Alþýðublaðið - 11.02.1978, Blaðsíða 2
2
Laugardagur
11. febrúar 1978 iS£"
Fyllirðu
tékkana
rétt út?
Samvmnunefnd banka
og sparisjóöa hefur nú í ni-
unda skiptið gefið út bækl-
inginn „Tékkar og notk-
unþeirra". Bæklingurinn á
að vera almenningi til upp-
lýsingar um notkun ávís-
anahefta og verður afhent-
ur öllum nýjum reiknings-
höfum/ auk þess sem hann
mun liggja frammi í
afgreiðslum banka»
bankaútibúa og sparisjóða.
„Tékkar og notkun
þeirra" er gef in út í 20 þús-
und eintökum. ES
Tekkar
og notkun þeirra
Ritstjórn Alþýðublaðsins
er í Síðumúla 11 - Sími 81866
Norræna húsið:
Starfsemi íslands-
deildar Norræna
sumarháskólans
kynnt í dag
Á morgun, laugardaginn
11. febrúar, verður starf-
semi islandsdeildar Nor-
ræna sumarháskólans
kynnt á almennum kynn-
ingarfundi, sem haldinn
verður í Norræna húsinu.
Hefst hann kl. 15.00.
Norræni sumarháskólinn
starfar á öllum Norður-
löndunum allan ársins
hring og er öllum opinn.
Starfsemin fer einkum
fram í námshópum og gef-
in eru út á vegum skólans
ýmis rit og greinar sem eru
árangur hópstarfsins.
Stjórn tslandsdeildarinnar hef-
ur ákveðiö að velja að þessu sinni
6 efni af 13 sem boðið er upp á af
dagskrá Norræna sumarháskól-
ans. Þau eru „Hafið og Norður-
lönd”, „Þekkingarmiðlun i skól-
um”, Kvikmyndir og félagsfræði
kvikmynda, „Framleiösla og
stéttarvitund”, „Listir og samfél-
ag” og „Staðfélög i ljósi byggðar-
stefnu”. Hópstjórar eru, talið i
sömu röð: Ölafur K. Pálsson s.
44641, Kristin Andrésdóttir og
Helga Sigurjónsd. s. 11293 og
42337, Þorsteinn Jónsson s. 28805
eða 15361, Stefania Traustadóttir
vinnus. 10769, Ólafur Kvaran og
Júliana Gottskáldsdóttir s. 15922
og Stefán Thors s. 85174.
Loks má láta þess getið, að
sumarmót Norræna sumarhá-
skólans verður að þessu sinni
haldið á Islandi. Verður það að
Laugarvatni dagana 22.-30. júli,
og er gert ráð fyrir að það sæki
Mörg dauðsföll af vpldum eldsvoða á heim- ^
ilum stafa af vanþekkingu á viðbrögðum og / ^ "
réttum undankomuleiðum þegar eldur brýst ^ * **
út. Þetta barn hljóp í felur.
Eru eldvarnir í lagi á þínu heimili?
tá&D Junior Chamber Reykjavík
f’i'áajjMsSw’* -T. . J!
/ JS,'
um 200 manns.
Starfsstúlkna-
félagid Sókn:
Varar ríkis-
stjómina
við launa-
skerdingu
Stjórn starfsstúlknafélagsins
Sóknar hélt fund með trúnaðar-
ráði og trúnaðarmönnum af
vinnustöðum. Varaði fundurinn
Alþingi við þvi að skerða i nokkru
þá samninga er gerðir voru sl.
sumar. Fundurinn visar þvi á bug
að sú launaleiðrétting er þá náðist
eigi á nokkurn hátt sök á vanda
atvinnuveganna. Sú sök liggi
alfarið hjá rikisstjórn og löggjaf-
arvaldi.
Akranes
Glæsilegt
vistheimili
fyrir aldraða
vígt
Annan febrúar siðst liðinn flutt-
ust fyrstu vistmenn inn i hið nýja
dvalarheimili aldraðra á Akra-
nesi. Heimilið stendur á fallegum
stað við sjóinn á Sólmundar-
höfða.
1 þessum áfanga flytjast inn 22
vistmenn, sem búa i 16 einstakl-
ingsibúðum og 3 hjónaibúðum. 1
hverri ibúð er baðherbergi með
steypibaði, svefnherbergi, stofa
og anddyri með eldhúskróki. 1
honum eru skápar, rafmagns-
hella, vaskur og litill isskápur.
1 sumar verður svo annar
áfangi byggingarinnar tekinn i
notkun. Hann er eins og fyrri
áfanginn og verða þá vistmenn
orðnir 44. — Dvalarheimilið er
eign Akraness og hreppanna
sunnan Skarðsheiðar, og er rekið
sem sjálfseignarstofnun.
A morgun, sunnudag, verður
heimilið vigt við hátiðlega athöfn,
sem hefst klukkan 14. Að vigslu
lokinni verður húsið til sýnis fram
til klukkan 17:30.
Stjórn Höfða færir öllum þeim
mörgu, sem stutt hafa heimilið
með gjöfum og vinnu, sinar beztu
þakkir fyrir aðstoðina.
AUx^LjSevuiur l
AUGLySINGASIMI
BLAOSINS ER
14906