Vísir - 11.02.1969, Blaðsíða 16
k<i CT "I
Þriöjudagur M/ febrúar 1969.
TITCSIBJG?
Ustmti m • 5* !t12l Sfiljni
Munið^ .Múlnknffi
nýjn Sími
grillið c ^ 37737
Hmnriul£ Itf
nngsnuei m»
Sfðmnúía » ♦ Sfmi'3
Gerir oHo ánaMÍa
Tvö smygl
um helginu
ÞAÐ VERÐA „VOFFIN ÞRJU'
SEM RÁÐA 10ÐNUVERTÍÐINNI
— verðið — verksmiðjurnar — verkf'óllin, segii
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur ,
• Tollgæzlan kom upp um
tvö allstór smygl um
helgina við leit í tveimur
skipum, Mánafossi og togar-
anum Röðli, sem komu inn
eftir siglingar.
I Mánafossi fundust 176
flöskur af áfengi, aðallega
gin og viskí. Leit var haldið
áfram í allan gærdag og verð
ur enn haldið áfram í dag.
Auk þess fundust um 26.000
smygiaöir vindlingar í skip-
inu.
í Röðli fundust 170 flösk-
ur af sterku áfengi, aðallega
genever og 75% vodka.
Einn skipverji á Mánafossi
og þrir á Röðli hafa gefið sig
fram sem eigendur smygl-
vamingsins.
• Það verða þrjú „vöff“ sem
fyrst og fremst ráða því hvemig
ioðnuveiðamar verða, þ. e. veörið,
verkfailið og verksmiðjurnar, sagði
Hjálmar Viihjálmsson, fiskifræð-
ingur í viðtali við Vísi í gær, en
hann kom á sunnudaginn úr leið-
angri með Árna Friðrikssyni. Ef
verkfallið leysist, verksmiöjumar
geta tekið á móti loðnunni í
bræðslu og veröiö verður skaplegt,
er útlit fyrir góða veiði.
Við fundum mikiö magn 40—80
sjómílur austur af Dalatanga, en
þar hélt hún sig í stórum og góð-
um torfum á 50 metrum og ofar á
nóttunni. Við sigldum í norður þaö
an og fundum dreiföa loönu alveg
inorður að 67. gráðu, en það voru
yfirleitt smærri torfur. Eftir þetta
brældi og við leituðum inn í var.
Pegar við komum út aftur s.d.
mánudag og leituðum aftur á sama
svæöi fundum við lítið en loðnuna
hefur líklega hrakið suður í haf.
Urðum viö því lítiö varir við loðnu-
lóðningar við SA-Iandið nema smá-
vegis í Lónsbugtinni, en það má
búast viö þvi, að hún komi sér upp
að SA-landinu á næstu dögum.
Við urðum lítið varir við fugl á
þessum slóðum, sem getur einnig
bent til þess að loönan sé ekki
langt undan.
Hafþór fer á næstu dögum til að
fylgjast betur með loðnunni og
verður þá væntanlega hægt að
segja nánar frá útlitinu.
Þess má geta aö Norðmenn hafa
fengið sæmrlegan loðnuafla undan-
farna daga. Á föstudaginn og laug-
ardaginn veiddu um 80 snurparar
100.000 hektólítra við Lófóten og
norður af Lófóten.
Frá blaöamannanámskeiðinu: Fremstir sitja Jónas Kristjánsson, formaður Blaðamannaf^lags íslands, og ívar H. Jónsson, ritstjóri,
Námskeið
Blaðamaima-
félagsins
hafrð
Námskeiö Blaðamannafélags ts-
lands var sett í gærkvöld} i Hamra
hlíöarskóla. Þátttakendur í nám-
skeiöinu eru um 30 talsins, en það
mun standa til aprílloka.
Jónas Kristjánsson ritstjóri, for
maöur Blaðamannafélags Islands
setti námskeiðið, en ívar H. Jóns-
son ritstjóri kynnti því næst fyrir-
komulag þess og starfshætti.
Síðan flutti Vilhjálmur Þ. Gisla
son fyrrverandi útvarpsstjóri fyrri
hluta erindis síns um blaðaútgáfu
á Islandi, og fjallaði um tímarita-
útgáfu fram yfir síðustu aldamót.
Að lokum var skýrt frá fyrirhug
uðu skipulagi íslenzkukennslu á
námskeiðinu en hana munu annast:
10. síða.
Sótt um einkaleyfi á
sjálfvirkum
Vélvæðing línuveiða virðist
ekki eiga mjög langt í land og
hefur nú verið sótt um einka-
leyfi á sjálfvirku tæki til að
leggja og draga línu en til þessa
hafa tveir menn orðið að leggja
og a. m. k. einn að draga.
Það ?r Guðlaugur E. Jónsson,
3em sótt hefur um einkaleyfi þetta
hjá Iðnaðarmálaráðuneytinu og gaf
:ann blaðinu þær upplýsingar í
morgun, að þetta væri ný uppfinn-
ing. og væri rétt lokiö við aö
færabúnaði
smíða tækið. Kvaðst hann vonast
til að geta reynt þaö nú i þessari
viku.
Meðal annarra einkaleyfaum-
sókna, sem liggja fyrir hjá ráðu-
neytinu, er umsókn um einkaleyfi
hér á landi á loftþéttum umbúöum
úr plasti og pappa, sem sænskt fyr-
irtæki framleiðir, og einnig hefur
norskt fyrirtæki sótt um einkaleyfi
á aðferð við að framleiöa djúp-
frosnar fiskflakablokkir, sem síö
an eru hlutaöar niður í smærri
einingar.
Tveir drengir fyrir bil:
«-
Hlupu út á götuna án
bess að gæta að sér
Tveir sex ára drengir urðu fyrir
M' seinni hluta dags í gær á gatna-
-lótum Álfheima og Sólheima. —
'Tngur ökumaöur frá Akranesi "ar
nrna á ferð í bíl sínum og sagöi
pnn blaðamanní Vísis á staðnum
Hann befði allt í einu séö dreng
’a skjótast fram undan sendlferða
"1, sem var við innkeyrsluna að
•erzlunarmiðstöð hverfisins. —
kutust drengimir eins og örskot
it á gangbrautina.
„Ég hemlaði eins og ég gat“,
sagði ökumaðurinn „og var búinn
að stöðva bílinn svo til alveg þegar
drengimir lentu á honum“. Bíllinn
var þó talsvert dældaður á eftir, og
á götunni voru 27 metra hemla-
för.
Sjúkrabifreið fluíti drengina á
slvsavarðstofuna, en að því búnu
var annar þeirra, Stefán Þormar,
Skeiðarvogi 45, fluttur i Landspítal
ann með meiðsl á höfði og Iærbrot.
Hinn drengurinn, Sveinn Grímsson
Skeiðarvogi 31, meiddist mun
minna
Nær öll saltfiskframleiðsla
1968 seld
Þá ekki 1500 tonn af þurrfiski. Formaður og
framkvæmdastjóri SIF nýkomnir úr söluferð
til Portúgals, Spánar og Italiu
I Nær öll saltfiskframleiðsla
landsins árið 1968 hefur nú
verið seld, en aðeins eru eftir
um 1500 tonn af þurrfiski á S-
Ameríkumarkað. Formaður SÍF,
Tómas Þorvaldsson og fram-
kvæmdastjóri, Helgi Þórarins-
son, komu í gær til landsins eftir
tveggja vikna söluferð til Portú-
gals, Spánar og Ítaiíu, þar sem
þeim tókst að semja um tölu-
vert magn. Til Portúgals tókst
þeim að semja um sölu á 2750
tonnum, sem verða afskipuð síð-
ari hluta febrúar og fyrri hluta
marz.
Samningar tókust um söilu á um
1000 tonnum af saltfiski til Spánar,
en ekki hafa fengizt innflutnings-
leyfi fyrir þetta magn enn, en ekki
vonlaust um að þau fáist. Spánar-
stjóm tók fyrir öll innflutnings-
leyfi í ágúst í sumar og hefur ekki
leyft neinn innflutning síðan, enda
mun vera töluvert magn af saltfiski
10. sfða.
Lögreglan ræðir við ökumanninn á slysstað. Drengirnir skutust framundan sendiferðabílnum hin-
um megin á götunni.