Alþýðublaðið - 25.01.1977, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 25.01.1977, Qupperneq 3
sær Þriðjudagur 25. janúar 1977 VIDHORF 3 „Reykjavikurborg á að gera allt, sem i hennar valdi stendur til að lækka byggingar- kostnaðinn i borginni. Það er svo sannarlega brýnt hagsmunamál launafólks i Reykjavik”. Þannig fórust Björg- vini Guðmundssyni, borgarfulltrúa Alþýðu- flokksins, orð i borgar- stjórn Reykjavikur 16. desember s.l., er hann mælti fyrir tillögu sinni um lækkun byggingar- kostnaðar. Ræða Björgvins fer hér á eftir: Ég hefi leyft mér aö flytja hér svofellda tillögu:,,Borgarstjórn Reykjavikur samþykkir að Björgvin Guömundsson, borgarfulltrúi: á kostnaðarverði. Ég skoðaði umrætt sambýlishús og ræddi viö byggingarmeistara þess. Sá ég, aö iburður var enginn en þó allt mjög þokkalegt. Til þess aö draga úr kostnaöi höfðu meðal annars verið notuð sérstök mót, krossviðsmót, múrhúðun utan- húss var sleppt, svo og múrhúö- un i loftum. Finpússing var engin. Bygging hússins hafði verið boðin út, og byggingar- meistarinn sem fékk verkið, vann mikiö sjálfur við þaö. Reyndi hann að spara I hvi- vetna. Forráðamenn BYGGUNG tóku enga þóknun fyrir sin störf. A umræddum blaðamannafundi birtu fulltrú- ar BYGGUNG samanburð á verði sinna ibúöa og verði ibúða þeirra, sem Óskar & Bragi eru aö byggja i sambýlishúsi á Eiðsgranda. Kváðu þeir verð á ibúðum BYGGUNG meira en helmingi lægra en verð á umræddum ibúðum Oskars & „Lækkun byggingarkostnaðar er brýnt hagsmunamál launafólks” láta fram fara athugun á þvi á hvern hátt borgaryfirvöld geti stuðlað að lækkun byggingar- kostnaðar i Reykjavik. Meöal annars skal athugað, hvort ströng skipulagsákvæöi borgar- innar eigi þátt i hækkun byggingarkostnaðar.” Astæðan fyrir þvi að ég flyt tillögu þessa er sú, að i umræðum þeim er fram hafa farið að undanfömu um byggingarkostnaö i Reykja- vik,hefur þvi meöal annars ver- ið haldið fram, að borgaryfirvöld stæðu I vegi fyrir lækkun byggingarkostnað- ar I höfuðborginni. Hafa , byggingaraðilar i því sambandi bent á, að ströng skipulags- ákvæði borgarinnar þvinguöu þá til þessað byggja mun dýrari Ibúðir en unnt væri að gera ef þeir hefðu frjálsari hendur varðandi stærð og skipulag Ibúðabygginga, einkum fjöl- býlishúsa. Þegar byggingarað- ilar halda þvi fram, að borgar- yfirvöld séu hemill á lækkun byggingarkostnaðar, hlýtur borgarstjórn að láta málið til sin taka. Þess vegna hef ég flutt hér tniögu um, að borgarstjórn láti fram fara athugun á mál- inu. Það hefur oft verið deilt um það hér i borgarstjórn, hvaða byggingaraðilar byggöu ódýr- ast. Ég hefi haldiö þvi fram, að byggingarsamvinufélög og stór byggingarfyrirtæki er réðu yfir nýrri tækni, heföu mesta mögu- leika á þvi aö byggja ódýrt, og gætu þvi helzt lækkað byggingarkostnaðinn. Ég er enn á þessari skoðun en játa þó, að hér þarf ekki að vera um algilda reglu að ræöa. Hugkvæmnir einstakir byggingarmeistarar geta vissulega einnig byggt ó- dýrt, ef þeir leggja sig fram um þaö. Nýlega lauk Byggingar- samvinnufélag ungs fólk i Reykjavik, BYGGUNG, við byggingu fjölbýlishúss i Vestur- bæ. Efndi félagið til blaöa- mannafundar af þvi tilefni, og bauð borgarfulltrúum að skoða hiö nýja hús. A blaðamanna- fundinum birti félagið verð Ibúða þeirra, er byggðar höfðu verið. Verðið var sem hér segir á ibúðum tilbúnum undir tré- verk: 46 ferm. ibúöir, 2,2 millj. 70 ferm. ibúöir, 3,3 millj. 72 ferm. ibúðir, 3,4 millj. 81 ferm., 3,7 millj. Eins og framangreindar tölur bera með sér, er hér um mjög ódýrar ibúðir að ræöa. Eru þær án efa meðal ódýrustu ibúða, sem byggðar eru hér i Reykjavik i dag. Er þvi ljóst, að, byggingar- samvinnufélög geta byggt ódýrt, enda eiga þau að byggja Braga. A þaö hefur verið bent, að hér sé ekki um sambærilegar ibúðir að ræða. Ibúðunum á Eiðsgranda fylgir mikil sameign, svo sem hlutdeild i barnaheimilum, bókasafni, gufubaöstofum og fleiru. En auk þess fylgir full- frágengin lóð með leiktækjum. Hins vegar fylgir mjög litil sameign ibúðum BYGGUNG, og lóðina verða kaupendur sjálfir að fullgera. Fyrirtækið Óskar & Bragi hefur vakið athygli á þvi, aö Reykjavikur- borg hafi ákveðið aö byggt skyldi eftir sérstakri verölauna- teikningu á Eiðsgranda, en sú teikning hafi gert ráö fyrir mik- illi sameiginlegri þjónustu 1 sambýlishúsinu. Skipulag hafi þvi verið þannig, að ókleift hafi verið að byggja ódýrt. Ég hefi ekki tölur um verömæti sam- eignarinnar i f jölbý lishúsi Óskars & Braga á Eiðsgranda, svo unnt sé að gera tilraun til þess að bera saman sambæri- lega hluti i sambýlishúsi BYGGUNG og sambýlishúsi Óskars & Braga . Hins vegar hef ég aflað mér upplýsinga um verð á ibúðum, sem stærsta byggingarfélag borgarinnar, Breiðholt h.f., hefur byggt i sambýlishúsiað Krummahólum 81 Breiöholti III. Verðið er sem hér segir á ibúðum tilbúnum undir tréverk með fullfrágeng- inni sameign og bilskúr. 1 sam- eign fylgir meöal annars frysti- klefi, vélar i þvottahúsi og teppi á göngum. Veröin eru þessi: Tveggja herb. ibúðir, 54 ferm. að stærð, 3,2 millj. kr. Tveggja herb. ibúðir, 72 ferm. að stærð, 4,2 millj. Þriggja herb. Ibúðir, 90,6 ferm., 5,2 millj. Þriggja herb. ibúðir, 106 ferm., 6 millj. Tölur þessar eru nokkru hærri en tölur yfir verö á ibúöum BYGGUNG. En þá ber að hafa i huga, að ekki er um sambæri- legar ibúðir aö ræða. Breiðholt h.f. metur hvern bilskúr, sem fylgir ibúðunum að Krumma- hólum 8, á 420 þús. kr., en það mun lágt reiknað, og fyrirtækið metur frágengna sameign á 20% af ibúðarverðinu. Þetta þýðir, að til þess aö fá sambæri- legt verð við verNÖ hjá BYGG- UNG, má draga 1.050.000 kr. frá verði 72 ferm. ibúöar hjá Breið- holti h.f., það er 420 þús. vegna bilskúrs og 630 þús. vegna frá- genginnar sameignar. Kemur þá út verðið 3.150.000 kr., sem er 200 þús. kr. lægra en hjá BYGG- UNG. Hið sama veröur uppi á teningnum, ef aörar ibúða- stæröir eru bornar saman meö sömu aðferð. Þá kemur einnig i ljós, að Breiðholt h.f. byggir ódýrar. Nú leggur Breiðholt h.f. að sjálfsögðu eitthvaöá ibúðirn- ar fyrir yfirstjórnunarkostnaði o.fl. Þess vegna er enn athyglis- veröara hversu ódýrt fyrirtæk- inu tékstað byggja, og hversu ó- dýrt þetta félag getur selt sinar ibúöir. Það stafar aö sjálfsögðu af því, að fyrirtækiö hefur þróað hér nýja byggingartækni, það notar krana og stálmót, sem sparar mikinn kostnað. Slik aö- ferð krefst þess að vísu, að byggt sé i stórum stil og nægar byggingarlóðir séu fyrir hendi. Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins Þessi aðferð reynist til dæmis þess vegna mjög vel við byggingu verkamannabústað- anna I Seljahverfi, þar sem mikiö er byggt i einu. En aöferö þessi skilar ekki eins miklum sparnáöi, þar sem byggt er á einni lóð eða tveimur lóðum i einu. Ég hefi sagt það áður hér i borgarstjórn og segi það enn, að ef takast á að lækka verulega byggingarkostnaðinn I Reykja- vik, þá veröur að sjá stórum byggingaraðilum, sem búa yfir fullkominni tækni, fyrir nægum byggingarlóðum. En svo hefur þvi miöur ekki verið. Breiöholt h.f. hefur til dæmis gengið mjög erfiðlega að fá lóðir hjá borg- inni, og þær lóðir, sem fyrirtæk- ið hefur fengið, hafa veriö óhentugar. Þær hafa gert ráö fyrir mikilli sameiginlegri þjón- ustu, svo sem risablokkin viö Æsufell, sem var mjög dýr I byggingu, og að nokkru er hiö sama aö segja um lóðir þær, sem fyrirtækiö hefur fengið i Hólahverfi. Breiöholt h.f. hefur hins vegar aldrei fengið lóðir undir fjögurra hæöa blokkir, sem eru ódýrastar i byggingu. Væri vissulega fróölegt að sjá á hvaða verði fyrirtækið gæti byggt, ef þaö fengi lóðir undir sUk sambýlishús. Hvernig væri að gera slika tilraun? Mér hefur orðiö tiörætt um stærsta byggingarfyrirtæki borgarinnar, Breiðholt h.f. Það er vegna þess, aö hér er um að ræða fyrirtæki, sem rutt hefur nýjar brautir 1 byggingariönað- inum og átthefur drjúgan þátt i að lækka byggingarkostnaðinn i Reykjavik. En mér er vissulega ljóst, að önnur fyrirtæki I þess- ari grein hafa einnig byggt ó- dýrar ibúðir, og vil ég þar sér- staklega nefna Einhamar h.f. Það fyrirtæki hefur byggt furöanlega ódýrar ibúðir, eink- um þegar haft er i huga, aö félagið hefur ekki til skamms tima beitt nýrri tækni. Mun tvennt einkum hafa komið þar til: 1 fyrsta lagi frábær skipu- lagning á allri vinnu og hag- kvæm innkaup á byggingarefni. I öðru lagi: Fyrirtækið hefur nær eingöngu byggt fjögurra hæða blokkir, sem eru ódýrast- ar I byggingu. Að vlsu hefur Einhamar nú nýlega farið út á þá braut að nota byggingarkrana og sérstök krossviðsmót i stálramma. Er sá útbúnaður notaður við byggingarframkvæmdir Ein- hamars i Hólahverfi. En þar byggir félagið nú þriggja og fjögurra hæða blokkir. Hefur þessi útbúnaður gefizt vel. Ein- hamar selur ibúöir sinar full- búnar með frágenginni sam- eign, — að visu fylgja engar vélar, en lóð er skilaö malbik- aöri. Aö sjálfsögðu er erfitt aö bera saman verö á slikum Ibúö- um viö verð á ibúöum tilbúnum undir tréverk. Samkvæmt upp- lýsingum forstjóra Einhamars er söluverö á ibúöum þeim, er félagiö reisir nú i Hólahverfi, sem hér segir: Tveggja herb. ibúöir, 5,1 millj. kr., (65 ferm. að stærö.) Þriggja herb. Ibúöir, 6,8 millj. Fjögurra herb. ibúðir 7,2 millj. Fimm herb. ibúðir 7,6 millj. Tölur þessar tala sinu máli. Hér er um mjög lágt verð aö ræöa, ekki siöur en hjá Breið- holtih.f. Bæði framgreind fyrir- tæki, Breiöholt h.f. og Einnham- ar h.f., kvarta undan ströngum skipulagsákvæöum borgarinn- ar, sem þau segja að standi i vegi fyrir lækkun byggingar- kostnaðar. Einnig kvarta þessi fyrirtæki undan lóðaskorti, einkum skorti á lóðum undir heppilegar stærðir fjölbýli- shúsa. Nú er mér þaö vel ljóst, að ekki er unnt að skipuleggja um alla borg eina tegund fjöl- býlishúsa, þ.e. hina klassisku fjögurra hæða blokk. Vissulega þarf tilbreyting aö vera I húsa- gerðinni, og svo sannarlega get- ur verið réttlætanlegt aö hafa sameiginlega þjónustu i sam- býlishúsum, jafnvel nauðsyn- legt. Hér er spurningin þessi: Hversu mikla áherzlu viljum viö leggja á lækkun bygging- arkostnaðar i Reykjavlk, og hversu mikla áherzlu viljum við leggja á að auka framboð á ódýrum Ibúöum i höfuðborg- inni? Ég segi fyrir mitt leyti, aö ég vil leggja mikla áherzlu á þaö. Ég tel, að það eigi að vera eitt þýðingarmesta markmiö Borgarstjórnar Reykjavikur að greiða fyrir þvi, að byggingar- aöilar geti lækkaö byggingar- kostnaðinn. Astandið i húsnæðismálum Reykjavlkur er svo slæmt, það er svo mikill skortur á ódýrum ibúöum, það er svo mikið um okurleigu, að borgin verður að gera allt sem i hennar valdi stendur til þess að lækka byggingarkostnaðinn. Hér er svo sannarlega um brýnt hagsmunamál launafólks i Reykjavik að ræöa. Arangur ungu mannanna i BYGGUNG er lofsverður, enda þótt meiri- hluti borgarstjórnar hafi beitt valdniöslu er hann lét þeim lóð- ina við Hagamel i té. Það er ekki sök BYGGUNG, það er sök meirihlutans. önnur byggingar- félög hafa einnig byggt ódýrt, eins og ég hefi þegar bent á. Byggingarsamvinnufélög byggja misjafnlega ódýrt, ekki siður en einkaaðilar. Þegar byggingasamvinnufélög verða of stór, hlaöa þau á sig of mikl- um stjórnunarkostnaði og félagsmenn njóta ekki til fulls kosta samvinnufélagsformsins. Er nauösynlegt, að byggingar- samvinnufélögin kappkosti að skila ibúðum sinum á kostnaðarveröi, eins og þeim er raunar skylt, og svo sannarlega hafa flest þeirra gert það. Reykjavikurborg veit nokkurn veginn, hvaöa byggingaraðilar i Reykjavik byggja ódýrt. Hún á þvl aö greiða fyrir þeim, bæði með nægri lóðaútvegun og með þvi að taka tillit til réttmætra óska þeirra um skipulag. Einnig verður borgin að sjálfsögðu aö greiöa fyrir byggingu verka- mannabústaða i Reykjavik, og yfirleitt fyrir öllum byggingum á félagslegum grundvelli. Og siðast en ekki sizt þarf borgin sjálf að auka sinar eigin byggingarframkvæmdir, bæöi byggingu leiguibúða og sölui- búöa.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.