Alþýðublaðið - 17.12.1976, Side 1
FÖSTUDAGUR 17. DESEMBER
—
Askriftar-
síminn er
14-900
Framsókn
samninga
vill ekki
við EBE
Sammála stjórnarandstöðunni og hættan á
undanþágusamningum er því úr sögunni
Það er nú ljóst, að Framsdkn-
arflokkurinn mun taka sömu.af-
stöðu gegn hugsanlegum iand-
helgissamningum við Efna-
hagsbandalagið og stjórnarand-
stöðuflokkarnir hafa þegar tek-
ið. Þetta kom fram i ræðu Þór-
arins Þórarinssonar, formanns
þingflokks Framsóknarflokks-
ins, við útvarpsumræður I
fyrrakvöld. Þetta þýðir i raun,
að á Aiþingi er ekki meirihluti
fyrir fiskveiðisamningum við
Efnahagsbandalagið. Verður
þvi væntanlega ekki um neina
samninga að ræða.
Orð Þórarins
Þórarihn sagði orðrétt: „1 til-
efni af þessu finnst mér rétt að
skýra frá þvi, að það hefur verið
rætt i þingflokki Framsóknar-
flokksins hvernig bregðast skuli
við, ef slikar tillögur um bráða-
birgðasamning koma fram.
Hefur slik málaleitan, ef til
kæmi, engar undirtektir feng-
ið....Aðalatriðið er þó það, að á-
stand þorskstofnsins leyfir ekki
frekari undanþágur.”
Af þessum orðum verður eng-
in önnur ályktun dregin en sú,
að Framsóknarflokkurinn sé
sammála skoðunum Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags, að
enginn grundvöllur sé fyrir
samningum við Efnahags-
bandalagið, og þvi sé úr sögunni
sú hætta, að nokkrir samningar
verði gerðir.
Til 1. desember 1977
Þórarinn Þórarinsson sagði,
að nú væri þannig ástatt, aö
Efnahagsbandalagsrikin hefðu
fiskveiðisamninga viö ísland,
sem veitti þeim rétt til að veiða
rúmlega 66 þúsund tonn á tima-
bilinu 1. desember 1976 til 1.
desember 1977. Það væri þvi
ekki nema eðlilegt, að Islend-
ingar vildu fá að vita hvort
Efnahagsbandalagið hefði eitt-
hvað að bjóða til að mæta þessu.
Enn hefði ekki komið neitt tilboð
frá Efnahagsbandalaginu, sem
gæti mætt framangreindu afla-
magni, og þvi siður að það geti
gert kröfur um viðbótarundan-
þágur fyrir Breta.
Engir samningar
Siðan sagði Þórarinn orðrétt:
„Það eru þvi engar horfur á, að
gerðir verði samningar við
Efnahagsbandalagið um gagn-
kvæm fiskveiðiréttindi i náinni
framtið.” Þá fjallaði Þórarinn
um hugmyndir, sem hann taldi
Framsóknarflokkurinn hefur
nú gert hreint fyrir sinum
dyrum, og lýst yfir þvi, að hann
viljienga fiskveiðisamninga við
Efnahagsbandalagið. Enn er
óljóst um afstöðu Sjálfstæöis-
fiokksins til máisin.
Hins vegar lét Þórarinn
Þórarinsson orð falla i útvarps-
umræðum i fyrrakvöld, sem
að fram hefðu komið hjá Efna-
hagsbandalaginu og samninga-
manni þess Gundelach um ein-
hverskonar bráðabirgðasamn-
ing. Um þessar hugmyndir
sagði Þórarinn: „011 bjartsýni
Gundelachs er þvi á sandi
byggð.”
—AG.
gefa fyllilega i skyn, að Sjálf-
stæðisflokkurinnn vilji ganga til
samninga. Hann sagði orðrétt:
„Þvi er heldur ekki að leyna að
stundum virðist Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa verið fúsari tn
samninga en samrýmzt hefur
sjónarmiðum Framsóknar-
flokksins.”
—AG
Vilja Sjálfstæðismenn
semja við EBE?
Guðrún Jónsdóttir geðiæknir en d sama tima 12 karlmenn.
hefur gert könnun á tiðni sjáifs- Guðrún ræðir i viðtalinu or-
viga (sjálfsmorða) á islandi á sakir sjálfsviga og sjálfsvigstil-
árunum 1962 til 1973 að báðum rauna, á hvaða aldri tilhneiging
árunum meðtöldum. 1 viðtali til sliks verknaðar er sterkust
við Guðrúnu, sem birt er á bak- og á hvaða árstima er mest um
siðu blaðsins i dag, kemur fram sjálfsvig.
að á þessum árum voru sjálfs- Þar kemur einnig fram su at-
vig á landinu samtals 261 og hyglisverða staðreynd að mikill
skiptist talan svo millikynja, að munur er á milli ára, hvað
karlar voru 209 en konur 52. sjálfsvig snertir, og að á árinu
Einnig kemur fram i viðtalinu 1966 skutum við Islendingar
að misheppnaðar tilraunir til öðrum þjóðum aftur fyrir okkur
sjálfsviga hér á landi eru um 8 i liðni sjálfsviga, með hvorki
til 10 sinnum fleiri en sjálfsvig meira né minna en 37 slika
og að konur séu i miklum meiri- verknaði.
hluta þeirra sem mistakast. A — hm
árinu 1976 hafa 39 konur verið
lagðar inn á geödeild Borgar-
spítalans vegna slikra tilrauna,
Sjá baksfðu
1 gær voru hengdar upp á Borgarspitalanum myndir frá Listasafni
ASt. Starfsmannaráð Borgarspitalans stendur fyrir þessari sýningu
sem á að standa fram I janúar. Á sýningunni verða 35 myndir eftir
22 islenzka listamenn, ein og fleiri eftir hvern. Hér á myndinni sézt
Hrafnhildur Schram hengja upp verkin á vegum Listasafns ASt, en
starfsmaður sjúkrahússins réttir henni hjáiparhönd.
Ein svona sýning hefur áður verið halcan á Borgarspitalanum,
þaö var i fyrra og var þar um að ræða sölasýningu á vegum starfs-
mannaráðsins. —hm. (AB-mynd: ATA:)
Ekkert Sig-
öldurafmagn
á þessu ári
Þessa dagana er unnið að
undirbúningsprófunum á
fyrstu vélasamstæðunni viö
Sigölduvirkjun, sem gera þarf
áður en vatni er hleypt á. Ljóst
er, að þeim veröur ekki lokið
fyrir jói og verður þvi ekki
notast við Sigöldurafmagn á
þessu ári, eins og ýmsir aöilar
höfðu jafnvel gert sér vonir
um..
Byggingaverktakinn við
Sigöldu, Energóprjójekt, lauk
starfi sinu við virkjunina þann
18. nóvember siðastliðinn. Var
þá eftir litilsháttar steypu-
vinna Þau verkefni munu þó
vera það smávægileg að það
mun ekki koma i veg fyrir að
starfræksla virkjunarinnar
geti hafizt þó þeim verði ekki
lokið fyrr en næsta vor.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins verður fyrsta véla-
samstæða Sigölduvirkjunar
tekin I notkun um mánaðamót
janúar-febrúar, önnur i april
en þriðja og siöasta vélasam-
stæða virkjunarinnar mun
væntanlega taka að snúast I
júlimánuði næsta sumar.
— GEK
Hvað
lesa
þær?
Sóknar-
konur?
— BHM-
konur?
Mótar menntun manna
lestrarvenjur þeirra bæði
það hversu mikið menn
lesa og hvað þeir lesa?
Hvaða þjóðfélagshópar eru
það sem lesa bækur Snjó-
laugar frá Skáldalæk og
Guðrúnar frá Lundi? Er
það fólk úr ölium félagslög-
um og stéttum sem les
bækur Hannesar Péturs-
sonar, Guðbergs Bergsson-
ar og Dags Sigurðarsonar.
Alþýðublaðið birtir i dag
niðurstöður athyglisverðr-
ar könnunar sem Þórir
Ölafsson gerði, en hún var
hluti af BA-verkefni hans
við Námsbraut I þjóðfé-
lagsfræðum við Háskóla ís-
lands.
Þórir vildi kanna
hvort hugsanlegt væri að
greinilegur munur sé á þvi
hvernig Islendingar með ó-
likan menntunarlegan bak-
grunn fullnægi lesþörfum
sinum. Hann valdi þvi til-
viljunarúrtak 50 kvenna i
Reykjavik sem allar eru
fæddará árunum 1940-45 og
sem allar vinna utan heim-
ilis. Helmingur kvennanna
var úr starfsstúlknafélag-
inu Sókn, en hinn helming-
urinn var úr Bandalagi há-
skólamanna. Þórir lagði á-
kveðnar spurningar fyrir
konur þessar og eru niður-
stöður úr könnuninni mjög
athy glisverðar fyrir
margra hluta sakir.
Sjá nánar bls. 8 og 9
Góðar
sölur
Tveir Vestmannaeyja-
bátar seldu isfisk I Þýzka-
landi I gærmorgun. Alsey
tæp 59 tonn fyrir röskiega
8,1 millj. sem gerir á nú-
verandi gengi tæplega 138
kr. pr. kg. Alsey seldi i
Bremerhaven.
Glófaxi seldi I Cuxhaven
rösklega 37 tonn fyrir 5,25
milljónir, sem gerir 141,50
kr. pr. kg.
Þetta munu verða með
siöustu sölum i Þýzkalandi
fyrir þessi n.k. jól á ís-
lenzkum isfiski. —OS