Vísir - 23.08.1969, Blaðsíða 4
■ Oft veltir lítil þúf a
þungu...
Menntamálaráðherra Thailands,
Sukit Nimanheminda, hefur bann
að öllu kvenfólki, starfandi í ráðu
neytinu, að ganga um í pínupils
um á starfstíma. „Það er óþægi-
legt fyrir augun“, segir hann.
H Það friðar
samvizkuna.
Nú geta hvítir S-Afríkubúar
drukkið Queen Anne ( skozkt
viskí), innflutt, án þess aö þykja
neitt verri þegnar þar syðra.
Flöskurnar eru nú seldar með
tvenns konar miðum. Á ensku er
það Queu Anne-merkið, en á
máli afkomenda Búanna stendur
á hinum miðunum „Tant Anna“,
en það þýðir Anna frænka.
Fékk Kennedy taugaáfall eftir slysið?
— Hann átti 17 simtöl áður en hann hringdi
til lögreglunnar
Bandaríski öldungadeildarþing-
maðurinn Edward Kennedy sagði
eftir bílslysið 18. júlí sl., þar sem
fyrrum einkaritari Roberts bróður
hans, lét lífið: „Ég fékk mikiö
taugaáfall. Þess vegna reikaði ég
um í níu klukkustundir, áður en
ég hringdi til lögreglunnar og
tilkynnti um slysið.“ En nú er
komið á dagin: að Kennedy var
ekki ruglaðri en svo, að hann
átti 17 símtöl á þessum níu
klukkustundum. Dagblaöiö Man-
chester Union hefur komizt á
snoðir um símtöl þingmannsins
og komizt að raun um, að fimm
þeirra hafi farið fram fyrir mið-
næt'' g tólf eftir miðnætti. —
Tyrsta símtal Kennedys var frá
sumarhúsinu á Chappaquiddic-eyj
unni, þar sem hann var i sam-
kvæminu ^yrr um kvöldið.
Fyrsta símtalið, sem stóð yfir
í 21 mínútu, átti Kennedy við
sumarsetur Kennedy-fjölskyldunn
ar í Hyannisport.
Ní t ræddi Kennedy við hinn
pólitíska ráðgjafa fjölskyldunn-
ar Theodore Sörensen, en síðan
við lögfræðinginn Burke Mars-
hali en hann var aðstoðar-dóms-
málaráðherra Roberts Kennedys
sínum tíma.
Hin samtölin "órtán fóru fram
frá hótelinu í Edgartown, þar
sem Kennedy hafði herbergi. Það
var svo ekki fyrr en klukkan tíu
morguninn eftir, að Kennedy
hringdi sjálfur til lögreglunnar og
tilkynnti slysið.
Kennedy-fjölskyldan hefur ekki
fengizt til að segja neitt um stað
hæfingar Manchester Union né
vísað þeim á bug, og b'~ menn
spenntir skýringa á því, hvers
vegna 9 klst. liðu, án þess að
DEILUR UM
Kennedy hringdi til lögreglunnar.
Hins vegar mótmælti Kennedy
strax grein, sem hinn þekkti
blaðamaður Jack Anderson brif
aði um málið, en þar er því m. a.
haldið fram, ð Kennedy hafi um
tíma verið að hugsa um að fá
fræuda sinn, Joseph Gargan, til
þess að Iátast hafa ekið bílnum
er slysið varð.
H Öheppilegt
staðarval.
Lisa Minelli stóð í Blue Hill-
kirkjugarðinum í Braintree í
Massachu^etts-fylki hér um dag-
inn og tíndi af sér spjarirnar,
en álengdar stóð Otto Preminger
g horfði á með velþóknun. Þau
voru að taka upp nektaratriði í
næstu ynd Premingers.
Frá listfræðilegu sjónarmiði
kann þetta að hafa tekizt vel, en
frá lör' æðilegu sjónarmiði verð-
ur það ekki útkljáð fyrr en í rétt-
inum í lok þessa mánaðar.
Frú Margaret Forgano kærði
bau nefnilega fyrir tiltækið og
vitnaði •' reglugerðaratriði frá þvi
1861, þar sem svo er kveðið á
um kirkjugarða: ,,að þeir séu stað
ir. hvar hinir dauöu skulu í friði
hvíla og hvar minningar eftirlif-
endanna eru bundnar við“. Hún
segir að þau Preminger hafi van
helgað staðinn.
Maður frú Forgano liggur graf
nn í Blue Híll.
B Eldfjallavatn
Yfirvöld Mexico-borgar eru nú
í þann mund að tappa drykkjar-
vatni af tveim eldfjöllum, sem
gnæfahátt í grenndinni. Það er ver
ið að koma fyrir rörum frá eldf jöll
unum til borgarinnar, en um þau
á bráðinn snjór frá tindum fjall-
anna að streyma. Ráögert er, að
með þessu móti veröi unnt að sjá
400 þúsund íbúum í austurhluta
borgarinnar fyrir drykkjarvatni.
■ Langlífasti •
hjartaþeginn. J
Eftir dauða Philip Blaibergs er*
franski presturinn Charles Boul-J
ogne sá hjartaþega sem lengst hef •
ur lifað eftir ígræðslu. Hann er*
sagður lifa eðlilegu lifi í klaustri*
sínu í París og messar að jafn-J
aði. Hann er dominikusarmunkur*
og vill ekki láta hafa eftir sérj
eitt eða neitt um dauða Blaibergs.J
Charles Boulogne var skorinn*
upp fjórtán mánuðum síöar enj
BJaiberg á Broussais-sjúkrahúsinu •
í París undir leiðsögn próf. Charl- J
es Dubost. Hið nýja hjarta prestsj
ins var tekið úr 39 ára gömlum*
Frakka, sem látizt hafði úr heilaj
blæðingu. •
FRÆÐI HITLERS
Nú er í ráði, að heimspeki
Hitlers, Mein Kampf, verði gefin
út retlandi í haust í fyrsta
skipti . frá stríðslokum. Utgáfan
mun kosta fjórar gíneur hvert ein
tak og Sir Robert Lusty, fram-
cvæmdastjóri Hutchinsons-útgáfu
fyrirtækisins, sem standa mun að
útgáfunni segir svo: „Bókin var
gefin út hjá fyrirtæki okkar árið
1933 og við förum í einu og öllu
eftir þeim skilmálum, sem settir
voru í útgáfusamningnum þá.
Hundrgösgjald af hverju eintaki
f.er tji. u’ borðsmanna okkar og
þeir muni. koma þvi áleiðis, eins
og samningurinn segir til um —
til þýzku ríkisstjórnarinnar. Hvað
hún gerir við féð, veit ég ekki né
hirði um. Þó mun ekkert renna til
ættingja Hitlers vegna þess, að
útgáfurétturinn var fenginn ríkis
stjórninni í hendur á sínum
tíma.“ — Sagt er, að Þjóðverjar
sjálfir séu ekkert allt of hrifnir
af væntanlegri útkomu hinna
nazistísku fræða.
Talsmenn þýzka fjármálaráöu
neytit egja, að enn hafi ekk-
ert leyfi verið gefið fyrir endur-
útgáfu bókarinnar. „Það er ekki
um það að ræða að taka við á-
góða, því að okkur vitanlega hef-
ur enginn leyfi til þess að gefa
þessa bók út. — Þaö er ekki
gott að segja, hvað við myndum
gera við peningana, ef okkur bær-
ust þeir, — hvort viö myndum
skila þeim aftur, halda þeim eða
gefa þá í góðgerðarstarfsemi.
— Ef einhver sendir okkur hagn
að af útgáfu bókarinnar eftir að
hafa fengið þvert bann frá okk-
ur fyrir útgáfu, lendum við vissu
lega klípu.“
Eigendur útgáfufyrirtækisins í
Bretlandi segjast ekki enn hafa
fengið mótmæli eða blátt bann
frá þýzku ríkisstjóminni, enda
vilji þeir sízt af öllu þyrla upp
moldviðri vegna útkomu bókar-
innar og samningurinn sé enn í
fullu gildi.
^lalalalalalaSalaíalaElEÍISIalslalalalals
m
m
isi
m
13
13
13
0$.
STALHUSGÖGN
húðuð með hinu sterka og
óferðarfallega RILSAN
(NYLON 11)
Framleiðandi:
STÁLIÐN HF., Akureyri
13
31
31
3i
31
31
31
31
31
lol
Söluumboð: ÓÐINSTORG HF. Skólavörðustíg 16, Reykjavík_
BllalbilEIIalElEniaHalblÍallaUalElEllalÉllallalEIIaÍ
9 tímar — 17 símtöl. Þá fyrst var hringt í lögregluna.
ápáin gildir' fyrir sunnudaginn
24. ágúst.
Hrúturinn, 21. marz — 20. apríl.
Leggðu við eyrun 'ti. fréttum
sem eru að gerast í kringum
big. Það m„ vel vera að þú fáir
Pá réttari skilning á mönnum og
Nautið, 21. apríl — 21. mai.
Þaö ge^’ir farið svo í dag að
eitthvað það bregðist, sem þú
reiknaðir leð — ef til vill fyr-
ir hirðuleysi annarra, ef til vill
f 'r klaufaskap þinn.
Tviburarnir, 22. maí — 21. júni.
Á stundum getur það borgað
,sig aö segja ekki það sem manni
býr í brjósti. Hugsaðu þig að
minnsta kosti vel um áður en
erist óþægilega -einskil-
’'r>n.
Krabbinn, 22. júní — 23. júlí.
Sjáðu svo um að þú megir ekki
fljótfærni þinni eöa ráðríki um
kciuia, ‘■-■ri eitthvað út um þúf-
j.-, sem þú hefur lengi að unn-
iö, og skiptir þig talsveröu máli.
Ljón’* 24. júlí — 23. ágúst.
Leggðu ekki mikið upp úr áróðri
og lausafréttum og ró-
mi þótt gangi á ýmsu í
kringum þig. Treystu meir á
elju en heppni f starfi og áætl-
unum.
Meyjan, 24. ágúst — 23. sept.
Fyi hluta uugsins ættirðu að
undirbúa ýmsar aðkallandi fram
kvæma' ræðá við ráðamenn,
ef þess þarf við —. eins ef þú
þarft uð leita aðstoðar vina
þinna.
Vogin, 24. sept. — 23. okt
Taktu ekki hart á fljótfæmi ann
arra i dag, jafnvel þótt hún
valdi þér --kkrum óþægindum
í bili. Gerðu allt til að halda
friði heima fyrir.
*rekinn, 24. okt. — 22. nóv.
Tillitsleysi þitt við aðra, senni-
lega þína nánustu, getur valdið
ósamkomulagi og sársauka, sem
ef tn vill fyrnist seinna en þú
vildir.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.
Leggðu ekki um of áherzlu á
formsatriði, ef þau tefja undir-
búning eöa ákvarðanir. Láttu
ekki áróður villa þér sýn, að þú
sjáir ciki hvað mestu máli
skiptir.
Steingeitin, 22. des. — 20. jan.
Faröu hægt og rólega að öllu,
reyndu fremur að koma fram
vil=- þínum með ýtni og lagni,
en að þú beitir skapi og á-
gengni, eins þótt þér finnist
Unt ganga.
Vatnsberinn, 21. jan. — 19. febr.
Vertu á verði gagnvnrt þeim,
sem vilja fá þig til að ganga
aö einhvers konar tilboðum eða
samningum. - Athugaðu að
minnsta kosti öll bindandi á-
væði.
Fiskarnir, 20. febr. — 20. marz.
Vertu rólegur þó að nokkur
s .gangur verði ■ i hlutunum
vfir hádegið að minnsta
kosti, og gerðu ekki neitt til
hraða gangi þeirra í bili.