Alþýðublaðið - 25.11.1976, Síða 7
I
sssr Fimmtudagur 25. nóvember 1976
STJðRNMÁL 7
Eins og áður hefur
verið greint frá i
Alþýðublaðinu berst þvi
nær daglega efni frá
sovézku fréttastofunni
APN i Reykjavik.
Alþýðublaðið hefur oft
óskað eftir þvi að fá frá
fréttastofunni efni, er
fjallaði um samskipti
íslands og Sovét-
rikjanna.
Fyrir skömmu barst
blaðinu grein með
myndum um kaup
Sovétmanna á islenzk-
um varningi i
verzlunum i Moskvu, og
nú hefur blaðið fengið
viðtöl við nokkra
sovézka borgara, þar
sem þeir eru teknir tali á
götum i Moskvu og
spurðir: ,,Hvað vitið þér
um ísland?”
Það er fréttaritari APN i
Moskvu, Sergei Serebrjakof, sem
tók þessi viðtöl.
Fyrst lagði ég þessa spurningu
fyrir tvo 14 ára skólastráka,
Vladimir og Sergei.
— tsland, — sögðu þeir, — er
land i Norður-Evrópu og þess-
vegna er fremur kalt þar á
sumrin, en á veturna er þar
hlýrra i veðri en hér hjá okkur. A
tsíandi eru jöklar, fossar, eldfjöll
og hverir, og viðáttumikil hraun.
Ibúarnir eru rúmlega 200.000 og
býr nær helmingur þeirra i
Reykjavik. A Isiandi eru
hérumbil engir skógar og and-
rúmsloftið i borgunum er mjög
hreint vegna þess að heitt hvera-
vatner notað tilað hita upp húsin.
Islendingar eru mikið fyrir skák,
og svo spila þeir lika fótbolta.
Næst talaði ég við Veru Kús-
minu, þritugan hagfræðing sem
ókbarnavagni um gangstiga
skemmtigarðs nokkurs. Hún
sagði:
— Ég veit, að meirihluti
íslendinga er búsettur meðfram
ströndinni og að loftið er óvenju
hreintá Islandi, og vatnið lika, og
hefur þetta góð áhrif á heilsufar
þjóðarinnar.
Anatoli Malanitsjef logsuðu-
maður i Lihatsjof-bilaverksmiðj-
unni i Moskvu sagði:
— ísland er auðvaldsriki.
Aðalatvinnuvegur þjóðarinnar er
fiskveiðar. Þar að auki famleiða
Islendingar mjólk og kjöt.
Anatoli segist hafa lært margt
um tsland með þvi að horfa á
dagskrá um ísland i sjónvarps-
þættinum ,,Klúbbur kvikmynda-
ferðalaga”. Þessi þáttur er meðal
hinna vinsælli i soézka sjónvarp-
inu. Honum er sjónvarpað viku-
lega og markmið hans er að
kynna sovézkum sjónvarpsnot-
endum lff og störf manna í ólíkum
löndum.
Anatoli heldur áfram: — Ég
veit lika að árið 1973 tók eldfjall
vitið þér
..Hvað
Jevgéni Sjakhnin, 23 ára læknastúdent við Moskvuháskóla.
Moskvubúar og fleiri teknir tali
Vera Kúrsmina,
hagfræðingur.
að gjósa við Islandsstrend
ur, og hafði það áður verið talið
útdautt. tbúar eyjunnar áttu i
Anatóli Malanitsjéf, logsuðumaður.
miklum erfiðleikum og mér er
það mikið ánægjuefni að land
okkar var I hópi þeirra sem veittu
þeim aðstoð.
— Island er eitt af elztu rikjum
Evrópu, og á sér háþróaða og sér-
stæða menningu. Allir þekkja
Islendingasögur, sem enn i dag
eru visindamönnum rannsóknar-
efni. Ég las mér til mikillar
ánægju skáldsöguna Sjálfstætt
fólk eftir Halldór Laxness. Ég
veit lika að margir islenzkir
visindamenn, einkum málfræð-
ingar, hafa áunnið sér orðstir á
heimsmælikvarða. Og ég veit
ekki betur en verk islenzkra rit-
höfunda hafi verið gefin út i
miljónaupplagi hér i Sovétrikjun-
um siðan á striðsárunum.
Á meðan Jevgeni var að segja
frá Laxness kom til okkar sól-
brúnn miðaldra maður og spurði
hvernig þægilegast væri að
komast út í eitt af nýrri úthverf.
Moskvu. Það kom i ljós, að
maðurinn heitir Vladimir Sjari og
er búsettur i Adler.sem er
hafnarborg við Svartahaf. Hann
var i Moskvu i viðskiptaerindum.
Hann er 49 ára og forstjóri bila-
verkstæðis i Adler. Ég notaði
tækifærið og lagði fyrir hann
spurninguna mina. Hann hafði þá
lika séð sjónvarpsdagskrána um
' Island og var þvi ekki tregt tungu
að hræra:
Jevgéni Sjakhnin er lækna-
stúdent við Moskvuháskóla, og
hann svarar spurningu minni á
þsssa leið:
— Eg hafði gaman af að frétta
að tslendingar fundu Ameriku 500
árum á undan Kólumbusi. Það
litur út fyrir að þeir hafi verið
fyrstu Evrópubúarnir sem sigldu
yfir úthafið og settust að i
óbyggðu landi. Islendingar eru
kjarkmikil þjóð, og þeir eru
þekktir fyrir vinnusemi og frið-
semd, — segir Vladimir
ennfremur. Ég þekki vel lifið i
hafnarborgum og veit að það er
ekki heiglum hent að fást við
sjómennsku. Ég get lika bætt þvi
við að tslendingar veittu banda-
mönnum alla þá aðstoð sem þeir
gátu i striðinu og að samskipti
landa okkar eru vinsamleg.
Sergei Serebr jakof (APN)
Vladimir og Sergei, báðir 14 ára, nemendur 8.
bekkjar grunnskólans.
Vladimir Sjari, forstjóri bilav.erkstæðis i Adler við
Svartahaf.