Alþýðublaðið - 10.03.1977, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 10. mars 1977
15
Bíóin / Leikhújrtn
Æá-ÍP-7.5...
Rauöi sjóræninginn
The Scarlet Buccaneer
Ný mynd frá UNIVERSAL Ein
stærsta og mest spennandi sjó-
ræningjamynd, sem framT2idd
hefur veriö siðari árin.
ISLENZKUR TEXTI.
Aðalhlutverk: Robert Shaw,
James Earl Jones, Peter Boyle,
Genevieve Bujoldog Beau Bridg-
esBönnuö börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Allra siöustu sýningar
Vertu sæll Tómas frændi
Mjög hrottafengin mynd um með-
ferð á negrum i Bandarikjunum
Bönnuö innan 16 ára
Endursýnd kl. 11
MALCOLM McDOWELL
ALAN BATESFLORINDA BOLKAN-OLIVERREI
Ný, bandarisk litmynd um ævin-
týramanninn Flashman, gerð eft-
ir einni af sögum G. MacDonald
Fraser um Flashman, sem náð
hafa miklum vinsældum erlendis.
Leikstjóri: Richard Lester.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuö innan 12 ára.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
LEIKFÉLAG 2<2
•RiiYKJAVÍKlJR
SAUMASTOFAN
i kvöld uppselt
laugardag kl. 20,30.
MAKBED
föstudag uppselt.
SKJALDHAMRAR
sunnudag kl. 20,30.
STRAUMROF
eftir Halldór Lgxness.
leikstjórn: Brynja Benedikts-
dóttir frumsýn. miðvikudag, upp-
seit.
Miðasala I IBnó kl. 14-20.30.
Hh.sIjas lil'
Grensásvegi 7
Simi 32655.
ts* 16-444.
Liðhlaupinn
Spennandi og afar vel gerð ogi
leikin ensk litmynd, með úrvals-j
leikurum
Glenda Jackson
Oliver Reed
Leikstióri: Michel ADdet
ISLENZKUR TEXTI
Bönnuö innan 16 ára
Sýnd kl. 9 og 11 og á samfelldri
sýningu kl. 1.30 til 8.30 ásamt
Flökkustelpan
Höfkuspennandi litmynd sam-
felld sýning kl. 1.30 — 8.30
Rúmstokkurinn er þarfa-
þing
DIN HIDTIl M0RS0MSTE AF DE 4GTE SENGEKANT-FIIM
Ný, djörf dönsk gamanmynd i lit-
um.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
0*2-21-40 ^
Ein stórmyndin enn:
„The shootist"
AtVeg r.y, áiTierislv litmynu, þar
sem hin gamla kempa
John Wayne
leikur aöalhlutverkiö ásamt
Lauren Bacall.
ISLENZKUR TEXTI.
Bönnuö börnum.
:Sýnd kl. 5.
Þessi mynd hefur hvarventa hlot-
ið gifurlegar vinsældir.
Tónleikar
kl. 8,30.
L~.., Sími SQ249 ..
Emmanuelle II
Heimsfræg ný frönsk kvikmynd i
litum. Mynd þessi er allsstaðar
sýnd við metaðsókn um þessar
mundir i Evrópu og viða.
Aðalhlutverk: Sylvia Kristel, Un-
berto Orsini, Cathaerine Rivet.
Enskt tal. ISLENZKUR TEXTl.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
'Nafnskirteini.
Sýnd kl. 9
Hækkaö verð
Hinir útvöldu
Chosen Survivors
ÍSLENZKUR TEXTI
Spennandi og ógnvekjandi, ný1
amerisk kvikmynd i litum um
hugsanlegar afleiöingar kjarn-
orkustyrjaldar.
Leikstjóri: Stutton Roley
Aðalhlutverk: Jackie Cooper,
Alex Gord, Richard Jaeekel.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
* / y
3-1J -82
MAINDRIAN PACE...
his tront is insurance investigation.
HIS BUSINESS IS
STEALING CARS...
SEE 13 CARS DESTROYEO IN THE
M0ST INCREOiBLE PURSUIT
EVER FILMED
'TT'S GRANO THEFT ENTERTAINMENT"
^WnttejvProduM^n^irectedB^f^JfALICKI
Horfinn á 60 sekúndum
Það tók 7 mánuði aö kvikmynda
hinn 40 mlnútna langa bila-
eltingaleik I myndinni, 33 bilar
voru fjöreyðilagðir fyrir sem
svarar 1.000.000,- dollara. Einn
mesti áreksturinn i myndinni var
raunverulegur og þar voru tveir
aðalleikarar myndarinnar aðeins
hársbreidd frá dauðanum.
Aöalhlutverk:
H.B. Halicki
Marion Busia.
Leikstjóri:
H.B. Halicki.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hvað dvelur
Orminn langa”?
55
Þagað þunnu hljóði.
Hljótt hefur nú verið um hríö
um islenzka stafsetningu, þó
það mál sé siður en svo afgreitt.
Allt frá því að fyrrum
menntamálaráöherra, Magnús
Torfi tók þá lánlitlu ákvörðun,
að hefja sundurlimun á ritmáli
okkar, hefur mörgum brunnið i
brjósti, að þvi frumhlaupi yrði
hnekkt. En samt gerist ekkert,
svo vitað sé almennt. Hvað er
hér á seyöi?
Það skal fram tekið, að málið
hefur oftar en einu sinni komið
til kasta hins háa Alþingis og
þar hefur komið i ljós, að fyrir
hendi er ótviræður þingvilji, að
foröa frá óhöppum Magnúsar
Torfa með þvi að færa stafsetn-
inguna aftur til rétts vegar.
Tekizt hefur óþurftarmönnum
að nota allskyns bolabrögð, til
þess að hefta framgang þess
máls, og má vekja furðu tvennt f
senn — tómlæti Alþingis og um-
burðarlyndi og undanbrögð
menntamálaráðherra við ótvi-
ræöri viljayfirlýsingu þingsins.
Þrisvar gert.
Hér þykir rétt að rifja upp I
aöalatriðum gang þessa máls,
ef væra mætti að fallið væri I
fyrnsku hjá einhverjum, hver
viðbrögö Alþingis hafa verið.
Mega menn þá gerzt sjá hvernig
málið er vaxið.
1) Um það leyti sem vinstri-
stjdrnin var aö geispa golunni
eða i april/mai 1974, var lögð
fram áskorun á ráðherra af
hálfu meirihluta alþingis-
manna, að færa stafsetninguna
aftur til rétts horfs, eða þess,
sem ákveðið hafði veriö 1929.
Við þessu skellti ráöherra
skollaeyrum, enda var þá völd-
um hans senn að ljúka, þó hins-
vegar heföi verið nægur timi til
aö verða við svö eindreginni
áskorun.
2) Aftur 1975 um vorið lögðu 34
alþingismenn fyrir ráöherra
eiginhandarundirskriftir á lög
giltum skjalapappir með svip-
likri kröfu. Þá höfðu, aö visu
oröið ráðherraskipti. En þess
bervitanlega að gæta, aö þegar
þingmenn skora á ráðherra
ákveðinna stjórnardeilda, er
ekki verið að skora á Vilhjálm
Hjálmarsson, eða Magnús
Torfa ólafsson, heldur yfir-
mann stjórnardeildarinnar. Þaö
er og hefur veriö viðtekin venja,
aö slikar áskoranir séu ekki
persónubundnar, og ætti öllum
reyndum þingmönnum að vera
vorkunnarlaust að vita það.
3) A þinginu 1976 var beinlinis
borið fram frumvarp um að
breyta ólánsstafsetningu
Magnúsar Torfa aftur til hins
rétta vegar. Kannaður var vilji
þingmanna i málinu og þar kom
I ljós, að i neöri deild voru 25
meö en 14 á móti, sem ljóst var
við atkvæöagreiöslu. Vitað var
að I efrideild voru 12 málinu
fylgjandi en 8 á móti, eða óviss-
ir. Vegna einhvers littt skiijan-
legs irafárs um slit Alþingis,
tókst óþurftarmönnum að tefja
með málþófi löglega afgreiöslu
frumvarpsins.
Þó var svo frá þvi gengiö, aö
lagt var fyrir ráðherra, að
semja skyldi lög um málið, en
Oddur ft. Sigurjónsson
um það hefur siðan ekki heyrzt
hósti né stuna.
Óviðunandi framferði
ráðherra.
Menn skyldu nú halda, að vilji
Alþingis — jafn ótviræöur og
hann er — væri ekki fótum
troðinn æ ofan i æ, vegna ein-
hverra óskiljanlegra duttlunga
ráðherra. Hinu veröur ekki neit-
að, að viðbrögð alþingismanna,
að láta ráöherra haldast slikt
uppi átölulaust, eru ekki
skelegg eða stórmannleg. Talið
var hér til forna, að óhæfa væri
að vega tvisvar I sama knérunn.
Hér hefur verið vegið þrisvar.
Vel má vera að menntamála-
ráðherra hafi I huga, að slá met
gamla Njáls, sem lét segja sér
fregn þrisvar, þó óliku sé nú
saman aðjafna um manngerðir.
En ef svo væri er þess að vænta,
að áhugamenn teldu þá ekki eft-
ir sér að kvaka I fjórða sinn!
Ekkert hégómamál.
Búnaður islenzks ritmáls er
ekkert hégómamál, svo mjög
sem það varöar alla landsmenn
i bráö og lengd. Það er beinlinis
óþolandi að láta litilsigldum
sérvizkupúkum haldast uppi að
spilla þvi á einn eða annan veg,
ekki sizt að beita til þess
þegjandi þursahætti og bola-
brögðum.
Ef við höfum ekki mannrænu
á að slá skjaldborg um okkar
dýrasta menningararf, hvaö
þá?
En það er ekki siður ástæöa til
aö vekja athygli á öðru sem
vera má að alþingismenn séu
skilningsbetri á. Siöan Torfa-
glundrið var upp tekið, hefur
þegar liðið nokkur — alltof lang-
ur timi.
Kennslubækur hafa verið
prentaðar i þessum tindiskastil
og það er meira en litið fjár-
hagsmál, ef nú þarf að endur-
prenta þær, hvað sem öðru
liður. Þesavegna þarf aö vinda
bráðan bug aö leiðréttingunni,
áður en lengra er haldið niður
hjsrnið 9g lagt út I kostnað, sem
eflaust mun ýmsum vaxa I aug-
um.
En umfram allt á Alþingi ekki
að þola þaö, aö vilji þess sizt
þegar hann beinist að þjóð-
nytjamálum, sé fótum troöinn.
Það er lika alvörumál.
j HREINSKILNI SAGT^
Hafnarfjaröar Apcitek
Afgreiðslulimi:
Virka daga kl. 9 18.30
'Laugardaga kl. 10 12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
Svefnbekkir á
verksmiðjuverði
SVEFN BEKKJA
Hcfóatúnl 2 - Sími 15581
Reykiavik
.J
5 EHOlMLASTÖfHN Hf