Alþýðublaðið - 17.12.1976, Side 16
Sjálfsvíg hafa ekki aukizt hlutfallslega
FÖSTUDAGUR
17. DESEMBER 1976
Aukin þrýstingur vegna
breyttra viðhorfa
- segir Guðrún Jónsdóttir geðlæknir á Geðdeild Borgarspítalans
Geðdeild Borgar-
spitalans var fyrsta
geðdeildin sem sett var
á stofn á almennu
sjúkrahúsi hér á landi,
tekin i notkun i júni-
mánuði 1968. Að sögn
Guðrúnar Jónsdóttur
geðlæknis þar, er talið
mjög heppilegt að hafa
slikar deildir inn á
almennum sjúkra-
húsum, þar sem mikið
atriði er fyrir sjúk-
lingana sjálfa að vera
ekki greindir frá öðrum
sjúklingum með þvi að
setja þá á sérstakar
geðlækningastofnanir.
Sagði Guðrún sam-
starfið við aðrar deildir
sjúkrahússins mjög
gott, en það sem háði
deildinni nokkuð væri
skortur á starfsliði.
Ástæðan til þess að blaðið
hafði tal af Guðrúnu var sú, að
þvi hefur heyrzt fleygt, að tiðni
sjálfsviga (sjálfsmoröa) hafi
mjög farið vaxandi og einnig, að
þrýstingur á geðsjúkrahús og
geðdeildir hafi mjög aukizt upp
á siðkastið vegna aukinnar
þarfar. Sjúklingar geðdeildar
Borgarspitalans eru að mikl u
leyti fólk sem gert hefur tilraun
til sjálfsvigs og Guðrún þvi
flestum fróðari um þau mál,
auk þess sem hún hefur rann-
sakað sjálfsvig á Islandi á
árunum 1962 til 1973 og orsakir
þeirra.
Breytt viðhorf skapa
aukinn þrýsting
Það kom i ljós í viðtalinu við
Guðrúnu, að fjöldi sjúklinga á
geðdeildinnihefur fariö vaxandi
ár frá ári. Þannig voru 384
sjúklingar þar árið 1974, 435
árið 1975 og á þriðjudaginn var,
14. des., hafði sjúklingatalan
náð um 400, þannig að talið er
vist, að hún fari i ár yfir þann
fjölda sem var siöasta ár. Af
þessum fjölda i ár eru liölega
170 sem koma í fyrsta skipti á
deildina og yfir 50 sem koma af
Slysavarðstofunni eftir sjálfs-
vigstilraunir.
Þessi aukni sjúklingafjöldi,
telur Guörún, stafar að miklu
leyti af þvi að viðhorf fólks
hefur breyzt mjög gagnvart
geðrænum sjúkdómum og trú
hefur aukizt á möguieikum til
að lækna þá. Þetta kemur af
aukinni fræðslu um þessi mál
meðalalmenningsEinnig kemur
til, að mörg heimili, risa ekki
undir þvi að hafa þar einstak-
ling meö geörænan sjúkdóm
vegna aukinnar vinnu aðstand-
enda utan heimilisins.
Þjóðfélagsmyndin hefur breyzt
að þessu leyti, en jafnframt
skilningur almennings á
þessum málum. Erfiðleikar við
að fá pláss fyrir langlegusjúk-
linga annars staðar, skapar
mikil vandamál.
Ekki hlutfallsleg
fjölgun sjálfsviga
Eins og fyrr segir hefur
Guðrún gert könnun á sjálfs-
vigum á Islandi á árunum 1962
til 1973. Til viðbótar þeim athug-
unum eru nú komnar tölur fyrir
árin 1974 og 1975, en sjálfsvig
voru 22 bæði árin, 1974 16 karlar
og 6 konur og 1975 14 karlar og 8
konur. Tölur eru ekki til fyrir
árið sem er að liöa. Ekki kemur
fram i könnuninni hlutfallsleg
fjölgun, heldur aö tiöni sjálfs-
viga er mjög breytileg frá ári til
árs og mánuði til mánaðar
Þannig er árið 1966 með lang-
hæsta tölu sjálfsvlga á þeim tólf
árum sem könnun Guðrúnar
tekur yfir, eöa 37, en hins vegar
kvaðst hún ekki hafa gert sér
grein fyrir ástæðunni.
Hvað árstima snertir, er mjög
almenn skoöun aö sjálfsvig og
sjálfsvigstilraunir séu i
hámarki i dimmasta skamm-
deginu. Þetta er, að sögn
Guðrúnar, rétt hvað snertir
konur. Þar eru mánuðirnir
október, nóvemberog desember
með hæsta tiðni. En hjá karl-
mönnum er tiðni sjálfsviga hæst
i marzmánuöi og mái, þ.e.
þegar daginn lengir.
Samanlagður fjöldi sjálfsviga
Guðrún Jónsdóttir
á árunum 1962 til 1973 var 261 og
skiptist þannig, að karlar voru
209 en konur 52. Þetta hlutfall
milli kynja er hið mesta á
Norðurlöndum, en hvað snertir
fjölda sjálfsviga eru Islendingar
i næstneðsta sæti á Noröur-
löndum. Aðeins Noregurer fyrir
neöan.
Hvað aldur snertir viröast
■árin frá 60 til 69 ára aldurs vera
erfiöust hjá karlmönnum,
38,4%, og raunar einnig hjá
konum, 12,6%.
Róttækari aðferðir
karla
Það er athyglisvert, að
tilraunir til sjálfsviga eru 8-10
sinnum fleiri en sjálfsvig og aö
konur eru i miklum meirihluta
meðal þeirra sem mistakast
slikar tilraunir. Meðal sjúklinga
sem lagöir eru inn vegna sjálfs-
vigstilrauna eru 39 konur á móti
12 karlmönnum, af tilraunum
sem takast má hins vegar segja
að hlutfallið sé þveröfugt, karl-
menn i miklum meirihluta, eða
l:14.Þetta kemurmeðalannars
til af þeim aöferðum sem
notaðar eru: karlmenn nota
mun róttækari aðferðir, eins og
skotvopn til dæmis, en konur
hneigjast fremur að lyfjatöku
og öðrum aðferðum, sem unnt
erað ráða bót á, ef viðkomandi
kemst undir læknishendur.
Aðstæður persónulegar
og þjóðfélagslegar
En hverjar eru orsakir þess,
að fólk reynir aö svifta sig lifi?
Að baki sérhvers sjálfsvigs
hlýtur að liggja harmleikur
þeirrar manneskju sem slikan
verknaðfremur. En hverjar eru
rætur slikra persónulegra
harmleikja?
— Þær eru mjög mis-
munandi, segir Guðrún. —
Persónulegar og þjóðfélags-
legar. Menn geta fengið staö-
festingu á þvi, að þeir séu
haldnir banvænum sjúkdómi og
lifið verður þeim óbærilegt við
þá vitneskju. Erfiðleikar i fjár-
málum, fjölskylduerjur, tilraun
til að ná sér niðri á einhverjum
nákomnum. Samkvæmt athug-
uninni sem fyrr getur um, voru
36,8% haldnir geðsjúkdómum
sem staðfestir voru. 21,8% voru
haldin geðrænum vandamálum
vegna ofneyzlu áfengis og lyfja.
Auk þess var talið, en ekki stað-
fest með geðskoðun fyrir andlát,
aö 16,1% hafi þjáöst af þung-
lyndi.
— En hvernig bregðast þeir
við, sem gert hafa tilraun til
sjáífsvigs og vaknað á sjúkra-
húsi?
— Þaðskiptirmjögitvöhorn.
Margir eru vonsviknir þegar
þeir vakna og uppgötva að þeir
lifa enn. Aðrir eru fegnir að
þetta skyldi hafa mistekizt. Af
samræðum við þetta fólk hef ég
komizt að þvi, að dauðaósk og
lifslöngum eru mjög jöfn á
metum hjá þvi.
En það er nú svo, að þeir sem
vonsviknir eru og jafnvel reiðir
okkur fyrir að lifga þá við,
komast yfirleitt yfir það hugar-
ástand og það er i raun ótrúlegt,
hve skamman tima þaö tekur að
komast ;yfin það. Og ég get
sagt, að þegar vel tekst til, er
þetta þakklátasta starf sem ég
get hugsað mér, sagði Guðrún
Jónsdóttir að lokum.
—hm
Hafa „strætó-flugfargjöldin" áhrif á Bandaríkjaflug Flugleiða?
LAKER UNDIRBÝÐUR FLUGFAR-
GJÖLD A N-ATLANTSHAFSLEIÐ
I fyrradag féll i hæstarétti i
London dómur i máli Fred Laker,
eigianda flugfélagsins Laker Air-
ways, gegn samgönguyfirvöld-
um, sem hafa neitað aö veita
Laker flugfélaginu leyfi til að
hefja reglubundiö flug yfir Norö-
ur-Atlantshafiö á lægra verði en
önnur flugfélög hafa hingað til
boðið.
Dómur féll á þann veg að þá-
verandi samgönguráöherra hefði
ekki haft heimild til aö koma í veg
fyrir ráöagerð „Strætisvagnafar-
gjalda” Laker, þótt svo hann
hefði taliö slikt ekki þjónahags-
munum brezkra flugsamgangna.
Laker hefur lengi haft á prjón-
unum að bjóða upp á mjög ódýrar
flugferðir til Bandarikjanna, með
vissum skilyröum þó. M .a. veröur
engin þjónusta veitt um borð
nema greitt sér sérstaklega fyrir
hana önnur en neyðarþjónusta.
Farþegar verða aö vera mættir á
flugvöll tilteknum tima fyrir aug-
lýsta brottför og þar ræður biðröð
þvi hverjir munu fá far. Félagið
verður ekki bótaskylt gagnvart
þeim, sem lenda það aftarlega i
röðinni aö þeir komast ekki meö.
Með slikum og öðrum ráðstöf-
unum telur Freddy Laker sig þess
umkominn aö bjóða mjög ódýrt
flugfar á leiðinni milli London og
New York og segir sjálfur aö
þetta muni ekki keppa svo mjög
við áætlunarflug almennt, heldur
miklu fremur við leiguflug hóp-
ferða, en þaö hefur tekið nokkurn
skerf farþega frá þeim flugfélög-
um, sem haldiö hafa uppi reglu-
bundnu áætlunarflugi.
„Strætisvagnaflug” Lakers
verður reglubundið, og hann
skuldbindur sig að fljúga alla
auglýsta daga, þótt ekki verði um
fulla nýtingu að ræða. En einmitt
á þeim forsendum helztum Ur-
skurðaði hæstiréttur að ekki væri
hægt aö meina flugfélaginu um
ieyfi.
Flugmálayfirvöld New York
rikis höfðu fyrir sitt leyti fallist á
hinar ódýru flugferöir, enda talið
aðþær fullnægðu kröfum um lág-
marksþjónustu og myndu koma
farþegum til góða.
Sjáifur hefurLakersagtað með
slikum ferðum muni nýr hópur
fólks bætast i raðir farþega, fólk,
sem ekki taldi sig hafa efni á að’
ferðast á þessari leiö og af ein-
hverjum ástæðum gat ekki fallið
inn i hópferðaáætlanir leigufé-
laga.
Með dómi þessum er siðustu
hindruninni fyrir flugáætlun
Lakers hrundið úr vegi, og þegar
dómurinn var upp kveðinn á mið-
vikudag sagöi Fred Laker að
flugið myndi geta hafizt um
páska.
Alþýðublaðið náði ekki I gær
sambandi við talsmann Flug-
leiða, en Flugleiðir (og áður Loft-
leiðir) hafa boöið upp á eitthvert
ódýrasta flugfargjald á leiðinni
yfir N-Atlantshaf I föstu áætlun-
arf lugi, og ekki er vitaö hvort eða
hvernig flug Lakers kunni að hafa
áhrif á Bandarikjaflug Flugleiða.
—BS.
alþýðu
blaöið
Heyrt: (og séð á Alþingi)
Ragnhildi Helgadóttur lýsa
yfir þvi að hún gæti ekki
tekið þá áhættu að greiða
atkvæði með tillögu Magn-
úsar Kjartanssonar um
hækkaða fjárveitingu til
geödeildar Landspitalans.
Kvaðst Ragnhildur óttast,
að ef hún greiddi tillögunni
atkvæði yrði hún ekki að-
eins talin „þrýstihópur”,
sem hún reyndar væri,
heldur „háþrýstihópur”,
sem hún teldi sig ekki vera,
hvað svo sem kollegar
hennar af gagnstæða kyn-
inu kynnu um bað að segja.
•
Lesið: 1 Frjálsri verzlun:
„Þaö mun hafa vakið at-
hygli og umtal ekki slzt
innan veggja Alþingis, að
einn skeleggasti bindindis-
frömuður landsins, Steinar
Guðmundsson, birti nýlega
i blaðisinu, Snepli, áskorun
til þingmanna og annarra
framámanna i þjóöfélaginu
um að þeir tækju höndum
saman I baráttunni gegn á-
fengisbölinu. I grein sinni
gat Steinar þess, að hann
byggist við sérstaklega
góðum undirtektum og lið-
sinnifrá „alkóhólistunum á
Alþingi”.
•
Tekið eftir: Að viötal séra
Emils Björnssonar, frétta-
stjóra sjónvarpsins, við
Brynjólf Bjarnason, þar
sem meðal annars var
fjallað um skoðanir
Brynjólfs á kommúnisma
og trúarbrögðum, hafi vak-
iö verulega athygli. Margir
stjórnmáiamenn hafa talið
þetta eitt merkasta viðtal
af þessu tagi, sem sýnt hef-
ur verið i sjónvarpi. Væri
óskandi að fleiri slikir
fylgdu á eftir, þar sem
„pólitikusar” fengju að
segja skoðanir sfnar, án
þess aö einhver þurfi að
vera með til að andmæla.
•
Séð: 1 Frjálsri verzlun:
„Mörgum Alþýöubanda-
lagsmanninum finnst
framiþeirra ólafs Ragnars
Grímssonar og Baldurs
óskarssonar vera skjótur i
flokknum þar sem þeir
voru þegar við inngöngu i
bandalagið kosnir i mið-
stjórn þess. En kommar
viðurkenna, að hentistefna
hafi oft áður ráðið skipan
manna i helztu áhrifastöð-
ur i flokknum og á fram-
boðslista hans. Þannig er
nú reiknað með þvi að Ólaf-
ur Ragnar skili bandalag-
inu einhverju af fylgis-
mönnum austur á fjörðum
og þær vonir eru bundnar
við Baldur, að hans vegur
fari vaxandi á komandi tiö
innan verkalýðshreyfing-
arinnar. Þeir, sem bezt
þekkja til i Alþýðubanda-
laginu segja, að ólafur
Ragnar verði sennilega
felldur út úr miðstjórninni
næst þegar kosiö veröur en
Baldur sé fastari i sessi
þar. Hann mun ætla sér
stóra hluti i Verzlunar-
mannafélagi Reykjavikur
og hver veit nema hann
gefi kost á ser til for-
manns.”