Vísir - 12.07.1969, Síða 16

Vísir - 12.07.1969, Síða 16
VISIR AUGLÝSiNGAR AÐALSTRÆTI 8 SÍMAR 1-16-60 1-56-10 og 1-50-99 GLÆSILEGT HUSGAGNAURVAL O í SiCflÁ WI • TRYGGIXG HE * * * tng) LAUGAVEGI 178 K sími jmof „Við höldum þessu áfram meðan bíllinn endist' litið inn i nýja bókabilinn, sem hóf „göngu'' sina i gær ■ „Það hefur verið alveg fullt síðan við byrjuðum kl. I í dag. — Ætli við eigum ekki eftir að halda þessu áfram, meðan bíllinn endist“ — sagði Gróa Björnsdóttir bókavörður í hinum nýja bókabíl Borgarbóka safnsins, þegar blaða- maður leit þar við í gær, en þá var bíllinn í Ár- bæjarhverfinu. „Við erum hér fimm eins og stendur og veitir ekki af, en verðum færri síðar. Ragnhildur Helgadóttir verður hér bókavörö ur með mér og Bjarni Björnsson er bilstjóri." „Hefur verið meira um börn en fullorðna?" „Já, heldur meira um börn, en við erum þó með meira af bókum fyrir fullorðna," sagði Gróa ennfremur. Bíllinn, sem tómur vegur 9 tonn og 890 kíló, er mjög lang- ur og fyrirferðarmikill, og því spurðum við bílstjórann, Bjarna Björnsson, hvort ekki væri erf- itt að aka þessum stóra bíl. „Jú, maður verður náttúrlega að fara varlega í beygjurnar, — en annars hallast hillurnar aö- eins inn á við.“ „En þær hafa ekki dottiö í þessari fyrstu ökuferö hingað í Árbæjarhverfið?" „Ekki að ráði, bara svona ein og ein. Seinna koma svo stoöir fyrir framan þær, svo að það ætti ekki að verða nein hætta á því í framtíðinni," sagði Bjarni að lokum. Að kvöldi dags, þegar bóka- bíllinn hélt ,,heim“ á leið höfðu 270 bækur verið lánaðar út. — „Þetta var fremur rólegur dag- ur,“ sagði Eiríkur Hreinn Finn- bogason, borgarbókavöröur, „en reyndar kom þaö ekki að sök, því afgreiðslan er fremur hæg vegna mikils fjölda af nýjum lánþegum, sem veita þurfti láns- kort.“ Þess skal getið til saman- burðar, að aðalsafnið við Þing- holtsstræti Iánar út um 1000 bækur á dag, og útibúið 1 Sól- heimum milli 400 og 600 bækur á dag, en það er aðeins opið eftir hádegi. Kostnaður við að gerast lán- þegi í bókasafninu er ákaflega lítill, — það kostar litlar tiu krónur að fá eitt kort, sem veit- ir réttindi til að fá að láni eina bók í einu, en kortið gildir í ár. Flestir fá sér fleiri en eitt kort, — oftast 2—3. Á mánudaginn verður bóka- bílnum ekið í ný hverfi, fyrst í Blesugróf, þar verður hann milK 14 og 15.30, og þaðan verður haldið í Árbæjarhverfi og haldið kyrru fyrir frá kl. 17 til 19. „Málefnum Há- skólans ekki sinnt af kostgæfni — segja lýdræðissinnaðir stúdentar E3 Þeir gerast nú æ fleiri, sem rísa öndverðir gegn hinum nýju innritunarreglum 1 læknadeild Háskóla íslands og lýsa óá- nægju með málefni Háskólans almennt. Stjórn Vöku, félags Iýð- ræðissinnaðra stúdenta, kom saman til fundar í gærmorgun og sam þykkti einróma ályk*un þá um málefni Háskóla íslands, sem hér fer á eftir. Um langt árabil hafa stjórnvöld ekki sinnt málefnum háskólans af þeirri kostgæfni, sem ætlast mætti til. Ljóst er, að Háskóla íslands er sniðinn það þröngur stakkur, að hann nær ekki að rísa undir því hlutverki sem hann óneitanlega þarf að gegna í vaxandi þjóðfélagi. Greinilegast kemur þessi vanmátt- ur háskólans í ljós nú, þegar tak- markaður hefur verið aðgangur að læknadeild, vegna mjög ófullnægj- andi aðbúnaðar og aðstöðu deildar- *nnar. En vandamál læknadeildar eru ekki annað en hnotskurn af vandamálum háskólans alls. Eins og málefnum háskólans er nú háttað skapar takmörkun að einni deild skólans aðeins öngþveiti í öðrum deildum hans. Stjórn Vöku, félags lýðræðissinn- aöra stúdenta, lýsir eindreginni and stöðu gegn hvers konar takmörk- unum á inngöngu stúdenta í Há- skóla íslands. Það er skýlaus krafa stjórnar Vöku, að hafizt veröi þeg- ar á þessu ári handa um aukningu kennslurýmis háskólans og fjölgun námsleiða. Stjórn Vöku lýsir yfir vantrausti á stjórn menntamála í landinu þar sem gersamlega hefur verið brugðizt þeirri sjálfsögðu skyldu, að viðunandi menntunarað- staöa sé fyrir hendi í landinu. ■ Börnin voru ekki síður áhugasöm í bókasafninu, sem kom akandi heim í hverfið þeirta í gær- dag, en þeir fullorðnu. (Ljósm. Vísis B.G.) -------------------------------------------------------------------- ------------------------------- I llespulopi fyrir 9 millj. til Bandaríkjanna Álafossverksmiðjurnar fluttu i í Bandaríkjunum fyrir um fjóra síðasta ár hespulopa á markað | og hálfa milljón króna á núver ■^indi gengi. Pétur Pétursson, for itjóri tjáir blaðinu, að í ár sé >úizt við, að þessi útflutningur vöfaldist og nemi u:.i 9 millj. kr. Nokkur þúsund teppi frá verk- imiðjunum hafa farið á Bandarikja markaö og er stööugt unnið að sölustarfi. Ásbjöm Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri verksmiðjunnar, hef ur að undanfömu ferðazt um Evr- ópu, Þýzkaland, Italíu, Sviss, Hol- land og Frakkland, til að afla mark aða fyrir Álafossvömr. Talsvert hefur þegar selzt af peysum og fleiri flikum. Ævintýrabítlar — Fyrst og fremst ætlum við að skemmta fólkinu, en látum okkar áhugamúsík sitja á hakanum, sagði Björgvin er Vísir ræddi lítillega við hann í gær. Hann eg fjórir félagar hans hafa stofnað nýja hljóm sveit, sem koma mun fram í fyrsta sinn n.k. laugardags- kvöld í Tónabæ. „Má með sanni segja, að „blóm- n“ hafi sprungið út, þvi fyrir kömmu lögðu Flowers upp laup- ana og tveir úr þeirrf hljómsveit Þetta er „Ævintýri“. Frá vinstri. Birgir Hrafnsson, var áður í Pops, Sveinn Larsson, áður í Bendix fóru yfir í hljómsveitina Trúbrot. og þá „blómálfamir“ Arnar Sigurbjörnsson, Sigurjón Sighvatsson og Björgvin Halldórsson. Hinir „blómálfamir“ hafa nú feng- iö menn í þeirra stað og ætla að leika og syngja undir nafninu „Ævintýri.“ „Það er meöal annars vegna þess, að við erum ofsalega kristnir, að við ætlum aö velja lagið „Jesús Kristur" á okkar fyrstu hljómplötu, sem væntanlega mun koma á mark að í september. Viö höfum æft vel undanfarið, en við ætlum þó ekki að hafa hljómlistina að aðalat- vinnu. Það vinna allir fulla vinnu á daginn nema ég, sagöi Björgvin, en ég er að „pæla“ í því að fá eitthvaö að gera.“ Björgvin sagöist líta björtum »->• 10. sfða.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.