Alþýðublaðið - 23.09.1977, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 23.09.1977, Qupperneq 3
Föstudagur 23. september 1977 3 SÖNGSVEITIN FÍLHARMONÍA: Söngsveitin Filharmonla á æfingu i Háskólabfó! Marteinn Hunger Fribriksson stjórnandi. Fjögur verk tekin til flutnings í vetur Síðastliðið miðviku- dagskvöld hóf Söngsveitin Fil- harmonia sitt átjánda starfsár með samæfingu i Mela- skólanum, en þar munu æfingar fara fram á mánudags— og miðvikudagskvöldum. Söngstjóri kórsins verður Martin Hunger Friðriksson sem stjórnar kórnum nú annað árið i röð, og er það i fyrsta skipti siðan Dr. Róbert Abraham Ottoson féll frá, að sami stjórnandi starfar með kórnum i fleiri en eitt starfsár, og er von- ast til að Marteinn verði framtiðarstjórn- andi kórsins. Kórinn mun æfa fjögur verk I vetur, þaö fyrsta v Kórfantasia eftir Ludwig van Beethoven, veröur flutt á aukatónleikum I Há skolabió meö Sinfónluhljómsveit Islands3. nóvember. Kórfantasia Beethovens varsamin 1808 og var frum flutt i Vinarborg sama ár, eöa á svipuöum tima og 5. og 6. sinfóniur hans. Verkiö minnir mjög á 9. sinfóniuna og er mjög skemmtilegt. Auk kórsins koma fram 6 einsöngvarar og hljóm- sveit. Á tónleikum 27. april 1978 verða flutt 3 verk, þar sem stjórnandi veröur Marteinn Hunger. Fyrst ber aö nefna frumflutning á verki eftir Sigursvein D. Kristinsson, Greniskógurinn, sem hann samdi 1974. Verkið er samiö fyrir hljóm- sveit, baryton og kór viö texta samnefnds kvæðis Stephans G. Stephanssonar. Siðan verður flutt ferk eftir Zoltán Kodály ,,Te deum” sem samið er áriö 1936 i tilefni af þvi að 250 ár voru liðin frá frelsun Buda úr höndum Tyrkja. Auk kórsins er stór hljómsveit og 4 einsöngvarar. Þriöja og viöamesta verkiö, Sigurljóð (Triumphlied) eftir Johannes Brahms samiö 1970- 71 viö texta úr Opinberunar- bókinni. Verkiö er fyrir 8 raddaöan kór baryton og hljóm- sveit, og aflaöi það Brahms mikilla vinsælda. Eins og fyrr segirverða þessiþrjú siöast töldu verk flutt á tónleikum I Háskóla- bió 27. april. Liðlega 100 manns hafa starfaö meö kórnum slöast liöin ár, og er ekki búist viö minni þátttöku i ár, enda eru aliir velkomnir til starfa i kórnum, og munu nýir félagar geta skráö sig i simum 44548 , 27787 og 74135. Sérstaklega skal ungu fólki sem áhuga hefur á söng á þetta tækifæri til aö læra söng og þroskast. Kórfélögum veröur gefinn kostur á kennslu i söng og nótnalestri. —KIE Jón Kjartansson, um samningana í Eyjum: Samþykktir með semingi — fólk ekki hrifið Borgarstjórnarprófkjörið helgi „Þetta samkomulag var lagt fyrir fund hjá okkur i gærkvöld, miðvikudagskvöld, og samþykkt, en meö semingi. Ég man ekki i svipinn hve margir greiddu atkvæöi meö samningunum, en fimm voru á móti og stór meiri- hluti sat hjá. Þessi samningur er svokallaöur Hornaf jaröar- samningur, algerlega byggöur á samningnum sem geröur var á Hornafiröi, og fólk er ekki hrifiö af honum. Hins vegar voru viðsemjendur okkar svo haröir aö þeim varö ekki þokaö og þaö var ekki fyrr en þetta var afstaöiö sem ég frétti orsakir hörkunnar. Þaö haföi sumsé veriö bókaö i samninganefndum á Hornafiröi, aö efbetri sanriningar næöusthér en þar,giltu þeireinnig þar, sagði Jón Kjartansson, formaöur Verkalýösfélags Vestmanna-- eyja, í viötali viö Alþýöublaöiö i gær. Þetta er erfitt samkomulag, sagöi Jón ennfremur, þvi samkvæmt þvi veröur ákaflega hart á bariö aö söltunarstúlk- urnar, einkum þær sem eru i meðallagi, nái timakaupi i nætur- vinnu. Þaö hefur komiö til skæru- verkfalla á vinnustööum og leiöinda af ööru tagi, vegna slikra mála og til aö sigla hjá þeim æthiöum viö aö ná þeim upp hér, en þaö gekk ekki. Þaö sem viö fengum þó fram er nokkurs konar heiöursmanna- samkomulag, sem hvergi fór á blaö, þess efnis, aö þessi svo- kallaöur hringur veröi aflagöur hér. Hringurinn er fyrirbæri, sem ættaöerfrá Siglufiröi og þessum stóru stöðum I gamla-gamla daga. Þá var söltuö demantssild, sem var mun stærri og fleitari en þessi Suðurlandssild, sem viö erum að salta. Þá voru vandræöi aö koma hundrað kflóum i tunnuna og þvi varsettur hringur ofan á hana, þegar hún var full og þrjú lög i hann. Sildin, sem var kviömikil, seig siöan yfir nótt og daginn eftir var hægt aö laga hana, þannig aö hún komst öll i tunnuna. Þetta er óþarft viö sunnan- landssildina. Það sem er þó furðulegast er aö þetta hefur veriö svo illa borgaö, miöaö vi ö annaö. Þegar sunnan- landssildin er söltuö þarf aö taka þessi þrjú lög ofan af og setja þau Framhald á bls. 10 um aðra Nú hefur kjörstjórn Alþýðuflokksfélaganna i Reykjavík auglýst próf- kjörið vegna borgar- st jórnarkosninganna. Samkvæmt auglýsingu kjörstjórnar fer próf- kjörið fram laugardaginn 1. október og sunnu- daginn 2. október. Kjörstaðir verða opnir frá kl. 1—7 (13—19) á laugardag og frá 10—7 (10—19) á sunnudag. Kosið veröur á þrem stööum: Fyrir Arbæjar— og Breiöholts- hverfin veröur kosiö i Fáks- heimilinu. Fyrir állan Aust- urbæ, austan Snorrabrautar verður kosið I Slöu- múla 37, 1. hæð. Fyrir allt svæðið vestan Snorrabrautar að Seltjarnarneskaupstað veröur kosiö i Iðnó, uppi, gengið inn frá Vonarstræti. Kosiö veröur um tvö efstu sæti listans og eru eftirtaldir menn i kjöri: í 1. sæti: Björgvin Guömundsson, Bragi Jósepsson, Eyjólfur Sigurösson. í 2. sæti: Elias Kristjánsson, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir. 1 auglýsingu kjörstjórnar er tekið fram, að atkæöi telj- ist ekki gilt þótt einungis sé kosiö i eitt sæti, þ.e. 1. eöa 2. sæti. 1 reglum um prófkjör vegna Alþingiskosninga er hins vegar gert ráð fyrir, að kosiö verði i hvert sæti um sig. Þrátt fyrir þessar reglur kjörstjórnar verður að teljast liklegt, að þeir, sem á annaö borö fara á kjör- staö vegna borgarstjórnar- kosninganna kjósi i bæöi sætin. Ef hins vegar þannig stendur á, aö kjósandi þekki aðeins einn frambjóðanda og vilji greiða honum einum atkvæöi sitt er hann ekki skuidbundinn til þess aö kjósa annan frambjóöanda sem hann e.t.v. þekkir engin deili á. Meö þessu hefur kjör- stjórnin reynt að koma til móts við hin ýmsu sjónarmið. Rétt til að greiöa atkvæöi i prófkjöri Alþyðuflokksins hefur hver sá, sem lögheimili á i kjör- dæminu, er orðinn fullra 18 ára 2. október 1977 og er ekki flokks- bundinn i öðrum stjórnmála- flokki. Kjósandi merkir með krossi við nafn þess fram- bjóöanda sem hann velur i annað eöa bæði sætin. Niöurstöður prófkjörsins eru þvi aöeins bindandi um skipan sætis á framboöslista að fram- bjóðandi hafi hlotiö minnst 1/5 hluta þeirra atkvæða, sem framboöslisti flokksins i kjör- dæminu hlaut i siöustu borgar- stjórnarkosningum. —JSS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.