Vísir - 23.08.1969, Blaðsíða 7

Vísir - 23.08.1969, Blaðsíða 7
Vl S IR . Laugardagur 23. ágúst x»o9. morgim. - Skæruliðar dæmdir i ævilangt fangelsi í Saðvestar-Afríku Frá Windhoek í Suðvestur-Afríku bárust fréttir uni það í gær, aö fimm menn hefðu verið dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir hryðjuverk. Sá sjötti var dæmdur í þriggja missera fangelsi. Réttarhöldin hófust í lok júní- mánaðar. Menn þessir voru einnig sakaöir um tilraunir til þess aö steypa stjórn Suövestur-Afríku. Allir sakborningar lýstu sig ekki seka. Dómarinn kvaó þaö sannaö mál, að blökkumenn fengju þjálfun í skæruhernaöi í Sovétríkjunum, Kína, Egyptalandi og Tanzaníu, og aö þjálfun lokinni væri hlutverk þeirra að koma upp skæruliðastöðv um i Suðvestur-Afríku. Suður-Afríku var falið, af gamla þjóðabandalaginu, aö fara með um boðsstjórn í Suðvestur-Afríku og hefur virt að vettugi fyrirmæli Sameinuðu þjóðanna um að láta yfirráðin í þeirra hendur. Tvær mifljónir manna hafa lótið lifið í Nígeríu Owerri í gær: Tvær milljönir manna hafa látið lífið í borgarastyrjöldinni í Nígeríu, þar af 1V2 milljón manna. sem beðið hafa bana af hungri eða af völdum loftárása flughers sam- bandsstjórnarinnar. Hinir eru her- menn og fólk borgaralegra stétta sem hafa látið lífið þar sem bardag ar hafa geisað. Fimm voru drepnir og 600 handteknir í Tékkóslóvakíu Prag í gær: Aöalmálgagn komm- únistafiokks Tékkóslóvakíu toirti í gær frétt um það, að alls hefðu 600 menn veriS handteknir undan- gegrfa 3 daga. Samtímis birti blaöið fyrstu myndimar af óeirðunum sem leyfð hefur verið birting á. Blaðið Rude Pravo, þakkar lög- reglunni fyrir að hafa hindarð, að Prag yrði eins og „villta vestrið". Að minnsta kosti 9 fréttamönn- um og fréttaljósmyndurum hefur verið vísa'ð úr landi í Tékkóslóvak- íu. Stokkhólmi: Tékkneska innanrík isráðuneytið hefur tilkynnt sænska sendiráðinu, að fleiri fréttamönnum (frá Svíþjóð) veröi ekki hleypt inn í landið um sinn. Blaðamanni frá Aftenbladet og fréttaljósmynd- ara var nýlega vísað úr landi. Á slóðum Kamillu var svona umhorfs Hvirfilvindurinn Kamilla olli meira tjóni en nokkur annar hvirfilvindur í Bandaríkjunum í hálfa öld. Þessi mynd úr þorpinu Biloxiú sambandsrikinu Mississippi þarfnast ekki skýriuga, cn svona var eða svipað umhorfs í hundruðum bæja i 3—4 sambandsrikjuin Bandaríkjanna eftir storminn. Bann við, aö varalió norbur- irsku lögreglunnar gegni störfum á götum Belfast og Londonderry Belíast: Sir Ian Frieland, yfirmað ur brezka liösins á Norður-írlandi skipaði svo fyrir í gær, að bann yrði lagt við, að varalögrcglan norður-írska hefði skyldustörf með höndum á götum Belfast og London derry. Þetta er 8000 manna liö, sem hef ir sætt harðri gagnrýni fyrir fram- komu sina gagnvart rómversk-kaþ- ólsku fólki. Hún var eitt þeirra höf uðmála sem rædd voru á Lundúna- fundinum. Bretar hafa nú 6000 manna lið á Norður-írlandi og í dag er von þangað á 600 manna liði úr frægri brezkri hersveit, Grenadier-verð- inum. SIMASKRÁIN 1969 t Mánudaginn 25. ágúst n.k. veröur byrjað aö afhenda símaskrána 1969 til símnotenda í Reykjavík. Fyrstu tvo dagana, mánudaginn 25. og þriðjudaginn 26. ágúst, verða afgreidd símanúmer frá 10000 til 26999, það eru síma- númer frá Miðbæjarstöðinni. Miðvikudaginn 27. og fimmtudaginn 28. ágúst verða afgreidd símanúmer sem bylja á þrír og átta, það eru símanúmer frá Grensásstöðinni. Símaskráin verður afgreidd í Kirkjustræti 8-10 (í húsnæði sem Gefjun-Iðunn var í áður) daglega kl. 9—19. í Hafnarfirði verður símaskráin afhent á sím- stöðinni við Strandgötu föstudaginn 29. ágúst. Þar verða afgreidd símanúmer sem byrja á fimm. í Kópavogi veröur símaskráin afhent á póst- afgreiðslunni Digranesvegi 9 föstudaginn 29. ágúst. Þar verða afgreidd símanúmer sem byrja á fjórir. Athygli símnotenda skal vakin á því, ao síma skráin 1969 gengur í gildi um leið og tvö þús- und númera stækkun Miðbæjarstöðvarinnar verður tekin i notkun, að öllu forfallalausu að- faranótt mánudagsins 1. september 1969. Símnotendur eru vinsamlega 'beðnir að eyði- leggja gömlu símaskrána frá 1967 vegna fjölda númerabreytinga, sem orðið hafa frá því hún var gefin út, enda ekki lengur í gildi. BÆJARSÍMINN

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.