Vísir - 23.08.1969, Page 5
VlSIR . Laugardagur 23. ágúst 1969.
Fréttir frá Maríulandi
JJaltimore er nú talin ein
helzta bilainnflutningsborg
in á austurströnd Bandaríkj-
anna. Stafar þaö af hentugri
Iegu borgarinnar með hliösjón af
bilaflutningum á helztu markaö-
inaimið og vesturríkjunum og á
austurströndinni, og syo auövit
að af mjög góðum löndunarað-
staeðum hér í höfninni, þar sem
risastór bílaflutningaskip eru
losuð á einum degi. Einnig ku
kostnaður við-löndun minni hér,
en viðast annars staðar á aust-
urströndinni. Má segja að skip
komi daglega frá helztu bilaút-
liutningsborgum Evrópu eins
og Genova, Amsterdam og Ham-
borg. Eru bilaflutningaskipin
risastórir prammar, aðallega
norskfr og þýzkir, byggðir ein-
göngu til bilaflutninga. Eru skip
in losuð á nokkrum tímum og
ionfhittu bílarnir síöan fluttir á
bílavögnum til bílasalanna. Eru
bifreiðarnar komnar á markað-
inn glansandi nýjar, tveimur til
þrem dögum eftir að þeim er
skipað í land. Mest ber á Volks-
vðgnum, af öllum gerðum, og
Fiötum, en þessar tvær bílateg-
undir ku vera vænlegastar til
sölu af erlendum bifreiðum á
markaðinum hér i Bandarikjun-
um. Þá er mikið f Iutt inn af lúsar
smáum sportbilum, Austin, sem
eru mjög vinsælir af sportsinn-
uðum einstaklingum, er kunna
vel að meta spameytni þeirra.
Japanir senda fulltrúa sinn,
Honduna, í þessa dollarakeppni
bilaframleiðenda. Þykja allir
þessir bílar girnilegir fyrir létt
leika sinn á fóður og litlar kröf
ur um rými.
Er mikil hugur í bandariskum
biiaframleiðendum að mæta
þessari markaðsögrun evrópskra
með því að smiöa agnar litinn
bíl, sem þyrfti sama og ekkert
bensin og væri næstum ósýnileg
ur i innferð, en samt svo rúmgöð
ur, að hann rúmaði alla fjölskyW
una. Fjöldi manna lítur samt
lrtiu evrópskn bfíana homauga
vegna þrengsla þeirra og lífs-
hættu þeirrar, er menn segjast
rmmdu leggja sig í, ef þeir lentu
í árekstrj við trukk. Menn þess-
ir hafa nokkuö til síns máls, því
samkvæmt frásögnum blaöa af
bifreiöaárekstrum á vegum úti,
mun erfitt að koma auga á litlu
evrópsku bílana eftir árekstur-
inn.
Mun öll varahlutaþjónusta er-
lendu bílanna vera dýrari og við
geröarþjónusta lélegri. En banda
ríska stjórnin ku ætla að leggja
hart að innlendum framleiðend
um bifreiöa að bæta alla við-
gerðaþjónustu á nýseldum bil-
um, því að kvartað hefur verið
um, að bílasölur stæðu ekki viö
ábyrgðar skuldbindingar sínar
gagnvart bílakaupendum og
veittu litla eða lélega þjónustu.
Þykja bifreiöaverkstæði hinar
mestu okurstíur, og mikil vinnu
svik höfð í frammi. Er ætlunin
að mæta samkeppni evröpskra
með þvi að koma þjónustu við
kaupendur bandarískra bifreiða
í rétt horf og framfylgja reglum
um öryggisákvæði í bílum, ems
og sætabindingunum.
Mest seidu bandarísku bifreið
arnar eru Chevrolet og Ford-bil-
arnir. Eru þeir ásamt Rambler-
bilunum, sem ekki hafa gott orð
á sér, hvernig sem á þvi stendur
ódýrustu og jafnframt neyzlu-
grennstu bilarnir af innlendu
framleiðslunni. Þykja sumar teg
undir Chevrolet ekkert standa
að baki litlu evrópsku bilunum,
hvað sparneytni snertir, auk
þess sem Chevrolettinn er miklu
stærri og kraftmeiri. Af öðrum
vinsælum, ódýrum bandarískum
bilum má nefna Dodge og Plym
outh bilama, sem fylgja fast á
eftir hinum rótföstu Ford og
Chevrolet. Allir þessir bílar selj
ast nýir á svipuðu veröi og inn-
fluttu biiarnir; geta státað af
betri og ódýrari viðgerðarþjón-
ustu og eru í mörgum tilfellum
eins ódýrir á brennsluefni svo
aö þeim.ætti ekki að stafa hætta
af samkeppni erlendu bilanna.
Þurfa menn hér litið að hugsa
um bensínkostnaö, þar eð bensín
er tiltölulega ódýrt, reyndar mis
munandi dýrt eftir gæðum, sé
miöað vrð almennar tekj«r
manna. En vikukaup verksmiðju
manna hér í Baltimore er um
120 doilarar, en bensínlítrinn
frá 28 centum. Ætti því spar-
nevtnin ekki að vera sá kostur
sem evrópsku bílarnir vinna á.
En hér eins og annars staöar
er um að ræða hið mikla bíla-
stæða vandamál, og í því vanda
máli koma kostir litlu bílanna í
Ijós.
Nýju Volksvagnarnir á mark-
aðinum hér eru sjálfskiptir, þvi
að ekki þykir akandi i öðru en
sjálfskiptandi bifreiðum í hinni
hröðu umferð. Hefur fyrir Iöngu
verið unninn bugur á göllunum
sem komu í Ijós á fyrstu sjálf-
skiptu bifreiðunum, þykir sjálf-
skiptingin nú miklu öruggari og
hentugri með tilliti til reksturs-
sparnaðar, og bílar með gömlu
gírskiptingunum þykja hálfgerð-
ir forngripir hér, sem einstaka
sérvitringur og safnarar girnast.
Af dýrari fólksbilum hér má
nefna lúxusbíla, eins og Chrysl-
er, Oldsmobile, Buick og Cadi-
lac. Eru þessir bílar mun vand-
aðri og dýrari en fyrmefndu al-
gengustu tegundirnar, meö geysi
legu vélarafli og alls konar þægi
legheitum fyrir öikumanninn,-
eins og sjálfstýringu og fl. o.fl.
Menn skulu þó ekki halda að
auðmennina megi þekkja á þess-
um þrjú til fjögur þúsund doll-
ara tryllitækjum, þvi að þessir
bílar eru algeng sjón fyrir utan
alls konar verksmiðjur, þar sem
verkamenn leggja bilum sínum.
Auðmenn ferðast í risastórum
Limousinum með einkennis
klæddum cinkabilstjóra og svo
auðvitað í þvrlum.
Þegar á allt er litið, ætti
bandaríska bílaiðnaðinum lítil
hætta að stafa af innflutningi er
lendra bifreiða nema þá Rolls-
Royce bílanna, þvi að Banda-
rikjamenn vilja hafa allt stórt,
eins og sést bezt á því, ef krakki
er að drekka gos, þá er það yf-
irleitt úr þriggja pela flösku.
S.I.Ó.
Sjálfsþjónusta
Njötið sumarleyfisins. Gerið við bíiinn sjáifs'. Vett*am
aiia aðstöðu.
Nýja bílaþjónustan, Hafnarbraut 17. Sfem 42536.
Leigi ót toftpressH og gröfej
til atím verka.
Gislj Jónssou, Akurgerði 34.
Simi 35199.
NYJ0N6
ÞJÓNUSTA
A
EINUM STAÐ
Fáiö þér íslenzk gólffeppi frái
TEPPÍíf
nitima
Ennfremur ódýr EVLAN feppl.
Sparið tíma og fyrirhöfn, og verzIiS á einum sicð.
UOSASTILUNGAR
Bræðumir Ormsson h»
Lágmúla 9, sími 38820.
(Beint á móti bensinstöð BP við Háaleitisbr.)
© Notaðir bílar til sölu
Höfum kaupendur að Volkswagen og Land-
Rover bifreiðum gegn staðgreiðslu.
Til sölu í dag:
Volkswagen 1200 ’56 ’62 ’64 ’65
Volkswagen 1300 ’66 ’67 ’68
Volkswagen 1500 ‘68
Volkswagen Fastback ’66
Volkswagen sendiferðabifr. ’62 ’65
Volkswagen station ’66
Land-Rover bensín 62 ’63 ’64 ’65 ’66 ’67
Land-Rover dísil ’62 ’66
Willys ’66.
Opel Kadett ’65
Við bjóðum seljsndum endurgjaldslaust af-
not af rúmgóðum og glæsilegum sýningarsal
okkar.
S'imí 21240 HEKLA hf Laugavegi 170-172
|vEKKTAKAR! - HÚSBYGGJENmiR*
Ifeamkvæmum alls-,
^ KONAR JARÐÝTUVINNC
1 j UTANBORGAR SEM INNAN .
I 82005-82972
MAGNÚS & MARINÓ SF
OSVALDUR
S.
DANIEL
Srautarholti 18
Simi 15585
SKILTI og AUGLVSINGAR
BILAAUGLVSINGAR
ENDURSKTNSSTAFIR ð
BÍLNÚMER
UTANHÚSS AUGLYSINGAR