Alþýðublaðið - 13.07.1977, Page 10
10
BÍLPEKK
Sólud dekk
Heilsólud dekk
Ný dekk
TOYO-dekk
fyrir
fólksbíla, vörubíla
ogjeppa
e BÍLDEKK
Borgartúni 24 — Sími 16240
LOKAÐ
vegna sumarleyfa 18. júlí til 5. ágúst
Gluggasmidjan, Síðumúla 20
Sportbíll í vanskilum
Dregið var 5. júli i Happdrætti Blindrafé-
lagsins og kom vinningurinn, Ford Capri
sportbifreið upp á miða 21633
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17
íslenzka
járnblendifélagið h.f.
Grundartanga
301 Akranes — Slmi 92-1092.
Oskum að ráða
Óskum að ráða nú þegar 4 menn til svæð-
isvörslu á byggingartima kisiljárnverk-
smiðjunnar að Grundartanga, sem áætl-
aður er um 2 ár. Vaktavinna, væntanlega
hentug fyrir menn á aldrinum 30-50 ára.
Umsóknir skulu hafa borizt staðarverk-
fræðingi íslenzka járnblendifélagsins hf.,
Grundartanga, sem veitir nánari upp-
lýsingar, fyrir 23. júli n.k.
$ÍK
W Staða ritara
I skrifstofu borgarlæknis er laus til umsóknar.
Væntanlegir umsækjendur þurfa að vera vanir vélritarar,
vera vel aö sér I Islenzku og hafa nokkra tungumáiakunn-
áttu.
Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Reykja-
vikurborgar viö borgina.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, send-
ist skrifstofu borgarlæknis fyrir 25. jtUi.
Borgarlæknir.
Miðvikudagur 13. júlí 1977
Skipar 1
ætlaö aö fjalla um opinberar
veröákvaröanir og samræma
þær.
í tilkynningu frá viðskipta-
ráöuneytinu á stofnun þessar-
ar nefndar segir m.a. „Verö-
hækkanir á vöru og þjónustu
opinberra aöila skulu aöeins
koma til á siöustu 10 dögum,
áöur en framfærsluvisitalan
er reiknuö lit.”
„Rikisstjórnin mun kapp-
kosta, aö dkvaröanir um verö-
lagningu vöru og þjónustu
opinberra aðila veröi teknar
viö gerö fjárlaga.”
—GEK
Engin einkenni 1
eldisstöðvum er yfirleitt nokkuö
um bakteriugróður i fæöuleifum
og úrgangi. Regnbogasilungur-
inn heldur sig aftur á móti ofar i
vatninu og sleppur þar af leiö-
andi viö hugsanlega sýkingu.
Hvað varðar nýrna-
sjúkdóm sérstak-
lega....
Bregnballe gat þess, aö meö-
an hann vann aö rannsóknum
sinum.hafihannfengiöi hendur
skýrslu norska fisksjúkdóma-
fræöingsins Tore Haastein. I
skýrslu Haastein er þess getiö
aö hann hafi fundið einkenni
sem bent gætu til nýrnasjúk-
dóms. Bregnballe kvaöst ekki
bera brigður á aö Haastein heföi
fundiö þessi einkenni, en gat
þess aö ekki heföi tekizt aö
rækta nýrnaveikisbakteriur úr
laxaseiöum frá Laxalóni og þar
til þaö væri gert væri ekki unnt
aö segja meö neinni vissu aö
stofninn væri sýktur. En þaö
væri ljóst aö þau einkenni, sem
Haastein hafi fundið væru ekki
til staöar nú.
Aöspuröur kvaö Bregnballe
þaö hugsanlega geta átt sér staö
aö sýking heföi verið til staöar i
einhverjum seiöum i april, en
engin merki hennar heföu fund-
izt viö rannsókn þá er hann hef-
ur unniö aö.
Bregnballe lagöi mikla
áherzlu á aö ef nýrnasjúkdómur
væri i Laxalónsstööinni, þrátt
fyrir neikvæöar niöurstööur
rannsóknar sinnar, eöa i ein-
hverjum öörum eídisstöövum,
þá væri sá sjúkdómur komin úr
islenzkum ám. Vart sé hugsan-
legur möguleiki á aö sjúkdómur
þessi hafi borizt hingaö meö
regnbogasilungshrognum, sem
flutt voru frá Danmörku áriö
1951, þvi sjúkdómur þessi hefur
, aldrei komið upp þar. Sjúkdóm-
urinn hafi svo skýr ytri einkenni
aö óhugsandi sé aö sérfræöing-
um heföi sést yfir hann. Þvi
taldi Bregnballe þaö fráleitt aö
nægjanlegt væriaöloka stööinni.
aöLaxalóni ef nýrnaveiki kæmi
upp, rannsaka þyrfti ár þær sem
stöðin fengi hrogn frá.
1 skýrslu sinni segir Bregn-
balle aö einkenni þau sem Tore
Haastein nefndi i skýrslu sinni
geti gefiö honum ástæöu til aö
ala meö sér grun um nýmaveiki
istööinni aö Laxalóni, en eins og
segir orörétt i skýrslunni ,,...þaö
er langt á milli gruns og full-
vissu” og á þaö er bent aö
ómögulegtsé aö túlka bréf Haa-
steins ööruvisi en aö hann sé aö
setja fram tilgátu, en slái engu
föstu.
Bregnballe gat um tvo aöra
sjúkdóma meö svipuö einkenni
og nýrnaveiki: „Soft water
disease” og „Gas bubble
disease”. Hann sagöi aö sýru-
stigi vatnsins á Laxalóni heföi
veriö á þann veg háttaö slöast i
april (skv. skýrslu rannsóknar-
stofnunar fiskiönaöarins) aö
telja mætti hættulegt laxfiski.
Einnig heföi starfsmaöur
stöövarinnar orðiö var viö hegö-
um hjá laxaseiöum er bent gætu
til „gas bubble disease”.
Ekki meðal 30 hættu-
legustu sjúkdóma
Aðspuröur kvaöst Bregnballe
ekki frekar en Tore Haastein
þekkja nýrnaveiki af eigin
reynd. Sjúkdómur þessi heföi
aldrei komiö upp I Danmörku,
frekar en i Noregi. Hins vegar
sagöi hann ,,... ég þekkti öll
sjúkdómseinkenni sem fyrir
hendi eru I laxeiöum i Laxalóni
af eigin reynd. Og þaö voru allt
einkenni sjúkdóma sem ekki eru
taldir ýkja alvarlegir.”.
Þá gat Bregnballe þess aö
hann teldi menn hér á landi litá
nýrnaveiki nokkuö alvarlegum
augum miöaö viö þaö sem hann
þekkti til erlendis. Til dæmis
væri nýrnaveiki ekki talin til
þeirra 30 sjúkdóma sem eru
taldir hættulegastir ferskvatns-
fiski.
Frank Bregnballe
Frank Bregnballe er lif-
fræöingur aö mennt meö fisk-
sjúkdóma sem sérgrein. Hann
stjórnar rannsóknum viö
„Forsögsdambruget i Bruns”
i Danmörku. Stofnun þessi þjón-
ar 300 af um þaö bil 500 fisk-
ræktarstöövum i Danmörku.
Eftir fundinn meö Bregnballe
reyndi Alþýöublaöið árangurs-
laust aö ná i einhvern fulltrúa
fisksjúkdómanefndar til aö inna
eftir afstööu nefndarmanna til
niöurstööu Danans. ES.
Tilkynning til launagreiðanda
er hafa í þjónustu sinni
starfsmenn búsetta í
Hafnarfirði, Garðakaupstað
og Kjósarsýslu
Samkvæmt heimild i 7. tölulið 103. gr.
reglugerðar nr. 245/1963 er þess hér með
krafizt, af öllum þeim er greiða laun
starfsmönnum búsettum i Hafnarfirði,
Garðakaupstað og Kjósarsýslu, að þeir
skili nú þegar skýrslu um nöfn starfs-
manna hér i umdæminu, sem taka laun
hjá þeim, nafnnúmeri, heimilisfangi, og
gjalddaga launa.
Jafnframt skal vakin athygli á skyldu
kaupgreiðanda til að tilkynna, er laun-
þegar hætta að taka laun hjá kaupgreið-
anda, og þeirri ábyrgð, er kaupgreiðandi
fellir á sig, ef hann vanrækir skyldur sfnar
samkvæmt ofansögðu eða vanrækir að
halda eftir af launum upp i þinggjöld
samkvæmt þvi, sem krafizt er, en i þeim
tilvikum er hægt að innheimta gjöldin hjá
kaupgreiðanda, svo sem um eigin skuld
væri að ræða.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði og
Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu,
Strandgötu 31, Hafnarfirði.
Laus staða
Staða skrifstofumanns við embætti lög-
reglustjórans i Reykjavík er laus til
umsóknar. Umsóknum sé skilað til skrif-
stofu embættisins Hverfisgötu 115 fyrir 22.
júli 1977.
Lögreglustjórinn i Reykjavik.
!!!
Til sölu
Til sölu nokkrir járnklæddir timburskúrar.
Skúrarnir veröa til sýnis hjá birgöavörslu Rafmagns-
veitunnar I Artúnshöföa n.k. fimmtudag 14. þ.m. og föstu-
dag 15. þ.m.
Tilboöin veröa opnuö á skrifstofu vorri Frikirkjuveg 3,
R.V.K., föstudaginn 15. þ.m. ki. 16.00 e.h.
- INNK AUPASTOFNUN kEYKJAVIKURBORGAR
k. F/íltirl<juveq: 3 ■ Sími 25800
Til sölu
Til sölu ljósritunarvél Heliócombi ammoniak. Valsbreidd
120 cm.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu vorri Fríkirkjuveg
3, R.V.K.
Tilboö veröa opnuö á sama staöföstudaginn 15. júli n.k. kl.
16.00 e.h.
4NNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Friltifkjuvegi 3 — Sími 25800