Alþýðublaðið - 30.11.1977, Blaðsíða 12
alþýöU’
blaóiö
Útgefandi Alþýöuflokkurinn
Ritstjórn Alþýöublaösins er aö Síöumúla 11, sfmi 81866. Auglýsingadeild blaösins er aö'
Hverfisgötu 10, simi 14906 — Áskriftarsimi 14900.
MIÐVIKUDAGUR
30. NOVEMBER 1977
Sjúkrahótel Rauða Krossins í Reykiavík:
Hættir starfsemi
vegna f járskorts
— áhrifin verða lengri bið sjúklinga eftir sjukrahúsvist
Stjórn Rauöa Kross Is-
lands hefur samþykkt,
aö hætta rekstri Sjúkra-
hótels RKI i Reykjavik
frá næstu áramótum aö
telja/ að minnsta kosti
þar til fenginn er
rekstrargrundvöllur fyrir
það og áfallnar skuldir
vegna rekstursins eru
greiddar.
Astæöan fyrir þessari ákvörð-
un er sivaxandi halli af rekstr-
inum og skuldasöfnun af þeim
sökum, en uppsafnaður halli er
nú orðinn rúmlega tuttugu og
ein milljón króna. Talið er aö
dagvistargjöld þau er sjúkrahó-
telið fær greidd úr Daggjalda-
nefnd, en þau nema nú þrjú þús-
und og fjögur hundruð krónum,
þyrftu aö hækka um sextiu og
fimm af hundraði, til þess aö
standa undir daglegum rekstri
sjúkrahótelsins. Þá yrðu jafn-
framt að koma til aðrar aðgerð-
ir til að greiða niður uppsafnað-
an halla af rekstrinum til þessa.
Á blaðamannafundi, sem i
gær var boöaður til að skýra frá
þessarri ákvörðun, kom fram,
að Rauöi Kross Islands getur
ekki lengur staðið undir rekstri
hótelsins, það er mismun
kostnaðar og þess sem kemur
inn i daggjöldum, án þess að það
hafi i för með sér niðurfellingu
hefðbundinna starfa Rauða-
Kross deilda. Nú þegar hefur
svo mikill hluti tekna Rauða
Krossins runnið til þessa máls,
að samtökin eru komin i skuld
við deildir sinar.
Rauði Krossinn hóf starfs-
rekstur sjúkrahótels sins að
Skiphoiti 21 i Reykjavik þann 15.
nóvember 1974. Er hugmyndin
um stofnun af þessu tagi komin
frá nágrannaþjóðum okkar i
Evrópu, en þar þykir rekstur
slikra stofnana hafa gefið góða
raun.
Rauði krossinn á Akureyri
rekur einnig sjúkrahótel meö
tólf rúmum. Einnig þar komu
fram rekstrarörðugleikar,
vegna þess. að daggjöld þau er
fengust frá Daggjaldanefnd
stóðu engan veginn undir
rekstrinum, en þá náðist sam-
komulag við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri, um fasta leigu
á niu rúmum, og Félagsmála-
stofnun Akureyrar um fasta
leigu á tveim. Með þvi er rekstri
sjúkrahótelsins á Akureyri
borgið.
Reynt hefur verið að orða
svipað samkomulag við sjúkra-
húsin i Reykjavik, eða koma
hugmyndum um það á framfæri
við þau, en undirtektir hafa til
þessa verið neikvæðar.
Þess má geta, að þótt ef til vill
sumir þeirra, er að öðrum kosti
myndu dvelja á sjúkrahótelinu,
geti farið heim til ættingja, hef-
ur þetta i flestum tilvikum ein-
faldlega i för með sér lengri
legu á sjúkrahúsum, þar sem
rikið verður að greiða tuttugu
og sjö þúsund krónur á dag fyrir
hvern og einn. Hins vegar er
farið fram á liðlega sex þúsund
króna daggjald fyrir hönd
sjúkrahótelsins.
Þar sem reynslan hefur sýnt
að árlega dvelja sjúklingar tfu
Framhald á bls. 10
Inglbjttrg Ester Einaridottir og Þrúður Hjaltadóttir. IMyndir: —ATA)
Frá btaðamannafundinum I ger
Nokkrir sjúkllnganna I setustofu
Veidi- og fiskiræktarráð:
Allar fiskeldisstöðv-
ar verði rannsakaðar
vegna smithættu frá villtum fiski
„Menn hljóta ad vera
bilaðir í kollinum”
sjúkragistihúsinu, segir einn
— Við teljum, að
ástandið i fiskeldismál-
um hér sé orðið það al-
varlegt, að það þurfi að
taka sterkum tökum.
Greinargerð kanadíska
fiskisérfræðingsins, sem
hér var á ferð á dögun-
um, bar það með sér, að
allar likur eru á, og
reyndar öruggt, að smit-
un fiskisjúkdóma kemur
frá villtum laxi i einni
eða fleiri ám. Þvi er
mikil hætta á að sýking
berist i stöðvarnar, þvi
hún berst auðveldlega
með hrognum, sem eru
fengin úr þessum fiski.
Svo fórust Jakob Hafstein full-
trúa i Veiði- og fiskiræktarráði
orð, þegar hann var inntur eftir
tilefni samþykktar ráðsins, er
lögð var fyrir borgarráðsfund i
gær. 1 samþykktinni er lagt til, að
Landbúnaðarráðuneytinu verði
falið að hlutast til um, að rann-
sóknir verði gerðar á öllum fisk-
eldisstöðvum á landinu, með til-
liti til sjúkdómahættu.
Sagði Jakob, að ef þessi tillaga
Veiði- og fiskiræktarráðs yrði
samþykkt, þá kæmi til kasta
ráðuneytisins að snúa sér til fisk-
sjúkdóm anefndar, sem væri
æðstráðandi i þessum málum.
Hún myndi væntanlega sjá um
framkvæmd rannsóknanna___JSS.
— ef þeir loka
sjúklingurirm
Við ræddum viö tvo sjúklinga
á sjúkrahúsinu, þær Ingibjörgu
Ester Einarsdóttur og Þrúði
Hjáltadóttur. Þær voru hressar
og kátar og áttu ekki til hæfilega
sterk orð til að lýsa vanþóknun
sinni á fyrirhugaöri lokun gisti-
hússins.
— Þetta er i fjórða eða fimmta
skipti sem ég dvel hér i veikind-
um minum og mér finnst þetta
alveg dásamlegur staður, sagði
Ingibjörg. — Ég er utan af landi
og hef þurft að dvelja mikið á
sjúkrahúsum. Hingað kem ég,
svo að segja, beint úr aðgerð og
hressist ótrúlega fljótt. Ég kem
til með að dvelja hér meira og
minna fram á mitt sumar og ef
þeir lokagistihúsinu, þarf ég að
vera á sjúkrahúsi mestan þann
tima en þaö er mun dýrara fyrir
alla aðila.
Þrúður Hjaltadóttir tók undir
ummæli stöllu sinnar um ágæti
stofnunarinnar og bætti við. —
Ef á að leggja starfsemina hér
niður, þá hljóta menn að vera
meira en litið bilaðir i kollinum.
— Ég er liklega búin að vera
hér lengst allra (samfleytt) eða
i fjóra mánuði. Það var skipt
um bein i upphandlegg á mér
þann 15 júli og siðan hef ég verið
hér. Ég er úr borginni er ein-
stæð tveggja barna móðir,
þannig að ég gæti ekki farið
heim, þvi ég má ekkert vinna
fyrsta árið eftir aðgerðina.
— Þetta hressir lika upp á
mann, andlega Séö. Hér er góð-
ur félagsskapur og góður fé-
lagslegur andi. Ef menn eru
einir heima eða þurfa að vera
lengi á sjúkrahúsi, er hætt við
að þeir sökkvi niður i þunglyndi.
En það er ekki hætta á þvi hér.
— Ég er nú hrædd um ekki,
sagði Ingibjörg. Ég átti ekki von
á þvi að komast heim fyrir jólin
en i gær sagði læknirinn mér, að
ég gæti farið heim i næstu viku.
Nú komu fleiri að og allir
hrósuðu þvi, hve andinn á staðn-
um væri góður og uppijrvandi.
Margir sögðust ekki þurfa aö
nota töflur til að sofna, en hefðu
notað margar tegundir áður.
Einnig urðu allir sammála um
það, að fjölmenna á palla Al-
þingis til aö knýja á ráðamenn,
að þeir veittu fé til starfseminn-
ar, þannig aö hún gæti haldið
áfram.
Að lokum sagöi Þrúður
Hjaltadóttir. — Ef ekkert verð-
ur að gert munu ráðamenn fljót-
lega sjá afleiðingarnar. Eftir aö
við hér heyrðum um fyrirhug-
aða lokun stofnunarinnar, hefur
blóðþrýstingurinn hækkað svo i
mönnum, að hætt er við að við
legjum öll inn með of háan blóð-
þrýsting. —ATA