Alþýðublaðið - 10.03.1977, Page 3

Alþýðublaðið - 10.03.1977, Page 3
2K&U' Fimmtudagur 10. mars 1977 FRÉTTIR 3 ISLANDSMÓT í BADMINTON íslandsmeistaramót i Badminton 1977 fer fram i Iþróttahöllinni i Laugardal laugardaginn 9. april og hefst kl. 10. f.h. úrslitaleikir fara fram sunnud. 10. april kl. 2. e.h. I meistar- og A-flokki karla og kvenna verður keppt i einliðaleik, tvi- liðaleik og tvenndarleik. í Old boys flokki verður keppt i tviliðaleik. Samkv. samþykktum siðasta Badmintonþings ber Badmintonfélögum og deildum að senda þátttökutilkynningar fyrir sina keppendur ásamt þátttökugjaldi. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til skrif- stofu BSÍ íþróttamið- stöðinni Laugardal Box 864 fyrir 25. marz og er gjald fyrir hvem ein- stakling kl. 1200.- fyrir einliðaleik og kr. 800 fyrir tviliðaleik og tvenndarleik. Vfoavangshlaup Islands Viöövangshlaap íslands fer fram i Reykjavik sunnudaginn 27. marz klukkan 14. Keppt verður i eftirtöldum flokkum: Karlar 19 ára og eldri hlaupa 6 km. Sveinar og drengir 15-18 ára hlaupa 3 km. Piltar 14 ára og yngri hlaupa 1.5 km. Konur 15 ára og eldri hlaupa 3 km. Telpur 14 ára og yngri hlaupa 1.5 km. Þátttökutilkynningar þurfa að berast FRl i siöasta lagi 20. marz, skriflega ásamt þátttökugjaldi 50 krónur fyrir pilta og telpur en 100 krónur fyrir hina flokkana. Haukar og KR leika til úrslita í afmælismótinu Islandsmótið f 1. deild i gang aftur Orslit i afmælismóti Hand- knattleiksráð Reykjvikur verða leikin I kvöld. Heldur litið hefur fariö fyrir þessu móti það hefur hreinlega fallið i skugga lands- liösins. Undanúrslit mótsins voru leikin á mánudaginn, þá sigraði KR Armann 25-21, i hálf- leik var staðan 12-9 KR i vil og varsigurþeirra eiginlega aldrei i hættu. Hinn leikurinn var leikur Vals og Hauka. Sá leikur var mjög spennandi og skemmtilegur og lauk með sigri Hafnfirðinga, 23- 22. 1 hálfleik var staöan 13-11 fyrir Val. Það verða þvi KR og Haukar sem leika til úrslita i kvöld og má búast við skemmtilegum leik. KR-ingan eiga sterkt liö núna, meö gömlu kempuna Hilmar Björnsson i broddi fylk- ingar og gefa þeir Haukunum áreiðanlega ekkert eftir. Leik- urinn hefst klukkan 21. Um helgina fer Islandsmótið I fyrstu deild karla af staö aftur eftir langt hlé. A laugardaginn leika 1R og FH og Vikingar og Haukar. Hefst fyrri leikurinn klukkan 15:40. A sunnudags- kvöldið klukkan 20 leika slðan Fram og Þróttur og siðan Valur og Grótta. Það verður gaman aö fylgjast meö deildinni að nýju eftir langt hlé. Þó svo að engir leikir hafi verið leiknir hafa liðin æft baki brotnu og landsliðsmennirnir eru aö sjálfsögöu i toppþjálfun —ATA Getraunaspá Alþýðublaðsins 0KKUR FER FRAM Það fórysem viö var að búast siðastliöinn laugardag, útkoma okkar var ekki góð, enda margir snúnir og erfiðir leikir. Einnig er nokkuð um erfiða leiki að þessu sinni, en við setjum fram spána stoltir og keikir, þess fullvissir, að ef einhver notfærir sér spá vora muni hann verða rikur mað- ur innan skamms. Aston Villa — Everton Þetta er úrslitaleikurinn i deildarbikarnum og fer hann fram á Wembley leikvanginum i Lundúnum. Villa er mikiö baráttulið, sem ekki gefst upp fyrr en I fulla hnefana. Við spáum að Villa sigri 3-1. Derby — Birmingham. Liö Derby er komið alla leiö þangað, sem rotturnar skrlða, komið á botninn, og er leikur þeirra ekki gæfulegur um þessar mundir. Birmingham ættiekki aö verða i vandræðum. Ipwich — Bristol City. Leikmenn Ipwich virtust vakna upp af værum blundi i leiknum á móti Arsenal um siöustu helgi. Bristol City veröur þeim engin hindrun hafi þeir haldið vöku sinni. Heimasigur. Leicester — Coventry. Leicester liðið er sterkt núna, en Coventry bæöi slappt og leiöinlegt. A heimavelli sigrar Leicester auðveldlega. Manchester United — Leeds. Þetta verður sjálfsagt hörku- leikur. Allt bendir þó til þess aö United fari með sigur af hólmi, en smelli Leeds liðið saman er fátt sem getur stöðvað þaö. Heima- sigur en jafntefli til vara (Fyrsti tvöfaldi leikurinn). Middlesboro — Liverpool. Liverpool trónar nú á toppnum og hefur gert það lengi. Leikmenn þess geta þó ekki sagt að það sé einmanalegt á toppnum, þvi Ipswich hefur fylgt þeim sem skugginn, og fleiri lið eru þar eigi allf jarri. Middlesbro er þó ekkert lamb að leika sér við og sérstak- lega eru þeir illskeyttir á heima- velli. Jafntefli enútisigur til vara. (Annar tvöfaldi leikurinn). Newcastle — Norwich. Þessi leikur vinnst örugglega með minnsta mun, verður mikill baráttuleikur en Newcastle ætti aö hafa þaö á endanum. ■ Blackpool — Bolton. Hér verður heldur ekkert gefið eftir. Þetta eru tvö af efstu liöum annarrar deildar og i toppbarátt- unni er hvert stig dýrmætt. Ég hef þó meiri trú á Bolton og spái útisigri en jafntefli til vara. (þriöji tvöfaldi leikurinn). Bristol Rovers — Millwall. Ég verö hreinskilnislega aö viðurkenna þaö aöég hafði ekkert sérstakt um þennan leik að segja, hann gæti farið hvernig sem er min vegna. Ég kastaði þvi upp tening og það kom i hlut Millwall að sigra. Burnley — Sheffield United. Burnley má muna fifil sinn feg- urri. Fyrir fáum árum var liðiö i fyrstu deild en er nú eitt af lang- neöslu liðunum i þeirri annarri. Otisigur. Cardiff — Chelsea. Chelsea, Lundúnaliöið sem hef- ur haft forystu i annarri deild mestan hluta þessa keppnistima- bils og yfirleitt haft mikla yfir- burði I deildinni, hefur heldur bet- ur látið undan siga að undan- förnu. Liðið vinnur varla leik og er forysta íiðsins meira að nafn- Kr. 800 © The Football League Leikir 12. marz Aston Villa - Everton 1 . . Derby - Birmlngham2 . Ipswlch - Brlstol Clty 2 .. Lelcester - Coventry2 .. Man. Utd. - Leeds2 .... Mlddlesbro - Uverpool2 Newcastle - Norwich 2 Blackpool - Bolton2 . . Brlstol Rovers - Millwall* Burnloy - Sheff. Utd.2 .. Cardiff - Cholsea* ... Nott'm Forest - Hull Clty3 mu til núna. Þeir ættu þó aö ráða við Cardiff og er spáin sú og jafn- tefli til vara. (Fjóröi og siöasti tvöfaldi leikurinn). Nottingham Forest — Huli City. Þetta er annar teningsleikurinn á seðlinum. Undirritaöur gat ekki gert upp við sig hvernig leikurinn skyldi fara og lét þvi teninginn ráöa. Heimasigur sagði teningur- inn og það verður þvi svo aö vera. —ATA SkrifiB grelnllega nafn og helmiiisfang KERFI 16 RAÐA 4 leikir meS tveim merkjum 8 leikir meö einu merki Pósthólf 864 IþróttamlSstöSlnnl Roykjavik 27 i % ^-íl ÍI z í m

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.