Alþýðublaðið - 07.02.1978, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 07.02.1978, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 7. febrúar 1978 11 -----í. islenzkur texti Spennandi ný amerisk stórmynd i litum og Cinema Scope. Leik- stjóri Peter Yates. Aðalhlutverk: Jaqueline Bisset, Nick Nolte, Robert Shaw. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 Bönnuð innan 12 ára B I O Sími 32075 Jói og baunagrasiö jAckandtheceansM Ný japönsk teiknimynd um sam- nefnt ævintýri, mjög góð og _skemmtileg mynd fyrir alla fjöl- * skylduna. Synd kl. 5 og 7. Einvigið mikla Hörkuspennandi vestri með Lee Van Cleef i aðalhlutverki. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 9 og 11 MÓflLEIKHÚSIfl * STALÍN ER EKKI HÉR Miðvikudag kl. 20 fösq.fG KLÚ 20 TÝNDA TESKEIÐIN fimmtudag kl. 20 laugardag kl. 20 ÖSKUBUSKA laugardag kl. 15 Uppselt. Litla sviðið: FRÖKEN MARGRÉT i kvöld kl. 20.30 Uppselt fimmtudag kl. 20.30 Miðasala 13.15 — 20. Simi 1-1200 REYKIAVÍKIJR SAUMASTOFAN 1 kvöld Uppselt Laugardag kl. 20.30 Fáar sýningar eftir. SKALD-RÓSA Miðvikudag Uppselt Föstudag Uppselt Sunnudag kl. 20.30 SKJ ALDHAMRAR Fimmtudag kl. 20.30 Fáar sýningar eftir. Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30. Simi 16620 Ert þú félagi i Rauóa krossinum? Deildir félagsins eru um land allt. RAUÐI KROSS tSLANDS V15-44 Silfurþotan. GENE WILDER JILL CLAYBURGH RICHARD PRYOR u«H«KU»iu "SILVER STREAK"*WiA>uau<a-COlM>«oaMSnCTU« S’o’SS.r PATRICKMcGOOHAN________ ÍSLENSKU R“TE XTI Bráðskemmtileg og mjög spennandi ný bandarisk kvikmynd um all sögulega járnbrautalestaferð. Bönnuð innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7,10 og 9,15. TONABÍÓ ÍS* 3-11-82 Gaukshreiðrið (One flew over the Cuckoo's nest.) Gaukshreiðrið hlaut eftirfarandi Óskarsverðlaun: Besta mynd ársins 1976 Besti leikari: Jack Nicholson Besta leikkona: Louise Fletcher Besti leikstjóri: Milos Forman Besta kvikmyndahandrit: Lawrence Hauben og Bo Goldman Hækkað verð. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7,30 og 10. Q 19 OOO — salur^^— Járnkrossinn Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 Siðustu sýningar. Allir elska Benji Sýnd kl. 3 salur Sjö nætur í Japan Sýnd kl. 5.05, 7.05 9 og 11.10. Flóðið mikla Sýnd kl. 3 salur ÍS* 2-21-40 Kvikmyndahátíd 2. til 12. febrúar Listahátíð í Reykjavfk 1978 JÁRNHNEF INN Hörkuspennandi bandarisk litmynd um kalda karla og harða hnefa tSLENSKUR TEXTI Bönnuð innan 16 ára Endursýnd kl. 3 - 5 -7 - 9 og 11 GAMLA BIO Sfmi 11475 .... . Vinir mínir birnirnir WALTDISNEY PRODUCnONS- TECHNICOLOR ® Skemmtileg og spennandi ný kvikmynd frá Disney. Aðalhlutverk: Patrick Wayne. Sýnd kl. 5, 7 og 9. VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN '/*^//SS//////s/^^^^ Þar til augu þin opnast Bönnuð innan 14 ára Sýnd kl. 7, 9.05 og 11 Draugasaga Sýnd kl. 3.10 og 5. Sími 50249. Karate meistarinn. (The big boss) Með Bruce Lee Sýnd kl. 5 og 9. Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir. smiSaðar eftir beiðni. CLUGGAS MIÐJAN Síöumúla 20 — Simi 38220 Auglýsinga- síminn er 14906 Blásid til atlögu?! Samráð eða bófaleikur? Það hefur reynzt almenningi nokkuð torsótt að fá vitneskju um, hvað hangir á spýtunni hjá rikisstjórn okkar i áætlun- um um efnahagsvandann og hvernig við honum skuli snúist nú. Varla getur það nú samt dreg- izt lengi héðanaf, að eitthvað verði gert uppskátt, ef takast á að koma nafni á óskapnaðinn fyrirnæstu mánaðamót. Þvi eru þau tilnefnd, að þá eiga, sam- kvæmt samningum, að fara fram launabreytingar, sem stjórnvöld og málgögn þeírra horfa til með nokkrum kviða. Raunar höfum við heyrt sitt- hvaðundan og ofanaf þvi, sem i bigerð sé, en allt er það svo laust i reipunum, að varla verð- ur hönd á fest. Ef rétt er munað, lét stjórnar- formaðurinn það álit i ljós — ef það var ekki beint loforð — að samráð þyrfti að hafa við aöila vinnumarkaðarins áöur en „bjargráðin” yrðu ákveðin. Flestum mun hafa þótt þetta vel mælt og raunsæ afstaöa. En þó ekki hafi runnið nein ókjör af vatni til sævar siðan þetta álit ráðherrans kom i dagsljósið, sýnist samt komið á daginn, að skilningur hans á þvi, hvaö samráð sé, fari nokkuð á mis við hinn almenna skilning á þvi hugtaki. Almenningur mun lita svo á — réttilega — að samráð sé það eitt, að horfast i augu — i þessu tilfelli — við vandann framund- an og freista að komast að sam- komulagi um, hvernig honum skuli mætt. Við skulum gera ráð fyrir, að stjórnvöldum með öllum sinum hjálparkokkum sé orðinn ljós, að minnsta kosti obbinn af vandamálunum, sem auðvitað er grundvallarskilyrði. Fregnir, sem bárust af hand- brögðum stjórnvalda nú fyrir siðustu helgi, bera ótvirætt með sér, að það sé alls ekki ætlunin að hafa nema takmörkuð sam- ráð viðaðila vinnumarkaðarins. Þannig voru þrir aðilar, full- trúar ASt, fulltrúar BSRB og fulltrúar a tvinnurekenda, „kallaðir fyrir” stjórnina og upp lesnir fyrir þeim kostir, sem stjórnvöld hyggjast bjóða við lausn efnahagsvandans! Þessum aðilum mun svo hafa verið boðið að velia um, hvern af þessum kostum peir vildu aö- hyllast! Vel má vera, að gefið hafi verið i skyn, að unnt væri að hugsa sér að einhverjum titt- lingaskit i einhverjum kost - anná kynni að mega hnika örlit- ið til, en að öðru leyti væru kost- irnir stokknir alskapaðir út úr kollum ráðamanna! Allir sjá, að það er algert öfugmæli að kalla slika verk- hætti samráð! Með sama rétti gæti auðvitað það kallast samráð hjá þjóð- vegaræningjum, sem byðu ferðalögum upp á kostina „pen- ingana eða lifið” og það breytti vitanlega engu verulegu, ef menn veldu síðari kostinn, hvort þeir ættu einnig kost á að velja um að verða hengdir eða skotn- ir! Hér skal ekki fullyrt, hvort þetta er allt eða mestallt runnið undan rifjum hinnar svokölluðu verðbólgunefndar. Ef leyfilegt væri að geta, yrði manni helzt fyrir, að láta sér detta i hug, að óspart verði áliti hennar hampað af núverandi rikisstjórn. . Ofldut A. Sigurionssoi Það er alltaf gott aö hafa strákinn með i ferðinni, til að geta kennt honum um klækina! Og við skulum ekki reka upp stór augu, þó við sjáum á næst- unni að forsætisráðherra komi i sjónvarpið, og lýsi þvi fyrir al- þjóð með alveg einstökum helgisvip, að þvi miður...! Þá mun trúlega verða skotið sér á bakvið það, að hin stór- merka verðbólgunefnd hafi kaf- að ákaflega rækilega ofan i verkefni sitt. Við þessa djúpköf- un hafi það komið i ljós, aö vandinn hafi veriðdrjúgum meiri og fjölþættari en stjórnar- herrarnir hafi vonað!! Með hliðsjón af alþekktum vettlingatökum stjórnarherr- anna á viðfangsefnum sinum, mun fólki þykja það sérlega trú legt, að forsætisráðherrann færi þar með rétt mál! Menn hafa vist heldur ekki bjargfasta trú á þvi, að það sé honum eðlislægt, að skrökva visvitandi. Allskonar blankheit i meðferð viðfangsefnanna þættu áreiðanlega trúlegri! Og að skjóta sér bakvið þau, er nokkur tilraun til að halda broti af and- litinu þótt varla verði talin stórmannleg. En hvort sem þetta er rætt lengur eða skemur, hlýtur núað reyna á hreysti kappanna, þeg- ar komið er á hólminn. Landsmenn hafa haft fyrir augum og eyrum hátiðlegt lof- orð forsætisráðherra um, að kaupmáttur verði verndaður. Jafnframter vitað, að það at- riði er einmitt aðalkrafa launa- stéttanna. Engin ástæða er til fyrir þær — með þetta loforð stjórnarformannsins i bakvas- anum — að hvika frá þvi, að það verði uppfyllt. Það er vitanlega hans mál og fylgihnatta hans, hvernig hann fer að þvi að efna sitt loforð. En eftir þvi á að ganga hispurslaust. Starfsstéttir landsins, hvort heldur eru launa- eða atvinnu- rekendastéttir, eiga ekki að þola það að vera settar upp að nein- um vegg, þar sem einhverra kosta — flestra eða allra illra — er einungis völ. Það á hik- laust að koma á daginn, hvernig ráðsmennsku stjórnarvalda er og hefur verið varið og hún rækt. Ef rikisstjórnin kýs að blása til atlögu við lifskjör fólksins, eiga atvinnustéttirnar alls ekki að þurfa að vefja fyrirætlanir sinar um gagnaðgerðir i sjöfalt silki. Þær eiga einnig að hafa sinar básúnur tiltækar, enda mun varla verða sagt meö sanni, að þær eigi fyrsta leikinn. Þó einstakar orrustur geti tapazt, gildir mestu um að vinna siðustu orrustuna, við hvern sem er að eiga. I HREINSKILNI SAGT M.-isius ■■■* Grensásvegi 7 Simi 82655. ftl RUNTAL-OFNAR Birgir Þorvaldsson Simi 8-42-44 Auo^seruiur ! AUGLYSiNGASlMI BLAÐSINS ER 14906 Svefnbekkir á verksmiðjuverði SVEFNBEKKJA Höfðatúni 2 Reykjavik. Simi 15581 2- 50-50 Sendi- bíla- Stöðin h.f.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.