Alþýðublaðið - 26.11.1977, Side 12

Alþýðublaðið - 26.11.1977, Side 12
alþýðu* blaðió Útgefandi Alþýöuflokkurinn Ritstjórn Alþýðublaösins er aö Siöumúla 11, sfmi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö Hverfisgötu 10, sfmi 14906 — Áskriftarsfmi 14900. LAUGARDAGUR 26 NÓVEMBER 1977 __________ J Sir Andrew Gilchrsst, ffyrrum sendiherra Bretlands: MÞað er auðvelt að Ijúga, en segja verður satt frá” — ef skilningur á að nást milli tveggja þjóða ,/Ég tel, að síðustu tvö þorskastriðin, hafi verið með öllu óþörf og raunar heimskuleg . Fyrsta þorskastríðið átti sér sín- ar orsakir, en það er heimska að leggja út f styrjöld, í þessu tilviki þorskastríð, sem reynsl- an hefur sýnt að ekki vinnst. Þetta, meðal annars, kemur fram i bók minni, en meö henni er ég raunar að reyna að skýra þjóðirnar tvær, Islendinga og Breta, hvora fyrir annari, fá þær til að skilja hvor aðra, þannig að svona nokkuð endur- taki sig ekki héðan i frá, sagði Sir Andrew Gilchrist, fyrrum sendiherra Breta á tslandi, á blaðamannafundi i gær, en þar var kynnt ný bók sem hann hef- ur skrifað um ísland og Islend- inga. Bókin ber heitið „Þorska- strið og hvernig á að tapa þeim” og fjallar að mjklu leyti um þorskasriðið 1958, þegar lög- saga okkar var færð út i tólf mil- ur. „Mér hefur reyndar alltaf þótt það mikilvægt að biturleiki hefur ekki náö að setjast milli Breta og tslendinga, sagði Sir Andrew Gilchrist og Brian Holt, aöalræöismaöur, á blaöa- mannafundinum I gær. Gilchrist ennfremur, þrátt fyrir átök og leiðindaatvik. Hins vegar unnu tslendingar þorskastriðið, þá og þau sem siðar hafa komið, einfaldlega vegna þess að þeir voru sterk- ari. Bretar voru, þegar fyrsta þorskastriðið stóð, enn að jafna sig eftir Suez-málið og við vor- um nýbúnir að átta okkar á þvi að við værum ekki Iengur stór- veldi. tslendingar voru i góðri stöðu, sameinaðir og sterkir, gátu spil- að á „Veslings litla Island” samúð innan Evrópu og Nato, og svo höfðuð þið lika 7.219 gisla á Keflavikurflugvelli. Annars er bókin skrifuð að til- stuðlan vinar mins Haraldar A. Sigurðarsonar, sem kúgaði mig til þess. Að hluta til skrifaði ég hana einnig til að verða rikur, enda býst ég við að hafa upp úr islenzku útgáfunni allt að niutiu milljónir króna, svo og vil ég með henni þakka tslendingum og þeim mörgu vinum sem ég á frá þeim tima, er ég var allt aö þvi óvinur tslands. Bókin þykir nokkuð berorð, sagði Gilchrist þegar hann var spurður um það hvort hann tæki afstöðu með Islendingum eöa Bretum i henni, og i henni eru nokkrir kaflar sem ég veit að ts- lendingum kemur til með að lika illa við. Hins vegar eru i henni miklu fleiri kaflar sem verða óvinsælir meðal Breta. Ég held bókin sé hvorki and- snúin eða meðmælt máistaö annars hvors aðilans. Það er á- kaflega auðvelt fyrir mann I ut- anrikisþjónustu að láta satt kyrrt liggja, en ef þjóðir eiga aö skilja hvor aðra, þá verður aö segja sannleikann og það geri ég i bókinni.” Gilchrist var sendiherra Breta hér á landi á árunum 1957—60. Einna þekktastur varð hann hérna þegar árásin var gerð á breska sendiráðið haust- ið 1958, en þá stóð þorskastriöið hvað hæst. Sagt var að meðan grjótið dundi á húsinu, hafi hann setið rólegur fyrir innan glugga og spilað á pianó verk eftir Chopin. Þetta vill Gilchrist leið- rétta, þvi hann var að spila verk eftir Bach, ekki Chopin. Um ti tii bókarinnar, sem gef- in er út af Almenna Bókafélag- inu, sagöi Gilchrist, aö eftir nokkra umhugsun hafi nafnið „Þorskastrið og hvernig á að tapa þeim” orðið ofan á, þar sem hann væri Breti og Bretar hefðu tapað. Þvi hefði hann ekki getað kallað bókina „Þorska- strið og hvernig á að vinna þau”. Bókin kemur út hér fyrst, en samningar standa yfir við brezkt útgáfufyrirtæki um út- gáfu þar. —hv Þorskveiðar bannaðar tólf daaa ídesember Á aðalfundi Lands- sambands islenzkra út- vegsmanna 25. nóvem- ber s.i. sagði Matthias Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra i ræðu sinni m.a. þetta um frið- unaraðgerðir: „ þess vegna hefur nú verið ákveðið að allar þorsk- veiðar verði bannaðar i tólf daga i dese^nber, þó þannig.að heimilt verði að stunda aðrar veiðar á þessu timabili, enda nemi hlutdeild þorsks i afla ekki meiru en 10%. Hugleiddar hafa verið ýmsar leiðir til takmörkunar á þorsk- veiðum á næsta ári, þeiira á með- al að takmarka þorskveiðar loðnuveiðiskipa á næstu vetrar- vertið eða á milli loðnuvertiða. Þá er talið að gæöi netafisks hafi verið óvenju léleg á siðustu vetr- arvertið og verður óhjákvæmilegt að veita þar stóraukið aðhald, enda er það almennt viðurkennt að reglurum netafjöida á báthafi verið þverbrotnará undanförnum árum, en erfitt hefur reynst að koma þar á virku eftirliti.” Meira um orð ráöherra á öðrum stað i blaðinu. — Ö.B. Sérstætt mál í Hæstarétti; 65 ára kona reynir að fá viðurkennt faðerni sitt í Alþýðublaðinu i dag er greint frá mjög sérstæðu máli sem dómtekið var i Hæstarétti i gær — i annað sinn á rúmum þremur árum. Þar fer 65 ára gömul kona fram á, að viður- kenndur verði erfðaréttur henn- ar eftir mann sem talinn hefur verið faðir hennar fram til þessa, en skiptaréttur Reykja- vikur hefur tvivegis fellt þann úrskurð, að faðerni hennar hljóti að teljast ósannað og þvi eigi hún engan rétt á erfðahlut eftir föður sinn. Konan visaði máli þessu til Hæstaréttar eftir að fyrri úrskurður skiptaréttar- ins var birtur og felldi Hæsti- réttur úrskurð skiptaréttar úr gildi. Kemur fram i dómnum, að ýmsirformgallar hafiverið á máiatilbúnaði skiptaréttarins. Konan setti i annað sinn fram kröfu r u m a ð dánarbú föður sins i Reykjavlk væri tekið til skipta- meðferðar, eftir að ddmur Hæstaréttar hafði fallið, en skiptaréttur komst aftur að sömu niðurstöðu og fyrr: Að konan ætti engan erfðarétt. Nú er málið sem sagt komið á ný fyrir Hæstarétt og eru mála- vextir raktir nokkuð i blaöinu. Sjá bis.2 —ARH Þing Farmanna- og fiskimannasambands Islands: Menntamálin og öryggis málin ofarlega á baugi „Það eru auðvitaö mörg mál, sem fyrir þinginu liggja, en flest, eða öll, eru þau innan þessara málaflokka, sem eru eiginlega sígildir hjá okkur. Það eru kjara- og launamálin, fiskveiði- lögsagan og nýting henn- ar, öryggismálin, vita- og hafnamál, menntunar- málin og fleira, sagði Guðmundur H. Oddsson, forseti þings Farmanna- og fiskimannasambands jslands, í viðtali við Álþýðublaðið í gær. Þing Farmanna- og fiski- mannasambandsins hófst að Hótel Loftleiðum siðastliðinn þriðjudag og veröur þvi slitið i dag. „Af sjávarútvegsmálum, sem fyrir þinginu liggja, sagði Guðmundur ennfremur, má til dæmis nefna lokunarmálin, það er svæðalokunina og veiðibönn, en þetta telja sumir að komi einkum niður á togurunum. Svo er það auðvitað nýting fiskveiðilögsögusvæðisins, það er hvernig það verður nýtt sem best. Þá eru það skólamál sjómanna, en húsrými og tækja- búnaður Stýrimannaskólans eru orðin allt of litil. Þar koma einn- ig inn lánamál þeirra, sem hyggjast stunda nám i Stýri- mannaskólanum, en þau þyrfti að bæta mikið. Þá má nefna i þessu sam- bandi, alger mótmæli viö þvi að undanþá^ur séu veittar til skip- stjórnarréttinda á fiski- og far- skipum. Þessu hefur verið mót- mælt áður, en þó hefur brugðið viö aðundanþágur væru veittar. öryggismálum hefut verið visað til nefndar og svo er raunar um flest mál, þannig að af þeim er ekki mikið hægt að segja I dag. Þetta kemur i ljós á morgun, þegar liður að þingslit- um” —hv

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.