. mars 1974 til
1. nóvember 1976 að meðaltali um
25% og hjá málmiðnaðarmönnum
og skipasmiðum um 29%.
Eina ráð verkafólks við hruni
kaupmáttar kauptaxta hefur ver-
ið að lengja vinnutima sinn enn
frekar en áður til að afla sér við-
bótartekna, og reyna á þann hátt
að viðhalda kaupmætti tekna
sinna að nokkru.
Nú er svo komið að Island er
sérstakt láglaunasvæði i Norður-
og Vestur-Evrópu. Umsamdir
vinnulaunataxtar málmiðnaðar-
manna i Danmörku eru 158%
hærri en hérlendis en verðlag lifs-
nauðsynja svipað eða lægra.
Hrun kaupmáttar vinnulauna-
taxta alls launafólks hefur skapaö
algerlega óþolandi ástand.
Að endurheimta skertan kaup-
mátt vinnulauna er brýnasta
verkefni islensks verkafólks og
samherja þess nú.
7. þing Málm- og skipasmiða-
sambands Islands ályktar þvi
eftirfarandi:
tslensk verkalýðshreyfing
verður nú þegar aö snúa varnar-
baráttu siðustu tveggja ára I
Mismunun i álagningu skatta
verði leiðrétt og staðgreiðslukerfi
skatta tekið upp.
7. Að einfalda útreikninga vinnu-
launa með þvi að leggja launa-
jöfnunarbætur við grunnkaup og
fella úr gildi bráðabirgðalög nr.
88 1974, og reglugerð samkvæmt
þeim.
8. Að settar verði ákveðnar reglur
um takmörkun yfirvinnu og unnið
i áföngumað' afnámiyfirvinnu sem
föstum tekjuöflunarþætti en
tryggt verði jafnframt að raun-
tekjur verkafólks skerðist ekki.
9. Að við næstu samningagerð
verði lögð áhersla á fullar launa-
greiðslur i allt að sex mánuði i
slysa- og veikindatilfellum.
10. Að launþegasamtökin beiti sér
fyrir úrbótum i dagvistunar-
málum.
11. Að verkalýðshreyfingin beiti
sér fyrir aukinni aðstoð við aldrað
fólk i heimahúsum og stofnun
smærri dvalarheimila fyrir
aldraða.
12. Að sérgreinasambönd og
verkalýðsfélög semji sérstaklega
um sératriði starfsgreina og
vinnustaða.
markvissa sókn og vinna upp
skerðingu kaupmáttar umsam-
inna kauptaxta frá 1. mars 1974.
Þingið telur að reynsla varnar-
baráttunnar undanfarið staðfesti
að kaupgjaldsbarátta meö kjara-
samningagerð verði ekki einhlit i
nýrri sókn.
Vilji verkafólk ná árangri i
kjarabaráttunni og tryggja hann
er nauðsynlegt að verkafólk tengi
saman afstöðu sina i kjaramálum
og almennum þjóðmálum.
Jafnframt telur þingið aö
grundvöllur fyrir endurreisn
kaupmáttar umsaminna vinnu-
launa sé gjörbreytt efnahags og
þjóðmálastefna löggjafarvalds-
iiis, ásamt frjálsri gerð kjara-
samninga verkalýðsfélaga, sem
stjórnvöld virða og tryggja að
halda gildi sinu.
7. þing M.S.Í. telur að i nýrri
sókn i kjarabaráttunni eigi m.a.
að stefna að eftirfarandi:
1. Að tryggja áfram fulla atvinnu
fyriri sérhvern vinnufæran mann
við islenska atvinnuvegi, en ekki
treysta á erlenda stóriðju.
2. Að íryggja frjálsa samninga-
gerð verkalýðsfélaga og koma i
veg fyrir skömmtun rikisvaldsins
á vinnulaunum meö lögum og
reglum sem ekki falla að aöstæð-
um i atvinnulifinu.
3. Að stórauka kaupmátt vinnu-
launa með hækkun umsaminna
kauptaxta fastlaunaðs verkafólks
og ráðstöfun til verðlækkunar
lifsnauðsynja með takmörkun
hömlulausrar álagningar inn-
flytjenda og beinni stjórn á inn
flutningi.
4. Að verðtryggja á ný vinnulaun
aö fullu, miðað við breytingu
framfærslukostnaðar.
5. Að stórhækka greiðslur til elli-
og örorkulifeyrisþega og iifeyris-
greiðslur verði ætið i beinu sam-
bandi við gildandi launakjör.
6. Að breyttri skattalöggjöf á
þann veg að skattbyrði fastlaun-
aðs verkafólks léttist verulega.
7. þing M.S.l. telur að aðeins
mjög viðtæk samstaða og sam-
stillt átak verkalýðshreyfingar-
innar i heild geti endurheimt
skertan kaupmátt vinnulauna á
ný.
Þingið lýsir málmiðnaðarmenn
og skipasmiði reiðubúna til fullr-
ar þátttöku i slikri samstöðu i
trausti þess að umsamdir kaup-
taxtar fastlaunaðs tima- og viku-
kaups verkafólks verði lagðir til
grundvallar við skilgreiningu
láglauna, en ekki starfsheiti.
7. þing M.S.Í. felur miðstjórn
sambandsins að boða til ráð-
stefnu sambandsfélaganna i
febrúar 1977, til að ræða sérstak-
lega breytingar á kjarasamn-
ingum málmiðnaðarmanna og
skipasmiða og viðhorfin i kjara-
og samningamálum.
Stuðningur við
námsmennn
Frá atvinnu- og
kjaramálanefnd.
7. þing M.S.Í. lýsir fyllsta
stuðningi við námsmenn i baráttu
þeirra við stjórnvöld, um náms-
iánin.
Þingið telur að lánastefna rikis-
valdsins skerði möguleika al-
þýðufólks til námsjafnréttis.
Barátta námsmanna fyrir jafn-
rétti til náms er jafnframt
baráttumál verkalýðshreyfingar-
innar.
Þvi skorar þinglð á stjórnvöld
að endurskoða afstöðu sina gagn-
vart þeim lögum sem nú gilda um
námslán.
ÍÞROTTIR
Fimmtudagur 25. nóvember 1976
Getraunaseðillinn:
Seyðfirðingur
með 11 rétta
— varð rúmlega 400.000
krónum ríkari
í síðustu viku varð
Seyðfirðingur rúmlega
fjögur hundruð þúsund
krónum ríkari. Hann
hafði ellefu rétta á einum
seðli og vann 408.000
krónur. Þrjátíu raðir
voru með tíu rétta og var
vinningurinn 5.800 krón
ur.
Getraunaþáttur Alþýðublaðs-
ins vill óska félaga sinum, sem
sér um getraunaþátt Morgun-
blaðsins, til hamingju með sina
niu rétta i siðustu viku. 1 þetta
sinn hafði hann fleiri rétta en
Alþýðublaðið. Þess ber þó að
geta, að fastur umsjónarmaður
þessa pistils var forfallaður i
siðustu viku, og varð þvi vara-
maður hans að taka yfir. Nú,
hinsvegar, er getraunasérfræð-
ingur Alþýðublaðsins mættur i
slaginn aftur, og er þvi ekki að
efa, að útkoman snar batnar.
Birmingham—Man. City
Man. City ætti að vinna þenn-
an leik, en þó ber þess að geta,
að Birmingham er seigt á
heimavelli. Spáin verður þvi
útisigur, en jafntefli til vara
(fyrsti tvöfaldi leikurinn).
Coventry-Arsenal
Litið er um þennan leik að
segja, Arsenal vinnur öruggan
sigur, þó að á útivelli sé. Marka-
töluna þori ég hins vegar ekkert
að segja um.
Derby-Sunderland
Bæði þessi lið eiga i harðri
botnbaráttu um þessar mundir.
Sunderland hefur heldur tekið
við sér siðustu vikur, þó liðið
hafi ekki sýnt neina snilldar-
takta. Derby hefur hins vegar
komið mönnum á óvart með
getuleysi sinu i haust, jivi nógur
er mannskapurinn. Spain er þvi
jafntefli, en til vara aö Derby
sigri, að liðið hrökkvi nú i gang
á heimavelli sinum (annar tvö-
faldi leikurinn).
Leeds- Leicester
Eftir slaka byrjun, hefur
Léeds klifrað allhratt upp stiga-
töfluna. Spáin er þvi sú, að
Leicester takizt ekki að stöðva
prilið á heimavelli Leeds.
Kr. 800
© The Football League
Leikir 27. nóv. 1976
Birmingham - Man. City
Coventry - Arsenal
Derby - Sunderland . , .
Leeds - Leicester .....
Liverpool - Bristol City ..
Man. Utd. - West Ham .
Middlesbro - Ipswich
Newcastle - Q.P.R. .
Norwich - Aston Villa . .
Tottenham - Stoke
W.B.A. - Everton .
Notts County - Luton . .
Liverpool-Bristol City
Samkvæmt guðs og manna
lögum ætti Liverpool að sigra
Bristol City sannfærandi og er
spáin samkvæmt þvi.
Man. United-West Ham
Liðinu frá Manchester ætti
ekki að verða skotaskuld úr þvi
að sigra slakt Lundúnaliðið,
sem situr nú eitt og yfirgefið ,á
botninum. Ekki þar fyrir, Unit-
ed hefur ekki sigrað i deilda-
keppninni á annan mánuð, en
núna brjóta þeir likast til isinn.
Middlesbro-lpswich
Ipswich liðið er afar
skemmtilegt um þessar mund-
ir, vinnur hvern leikinn á fætur
öðrum. Með einum leik færra en
Liverpool, hafa þeir ekki nema
þremur stigum færra, stigin
verða ekki auðveldlega af þeim
tekin. Sökum afgerandi varnar-
leiks Middlesbro, þorum við
ekki annað en að spá jafntefli til
vara (þriðji tvöfaldi leikurinn).
Newcastle-QPR
QPR er eitt af þeim liðum,
sem hafa valdið undirrituðum
hvað mestum vonbrigðum i
haust. Newcastle, hins vegar, er
nú i 2.-4. sæti 1. deildarinnar og
eiga hvern stórleikinn á fætur
öðrum. Heimasigur, en til vara
jafntefli (fjórði og siðasti tvö-
faldi leikurinn).
Norwich-Aston Villa
Fátt um þennan leik að segja.
Jafnvei á útivelli sigra Vilia-
menn Norwich. Leikurinn er
siður en svo jafnteflislegur.
Tottenham-Stoke
Lið Tottenham hefur verið
mjög slakt í haust. Veldi hinna
fornfrægu Lundúnaliða virðist,
hafa minnkað. Chelsea i annarri
deild, og Spurs og West Ham á
botni þeirrar fyrstu. Arsenal er
eina liðið, sem heldur merki
Lundúna á lofti i knatt-
spyrnunni. SpáinJ útisigur.
WBA-Everton
Gæti orðið hörkuleikur, en við
spáum WBA sigrinum.
Notts County-Luton
Notts County er i banastuði
um þessar mundir, sigruðu Ful-
ham 5-1 á útivelli um siðustu
helgi. Heimasigur. —ATA
K
1 íx 2
7 *
/ /
T * %
%
‘l
Pressuleikur
í körfunni
t kvöld klukkan hálf niu fer
fram i iþróttahúsi Hagaskólans,
pressuieikur í körfubolta. Leik-
ur þessi er liður i undirbúningi
landsliðsins, en islendingar
leika landsleik við Norðmenn
um næstu mánaðamót.
Hinn júgóslavneski landsliðs-
þjálfari, Markovic, hefur nú
valið 12 leikmenn til þessara
leikja. Þeir eru:
Kristinn Jörundsson, tR.
Kolbeinn Kristinsson, tR
Jón Sigurðsson, Arm.
Kári Márisson UMFN
Rikharður Hrafnkelsson, Val
Þórir Magnússon, Val
Torfi Magnússon, Val
Ingi Stefánsson, 1S
Jón Jörundsson, tR.
Birgir Guðbjörnsson, KR
Einar Bollason, KR.
Bjarni Gunnar Sveinsson, tS
tþróttafréttaritarar hafa nú
valið lið sitt, og er það skipað
eftirtöldum leikmönnum:
Kolbeinn Pálsson, KR
Þorsteinn Hallgrimsson, ÍR.
Erlendur Markússon, tR.
Steinn Sveinsson, tS
Jimmy Rogers, Ármanni
Bjarni Jóhannesson, KR.
Stefán Bjarkason, UMFN
Guðmundur Böðvarsson, Fram
Jón Sigurðsson.
Agnar Friðriksson, ÍR.
Jón Héðinsson, tS.
Kristján Ágústsson, Val.
1 hálfleik verður vltaskota-
keppni iþróttafréttaritara, og er
ekki aö efa að þar verður einnig
hnifjöfn keppni.
Menn eru þvi hvattir til að
mæta I Hagaskóla I kvöld til að
sjá landsliðið sitt í körfubolta.