Alþýðublaðið - 10.03.1977, Síða 1
FIMMTUDAGUR 10. MARZ
..Hundrað-karl-
arnir'' hefja
störf á ný
t gærdag var haldinn fund-
ur i samstarfsnefnd um
öryggismál við Kröflu, sem
skipuð er af iðnaðarráðu-
neyti og Alntannavörnum.
Þar var rætt um hvaða
ákvarðanir bæri að taka
varðandi þá 100 starfsmenn
Kröfluvirkjunar sem ekki
hafa fengið leyfi til að hefja
aftur störf að loknu helgar-
leyfi.
Varð að samkomulagi á
fundinum að láta Almanna-
varnarnefnd Mývatnssveitar
og Almannavörnum rikisins
eftir að taka ákvöröun um
þetta atriði.
í gærkvöldi var siðan hald-
inn fundur i almannavarnar-
nefnd Mývatnssveitar og að
l oknum fundi nefndarinnar
sendi hún frá sér ályktun,
þar sem nefndin felst á fyrir
sitt leyti aö aliir starfsmenn
Kröfluvirkjunar hverfi aftur
til starfa á ný, enda verði
eftirfarandi öryggisráðstöf-
unum fullnægt:
1. Að framkvæmdaaðilar sj-
ái til þess, að starfsmenn
komi i skipulögðum hóp-
um og verði skráöir inn á
svæðið.
2. Að tekin veröi upp stöðug
skráning á fólki inn og út
af svæðinu allan sólar-
hringinn.
3. Að áherzla verði lögð á að
jarðfræðingur verði stöö-
ugt til taks við skjálfta-
vaktina.
Þetta álit nefndarinnar
var siðan staðfest af
Almannavörnum I gærkvöldi
og má þvi búast viö að um-
ræddir hundrað starfsmenn
hverfi aftur til starfa strax I
dag.
Áframhaldandi
landris.
I gærkvöldi var allt við það
sama á Kröflusvæðinu, land-
ris hélt þar áfram og frá þvi
klukkan 15 á þriöjudag til
sama tima I gærdag mældust
alls 121 skjálfti á mælum
skjálftavaktarinnar i Reyni-
hlið. Fimmtán þessara
skjáifta reyndust vera yfir
tvö stig á richter og þar af
tveir af stæröargráöunni 2,6
stig.
Guðmundur Sigvaldason
jaröfræðingur sagöi i viðtali
við Alþýðublaðið siðdegis i
gær, en hann var þá nýkom-
inn til Reykjavikur frá
Kröflu, að i gærmorgun hefði
ekki verið komiö fram það
munstur i jaröskjálftahreyf-
inguna sem búist hef
Framhald á bls. 10.
Atvinnurekendur segjast hafa
Nægan skiln-
ing en Iftið
svigrúm
Það gerðist i
rauninni ekkert frá-
sagnarvert á
fundinum, sagð Björn
Jónsson forseti ASi,
þegar Alþýðublaðið
innti hann eftir gangi
mála á fyrsta
samningafundi ASÍ og
vinnuveitenda-
sambandsins, sem
haldinn var i fyrradag.
Hann var með hefðubundnu
formi, eins og fyrstu fimdirnir
eru venjulega. Samningsaðilar
lýstu sjónarmiðum sinum og
rætt var um vinnu
brögð. Niðurstöður urðu þær, að
ákveðið var að visa málinu til
sáttasemjara.
Þá var Björn spurður um
undirtektir atvinnurekenda við
kröfur ASÍ, og sagði hann þær
hafa verið með hefðbundnum
hætti, þ.e. að atvinnurekendur ‘
hefðu sagst skilja nauðsyn
þess að hækka launin, en af tur á
móti segðust þeir hafa litið
svigrúm til að koma til móts við
kauphækkunarkröf urnar.
Ekki kvaðst Björn' geta sagt
til um, hversu langan tima
samningar kæmu til með að
taka, en 1. mai markaði timann
Björn Jónsson, forseti
ASt.
þvi þá rynnu fyrri samningar
út. Að öðru leyti væri ekkert
hægt að segja um ganga mála
enn sem komiö væri. —jss
Rúmeníu-
söfnuninni
aflýst!
Rauða krossi íslands og
Hjálparstofnun kirkjunn-
ar barst í gær skeyti um
að hjálparbeiðni sú sem
RKI og HK hafði borizt
um aðstoð vegna jarð-
skjálftanna miklu í Rúm-
eníu væri afturkölluð.
Rikisstjórn Rúmeníu hef-
ur ákveðið að afþakka
aðstoð utanlands frá og
telur sig geta ráðið fram
ú vandamálum sínum ein
og óstudd og með þeirri
hjálp sem þegar hefur
borizt eða er á leiðinni.
Rúmeníusöfnuninni, sem
Alþýðublaðið sagði frá í
gær, hefur því verið af-
lýst.
—ARH
mm
Jón Sigurðsson
sóknarstjóri.
hagrann
Verdbólgu-
nefndin enn
á rökstólum
Búist við að álit hennar
liggi fyrir á næstu vikum
— Ég get ekkert
tjáð mig um það á
þessu stigi, hvert
verður efnislegt inni-
haia niöurstöðu
nefndarinnar, en ég
geri ráð fyrir þvi að
þær muni liggja fyrir
á næstu vikum — ef til
vill fyrir lok þessa
mánaðar. Nefndin
hefur haldið regiulega
fundi og starfað mikið
undanfarið og við höf-
um farið yfir marg-
visleg gögn og upplýs-
ingar sem málið
varða.
Framangreint kom fram I
samtali Alþýöublaðsins við
Jón Sigurðsson hagrann-
sóknarstjóra I gær, en Jón er.
formaður nefndar þeirrar er
forsætisráðherra skipaði 11.
oktober 1976 „til að leita leiða
til þess að ná hraöa verðbólg-
unnar niöur i það, sem gerist I
nágrannalöndum okkar”. 1
nefndinni eiga sæti fulltrúar
allra þingflokka, Alþýöusam-
bands Islands, Vinnuveitenda-
sambands Islands, Bandalags
starfsmanna rikis og bæja og
Stéttarsambands bænda. Auk
þess 4 skipaðir af rikisstjórn-
inni án tÚnefningar. 1 bréfi
sem sent var út til framan-
greindra aðila og sem varðaði
nefndina, sagði m.a., að rikis-
stjórnin geri ráð fyrir að álit
nefndarinnar og tiÚögur verði
undirstaða umræöna á Alþingi
og viðræðna rikisstjórnarinn-
arvið aöila vinnumarkaðarins
um heildarstefnu I verðlags-
og launamálum
í bréfinu sagöi enn fremur
að stefnt skyldi að þvi aö hún
skilaði áliti og tillögum eigi
siðar en i febrúarmánuði 1977,
en eins og fram hefur komið
hér á undan er útlit fyrir að
það dragist enn um sinn að
niðurstöður nefndarinnar
verði gerðar opinberar-ARH
íslendingur rádinn til Kenya
Um s.l. áramót voru
auglýstar hér á landi 11
ráðunautastöður við
norræna samvinnu-
verkefnið í Kenya.
Stöðurnar voru aug-
lýstar á öllum Norðiu'-
iöndunum og bárust
um þær um 300 um-
sóknir, þar af um 20 frá
íslandi.
25. janúar komu hingaö til
lands 4 fulltrúar norræna sam-
vinnuverkefnisins I Kenya og
starfsmenn við skrifstofu verk-
efnisins i Kaupmannahöfn og
ræddu þeir við 7 islenzka um-
sækjendur. Að þvi búnu var
Tómasi Sveinss. viðskiptafræð-
ingi boðin staða við stjórnun og
skipulagningu með aösetri i
Mombasa, sem er aðalhafnar-
borg Kenya. Aö þvi er fram
kemur i fréttabréfi Aðstoðar Is-
lands við þróunarlöndin gat
Tómas ekki tekiö aö sér verk-
efnið, vegna óviðráðanlegra or-
saka, þegar til átti að taka, og
var þá Gunnari Pálssyni
deildarstj. boðin staðan og tók
hann við henni. Ráðningartimi
hans er ffa 1. mai n.k. til 1. mai
1979.
—ARH