Alþýðublaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 15.02.1977, Blaðsíða 6
Þriðjudagur 15. febrúar 1977 SSaSto* Háskólakórinn í söngför til Skotlands í lok þessa mánaðar munu félagar i Háskóla- kórnum taka saman pjönkur sinar, og fljuga áleiðis til Skotlands, þar sem þeir ætla að koma fram á tónleikum i nokkrum borgum og bæjum um mánaðamótin. Alþýðublaðið hitti að máli 3 kórfélaga til þess að fræðast dálitið um Háskólakórinn og Skot- landsferð hans. Þeir eru Heiðbrá Jónsdóttir, Erla Elin Hansdóttir og Jón B. Halldórsson. Viðtalið við þau fer hér á eftir. — Þaö má segja aö aö hafiveriö draumur okkar frá upphafi aö fara I söngferö til útlanda, og þá helst til Noröurlandanna. I fyrra- vor var svo fariö aö hugsa alvar- lega um þetta mál og við fórum aö velta fyrir okkur hvenær hag- kvæmast væri aö fara i slika ferö, meö tilliti til prófa kórfélaga, æfinga og fleiri slikra þátta. Okkur reiknaðist aö best væri að fara um þetta leyti, enda miös- vetrarprófin nýafstaðin og kórinn i góðri æfingu. En þaö sem varö til þess aö viö völdum Skotland sem áfangastaö var aöallega voru þar á rölti milli búöa. Viö vorum aö vlsu ekki þau einu sem voru meö „uppákomu” I Austur- strætinu þennan dag, því þar voru einnig félagar úr samtökunum Ananda Marga sem voru aö mót- mæla ofsóknum indverskra stjórnvalda á hendur félögum I hreyfingunni á Indlandi. Söngurinn vakti þó mikla athygli vegfarenda og þessi aögerö varö til þess aö margt fólk lagöi leiö slna upp á Hallveigarstaöi þar sem basarinn var haldinn. Hann heppnaöist þvl betur en á horföist I fyrstu. Kórfélagar æfa nær daglega efniaskrdna fyrlr Skotlandaferölna. Hér er ein æfing hjá kórnnm, en þær fara fram f salFélagsstofnunar stúdenta. (Mynd: PJetur Maack) Heldur 6 tónleika á jafnmörgum dögum - og syngur í brezka útvarpiö - BBC i'rd vinstri: Erla Elfn Hansdóttlr formaöur kórslns, Jón B. lalldórsson og Heiöbró Jónsdóttir óbreyttir söngmenn. t>au hampa tarna auglýsingaspjaldi sem gert hefur veriö fyrir söngförina. AB-mynd: ATA) tvennt: annars vegar eru þetta heimaslóöir stjórnandans okkar, Rutar Magnússon, og svo er ein- faldlega svo ódýrt aö fljuga til Skotlands! Þegar hugmyndin um Skot- landsferöina kom upp, hófust miklar bréfaskriftir á milli land- anna, til þess aö fá upplýsingar um hugsanlega staöi I Skotlandi tilþess aösyngja á, meöal annars haföi breski sendiherrann á í^'andi milligöngu um aö koma ókkur i samband viö aöila I Skot- landi. Þá má nefna aö Erla kór- formaöur var á ferö erlendis slöasta sumar og snaraöist þá til Skotlands og hitti þar ýmsa mæta menn aö máli sem gátu greitt götu kórsins. Þar meö var hægt aö ákveöa feröina til fulls og hafist var handa viö sjálfan undirbúning hennar. Fóru sjálf og sóttu viðskipt'avinina! Er kostnaöurinn viö þessa ferö greiddur beint úr ykkar vasa? — Nei, ekki er þaö nú svo slæmt. Viö höfum auövitaö látiö drjúgan skilding í feröasjóöinn úr eigin vösum, til dæmis höfum viö sérstakan æfingaskatt, 50 kr. I lágmarksgreiöslu á mann á hverri æfingu. Viö höfum llka gengist fyrir flóamarkaöi og kökubasar til fjáröflunar fyrir fvrirtækiö. Þaö má kannski koma þvi aö hérna, aö viö notuöum all sérstæöa aöferö viö aö draga athygli fólks aö kökubasarnum sem viö héldum I desember. Hann var haldinn laugardaginn 11. des., en þann dag var leiöinda- veöur I Reykjavlk og lltt fýsilegt til útivistar. Basarinn átti aö byrja klukkan 1 e.h., en þá var enginn mættur utan kórfélagar sjálfir og kona ein sem mætti I hádeginu til þess aö missa ekki af besta varningnum! Þegar sýnt þótti aö fleira fólk kæmi ekki ákváöum viö aö storma niður I miöbæ og ná I viðskiptavinina! Viö máluöum kröfuspjöld og hófum svo upp raust okkar fyrir vegfarendur I Austurstræti, sem Kórinn hefur og fengiö fjár- stuöning til feröannnar úr rikis- sjóöi og frá Reykjavlkurborg. Einnig hefur Háskólinn styrkt okkur myndarlega. Nægir þetta fé til þess aö greiöa allan feröakostnaöinn? Nei, viö búumst viö þvl aö hver maður þurfi aö leggja fram um 20 þús. krónur úr eigin vasa til fararinnar, en ætlunin er svo aö halda áfram fjáröflun þegar viö koraum heim aftur I mars, þannig að þegar öll kurl koma til grafar veröa þaö líklega um 10 þúsund sem hver kórfélagi þarf aö leggja fram. 6 tónleikar i Skotlandi Hvemær á svo aö leggja upp I feröina miklu? — Viö leggjum af staö laugar- daginn 26. febrúar og ætlum aö halda fyrstu tónleikana I heima- borg stjórnandans, Rutar Magnússon, Carlisle, á sunnu- dagskvöld. Slöan veröa tónleikar á hverjum degi I vikunni, en þeir veröa I Stirling, Edinborg, Aberdeen, Dundee og St. And- rews. Einnig höfum viö skrifaö breska útvarpinu, BBC, og þaö er liklegt aö viö munum fara f upptöku hjá þvl á mánudags- morguninn eftir aö viö komum út. Sú dagsskrá yröi þá send út I skoska útvarpinu, sem ætlaö er Skotum séstaklega. Síöan ætlum viö aö taka okkur frl og skoöa okkur um slöustu dagana, en komum heim mánu- daginn 7. mars. Alþýðublaðið ræðir við þrjá kórfélaga Hvaöa tónlist ætliö þiö aö flytja Skotunum? — Viö höfum æft upp tvær efnisskrár sem viö munum flytja til skiptis á tónleikunum I Skot- landi. Alls eru þaö yfir 30 verk sem viö höfum æft, útsetningar og frum- samin verk eftir 10 höfunda. Meöal þeirra má nefna Jón Ás- geirsson, Atla Heimi Sveinsson, Gunnar Reyni Sveinsson, Friörik Bjarnason og Emil Thoroddsen. Aöra efnisskrána nefnum viö veraldlega, en á henni er kirkju- og kóratónlist, stúdentasöngvar og íslensk nútfmatónlist eftir Atla Heimi og Gunnar Reyni. Einnig flytjum viö „Tímann og vatniö” eftir Jón Asgeirsson, viö ljóö Steins Steinars. Slöari hluti þess- arar efnisskrár er svo þjóölög. Hin efnisskráin er byggö á kirkju- tónlist. Verkin á henni spanna tlmabiliö frá miööldum til vorra daga. Þarna eru m.a. útsetningar Róberts A. Ottóssonar á eldri kirkjutónlist, 3 sálmar i útsetn- ingu Jóns Leifs og nútfmatónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Svo höfum viö æft nokkra negrasálma til aö hvila áheyr- endur, ef okkur sýnist þeir þurfa á upplyftingu að halda! Sungu í Carmina Burana Er Háskólakórinn ekki tiltölu- lega ungur aö árum? — Jú, hann var stofnaöur áriö 1972 og uppistaöan I honum var söngfólk úr Menntaskólanum I Hamrahllö. Slöan komu I kórinn söngmenn úr MR og MA og til gamans má geta þess aö enn syngja meö honum 5 af stof- félögum. Rut Magnússon hóf stjórn kórsins I febrúar 1973 og hefur gert þaö siöan, nema aö Jón Asgeirsson stjórnaöi um tlma I fyrra vegna anna Rutar. Jón Asgeirsson hefur annars lagt kórnum mikiö liö alveg frá upphafi. Til dæmis gaf hann kórnum verkiö „Á þessari rlm- lausu skeggö l d” viö ljóö Jóhann- esar úr Kötlum. Kórinn hefur þegar sungiö þetta verk I upptöku hjá sjónvarpinu, en nú er veriö aö myndskreyta verkiö og búa þaö til sýningar. — Viö höldum 2 fasta tónleika árlega, jólatónleika og vortón- leika og svo má nefna aö viö tókum þátt I uppfærslunni á Carmina Burana eftir Carl Orff ásamt Fllharmóníukórnum og Sinfónluhljómsveit Islands. Fulltrúar allra deilda! Hve margir félagar eru I Háskólakórnum núna? — Viö erum alls 44.' Viö erum komin úr öllum deildum Háskólans og sumir eru jafnvel búnir með nám sitt þar. Viö getum sagt aö kórinn sé sam- settur af fólki sem kemur úr öllum áttum og öllum fögum og þar blómstra meira aö segja allar mögulegar skoöanir I pólitik! Hvenær má svo búast viö þvl aö þiö látið I ykkur heyra frammi fyrir Islenskum áheyrendum? Viö ætlum aö halda tónleika á vegum Tónleikanefndar Háskólans um næstu helgi, laugardaginn 19. kl, 3, I Félags- stofnun stúdenta. Þeir sem veröa svo óheppnir aö ná ekki I miöa á þá tónleika, eiga kost á þvl aö koma á„bolludagstónleikana” okkar, en þeir veröa haldnir á bolludaginn 21. febrúar I Félags- stofnun og hefjast kl. 8.30. Eftir þaö ætlum viö aö spara raddböndin til Skotlands- feröarinnar, enda mun vlst ekki af veita aö þau veröi I lagi þegar þangaö kemur. Einnig munum viö reyna aö foröast ofkælingu og heimsóknir I pestarbæli, sé þess kostur, því þaö væri óskemmti- legt aö fara meö hálfan fimmta tug kvefaðra og raddlausra manna i söngferö til annarra landa. —ARH

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.