Alþýðublaðið - 23.09.1977, Page 6

Alþýðublaðið - 23.09.1977, Page 6
/ Föstudagur 23. september 1977 SKS? 6 ,,Vid munum berjast þar til yfir lýkur” Danilo Bartulín, vopnabróðir Salvadors Allendes, rifjar upp síðustu stundir hetjulegrar varnar La Moneda-hallarinnar f Santiago de Chile (Danilo Bartulin, vopnabróðir Salvadors AUendes, rifjar upp síðustu stundir hetjulegrar varnar La Moneda-hallarinnar í Santiago de Chiie). Skömmu eftir valdarán fas- ista i Chile 11. september 1973 barst um allan heim siðasta ljósmyndin sem tekin var af Salvador Allende. Á þessari sögulegu mynd sem tekin var i umsetinni forsetahöllinni, er forsetinn sýndur sem hermaður er býst til bardaga. Hann hefur hjálm á höfði og heldur á vél- byssu í hægri hendi. Forsetinn og fylgdarmenn hans eru alvarlegir á svip. Salvador Allende féll I bardaga. Hann varði til hinstu stundar forsetaembættið sem þjóð hans hafði falið honum. Með þeirri dáð gaf hann öðrum lýsandi for- dæmi. Hann var sjálfum sér samkvæmur og trúr hinum só- siali'sku hugsjónum sinum allt til dauðans. Enhvað varð um mennina tvo sem fylgja honum á myndinni? Þeir sem ákváðu að standa við hlið forsetans þennan morgun I La Moneda-höllinni vissu að vopnum andstæðinganna yrði beint gegn þeim. En þeir stóðu allir sem einn, til hinstu stund- ar, gegn skriðdrekum, stór- skotaliði og loftárásum. Þegar ég sá þessa mynd ákvað ég að leita upplýsinga um mennina tvo. Ég hélt fast I von- ina um að þetta myndi takast og gerði mér far um að hafa sam- band við flóttafólk frá Chile. Loks fékk ég upplýsingar um manninn með svarta yfirskegg- íð, sem stendur Allende á vinstri hönd. 1 ljós kom að þetta var DaniloBartulin læknir forsetans og einn af yfirmönnum llfvarð- arins. Margir Chilebúar urðu til að fræða mig um þennan mann. Danilo Bartulin er af júgóslav- neskum ættum, en borinn og barnfæddur I Chile. Hann var náinn vinur forsetans, sem bar til hans mikið traust. Arið 1968 var Allende frambjóðandi I þingkosningum. A kosninga- ferðalagi sinu kom hann m.a. til Chiloe-eyjunnar og gisti þá heima hjá Danilo. 11. september 1973 varð Danilo vitni að síðustu stundum forsetans. Þótt ótrúlegt sé komst hann lífs af úr þeim hildarleik sem þá átti sér staö i La Moneda. Ég frétti að Luis Alberto Corvalan, sonur for- manns chilenska kommúnista- flokksins, hefði hitt Bartulin I fangabúðunum i Chacabuco og notið þar læknisaðstoðar hans. Og loks frétti ég að Bartulin hefði tekist að komast úr landi, til Mexico. Timinn leið, og þar kom að ég þurftiað fara tilMexicoi blaða- mannserindum. Þegar þangað kom hringdi ég I „Chilehúsið” — miðstöð chilensku flótta- mannanna i Mexico. Ég spurði eftir Danilo Bartuiin. Pinochet hershöfðingi, höfuðpaur valdaránsins.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.