Alþýðublaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 2
2 STJÓRNMÁL
Föstudagur 17. desember 1976 blaSlö1'
1 1 I iW ^l 1 Utgefandi: Alþýðiiflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar er i Sfðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftarsimi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftarverö: 1100 krónur á mánuði og 60 krónur i lausasölu.
Stðriðja og smáiðnaður
Þótt stóriðja á (slandi
sé mjög umdeilanleg og
ákvörðun hafi verið tekin
um smíði járnblendiverk-
smiðju á Grundartanga,
er það fagnaðarefni að
Islendingum skuli hafa
tekizf að ná samningum
við norska fyrirtækið
Elkem Spigerverket um
smiði verksmiðjunnar.
Þetta norska fyrirtæki
hefur á sér gott orð og
samvinna við það er
vænlegri til árangurs, en
ef bandaríska risafyrir-
tækið Union Carbide
hefði tekið verkið að sér,
eins og stef nt var að. For-
ystumenn norska Verka-
mannaf lokksins lýstu því
yfir í viðtali við Alþýðu-
blaðið fyrir nokkru, að
Elkem Spigerverket
hefði komið til móts við
kröfur verkamanna og
náttúruverndarmanna
um þátttöku í rekstri,
vinnuvernd og
mengunarvarnir.
En erindi þessa leiðara
var ekki að taka afstöðu
til samningsins sem slíks,
heldur að benda á tvö at-
riði tengd honum. Fyrra
atriðið er það hvort ekki
sé orðið fyllilega tíma-
bært að taka til endur-
skoðunar þær iðn-
þróunarhugmyndir, sem
hafa verið að mótast á
undanförnum árum.
Stóriðja er ein lausnin
til að f jölga atvinnugrein-
um á íslandi og til að nýta
raforkuna. Hin lausnin,
og sú sem virðist mun
vænlegri, er að efla
hverskonar smáiðnað
sem ekki hefur í för með
sér sömu hættur og stór-
iðjan.
Akureyri er eitt Ijós-
asta dæmið um kosti
smáiðnaðar. Þar hafa
þróazt iðnfyrirtæki sem
byggja orðið á traustum
grunni, skapa mikla at-
vinnuog afla bæjarfélag-
inu verulegra tekna.
og komið í veg fyrir þær
Þessi iðnaður hef ur aukið
til muna jafnvægi í fjár-
málum bæjarfélagsins
rriiklu sveif lur, sem verða
i bæjum og þorpum, þar
sem öll afkoman byggist
á útgerð.
Svipaða sögu er að
segja úr Borgarnesi. Þar
hafa risið nokkur iðn-
fyrirtæki, sem haft hafa
mjög góð áhrif á atvinnu-
líf og afkomu íbúanna. —
Á hinn bóginn hafa Is-
lendingar fyrir augum
bæjarfélög, sem ein-
göngu hafa tekjur af út-
gerð, og þar sem allt fer
úr skorðum þegar fiskinn
skortir. Þar er ekkert
uppá að hlaupa.
Islendingar hafa um
áratuga skeið selt úr
landi margvísleg hráefni,
óunnin eða hálfunnin.
Aðrar þjóðir hafa haft af
því ómældar tekjur að
fullvinna þessi íslenzku
hráefni og senda þau á
markað. Þessa þróun
þarf að stöðva þegar í
stað.
Síðara atriðið er að
benda á fáránlega að-
stöðu iðnaðar á íslandi.
Iðnaðurinn hefur verið
olnbogabarn íslenzkra at-
vinnuvega, þótt rætt sé
um hann sem einn helzta
bjargvætt atvinnulífsins
nú og á næstu árum.
Iðnaðurinn á að taka
við þeirri fjölgun, sem
verður á vinnumarkaðn-
um, en þó býr hann við
skilyrði, sem eru miklu
lakari en þekkist í ná-
grannalöndum okkar, og
nægir í því sambandi að
nef na verð á raforku. Er-
lendri stóriðju er gert
mun hærra undir höfði en
íslenzkum iðnaði. I þess-
um efnum þarf að verða
algjör stefnubreyting, ef
smáiðnaður á að þróast
eðlilega og verða sá
bjargvættur, sem honum
er ætlað að vera.
—ÁG—
EIN-
DÁLKURINN
Vatikanið i íslenzku
efnahagslifi____
Aður hefur
verið á þaö
bent hér i
þessum dálk-
um hvernig
Seðlabankinn
hefur rifið sig
iausan úr
tengslum við
löggjafarvaldið
veitinganefnd.
— einkum fjár-
Undir stjórn Jóhannesar Nord-
al er Seðlabankinn að verða eins
konar vatikan islenzks efnahags-
lifs, fririki sem nýtur þó verndar
stjórnvalda. Páfaveldi án stjórn-
skipulegra valdatengsla en meö
mikil óbein völd og áhrif.
Seðlabankinn hefur áður fært
ýmsum stofnunum og félögum
rausnarlegar gjafir, svo sem
starfsmannafélagi bankans og nú
hefur yfirmaður þessa vatikans
tilkynnt forseta tslands og rikis-
stjórn að hann hafi ákveðið að
verja 300 milljónum af 337 milljón
króna tekjum af sölu minnispen-
ings til stjóöstofnunar.
Aðalbankastjórinn taldi þó rétt
aö leyfa islenzkum ráðamönnum
að taka þátt i ákvörðunum um
hvernig þessari upphæð skuli
endanlega varið, en hann hefur
tjáð þeim þær meginreglirr, sem
þeir skuli starfa eftir.
Sumir alþingismenn uröu
hvumsa við er þeir heyrðu af
þessari rausn og Sigurlaug
Bjarnadóttir bar fram fyrirspurn
á Alþingi til viðskiparáðherra
hvers vegna lögkjöriö fjárveit-
ingavald væri ekki haft meö i ráð-
Ráðherra, sem þegar hafði set-
ið veizluna í páfagaröi svaraði
þvi til að lýðræðis yrði gætt þegar
ríkisstjórn væri búin að Ihuga til-
lögur aðalbankastjóra Seöla-
bankans yrði málið lagt fyrir Al-
þingi.
Og sennilega hefur þaö aðeins
verið fyrir siðasakir, ef aöal-
bankastjórinn hefur látið hjá liöa
aö tilkynna rikisstjórninni slikt i
veizlunni við Hafnarstræti.
—BS
••••••••••••••••••••••<
ELDHUSIN ERU
ÓDÍRARl
Spyrjið, hringið eða skrifið
biðjið um litmyndabækling.
HAGI!
Suðurlandsbraut 6,
Reykjavík.
Sími: (91) 84585.
Akureyri.
Sími: (96) 21507
4sP..s<G
s-
/ &
■ <s-
/
<2>
/ vO ,<<>
/
/ ' Ao'
✓ N.O
✓ ■ír’
/^ / ,••■■
Verslunin Glerárgötu 26, /^
Vinsælustu
og bestu þríhjólin
Aðror stá»rdir. smtðadar eftir beiðnc
GLUÍiÁASMIDJAN
Siöumúla 20. simi 38220
X karaar }
Lagerstærðir miðað við jmúrop:;
IJæð-,210 sm x breidci: 240 sro
‘210 - x - 270 sm
VIPPU - BltSKURSHURÐIN
isuiií
QjDUGOTiJ 3
1179J DC1RB33.
Varahlutaþ jónusta.
Spitalastig 8, simi 14661, pósthólf 671.
Aramótaferð í Þórsmörk 31.
des. — 2. jan. Ferðin hefst kl.
07.00 á gamlársdagsmorgun
og komiö til baka á sunnu-
dagskvöld 2.jan. Fararstjóri:
Guðmundur Jóelsson. Altar
nánari upplýsingar og far-
miðasala á skrifstofunni öldu-
götu 3.