Vísir - 08.02.1969, Blaðsíða 13
V1SIR . Laugardagur 8. febrúar 1969.
13
MINNING:
JÓN EYJÓLFSSON
Útgerbarmaður — Keflav'ik
^Gðút
„Hafinn til hæ5a
horfir nú þinn andi
heimslífs á öldur í hvíld og kyrrð.
Stormum og stríði
stendur þú yfir
með æðri sjón í himins hirð.“
Einar Benediktsson.
\ unglingsárum mínum átti ég
*■ því láni að fagna aö kynnast
heimili frú Guðfinnu og Jóns Eyj-
ólfssonar útgeröarmanns að Tún-
götu 10 í Keflavík.
En nú hefir húsbóndi heimilisins
verið kallaður til starfa á sólar-
strönd 'æðri heims, en hann andað-
ist að kvöldi laugardagsins 1. fébr.
á Borgarsjúkrahúsinu í Fossvogi.
Þar hafði hann legið til rannsókn-
ar, frá því um áramót.
í dag verður hann jarðsunginn
frá sóknarkirkju sinni í Keflavik.
Jón Eyjólfsson var fæddur 16.
apríl 1894. Sonur hjónanna frú
Guðrúnar Egilsdóttur og Eyjólfs
Þórarinssonar formanns í Kefla-
vík.
Hinn 3. sept. 1916, kvæntist
hann glæsilegri og gáfaðri dreng-
skaparkonu Guðfinnu Sesselju
Benediktsdóttur frá Breiðabóli á
Svalbarðsströnd viö Eyjafjörð. Þau
settust að í Keflavík og þar varð
vettvangur starfs hans, þau hjón
eignuðust 10 börn, en 8 eru á lífi.
1. Sesselja, gift Jónasi Þorvalds-
syni, búsett í Kópavogi, eiga þau
5 börn á lifi.
2. Benedikt, forstjóri Hraðfrysti-
húss Keflavíkur, kvæntur Margréti
Helgadóttur, eiga þau 2 börn.
3. Guðrún, gift Eggert Jónssyni
í Keflavík, þau eiga 4 böm.
4. Anna, gift Skúla Sighvatssyni
í Keflavík, þau eiga 5 böm.
5. Elínrós, gift Ingimar Þórðar-
syni í Keflavík, eiga þau 4 böm.
6. Eyjólfur, kennarj við Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur, kvæntur
Dagbjörtu Guðmundsdóttur, eiga
þau 6 böm.
7. Hólmfríður, gift Bjarna Guð-
mundssyni f Keflavík. þau eiga 4
böm.
8. Kristján Anton, kennari viö
Barnaskóla Keflavíkur, kvæntur
Helgu Pétursdóttur, eiga þau 2
dætur.
Allur þessi geysifjölmenni ætt-
bogi er dugandi mannkostafólk.
Eitt af einkennum heimilislífsins
að Túngötu 10, er friður, öryggi,
glaðværö, bindindi, snyrtimennska.
Þjóðleg gestrisnj húsbændanna er
ótakmörkuð, veitt af einlækni og
umhyggju.
Nú er harpa þessa öðlingsmanns
hljóðnuð, hann stendur ekki leng-
ur sýnilegum augum í dyrunum,
þegar gesti ber að garði og heilsar
með hiýja handtakinu sínu, heldur
mun hann frá sjónarhóli nýrrar
strandar fylgjast með.
Frú Guðfinna, foreldrar mínir og
ég sendum þér og bömum þínum
öllum okkar hjartanlegustu sam-
úðarkveðjur og biðjum ykkur Guðs
blessunar.
Þar sem góðir menn fara eru
Guðs vegir.
Helgi Vigfússon.
Köld bið eftir strætó
Kunningi minn einn var ís-
kaldur og skjálfandi, þegar
hann kom inn einn morguninn
í ku'dakastinu. Hann hafði orðið
að bíða á torginu eftir því að
komast inn í strætisvagninn,
sem var lokaður, því vagnstjór-
inn hafði skotizt í húsaskjól á
milli ferðanna, en ekki haft
vagninn opinn svo að væntan-
legir farþegar kæmust inn,
heldur hafðj hann lokað. Það
var því flestum orðið kalt, sem
eitthvaö höfðu orðiö að bíða.
Þetta er ekki í eina skiptið,
sem þetta kemur fyrir og því
vill kunningi minn, aö komið
verði á framfæri óskum um, að
þessu verði breytt, og farþeg-
um verði gefinn kostur á að
komast inn í vagninn, þó vagn-
stjórinn þurfi að bregða sér frá
á millj ferða.
Annars tók kunningi minn
fram, að þeir væru misjafnir bfl-
stjórarnir. og væru þeir tillits-
samari í þessum efnum eldri bíl-
stjóramir, þó ekki væri þáð
algild regla. Ef það væru boð
ofanfrá að skilja vagnana ekki
eftir opna, þá fannst kunningja
mínum nauðsynlegt, að bílstjóf-
arnir fæm alis ekki úr vögnun-
um nema brýna nauösyn
bæri til því þaö væri ófært að
þurfa að bíða lengi úti, eins og
hann hefði stundum þurft að
gera og það alloft, einmitt þeg-
ar kaldast væri. Sagöj hann að
sama sinnis væru margir þeirra,
sem ættu lelð til vinnu með
sama vagni og hann.
Ekki ber að efa, að gengið
verði til móts við óskir farþeg-
anna, þar sem í þessu tilfelli
er aðeins um óskir um tillits-
semi að ræða, sem mjög auðvelt
væri að koma á móts við. Ann-
ars er athyglisvert, hversu lítið
hefur verið af gagnrýni á stræt-
isvagnana, sem halda uppi áætl-
unarferðum i borginni, miðað
við það sem áður var oft á tíð-
um, en slíkt hiýtur að stafa af
því að yfirleitt eru borgaramir
ánægðir með þjónustu þeirra,
að minnsta kosti í öllum þeim
atriðum sem mestu máli skipta.
Þrándur í Götu.
Spáin gildir fyrir sunnudaginn
9. febrúar.
Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl.
Gerðu ekki neinar fasitar áætl-
anir í sambandi við helgina
Þú mátt gera ráð fyrir, að eitt
hvað óvænt gerist, sem þú verð
ur að t i afstöðu til, fyrirvara
lítið.
Nautið, 21. apríl til 21. maí.
Góður dagur, en ekki ólíklegt
að hann komi að einhverju leyti
talsvert við pyngjuna. Ekki þar
fyrir, að þ' færð eflaust eitt-
hvað í staðinn, en stilltu samt
eyðslunni í hóf.
Tvíburamir, 22. maí til 21. júní.
Það er ekki ólíklegt að þú lend
ir í tímaþröng, ef til vill vegna
þess að þú verður að ganga þar
í verk annarra. Þér bjóðast góð
tækifæri, annað mál hvernig
þau hýtast.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí.
Einhver viðskipti geta brugðizt
og valdið þér nokkrum áhyggj-
um og gremju. Taktu samt ekki
neinar ákvaröanir í því sam-
bandi, en sláðu því öllu á frest
og njóttu helgarinnar.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst.
Athugaðu að reisa þér ekki hurð
árás imi öxl, taktu ekki að þér
meira starf, en þú getur leyst
af hendi ón þess að þurfa að
flaustra þvi af, svo það verði
verr af hendi leyst.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.
Láttu ekki einhverja smámuni
valda þér áhyggjum og spilla
helginni. Leiddu hjá þér mann-
eskjur, sem hafa eitthvað við allt
að athuga og sjá ekkert já-
kvætt við tilveruna.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.
Það lítur út fyrir að gleymska
þín, eða ef til vill annarra hafi
einhverjar óþægilegar afleiðing-
ar. Einhver mannfagnaður virð-
ist framundan, sem þú hefur
mikla ánægju af.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.
Það lítur út fyrir, að þú komist
ekki þangað, sem þú ætlar þér,
sökum óvæntra tafa. Vertu við 1
þv£ búinn að breyta áætlunum
þínum í því sambandi, með sem
minnstum fyrirvara.
Bogmaðurinn, 23 nóv til 21. des.
Kunningi þinn verður fyrir ó-
maklegri gagnrýni að því er virð
ist, og ættiröu að taka málstað
hans, jafnvel þótt þú hljótir lít
ið þakklæti fyrir af hálfu þinna
nánustu.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.
Gerðu þér ekki vonir um að gef
in loforð rætist á áður ákveðn-
um tíma. Það virðist sem nokk
ur dráttur verði á flestu i dag,
og þú sért tilneyddur að haga
þér samkvæmt þvi.
Vatnsberinn, 21. jan til 19. febr.
Athugaðu að skapa þér eteki 6-
þarft annríki og áhyggjur í sam
bandi við helgina. Slíkt bætir
ekki úr neinu, en getur komið
í veg fyrir að þú njótir ánaegju,
sem býðst.
Fiskamir, 20. febr. til 20. marz.
Varastu allt bruðl og óhóf um
helgina, ánægjan fer ekki eftir
þeirri peningaupphæð, sem eytt
er. Trúðu varlega nýjum vinum,
haltu þig að þeim gömlu og
reyndu.
lítflutningur
Stofnfundur
Áfengismálafélags íslands verður settur í Sig-
túni við Austurvöll kl. 3 í dag. — Fjölmennið
á fundinn. - -
_____ Undirbúningsstjórnin.
M—> 1. síöu.
ustu kaupstefnu flestir aö sjálf-
sögðu frá Norðurlöndum, en
margir frá Bretlandi, Þýzka-
landi og Bandaríkjunum, . en
einnig komu kaupmennialls: s.tað
ar. annars. staðar frásá :stefnuna.,a
AðSpurður qm, hvort hann
teldi, að framleiðsla íslenzku
fyrirtækjanna væri samkeppnis-
hæf, sagði Úlfur, að samkeppn-
ishæfur væri stórt orð, en hann
teldi, að svo væri. Þeir væru að
minnsta kosti samkeppnishæfir,
hvað verð snertir. — Það er
raunar einn tilgangurinn með
kaupstefnu eins og þessari að
komast að raun um, hvort mað-
ur sé samkeppnishæfur, bætti
hann við. Það er engin önnur
leið til betri til að komast aö
raun um hið sanna í því máli.
íslenzkir útflutningsframleiö-
endur hafa að vísu fram til
þessa að mestu komizt hjá því
að senda vörur sínar á kaup-
stefnur, en það er einfaldlega
vegna þess, að útflutningurinn
hefur verið hráefni eða hálfgert
hráefni, en ekki neytendavara.
Fyrirtækin, sem þegar eru
komin f þennan hóp eru: Prjóna
stofa Önnu Þórðardóttur, Peys-
an, Iðunn, Hekla, Model Maga-
sín, Margrét Ámadóttir, Dúkur,
Álafoss, Bamafatagerðin og
Belgjagerðin en eins og að ofan
er sagt, ekki útilokaö, að fleiri
eigi eftir að bætast í hópinn.
Um annan nýjan útflutning
íslenzkra iðnfyrirtækja hafði
Úlfur það að segja, að hann
hefði orðið var við mikinn á-
huga húsgagnaframleiðenda á
útflutningi. Verið er að vinna að
undirbúningi þess, að þeir
sendu framleiðslu sína á vöru-
sýningu, og er hugsanlegt, að
þeir muni hafa samvinnu sín á
milli um framleiðsluna og út-
flutninginn. Harpa hefur nýver-
ið sent nokkra tugi tonna af
málningu á Rússlandsmarkað,
og hefur verið vonazt eftir því,
að koma megi meira inn á þann
markað. Þá hefur skrifstofan
mikinn áhuga á að stuðla að
meiri útflutningi, umbúða og
veiðarfæra til viðbótar við þann
sem þegar er fyrir hendi.
Skrifstofan hefur orðið vör
við mikinn áhuga erlendis frá
á öllum þjólegum minjagrip-
um af vandaðri gerð, og segist
Úlfur ekki vera í vafa um, að
þar gæti orðið um mjög þýð-
ingarmikinn útflutning að ræöa.
Þá er áhugi á því að flytja út
vélar, t. d. ísvélar og aðrar slík
ár••'vélarsehMiér el-u framleidd-
ar og gefa ekki eftir því bezta,
sem erl. gerist. Plötuvélar Héð-
ins eru t.d. taldar a.m.k. jafn-
góðar og þær plötuvélar erlend-
ar, sem bezt orðið fer af. — Um
þetta er mér fyllilega kunnugt
eftir kynni mín af þeim í fyrra
starfi.
2 egðiunt —
—>• Siðu
Einstaka sála reyndi að æsa til
uppþots, og nokkrar hjáróma radd-
ir reyndu að mynda kallkór, sem
hrópaði að Alþingishúsinu: „Út með
skrílinn!“ — en undirtektir voru
daufar.
Tveimur eggjum var kastað, en
það var líka allt og sumt.
Lögreglan hafði verið viðbúin þvi
að þurfa að skakka leikinn, ef til
uppþots kæmi, en hún sá aldrei
ástæðu til neinna afskipta, nema
tii þess að hleypa einstaka bifreið
sem leið átti um Kirkjustrætið i
gegnum mannþröngina.
„Við viljum að þetta verði
menningarlegur staður“, sagði
Styrmir Gunnarsson formaður
Æskulýðsráðs á fundi með blaða
mönnum í gær, en þá sýndu
hann og meðráðsmenn hans hió
nýja æskulýðsheimili. Kvaö
Styrmir standa til að þarna
verði listamönnum ýmsum jafn-
vel gefinn kostur á að sýna verk
sín ef svo ber undir, m.a. er í
athugun að skreyta veggi með
verkum nokkurra „p>op“-]ista-
manna.
I kvöld verður sem sé damsaö
í Hlíðabæ, eöa hvað svo sem
staðurinn á eftir að heita, —
Reykjavíkuræskan dansar í eig
in húsi óg liklega er þaö mest
undir æskulýðnum sjálfum kom-
ið hvemig til tekst með þessa
tilraun forráðamanna borgarinn
ar til að efla æskulýðsstarfiö oj:
skemmtanalíf unglinga borgar-
innar.
Maðurinn sem annars
aldrei ies auglýsingar
Friðrik —
B-i> 16. síðu.
— Telst þetta ekki æði sterkur
„toppur“ þessir stórmeistarar, sem
urðu efstir?
— Það var kannski ekki svo
ýkjaerfitt að komast í hann. Og
sem sagt, þetta gekk bærilega.
Maður varð að sætta sig við tvö
slys eða svo. Það getur ekki talizt
átakanlegt.
I
Dansar æskan —
i siöu
þessu nafnlausa æskulýðsheimili
er Steinþór Ingvarsson, en ekki
má gleyma „hljómsveitarstjóran
um“ sem verður Pétur Stein-
grímsson. vel þekktur af þáttum
sínum í útvarpinu. Reyndar
kom frn.rn nýyrði á starfsheiti
„diskótekarans", og er það pjötu
snúður, sem ætti að festast í
málinu.