Alþýðublaðið - 17.12.1976, Blaðsíða 14
14 LISTIR/MENNING
Föstudagur 17. desember 1976 biaóiö
Nýjar bækur:
PALU VAR EINN
f HEIMINUM
Palli var einn i heiminum, hin
heimsfræga barnabók- Jens
Sigsgaard — er nýlega komin út
hjá Bókaútgáfunni Björk,
Reykjavik. Þetta er þriðja útgáfa
bókarinnar. Hún kom fyrst út
haustið 1948 og aftur 1970, en hef-
ur verið ófáanleg i bókaverzlun-
um i mörg ár. Smávægileg breyt-
ing hefur verið gerð á útgáfu
þessari.
Palli var einn i heiminum kom
fyrst út hjá Gyldendal i Kaup-
mannahöfn 1942. Bókinni var þá
þegar afburðavel tekið og hefur
siðan veriö prentuð i Danmörku
aftur og aftur i stórum upplögum,
þvivinsældir hennareru gifurleg-
ar. Þá hefur bókin veriö þýdd á
um 30 tungumál i öllum álfum
heims og hvarvetna oröið slgild
barnabók með endurteknum
útgáfum.
Jens Sigsgaard höfundur
bókarinnar var um langt skeiö
forstöðumaður Fröbelsskólans i
Kaupmannahöfn. Hefur hann
skrifaö margar aðrar vinsælar
barna- og unglingabækur.
Teikningar i bókinni eru eftir
Ame Ungermann og eru þær i 4
litum.
Vilbergur Júliusson skólastjóri
þýddi Palla á islenzku , en Prent-
smiöjan Oddi h/f, offsetprentaði.
bókina. Hún er i vönduðu og
sterku bandi, á góðum pappir og
hin fallegasta að allri gerö. Þessi
heimsfræga barnabók mun
áreiðanlega veröa islenzkum
börnum kærkomin, nú sem áður,
þvi fyrri útgáfur hafa selst upp á
skömmum tíma.
SIRKUS
- eftir Alistair
Maclean
Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið
út bókina Sirkus eftir hinn kunna
skáldsagnahöfnund Alistar
MacLean. Bókin fjaliar um
dirfskufulla ferð Sirkusflokks inn
i austur-Evrópu riki, þar sem að
ráðamenn á vesturlöndum i
Bandarikjunum telja að uppgötv-
að hafi verið gereyöingaefni, sem
sé mikilvirkara en önnur slik. Og
svo sem i öðrum bókum sama
höfnundar rikir mikil spenna frá
upphafi til enda.
ADAM VAR EKKI í PARADÍS
Síðasta skáldsaga bandarísks metsöluhöfundar
Bókaútgáfan Ásar hefur sent
frá sér i islenzkri þýðingu Alf-
heiðarKjartansdóttursiöustu bók
metsöluhöfundarins Grace
Metalious, en hún lést árið 1964,
aöeins 40 ára að aldri. Þessi nýja
bók nefnist Adam var ekki i
paradis.og á bókarkápu segir ab
þetta sé saga, skrifuð af konu, um
konur i fjórum ættliðum, konur,
sem skirrast einskis I ágirnd
sinni i viötækri merkingu. Þær
beita mönnum sinum fyrir sig
miskunnarlaust , eiginmönnum
og elskhugum.
Grace Metalious varð kunn fyr-
ir metsölubók sina, Sámsbær, en
hún seldist i milljónum eintaka
strax þegar fyrsta prentun henn-
ar hafði komið i bókabúðir.
Bókin Adam var ekki i Paradis
seldist mjög vel i Bandarikjunum
og viðar en hefur ekki verið þýdd
á islenzku fyrr en nú, meira en 12
árum eftir að hún kom fyrst út.
VOGUN
VINNUR
Skuggsjá hefur gefið út bókina
Vogun vinnur, eftir Edmund
Hilary, þann sem fyrstur manna
setti fót á Everesttindinn, hæsta
fjallstind jarðarinnar. A bókar-
kápu segir, „Hér er sögð saga
manns sem lifað hefur heillandi
ævintýralifi, þar sem hættur
leyndust svo að segja við hvert
fótmál.
MÖRG ERU GEÐ GUMA
Ægisútgáfan hefur sent frá sér
bókina Mörg eru geö guma.
Höfundurinn er Ágúst Vigfússon.
A bókarkápu segir að höfundur
sé þeirrar náttúru að fólk leggi
við hlustirnar þegar hann flytji
mál sitt og les það sem hann
skrifar.
I þessa bók hefur verið safnað
nokkru af þvi sem hann á i fórum
sinum og hefur bókinni veriö val-
ið heitið Mörg eru geð guma.
í bókinni segir Vigfús af kynn-
um sinum af mörgum ólikum
manngerðum. Hugstæöastar eru
höfundinum persónur sem hafa
lent utangarðs i þjóðfélaginu.
Hér slæðast þó með I förina ýmsir
andans jöfrar og skörungar. Má
þar nefna Sigurð Einarsson,
Hannibal.Stein Steinar og fleiri.
Ægisútgáfan
Poseidon siysið
Ægisútgáfan gefið út
skáldsöguna Poseidonslysið eftir
Paul Gallico. Hann hefur skrifað
margar bækur, sem vakið hafa
mikla athygli, en Poseidonslysið
er þeirra þekktust, meðal annars
vegna þess að hún hefur verið
kvikmynduð.
SS-foringinn
önnur skáldsaga frá Ægisút-
gáfunni nefnist SS-foringinn og er
hún eftir Sven Hazel. Bækur hans
hafa verið gefnar út i 52 löndum i
stóru upplagi. A islenzku er þetta
8. bókin og eru þær allar sagðar
hafa selzt upp. Þessi bók fjallar
um orustuna um Stalingrad.
ÚTGÁFUBÆKUR ÍSAFOLDAR ÁRIÐ 1976 25-30 TALSINS
Utgáfubækur isatold-
ar árið 1976 eru um það
bil 25—30 séu endur-
prentanir kennslubóka
og annarra bóka taldar
með.
A þessu ári hafa 4 af Nonnabók-
unum verið endurprentaöar þ.e.
Nonni, Nonni og Manni. Ævintýri
úr eyjum og Eldeyjan I
noröurhöfum.En alls eru Nonna-
bækurnar 12 að tölu og njóta að,
þvi er virðist sömu vinsælda hjá
hverri nýrrikynslóðsem upp vex.
Þá hafa og verið endurprentaðar
margar kennslubækur en eins og
kunnugt er er Isafold með stærri
útgefendum á sviði kennslubóka i
landinu. Meðal þeirra bóka má
nefna endurskoða.a útgáfu af bók
Helga Skúla Kjartanssonar Þættir
úr sögu nýaidar og einnig var
Ensk Islenzk orðabókeftir Sigurð
örn Bogason endurprentuð.
Þann 16. júni s.i. hófst
hundraðasta starfsár Isafoldar-
prentsmiðju h.f. Að þvi tilefni
kom úthjá forlaginu stór og vönd-
uð Islenzk-dönsk oröabókeftir þá
höfundana dr. Ole Widding,
Harald Magnússon og Preben
Meulengracht Sörensen. Þessi
bók er eins og áður segir stór og
fullkomin, meira en 900 bls. að
stærð og má hiklaust fullyrða að
hún taki við þar sem orðabók
Sigfúsar Blöndals lýkur. Af orða-
bókinni voru sérprentuö og bund-
in sérstaklege 150 tölusett og árit-
uð eintök i tilefni hundraðasta
starfsársins, og eru ennþá fáan-
leg eintök af þeirri útgáfu.
Þá kom út á Iiönu voru ný mat-
reiðslubók eftir húsmæörakenn-
arana önnu Gisladóttur og
Bryndfsi Steinþórsdóttur. Bókin
ber heitið Við matreiðum og er
300 bls. að stærö og má segja að
hún sé sniðin fyrir nýtlma lifn-
aöarhætti, fyrir íslenzkar aöstæð-
ur og islenzkan mat.
Út er komin nýtt Lögfræöinga-
tal eftir Agnar Kl. Jónsson en
hann var einnig höfundur Lög-
fræðingatais sem út kom árið 1950
og aftur 1963. Þetta nýja tal nær
yfir alla Islenzka lögfræöinga frá
árinu 1900 til ársloka 1975.
Frá þvi að siöasta útgáfa kom
út hafa bæzt I stétt lögfræöinga
260 nýjir lögfræðingar.
Frfmerkjaverðlistinn tslenzk
frimerki 1977 er kominn út og er
þetta 21. útgáfa hans. Ritstjóri
listans er og hefur verið frá
upphafi Sigurður H. Þorsteins-
son.
Af þeim bókum sem eru óút-
komnar má fyrst nefna nýja
skáldsögu eftir Thor Vilhjálmss-
son. Bókin hefur ekki hlotið nafn
ennþá, en hver ný bók Thors vek-
ur að vonum verðskuldaða
athygli og eru margir sem biöa
hverrar nýrrar bókar hans með
óþreyju.
Þá kemur út ný bók eftir Arna
Óla, Grúsk. Árni hefur á langri
ævi og löngum blaðamannsferli
sinum stööugt verið að grúska I
gömlum fræðum og sögum, hann
hefur kafaö niður I djúp sögunnar
og dregið fram I dagsljósiö ýmis-
legt sem öðrum er hulið. Úr þessu
grúski hans hafa oröið til fjórar
bækur og nú bætist sú fimmta við.
„Girnist þú fiskilán af sjó, svo
tak minn character, og geym
hann þér i barmi, og trú þú minu
sakramenti, og reið þig upp á
mina velvild við þig, en aldrei má
þér guð I huga koma meðan þú
lærir þennan minn kröftuga lær-
dóm. Svo skaltu fiska framar
öðrum og aldrei skaltu I sjó
drukkna” svo segir sira Páll
Björnsson I Selárdal I einu rita
sinna. Lýður Björnsson sagn-
fræðingursérum útgáfu Caracter
Bestiæ eftir sr. Pál, en það er
höfuðrit um galdra á Islandi.
Bókin heitir I gerð Lýðs Kenni-
mark kölska og er reyndar þrjár
ritgerðir um galdra eftir þá sr.
Pál I Selárdal og Daða Jónsson.
Engin þeirra hefur áður verið
prentuð.
Bókin er með ýtarlegum inn-
gangi og skýringum og er riku-
lega myndskreytt.
Á siöustu timum hefur vaknað
allmikill áhugi fyrir þessum
fornu fræðum og eru fáar bækur
betur til þess fallnar að kynna
nýtima fólki hinn forna galdur en
einmitt þessi.
Þó sira Páll i Selárdal hafi
löngum verið kenndur við myrk-
asta timabil Islandssögunnar, þá
var hann að öðru leyti meðal
merkustu manna landsins.Há-
lærður maður, annálaður ræöu-
skörungur, búhöldur og
brautryðjandi og framfaramaður
I útvegsmálum.
Fólkiö á Steinshólier 9. bindið i
ritsafni Stefáns Jónssonar. Einar
Bragi skáld sér um útgáfu þessa
bindis eins og þeirra fyrri, en
myndskreytingu annast Jón
Reykdal. Fólkið á Steinshóli hef-
ur verið ófáanleg I mörg ár og
verður það sjálfsagt mörgum
gleðiefni að rifja upp kynni sin af
Lilla og öðru fólki á Steinshóli á
ný. Þau átta bindi sem áöur eru
útkomin hafa fengið hinar beztu
viðtökur hjá lesendum, enda hef-
ur þar ekkert verið til sparað að
gera bækurnar sem bezt úr garði.
Tveggja kosta völheitir nýjasta
skáldsaga Anitru, en áður eru
komnar út eftir hana 9 bækur hjá
Isafold.
Sagan gerist i hinu fagra um-
hverfi Heiðmerkur i Noregi, og
fjallar um ástir, afbrýði og ættar-
erjur.
tsafold mun á þessum vetri
endurútgefa 3 bækur sem hafa
verið ófáaniegar um langt árabil,
en munu þó aðeins verða til I
mjög takmörkuðu upplagi. Þess-
ar þrjár bækur eru:
tslandsferðin I907en það er frá-
sögn um för Friðriks konungs
áttunda og rikisþingmanna til
Færeyja og tslands sumariö 1907.
Tveir danskir blaðamenn,
Svenn Poulsen og Holger Rosen-
berg, fylgdust með konungi alla
ferðina og skrifuðu bók þessa sem
er meir en 330 bls. og með yfir 200
myndum.
t ís og myrkri eftir Friðþjóf
Nansen. I ferðabók þessari segir
frá frækilegasta þætti
Fram-leiðangursins norska
(1893—96) þegar Friðþjófur
Nansen fór viö annan mann frá
leiðangursskipinu, og gerði til-
raun til að komast á
norður-heimskautið en snéri
siöan suður á bóginn og komst
Framhald á bls. 10.
Tækni/Vísindi
Leyndardómur Veddel selsins 4.
Þaö er enn óráðin 0o'
gáta hvernig Vedd-
ei selurinn getur
komið hratt upp af
600 metra dýpi án /L
þess að fá kafara-
veikina illræmdu.
T9&.-4-/7Z Veiki þessi stafar af þvi að nitur
leysist upp I blóðinu vegna
,þrýstihgsins, þegar kafarinn er
I, kafi. Þegar þrýstingurinn* 1
lækkar snögglega breytist nitrið,
I loftbóiur og getur þaö leitt til-
örkumla og jafnvel dauða.
LUNGsS
UNbER.
PRESSUR.E
Svo viröist sem lungu seisins’
leggist algjörlega saman þegar
hann kafar niður á mikið dýpi.
Loftiði lungunum þrýstist þá út
I barkannog kemur þaö I veg
fyrir aö nitrið i loftinu geti
bundist blóðinu.
Þetta kemur einnig
I veg fyrir að selur-
inn geti unnið súr
efni og þvi fækkar
' hjartaslögunum
, v uns þau verða ein-
ÁKungis 10% af þvi
lAsem eðlilegt er. Þá
SíSJdregur hann svo til
Jalgjörlega úr blóð-
streymi til allra,
likamsvefja, nema'
hjarta og heila.