Vísir - 16.10.1969, Blaðsíða 4
Afmælismyndin umtalaða.
Þegar myndin af Önnu Breta-
piítisessu, sem Snowdon lávaröur
frændi hennar tók á 19 ára af-
mælisdaginn, birtist á síðum
heimsblaðanna, vildi sú hugsun
læðast að mörgum lesandanum,
að frændi hefði nú látið snyrta
frænku og laga hana reglulega
vel til fyrir myndatökuna. Fáir
trúðu því að prinsessan, sem
flestum hefur nú þótt heldur ó-
aðlaðandi hingað til, væri virki-
lega orðin lagleg og kvenleg ung
stúlka. Þessi afmælismynd, sem
umheiminum hefur orðið svo tíð-
rætt um birtist einnig hér á
fólröu síðu, og það skyldi nú
aldrei vera að lesendur hennar
hafi skoðað myndina með svipuðu
hugarfari og erlendu blaöalesend
urnir.
En stærri myndin sýnir okkur
svo að ekki verður um villzt, að
prinsessan er oröin allra huggu-
legasta stúlka. Hárið er að vísu
ofurlítið úfið, en hún var líka ný
komin úr útreiðartúr, sem staðið
hafði heilan dag.
myndara, óundirbúið.
BARNARD OG KYENFÓLKIÐ
„Ég hef gaman af kvenfólki og því í ösköpunu m skyldi það ekki vera eðlilegt, enda þótt ég sé
læknir?“ segir Christian Barnard.
Hinn 46 ára gamli skurðlæknir
Christian Bamard, sem heims-
frægð hefur hlotið fyrir hjarta-
flutninga sína, en hann hefur
framkvæmt 5 hjartaflutninga, hef
ur ekki farið varhluta af því að
frægðinni fylgja erfiðleikar og
ard, að hann persónulega hafi
fréttasíðum heimsblaðanna er og
verður aldrei það sama og áður.
Hann er nú skilinn við eigin-
konu sína, en þau höfðu verið
gift í 20 ára og eiga tvö uppkom-
in börn. Hann hefur verið bendl-
aður við hverja fegurðardísina á
fætur annarri og frægar kvik-
myndastjörnur eins og til dæmis
Gina Lollobrigida hafa boðið hon
um heim til sín.
Doktor Barnard segir sjálfur
svo frá, að mestir erfiðleikarnir
við að vera læknir séu að umheim
19 ára Barbara Zoellener. Barn
ard sjálfur hefur hins vegar
ekkert viljað um málið segja.
Barbara er jafngömul dóttur
hans sjálfs.
urinn geri alls ekki ráð fyrir að
þeir séu mannlegir og haldnir
mannlegum breyzkleika.
Hins vegar viðurkennir Barn-
and, að hann persónulega hafi
mjög gaman af að umgangast og
kynnast fallegu og þá sérstaklega
ungu kvenfólki. Hann hafi gam-
an af því að dansa, smakka vín,
reykja af og til og bara yfirleitt
að skemmta sér.
— Og Bamard heldur áfram.
Staðreyndin er líka sú, að kven-
fólk virðist laðast að læknuni
fremur en öðrum karlmönnum,
hef ég eiginiega aldrei skilið al-
mennilega, hvers vegna, ef til
vill halda þær að við læknarnir
séum skilningsbetri og blíðari en
aðrir karlmenn. Ég persónulega
fæ hundruð ástarbréfa frá alls
konar konum á öllum aldri. Mér
finnst gaman af þessu en þaö
má bara enginn vita það, þar sem
ég er læknir og núna skyndilega
kominn í sviðsljósið og um leið
undir smásjá almennings.
Ef ég sést úti að dansa er ég
giaumgosi, ef kvenmaður sést í
fylgd með mér er það verst af
því öllu saman, og ég er umsvifa
laust stimplaður kvennabósi.
Þetta er einmitt það allra versta
við frægðina, einkallfið er ekki
manns eigin lengur allir þykjast
hafa sinn rétt til að snuðra og
grafa upp alla mögulega og ó-
mögulega hluti.
Ég er að eðlisfari mjög við-
kvæmur maður og tek ég þetta
ófrelsi því mjög nærri mér, en
þetta er gjaldið, sem ég og aðrir
verðum að greiða fyrir frægðina.
Þetta veldur mér hugarangri
rétt eins og þegar sjúklingur deyr
á skurðarborðinu hjá mér. — Og
ef ég á að framkvæma einhvern
sérlega vandasaman og tvísýnan
uppskurð, langar mig stundum til
að liggja í rúminu allan þann
dag bara til að losna við ábyrgð
ina og vandamálin, sem ég veit
að bíða mín. Þetta kemur oft fyr
ir mig.
Þegar Bamard er spurður um
samband hans og hinnar nítján
ára gömlu stúlku Barböru Zoelln
er, svarar hann þv£ einungis til,
að eitthvað verði maður þó að
hafa í friði sem sin einkamál, og
töfrandi brosið hverfur um stund.
— Ég veit hreint ekki hvort ég
gifti mig, lff mitt er mjög anna-
samt og það er margt, sem
ég á ógert.
Konunglegar hjónabandserjur
í BELGlU
hlutverk sitt alvarlegar en raun
ber vitni.
Hafa Paóla og Albert oftlega
verið kölluð fyrir kóng og drottn-
ingu vegna opinberra hneyksla,
sem þau hafa valdið með lífemi
sínu, og venjulega hafa þau hætt
sínu tvöfalda lífemi um sinn, en
þaö hefur því miður brátt sótt, í
sama horfið aftur — Paóla farið
til Suður-Evrópu og Albert til
Parísar.
Paóla Belgíuprinsessa er sífellt
vinsælt fréttaefni. Ekki hvað sízt
hjónaband hennar og Alberts
prins, sem ekki er talið allt of
gott, í það minnsta er það staö-
reynd, aö þau hjónin fara yfir-
leitt aldrei saman út að skemmta
sér, heldur sitt í hvom lagi.
Paóla fer þá gjaman til Suður-
Evrópu og skemmtir sér með vin
um sínum, og Albert bregður sér
gjarnan til Parísar á fund fegurð
ardísanna þar, sem hann ku
þekkja nóg af. Hvort þeirra hjóna
byrjaði á útstáelsinu fylgir ekki
sögunni, enda skiptir það engu
máli, heldur hitt, að almenning-
ur 1 Belgíu, og þá sérstaklega
konungsfjölskyldan sjálf lítur
ekki sérlega hýru auga þessi hlið-
arstökk hjónanna.
Fabiola Belgíudrottning og
stóra systir hennar Paólu, hefur
nefnilega enn ekki eignazt bam,
þrátt fyrir margar tilraunir henn-
ar í þá áttina, og er því elzti son-
ur Paólu næstur til ríkiserfða.
Er þá að vonum að konungsfjöl-
skyldan llti þaö alvarlegum aug-
um, að foreldrar tilvonandi rík-
isarfa krúnunnar skuli ekki taka