Alþýðublaðið - 23.09.1977, Qupperneq 5
biaSfð Föstudagur 23. september 1977
iðnaóur hvers hann er megnugur
Þér býðst að skoða og smakka, - og Gjöf til gests dagsins í dag:
kaupa á sérstöku kynningarverði, bæði Kórónaföt eða ullarkápa frá Hildu h.f.
matvöru og annað.
Ferðin getur margborgað sig. Og ekki
leiðist þér á meðan, því nú er kátt í
Höllinni. Kræsingar, tískusýningar,
iðnaðarbingó, maður dagsins.
Ðarnagæsla síðdegis.
Hittumst í Höllinni og tökum þátt í
fagnaðinum.
p IÐNKYNNING
* ni LAUGARDALS
s JLi
■2.okt/77
Kvikmyndin um Hitler verdur
varla til studnings fyrir nýnazista
hreyfinguna
Eftir Dag Halvorsen
Ef dæma á eftir þeim
viðtökum, sem Hitlers-
kvikmyndin hefur fengið
i Þýzkaiandi og Austur-
ríki, mun hún varla verða
til stuðnings hreyfingu
nýnazizta. Fólki finnst
hún langdreginog innan-
tóm, þar sem Hitler er
sýndur í stanzlausu kapp-
hlaupi við tímann, milli
flokksfunda, minningar-
hátíða, vígsluhátíða og
hersýninga!
Þess hefur hvergi orðið vart,
að myndin auki á hættu á þvi
fjöldabrjálæði, sem einkenndi
tima Hitlers, og talið er, að
draumur hans um þriðja rikið,
sé nú endanlega jarðsettur út úr
hugum Þjóöverja.
Fest hefur verið talsvert
gagnrýndur fyrir ýmiskonar
ónákvæmni i samsetningu æfi-
sögu Hitlers, sem hann samdi
og byggði kvikmynd sina á.
Margir telja, aö hann hafi um of
verið blindaður af hrifningu
fjöldans á foringjanum, meira
en hófi gegnir.
Samt er viðurkennt, að flett sé
viða hispurslaust ofan af
áróðursbrögðum hans og þau
stundum sýnd i fremur spaugi-
legu ljósi.
t heild má segja, að myndin,
sem upp er dregin sé þrúgandi
og afleiðingarnar af valdatima
Hitlers á engan hátt faldar.
Hinsvegar er fundið að þvi, að
höfundur bindi sig um of við
herstjórnartæknina, sem vissu-
lega kom öðrum þjóðum mjög á
óvart, svo sem vitað er.
Grimmdaræði nazismans
þykir þó ekki nógu glögglega
sýnt þó margt komi fram-allt
frá bókabrennum til gjöreyð-
ingarherferðar á Gyðingum. Ef
dýpra er skyggnzt liggja ógnir
bessara tima fyrst og fremst i
ir.ióðursýkistilburðum fólksins,
sem fram kemur eins og farsótt
og sýkti hugarfar svo stórs hluta
þýzku þjóðarinnar.
Litlar likur eru taldar á, að
andæfa þurfi sýningu kvik-
myndarinnar vegna þess, að
hún hafi óheillaáhrif á ómótaðar
sálir.
Athugasemdir beinast eink-
um að þvi, að þó nokkuö sé
greint frá baksviðinu fyrir þvi
að nazisminn náö.i fótfestu, sé
ekki gerð nægileg félagsleg
skýrgreining á eöli nazisma eða
fasisma.
Fram er dregið, aö þýzku
iðjuhöldarnir hafi styrkt Hitler
og án skilyrða, að öðru leyti er
farið létt yfir ágóða þeirra, og
þess er hvergi minnzt, að það
var I.G. Farben, sem fram-
leiddi eiturgasið, sem notað var
i Auschwitz og öörum útrým-
ingabúðum nazista.
Kvikmyndinni lýkur með þvi,
að sigurvegararnir ryðja burt
táknum nazismans. Martrööin
erá enda. I bók sinni segir Fest,
að nazisminn hafi horfið ótrú-
lega fljótt úr hugskoti fólks. En
beir eru margir, sem vilja setja
stór spurningarmerki við þá
fullyrðingu.
Bæði þjóöfélagslegar rann-
sóknir og það að hlýöa á rabb
fólks á ölstofum sýna, að enn þá
er að finna mörg brot i þjóðar-
sálinni af áhrifum, sem fólk
varð fyrir á Hitlerstimanum.
Hitler var ekki höfundur naz-
isma eða fasisma, og tilhneig-
ingar til þeirra hurfu ekki meö
honum. Að visu þurfti sérstakar
aðstæður I þjóölifinu, til þess að
þær blossuðu upp, ótta við
stjórnleysi, efnahagslega neyð,
atvinnuleysi og þörfin fyrir
reglu og skipulag, þar með þörf-
infyrir styrka stjórn, sem löng-
um hefur verið inngróin þýzku
þjóöinni og var þvi ekkert ný-
mæli á dögum Hitlers. Ekkert af
þessu hvarfheldur, þó hann félli
frá. Múgsefjunin, sem Hitler
og liöi hans tókst að rækta svo
rækilega, sem raun varð á. var
hér snar þáttur. En þess ber aö
gæta að þrátt fyrir allt- komst
1 regla á I þjóölifinu, atvinnuleysi
var upprætt, þó ýmislegt mis-
jafnt megi segja um að-
ferðirnar, unga fólkið fékk við-
I fangsefni o.s.frv.
Kvikmyndin þykir leiða um
skör fram i ljós hið jákvæða en
draga fjöður yfir, að nokkru,
ýmislegt, hið næstum að segja
djöfullega i’framferöi nazista.
Þannig er reynt að draga úr
ástæöunni til sektarkenndar
þjóöarinnar, og hvergi sýnd hin
mikla hlutdeild almennings,
sem gerði nazisium kleift að
fara sinu fram.
Ekki þykir nægilega leitt i
ljós, hvaða öfl i landinu gerðu
fyrirbærinu Hitler mögulegt aö
ná völdum, en meira dvalið viö
tækni hans i að halda völdunum.
Þvi þykir skýrgreining Fests of
yfirborðskennd, til þess að vera
sú aðvörun gegn endurtekningu,
sem ýmsir væntu, og þörf var
fyrir.
Ef horfter á ýmsar hræringar
i þýzku þjóðlífi, svo sem hryöju-
verkastarfsemi Baader Mein-
hoff og fleiri, verður að segja,
aö hættan fyrir lýðræðið sé eng-
an veginn liðin hjá, og þvi full á-
stæöa til að vera á veröi. Þar
gæti hispurslaus skýrgreining á
öfgaöflunum komið aö haldi. En
hana er ekki að finna i kvik-
mynd Joachim Fests.
Lausl. þýtt.