Alþýðublaðið - 02.11.1977, Qupperneq 1
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER
231. TBL. — /977 — 58. ÁRG.
Ritstjórn
Alþýðublaðsins
er í Síðumúla 11 —
Sími (91)81866
735 milljónir
greiddar í
olíustyrk í ár
Um 70.000 einstakling-
ar fá greiddan oliu-
styrk í ár og nemur
styrkurinn 10.500 krón-
um á einstakling.
Olíustyrkur er sem
kunnugt er jöfnunar-
gjald, eins konar niður-
greiðsla til þeirra, sem
þurfa að kynda upp hús
sin með ollu. Oliustyrk-
ur er eingöngu greiddur
einstaklingum og það er
viðskiptaráðuneytið
sem ákvarðar upphæð
hans ár hvert.
Aö sögn Ingva Olafssonar hjá
viðskiptaráðuneytinu, fá um
70.000 einstaklingar borgaðan
oliustyrk og fær hver einstakling-
ur greiddar 10.500 krónur 1 ár.
Það lætur þvi nærri, að olíustyrk-
ur nemi 735 milljónum króna á
ársgrundvelli. Styrkurinn er
greiddur út fjórum sinnum á ári.
Fimm manna fjölskylda fær þvi
13.125 krónur ársfjóröungslega til
að greiða niður kostnaðinn viö
oiiukyndingu.
—ATA
í
Umsóknir óskast:
)
Greitt úr
styrktar-
sjóði BSRB
Akveðið hefur verið að úthluta
fé úr styrktarsjóði þeim sem
stofnaður hefur verið, vegna
verkfalls BSRB. Nokkuð fé hefur
borizt I sjóðinn og þvi hægt að út-
hluta nokkru til þeirra félaga
BSRB sem eiga i verulegum fjár-
hagsvandræöum vegna verkfalls-
ins.
Umsóknir um styrk úr sjóðnum
skulu sendast skriflega til sjóðs-
stjórnar, skrifstofu BSRB,
Laugavegi 172, fyrir 25. þessa
mánaðar. Tilgreint skal i umsókn
nafn umsækjenda, heimilisfang,
vinnustað hans og stéttarfélag og
launaflokk. Einnig ber honum aö
tilgreina tekjur maka og stéttar-
félag hans, auk þess hve margir
eru á framfæri. -hm
Bankamenn
Skrifað undir
samninga
Klukkan hálf tólf i
gærmorgun skrifuðu
formenn bankamanna
og samninganefndar
bankanna undir samn-
inga um kaup og kjör,
og gilda samningarnir
frá 1. júli sl. Samningar
þessir gilda fyrir alla
rikisbankana, hluta-
félagabanka og spari-
sjóði um allt land, auk
þess sem starfsfólk
Reiknistofu bankanna
eru aðilar að þeim.
Kjaraviðræður þessara aöila
hafa nú staðið yfir um nokkurra
mánaða skeið, en samkomulag
náðist um siöustu helgi. Að sögn
eru brey tingar á launum og öðr-
um kjörum bankamanna í aðal-
atriðum eins og i nýgerðum
samningum BSRB.en eru nú it-
arlegri en áöur þar sem tekið er
tillit til fleiri atriða en áður hef-
ur veriö gert, til samræmingar
við samninga annars staðar.
Eins og fyrr segir voru samn-
ingamir undirritaðir i gær, en
gilda frá 1. júli sl. til 1. október
1979.Myndin sem hér fýlgir var
tekin við undirskriftina, þegar
þeir Sólon Sigurösson formaöur
Sambands fsl. bankamanna og
Björgvin Vilmundarson for-
maður samninganefndar bank-
anna skrifuðu undir. (AB-
mynd: HV)
—hm
Gildir ekki sama um Jón og SÉRA Jón...
Ráðherrar kaupa bíla
án adfiutningsgjalda
— en fatlaðir fá aðeins hluta þeirra eftir gefinn
Bifreiöahlunnindi ráöherra og
bankastjóra rikisbankanna
voru til umræðu á þingi i gær. 1
svari við fyrirspurn Stefáns
Jónssonar og Helga F. Seljan
varöandi bifreiðahlunnindi ráð-
herra, sagði Matthias
Mathiesen, fjármálaráðherra,
aö sérmeðferð á bifreiðum ráð-
herra hafi fyrst komið til meö
tollskrárlögum á árinu 1970, en
þau hafa verið endursett siöan,
siðast 1976. Efnislega byggjast
þessi ákvæði á bilareglum frá
1970, sem settar voru, þegar
veriö var að afúema biiaeign
ýmissa rikisstofnana til einka-
afnotafyrir forstjóra stofnanna.
Þá var ákveðið, aö ráöherrár
gætu fengiö rikisbifreiðar til
afnota, en þá eingöngu opin-
berra nota. Kysu þeir það ekki
ættuþeirkost á að fá keyptabif-
reið i upphafi ráðherraferils án
greiðslu aðflutningsgjalda og
söluskatts. Sú hefð haföi þá
lengi gilt um bifreiöakaup ráð-
herra, þegar þeir létu af em-
bætti. Jafnframt var gert ráð
fyrir láni að tiltekinni fjárhæð
til 10 ára og með 5% vöxtum til
bifreiðakaupanna. Frá upphafi
var gert ráð fyrir að rikið
greiddi að fullu rekstrarkostnað
ráöherrabifreiöanna í svari
ráðherra kom og fram, aö i tið
„vinstri” stjórnarinnar hafi
veriö ákveöið, aö ráðherrum
skuli heimilt að endurnýja bif-
reiðar sinar með sama hætti að
þvi er varðar aðflutningsgjöld
eftir þriggja ára samfellt starf
og að sú heimild standi allt að
einu ári eftir að ráðherradómi
lýkur.
Fyrirspyrjendur höföu i fyrir-
spurn sinnieinnig leitað upplýs-
inga um launagreiðslur til átta
bifreiöastjóra ráöherra og
starfssviö þeirra.
Kom fram i svari fjármála-
ráðherra, að á siöasta ári hafi
greidd laun til bilstjóranna, auk
afleysinga, samtals numiö kr.
16.927.352. Hafi launin veriö
mjög mismunandi vegna mis-
mikillaryfirvinnu.frá 1.567 þús.
kr. upp i 2.607 þús.kr.Starfráð-
herrabilstjóranna felst i akstri
og umsjón meö bifreið ráöherra
og „ýmsum sérstörfum og Ut-
réttingum i þágu ráðuneytanna
eftirþvi'sem þörf krefur”, sagði
ráðherra.
Bankastjórar við sama
borð
ólafur Jóhannesson, við-
skiptaráöherra, upplýsti að
bankastjórar rikisbankanna
Framhald á bls. 10
Áttatíu naud
ungaruppbod
í Kópavogi
fyrirtæki þar í erfiðleikum
i Lögbirtmgarbiaðinu
föstudaginn 28. október
siðastliðinn birtust tilkynn-
ingar frá bæjarfógetanum
i Kópavogi um hvorki
meira né minna en tæplega
áttatíu nauðungaruppboð/
vegna vanskila.
Fjárhæðir þær, sem um
var að ræða í hverju tilviki,
voru að sjálfsögðu mjög
misjafnar, allt frá tíu þús-
undum króna, upp í rúmar
átta milljónir, en i heild
var um að ræða fjármuni
sem námu tæplega sextíu
og sjö milljónum króna,
eða 66.833.548.00 krónur.
Það sem sérstaklega vekur at-
hygli á þessum uppboðstilkynn-
ingum og jafnframt er nokkuð
túlkandi fyrir þaö ástand sem nú
rikir I efnahagsmálum hérlendis,
er hversu mörg fyrirtæki, þar á
meðal nokkur er talin hafa verið
traust og gróin, eru meðal upp-
boðsþola.
Þar á meðal má nefna Sigurð
Eliasson h.f., blikksmiðjuna Vog-
ur h.f., Efnagerðina Valur, Timb-
ur og Stál h.f., Dósagerðina h.f.
og fleiri.
Yfirleitt er um að ræða uppboð
vegna vanskila á opinberum
gjöidum.