Vísir - 16.10.1969, Blaðsíða 6
6
V t S IR . Fimmtudagur 16. október 1969.
Hve trúaðir eru íslendinprar ?
eftír Gylfa Ásmundsson
W
Jjað er hverjum manni ljóst, að ís
lendingar eru ekki trúrækin
þjóð. Hvort þeir eru trúlausir aö
sama skapi eru skiptar skoöanir
um, og telja margir að íslendingar
séu jafnmiklir trúmenn f einka-
lífi sínu og aðrar þjóðir með svip-
aða menningu. Mér vitanlega hafa
þó ekki verið gerðar neinar athugan
ir á þessum þætti þjóðlífs okk^r,
og þar eð ég hafði undir höndum
nokkur gögn til úrvinnslu um trú-
arleg viðhorf íslendinga, lék mér
hugur á að koma niðurstöðum
þeirra á blað. I þessum greinar-
stúfi eru nokkrar tölulegar niður
stöður þeirrar athugunar.
^ undanförnum árum hef ég ís-
lenzkað og gert tilraunir meö
bandarfskt persónuleikapróf hér á
landi. Nefnist það. MMPI (Minne-
sota Multiphasic Personality Inven-
tory) og eru í því 550 spurningar,
sem prófaði á að svara með „rétt“
eða rangt.“ Spurningar þessar eða
staðhæfingar lúta einkum að sálar-
lífi einstaklingsins, hugsun, tilfinn
ingum og atferli, en einnig eru þar
nokkrar um þjóðfélagsleg viöhorf
og skoðanir. Til eru hundraðstölur
um svör bandaríska stöðlunarhóps
ins við hverri spurningu, og er ég
hafði safnað álitlegum hóp prófa
frá „normal" einstaklingum hér,
kannaði ég svör manna við 13
spumingum trúarlegs eölis og
færði til samanburðar við banda-
rískar niöurstöðutölur.
Tekið skal fram strax í upphafi,
að vfsindalegt gildi þessarar athug
unar er mjög takmarkaö af tölfræði
legum ástæðum. Bandaríski hópur
inn er valinn eftir ströngum töl-
fræðilegum reglum og á að vera rétt
úrtak bandarísku þjóðarinnar. í
hópnum eru 226 karlmenn og 315
konur, samtals 541 maður. Auk
þess er sérstakur hópur skólafólks
úr æðri skólum (college), 152 karl-
menn og 113 konur, samtals 268
manns. Allur bandaríski hópurinn
telur því 809 manns í íslenzka hópn
um eru 112 karlmenn og 156 kon-
ur, allir búsettir í Reykjavík og ná-
grenni. í nokkrum tilvikum er reikn
að út úr hópi nemenda sérstaklega
til samanburðar við bandaríska
skólahöpinn. Sjá má, að í hópnum
eru fulltrúar aöeins fárra starfs-
hópa og verður því að taka niður-
stöðutölum með fyrirvara og líta
á þær í mesta lagi sem vísbend-
ingu. Atvinnuskipting hópsins var
sem hér segir:
Aðstoðarfólk á spítala ....... 63
Hjúkrunarnemar ............... 28
Hjúkrunarkonur ............... 22
Læknar og aðrir háskólam. .. 16
Flugmenn ..................... 16
Skrifstofu- og verzlunarfólk .. 22
Nemendur í menntaskóla,
kennaraskóla og háskóla .... 79
Aðrir......................... 22
Samtals 268
í meðfylgjandi töflum eru sýndar
niðurstöðutölur fyrir hverja
spurningu. Er sýnt hversu stór
hundraðshluti úr hverjum hóp hef-
ur svarað spPrningunni eða stað-
bæíingutsni rneð „rétt“ eða játandi
Tölum um þá, sem svarað ha-fa með
rangt eða neitandi, svo og um þá,
sem láta spurningunni ósvarað, er
hér sleppt til einföldunar.
í töflum 1 og 2 eru tölur um
grundvallar trúarhugmyndir manna,
hvort þeir trúi á guð og framhalds
líf. Ems og vænta mátti er fslenzki
hópurinn allmiklu vantrúaðri en
hinn bandarfski. 59% íslenzka hóps
ins trúa á framhaldslif. Ef skóía-
hópurinn er undanskilinn, trúa
.66% af íslenzkum almenningi á
framhaldslíf á móti um 81% af
bandarískum alm. Hjá báðum
þjóðum er skólafólk almennt van-
trúaðra en annar almenningur, en
þó er munurinn talsvert meiri hér
á landi, ef marka má þessar niður-
stööur. 45% íslenzks skólafólks
trúa á framhaldslíf á móti um 64%
bandarískra nemenda. Þá kemur
hér glöggt fram, hve konur eru trú
aðri en karlar, og er munur kynj-
anna miklu meiri hér á landi. Eink
um er þetta áberandi hjá íslenzka
skólahópnum, þar sem helmingi
fleiri stúlkur trúa á framhaldslíf en
piltar. 67% íslenzka hópsins trúa á
guö í einhverri mynd, þar af 78%
íslenzks almennings á móti um 94%
bandarísks almennings og 44% ís-
lenzks skólafólks á móti 86% hins
bandaríska. Það er athyglisvert aö
hjá báöum þjóðunum eru þessar töl
ur hærri en tölur um trú á fram-
haldslíf og er greinilegt að þetta
tvennt, trú á guö og trú á framhalds
líf, þarf ekki að fara saman. —
Undantekning er þó íslenzki skóla-
hópurinn, þar sem tölur um þetta
tvennt eru svipaöar.
TVTunurinn á trúarhugmyndum ís-
Iendinga og Bandaríkjamanna
verður þó enn meiri, ef litið er á
trú þeirra á kenningum biblíunnar.
Þetta má sjá f töflum 3—6. 47% fs-
lenzka hópsins trúa, að Kristur hafi
gert kraftaverk, þar af 59% almenn
ings á móti um 73% bandarísks al-
mennings og 28% skólafólks
á móti um 55% banda-
rísks skjólafólks..20% íslenzka hóps
ins trúa á endurkomu Krists, á möti
um 62% bandarísks almennings pg
36% bandarísks skólafólks. 14% ís-
lenzka hópsins trúa því, aö allt sé
að koma fram, sem spáð sé í biblí-
unni samanborið við 53% banda-
rísks almennings og 18% skólanem
enda. Aðéins 9% íslenzka hópsins
trúa á djöful og helvíti samanbor-
ið við 65% bandarísks almennings
og um 35% bandarísks skólafólks.
Islendingar virðast því vera litlir
bókstafstrúarmenn í samanburði
við Bandaríkjamenn, ef marka má
þessar tölur. Hins vegar er ekki
eins mikill munur á þjóðunum um
þaö, hvort til sé aðeins ein sönn
trú, svo sem sjá má í töflu 7. 35%
íslenzka hópsins er á þeirri skoö-
un, þar af 47% af fslenzkum al-
menningi á móti um 50% af banda
rískum almenningi, en aðeins 9%
íslenzks skólafólks samþykkir þetta
viðhorf á móti 34% bandarískra
skólanema.
Hvað trúariðkanir snertir er mun
ur á íslendingum og Bandaríkja-
mönnum hvað mestur, sem sjá má
í töflum 8—10. 23% íslenzka hóps-
ins biðst fyrir oft í viku, þar af
24% almennings á móti um 61%
bandarísks almennings og 21%
skólafólks á móti 59% bandarísks
skólafólks. Athyglisvert er, að hér
er lítill sem enginn munur á al-
menningi og skólafólki hjá báöum
þjóðum. Aðeins 5% íslenzka hóps-
ins les í biblíunni oft í viku sam-
anborið við um 25% bandarísks al-
mennings og um 16% bandarísks
skólafólks. Mestur er þó munurinn
á kirkjusókn þessara tveggja þjóða.
Hér kemur fram, að 6% íslenzka
hópsins sækja kirkjur reglulega,
samanborið við um 47% af banda-
rískum almenningi og um 64% af
bandarísku skólafólki. Hlutfall ís-
lenzka hópsins er ekki nægilega
stórt til þess að það taki því að
reikna út tölur um kirkjusókn skóla
fólks sérstaklega, en sjá má, að í
þessu efni fara bandarískir skóla-
nemendur fram úr þarlendum al-
menningi, og má eflaust skýra það
með hinu skipulagða kirkjulífi inn-
’an skólanna f Bandaríkjunum
fremur en með trúaráhuga þeirra. Á
sama hátt má skýra kirkjugöngu
alls almennings í Bandaríkjunum
fremur sem félagslega viðtekna
venju þar í lartdi, þar sem slíku er
ekki til að dreifa hér á landi.
Jgnda þótt hér aö framan hafi kom
ið fram að íslendingar virðast
að jafnaði allmiklu minni trúmenn
en Bandaríkjamenn, á þetta þó ekki
viö um öll svið trúmála, eins og
fram kemur f töflum 11—12. 12%
íslenzka hópsins trúa þvf að prest
ar geti læknað sjúkdóma með bæn
um og handayfirlagningu á móti
4—5% bandarísks almennings og
innan við 1% bandarísks skóla-
fólks. Á sama hátt eru heldur fleiri
íslendingar en Bandaríkjamenn á
þeirri skoðun, að sál þeirra yfirgefi
stundum líkamann, 8% á móti
6—7% bandarísks almennings og
um 5% bandarfsks skólafólks.
"C'ram hefur komið að skólafólk í
æðri skólum er allmiklu trú-
minna en annar almenningur. Þar
eð skólafólkiö er allt á aldrinum
16 ára til þrftugs, og flest undir
25 ára aldri, lék mér hugur á að
vita hvort trúarskoöanir manna
færu eftir aldri fremur en skóla-
göngu, og hvemig trú skiptist eft-
ir aldursflokkum.
13. „Ég trúi á framhaldslíf."
Aldur %
16—19 ................ 56
20—29 ................ 58
30—39 ................ 56
. 40 og eldri ...... 85
14. „Ég trúi, að guð sé til.“
Aldur %
16—19 ................ 55
20—29 ................ 70
30—39 ................ 71
40 og eldri ............ 78
aðeins könnuð í þeim fimm spum-
ingum, sem játendahlutfallið var
hæst og þvf meir að marka slfkan
aldurssamanburð.
í töflu 13 kemur fram, að hundr-
aðstala lægstu aldursflokkanna er
allmiklu hærri en sambærileg tala
skólahópsins eingöngu fyrir trú ð
framhaldslíf. Hið sama kemur fram
í töflum þeim sem eftir fara. Virð
ist því, sem trúarskoöanir skóla-
fólks séu óháðar aldri þess og jafn
aldrar þess utan skóla séu ekki
vantrúaðri en almennt gerist hjá
eldra fólki. Athyglisverö er sú
stökkbreyting, sem veröur á trú
manna á framhaldslífi um fertugs-
a’durinn. Aldursflokkamir fram að
fertugu sýna engan skoöanamun á
þessu atriði og er játendatala
«»-> 7. síða.
5. „Kristur gerði kraftaverk eins
og að breyta vatni í vin.“
Aldur %
16—19 35
20—29 51
30—39 50
40 og eldri . .52
16. „Ég er viss um að það er aðeins ein sönn trú.“
Aldur %
16—19 18
20—29 39
30—39 47
10 og eldri 48
17. „Ég biðst fyrir oft í viku.“
Aldur %
16—19 25
20—29 24
30—39 15
40 og eldri 26
Skoðanaskipting eftir aldri var
1. „Ég trúi á framhaldslíf.“
Karlar % Konur % Samtals
Bandarískur almenningur .... 76 87
Bandarískt skólafólk 68
íslenzkur almenningur 73 66
íslenzkt skólafólk 62 45
íslenzki hópurinn allur .... 45 70 59
2. „Ég trúi, að guð sé til.“
Karlar % Konur %
Samtals
Bandarískur almenningur .... 92 96
Bandarískt skólafólk 90
íslenzkur almenningur 85 78
íslenzkt skólafólk .... 30 62 44
íslenzki hópurinn, allur ..... 79 67
3. „Kristur gerði kraftaverk, eins og að breyta vatni f vín.“
Karlar % Konur % Samtals
Bandarískur almenningur 77
Bandarískt skólafólk 58
fslenzkur almenningur .... 49 64 59
íslenzkt skólafólk .... 21 36 28
íslenzki hópurinn, allur 53 47
„Ég trúi á endurkomu Krists.“
Karlar % Konur %
Samtals
Bandarískur almenningur 68
Bandarískt skólafólk 35
íslenzki hópurinn 24 20
5. „Allt er að koma fram eins og spámenn biblíunnar
sögðu fyrir um.“
Karlar % Konur % Samtals
Bandarískur almenningur 54
Bandariskt skólafólk 16
íslenzki hópurinn 17 14
6. „Ég trúi, að til sé djöfull og helviti eftir dauðann.“
Karlar % Konur % Samtals
Bandarískur almenningur............ 63 67
Bandarískt skólafólk ............. 41 30
íslenzki hópurinn .................. 7 11 9
7. „Ég er viss um að það er aðeins til ein sönn trú.“
Konur % Samtals
51
Karlar %
Bandarískur almenningur............ 49
Bandarískt skólafólk .............. 34 34
íslenzkur almenningur ............. 41 50
íslenzkt skólafólk ................. 6 13
íslenzki hópurinn, allur........... 27 41
8. „Ég biðst fyrir oft í viku.“
Karlar % Konur %
47
9
35
Samtals
Bandarískur almenningur 50 73
Bandarískt skólafólk 54 64
íslenzkur almenningur 18 27 24
fslenzkt skólafólk 11 33 21
íslenzki hópurinn, allur 16 29 23
9. „Ég les í bibliunni oft f viku.“
Karlar % Konur % Samtals
Bandarískur almenningur............ 21 30
Bandarískt skólafólk .............. 14 19
íslenzki hópurinn .................. 4 5 5
10. „Ég fer í kirkju næstum vikulega.“
Karlar % Konur % Samtals
Bandarískur almenningur............ 42 52
Bandarískt skólafólk .............. 61 67
íslenzki hópurinn .................. 7 5 6
11. „Prestur getur læknað sjúkdóma með bamum og
handayfirlagnlngu.“
Karlar % Konur % Samtals
Bandarískur almenningur............. 4 5
Bandarískt skólafólk ............... 1 0
íslenzki hópurinn ................ 16 9 12
12. „Sál mín yfirgefur stundum líkamann.“
Karlar % Konur % Samtaís
Bandariskur alroenningur ........... 8 5
Bandariskt skólafólk ............ 2 8
íslenzki hópurinn .............. 7 8 8