Alþýðublaðið - 10.03.1977, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Fimmtudagur 10. mars 1977
Borgarstjórn:
Björgvin
Guðmundsson:
A borgarstjórnarfundi 3.
marz sl. flutti Björgvin
Guömundsson tillögu um Vinnu-
skóla Reykjavikur, þar sem lagt
er til aö Vinnuskólinn gefi þeim
14 ára unglingum sem hjá hon-
um starfa kost á heils dags
starfi 1 staö hálfsdags eins og
þaö er nú.
Tillagan var svohljóöandi:
„Borgarstjórn telur æskilegt
aö Vinnuskóli Islands gefi öllum
unglingum sem til hans leita
kost á heils dags vinnu á sumri
komanda. Einnig álitur borgar-
stjórn óhjákvæmijegt aö laun
unglinga f Vinnuskólanum veröi
hækkuö verulega.
Borgarstjórn felur stjórn
Vinnuskólans aö gera áætlun
um kostnaö viö framkvæmd
LAUN UNGLINGA I VINNU-
SKÓLANUM VERÐI HÆKKUD
og öllum, sem þar vinna, gefinn kostur á heifs dags starfi
framangreindra atriöa og
leggja hana fyrir borgarráö, er
taki endanlega ákvöröun i mál-
inu”.
1 rökstuöningi sinum fyrir
þessari tillögu sagöi Björgvin,
aö geysilegt misræmi væri I
kaupi unglinga sem ynnu hjá
Vinnuskólanum og þeirra sem
störfuöu á hinum frjálsa vinnu-
markaöi. Samkvæmt taxta
Dagsbrúnar fyrir 15 ára ung-
linga var kaup þeirra siöasta
sumar um 50 þús. krónur en 14
áraum 44 þúsund á mánuöi. Hjá
Vinnuskólanum var hins vegar
hálfs dags kaup 14 ára unglinga
11 þúsund krónur, en kaup 15
ára, sem vinna allan daginn um
23 þúsund kronur. Þannig heföi
sá unglingur sem vinnur hjá
einstaklingum rúmlega helm-
ingi meiri tekjur en jafnaldri
hans meö sömu starfsorku sem
vinnur hjá Vinnuskólanum.
Björgvin taldi sig geta fallizt
á aö laun i Vinnuskólanum væru
eitthvaö lægri en á almennum
vinnumarkaöi, vegna eölis
starfsins, en þessi munur væri
of mikill. Nú er kaupiö, sam-
kvæmt ákvöröun skólastjórnar
og borgarráös, 50% af Dags-
brúnartaxta, en þaö þyrfti aö
vera aö minnsta kosti 80%.
Hvaö vinnutimann snertitaldi
Björgvin aö þar sem hér væri
um létta vinnu aö ræða, eins og
gróðursetningarstarf og þess
háttar, væri baö i rauninni sjálf-
sagt að gefa yngri aldurs-
flokknum i skólanum kost á
heils dags vinnu. Nú þegar
vinna 15 ára unglingar fullan
vinnudag og starfsþrek 14 ára
unglinga leyföi áreiöanlega aö
þeir ynnu einnig þannig. Benti
hann á aö meöan þetta tvennt
héldist I hendur, lágt kaup og
stuttur vinnudagur væri hætt
viö aö unglinarnir litu ekki á
starfiö sem alvöruvinnu.
Gat Björgvinþess aö á siöasta
sumri hefðu um 1000 unglingar
starfaö á vegum skólans eöa um
þriðjungur árgangs þess aldurs
i Reykjavik. Þessir unglingar
hefðu gróðursett um 100 þúsund
plöntur i Heiðmörk, meöal ann-
ars og hafa skógræktarmenn
látiö þaö álit i ljós aö þetta starf
gæti ekki veriö betra.
Nokkrar umræður urðu um
þessa tillögu Björgvins og var
Ragnar Júliusson aöaltalsmaö-
Þorbjörn Broddason:
ur meirihlutans. Hann taldi að
sjálfsagt væri aö lengja vinnu-
timann eitthvaö i Vinnuskólan-
um, en taldi þó aö hann ætti ekki
aö fara upp fyrir 6 stundir á dag.
Hins vegar taldi hann öll tor-
merki á aö skipuleggja slika
lengingu vegna skorts á leiö-
beinendum.
Adda Bára Sigfúsdóttir taldi
rétt aö hækka kaup þeirra sem
ynnu i Vinnuskólanum, en
nefndi ekki ákveðnar tölur I þvi
sambandi. Einnig var hún sam-
mála lengingu vinnutimans.
Að umræðum loknum var
málinu visaö til borgarráös, þar
sem það var tekiö fyrir á þriöju-
daginn, en visað áfram til
stjórnar Vinnuskólans og
borgarverkfræöings.
—hm.
TÓBAKSAUGLÝSINGAR
VERÐI BANNAÐAR
- og krabbameinsfélögin styrkt
með einni milljón króna
SKAUTASVELLI VÍSAÐ
FRÁ AF MEIRIHLUTANUM
— vegna þess að svo mikið væri að gerast í íþróttamálum höfuðborgarbúa
A fundi borgarstjórnar 3.
marz sl. lagöi Kristján Bene-
diktsson fram tillögu þess efnis
aö á næsta ári veröi hafin bygg-
ing á vélfrystu skautasvelli
austan Laugardalshallar. Jafn-
framt aö iþróttaráöi yröi falið
aö láta yfirfara og endurskoöa,
ef þurfi, teikningar af vélfrystu
skautasvelli sem samþykktar
voru áriö 1974.
Þá var i tillögunni lagt til aö
iþróttaráð léti gera nýja kostn-
aðaráætlun fyrir slikt mann-
virki i heild ásamt tillögu aö
áfangaskiptingu og útboöslýs-
ingu aö öllu verkinu. Skyldi
þetta gert áður en borgarráö
fjallar um fjárhagsáætlun
næsta árs.
Sveinn Björnsson formaöur
íþróttaráös geröist talsmaður
meirihlutans viö umræöur um
þessa tillögu og lagöitilaö henni
yröi visaö frá. Kvaö hann svo
mörg verkefni i gangi á sviöi
iþróttamála i Reykjavík, aö
ekkert pláss væri fyrir svona
framkvæmdir.
Uröu það endalok þessarar
tillögu. Henni var visaö frá.
—hm
Þorbjörn Broddason lagöi siö-
asta fundi Borgarstjórnar fram
tillögu um aö borgarstjórn skor-
aöi á Alþingi aö banna meö lög-
um allar tóbaksauglyái ngar,
auk þess sem borgarstjórn veitti
Krabbameinsfélögum íslands
og Reykjavikur einnar milljón
króna styrk, sem félögin skyldu
verja á þann hátt sem þeim
þætti vænlegastur i baráttunni
viö áróöur tóbaksinnflytjenda.
Tillaga Þorbjörns var I þrem
liöum og hljóöaöi svo:
,,í tilefni af siaukinni auglýs-
ingastarfsemi tóbaksinnflytj-
enda samþykkir borgarstjórn
eftirfarandi:
a) aö skora á Alþingi aö banna
þegar með lögum allar
tóbaksauglýsingar á stöö-
um, sem opnir eru almenn-
ingi.
b) að skora á reykviska verzl-
unareigendur aö biöa ekki
lagasetningar, heldur taka
þegar i staö niður allar
hvatningar til reykinga, sem
kann að vera aö finna i
verzlunum.
b) að veita Krabbamensfélagi
Reykjavikur sérstakan einn-
ar miiljón króna styrk, sem
varið skuli meö þeim hætti,
sem félögin telja farsælast i
baráttu sinni gegn áróöri
innflytjenda tóbakseiturs-
Tveir fyrstu liðir þessarar til-
lögu Þorbjörns Broddasonar
voru samþykktir á borgar-
stjórnarfundinum, en þriðja
liðnum visaö til borgarráös. Þar
var máliö tekiö fyrir á þriöju-
daginn og ákveöiö aö blöa meö
aö taka ákvöröun, þar sem
borgarstjóri var staddur er-
lendis. Var honum faliö aö ræöa,
viö krabbameinsfélögin áöur en
ákvöröun verður endanlega tek-
in um þessa styrkveitingu.
-hm
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar
heldur fund í kvöld, 10. marz, í Alþýöuhiísinu IHafnarfiröiog hefst hann klukkan 21.-
Fundarefni: Alþýðufiokkurinn og launþegahreyfingarnar og staöan I kjaramálunum.
Frummælendur: Eggert G. Þorsteinsson, alþingismaöur, örlygur Geirsson, stjórnarmaöur i
BSRB, og Guðriöur Ellasdóttir, formaður Verkakvennafélagsins Framtiöarinnar.
Mætiö vel og fylgizt meöframvindu verkalýðsmála. Allir ve. Ikomnir!!! Stjórnin
Að vera fyrstur
með fréttina
— Og njóta til þess fyrirgreiðslu
hulduafla
Ekki veröur annaö sagt en aö
póstþjónustan hér á þéttbýlis-
svæðinu i kringum Reykjavik, sé i
meira lagi undarleg. Þannig er
bréf sem sett er i póst I Hafnar-
firöi aö morgni 7. marz komiö i
áfangastaö i Siöumúla 12.sama
morgun, en samskonar bréf, sent
frá sama staö, komiö I Slöumúla
11 rúmum sólarhring seinna.
Bréf það sem hér um ræöir er
fréttatilkynng sem umboösdóm-
arinn I Handtökumálinu svokall-
aða, Steingrimur Gautur
Kristjánsson sendifrá sér nýlega.
1 Dagblaöinu á mánudag, var
vitnað til þessarar fréttatilkynn-
ingar, sem sagt var, aö hefði bor-
izt blaðinu þá um morguninn.
Daginn eftir, eöa á þriöjudags-
morgun, er innihald þessarar
fréttatilkynningar rakiö á siðum
Morgunblaösins, sem þýöir aö
blaðinu hefur borizt tilkynningin
á mánudeginum.
Þegar Alþýöublaöinu, haföi
ekki borizt fréttatilkynningin um
hádegi á þriöjudag, var haftsam-
band við sendanda og spurzt fyrir
um hvort blaöinu væri ekki ætlaö
aö fá umrædda tilkynningu. En
þess skal getiö aö fréttatilkynn-
ingin barst siöan Alþýöublaöinu
siödegis sama dag.
Sagöist Steingrimur Gautur
hafa sent öllum blööunum frétta-
tilkynninguna samtimis og gæti
hann þvi ómögulega skiliö hvern-
ig hún heföi birzt i þessum tveim-
ur blöðum, jafn fljótt og raun
varö á. Framhald á bls. 10