Vísir - 16.10.1969, Page 10
10
V í S I R . Fimmtudagur 16. október 1969.
Saltað frá Eyjum
vestur á Snæfellsnes
Síldarflotinn var á þremur
veiðisvæöum í gærkvöldi og
nótt. Við Surtsey, SA af
Reykjanesi og út af Skaga.
Flest skipanna köstuðu í gær-
kvöldi og fengu veiði, en flest
aðeins nokkur tonn. Mestan
afla höfðu Helga RE 100 tn.
Hafrún IS 80 tonn, en hún
var byrjuð að landa í Reykja-
vik klukkan átta í morgun.
Elliði hafði 70 tonn og nokkr-
ir bátar voru með 40 — 60
tonn, en aðrir með þaðan af
minna, allt niður í fáeinar
tunnur. Margir fengu það Iít-
ið, að ekki tók því að fara
með það í land.
Síldin dreifðist á marga staði
og söltun er nú hafin á flestum
verstöðvum allt frá Vestmanna-
eyjum og vestur á Snæfellsnes.
— í dag verður saltað hjá Sjó-
fangi, síld úr Hafrúnu, en auk
f--------------------------
t
ANDLAT
I
llallfríöur Anna Guöniundsdóttir,
Skipasundi 46, andaðist 9. okt. s.l.,
82 ára að aldri. Hún verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju á morg-
un kl. 1.30.
Ólöf Jónsdóttir, Drápuhlíð 3, and
aðist 11. okt. s.l. 89 ára að aldri.
Hún verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju á rnorgun kl. 3.00.
ALÞINGI
I dag:
Sfri deild:
Þrjú stjörnarfrumvörp eru á dag-
skrá.
1. Húsnæðismálastofnun ríkisins.
2. Skipamælingar.
o. Skráning skipa.
Neöri deild:
Rædd verða þrjú stjórnarfrum-
vörp.
I. Gjaldaviðauki.
Framkvæmdasjóður, Efnahags-
stofnun og Hagráð.
II. Fjárhagur Rafmagnsveitna rík-
isins.
í gær:
Sameinað Alþingi:
Umræður utan dagskrár urn at-
v'nnumálin.
Ákveðin meðferð fyrirspurna.
TIL SÖtU
Ný Nilfisk ryksuga, nýtt eldhús-
borð og 2ja manna sveffisófi til
sölu. Upplýsingar i sfma _51555.
Selnier bassamagnari lil sölu.
Upplýsingar í síma 52887.
þess er búizt við sild til Bæjar-
útgeröarinnar og verður henni
ekið frá Suðurnesjum hingaö í
bæinn. — Hins vegar var hluta
af afla Hafrúnar ekið suður í
Voga, þannig að miklir flutning-
ar eiga sér stað með þessi kvik-
indi, sem veiðast.
I dag er mesta síldarsöltunin
í Grindavík og er talsverðu af
aflanum ekiö til annarra ver-
stööva. — Lítil síldarlöndun er
hins vegar í Vestmannaeyjum
eftir þessa nótt. Þangaö var að-
eins von á tveimur skipum í
morgun. Til Akraness áttu þrír
bátar að koma meö 10 — 30 tonn
hver.
í morgun voru konur kallaðar til söltunar í fiskverkunarstöðvunum á
Granda, Sjólastöð og Sjófangi.
Friðrik í 5.-9. sæti
Guðmundur með 50°/o
Friðrik er nú í 5.—9. sæti á svæða
mótinu með 5 y2 vinning og biðskák.
Efstur er Jansa, Tékkóslóvakiu, með
7 og biðskák, 2. Gheorghiu, Rúm-
eníu 7 v., 3. Hubner, V.-Þýzkal.
6V2, og 4. Matulovic, Júgóslavíu
með 6. — Jafnir Friðriki eru Spir-
idinov, Búlgaríu, Hort, Tékkóslavíu,
Pedersen, Danmörku og Zomm,
Ungverjalandi. — Friðrik teflir viö
Nicevsky, Júgóslaviu í 11. uniferð.
r Guömundur hefur 50% eftir átta
umferðir í sínu móti og teflir við
Espig, Austurríki, í 9. umferð.
1
FE £
\ft L /- /
Skólafólk —
—•> i. áíðu
Broddi Jóhannesson, skólastjóri
Kennaraskólans, sagöist ekki halda
að teljandi brögð væru aö því í
eldri deildunum. „Hins vegar eru
brögð að þessu I fyrsta bekk. Um
hann sóttu ifleiri en kornu og.getur
þaö verið vegna ýmissa ástaíöna,
en nokkrir tilgreindu fjárhags-
ástæður sem orsökina. Það byrjaði
aö bera á þessu í fyrra“.
Ráöning
10 mín-
útna ,
kross-
gátu.
• V / A' V U !■
H B S 7 U R
O R m f) R - j
' ' K ft'R -"/9 l
'fí ö - R 'fí L '
■ m £ / T L \
K I ’.R R fí R
■ Þ m - ' L '1 ,>
S J fl L 1 K i
/n ú R fí Ð u .
■ H ú 6 - R .
• Ú T l< L Ú
'O s / f) U R ,
I I DAG B í KVÖLD |
BELLA
Til þess aö losna við, að ég
komi alltaf skriðandi og biðji urn
launahækkun, gæti þá ekki fyrir-
tækið tekið að sér nokkra af reikn
ingum mínum hjá ýmsum skó-
verzlununum?
ÍILKYNNINGAR »
K.F.U.M. A-D. Fundur í húsi
félagsins viö Amtmannsstíg i
kvöld kl. 8.30. Kvöldvaka. Fjöl-
breytt dagskrá. Veitingar.
Heimatrúboóið. Almenn sam-
koma í kvöld kl. 20.30 að Óðins-
götu 6A.
Hjálpræðisherinn. í kvöld kl.
8.30 er almenn samkoma. Her-
menn taka þátt í vitnisburöi.
Kapt. og frú Gamst stjórna.
Grensásprestakall. Kvöldvaka
fyrir unglinga veröur í kvöld kl.
8 í safnaðarheimilinu við Miöbæ
m. a. veröa sýndar myndir frá
Bíafraflugi og Sao Thome.
Sóknarprestur.
Systraíélag Keflavikurkirkju.
Fyrsti fundurinn verður haldinn
í Tjarnarlundi í kvöld kl. 8.30.
Kvenfélag Lágafellssóknar. —
Saumanámskeiðin byrja í næstu
viku með sama fyrirkomulagi og
áður. Kennari verður Anna Einars
dóttir. Þátttaka tilkynr.ist i síma
66131 eftir kl. 6 e. h.
Kvenfélagskonur Njarðvíkuni
Munið vinnufundinn fimmtudags-
kvöld kl. 8.30 í Stapa.
Styrktarfélag lamaöra og fatlaðra.
Munið föndurkvöldið fimmtudag-
inn 16. okt. kl. 8.30 að Háaleitis-
braut 13.
Kvenfélag Hallgrímskirkju. —
Fundur verður haldinn í félags-
heimili Hallgrímskirkju fimmtu-
daginn 16. okt. kl. 8.30. Rætt um
vetrarstarfið. Dr. Jakob Jónsson
flytur erindi frá Landinu helga
(Útsýn frá Megiddó). Kaffi.
Kvenfélag Neskirkju. Aðalfund-
ur félagsins verður haldinn í
kvöld kl. 8.30 í félagsheimilinu.
Venjúleg aðalfundarst.örf. —
Skemmtiatriði. — Kaffi.
Kvenfélag Ásþrestakalls. Munið
basarvinnuna á fimmtudagskvöld-
um, og þriðjudagskvöldum kl.
2 —6 i Ásheimilinu Hólsvegi 7.
Kvenfélag Hallgrímskirkju. —
Fundur veröur haldinn í félags-
heimili Hallgrimskirkju fimn'tu-
daginn 16. okt. kl. 8.30 e.h. Rætt
um vetrarstarfið. Dr. Jakob Jóns
son flytur erindi: Frá landinu
helga. (Útsýni frá Megiddó). —
Kaffi. Stjórnin.
Prestkvennatelag íslands held-
ur skemmti- og kynningarfund
n.k. föstudagskvöld 17. okt. kl.
8.30 í húsi KFUM við Amtmanns-
stíg. Skemmtiatriöi og kaffi-
drykkja. — Stjórnin.
Skiptineniar þjóðkirkjunnar
K.A.U.S. Aðalfundur samtakanna
veröur haldinn laugardaginn 18.
okt. kl. 2 í kjallara Neskirkju, —
Mætið vel og stundvíslega. —
Stjórnin.
BiFREIÐASKOÐUN #
R-19651 — R-19850
SKEMMTISTAÐiR #
Þórscafé. Gömlu dansarnir i
kvöld. Hljómsveit Ásgeirs Sverr-
issonar, söngkona Sigga Maggý.
Rööull. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar, söngvarar Þuríður
Sigurðardóttir, Pálmi Gunnarsson
og Einar Hólm. Dansmærin Princ
ess Tamara skemmtir.
Templarahöllin. Bingó í kvöld
kl. 9.
Glaumbær. Pops leika í kvöld.
Hótel Loftleiðir. Hljómsveit
Karls Lilliendahl, söngkona Hjör-
dís Geirsdóttir og Los Guacamay-
os skemmta.
Tónabær. Opið hús kl. 8 — 11,
diskótek —r leiktæki.
Enska. Vill nokkur læra hjá
mér ensku eða annaö sem ég gæti
kent? Náist ekki tal af mér, svo
fljótt sem skyldi, gefur kaupm.
Ludvig Hafliðason (og fólk hans)
Vesturgötu 11, nauðsynlegar upp-
lýsingar. Borgar sig að læra hjá
góðum kennara og það hefi ég
ávalt verið talinn. Sigurður Magn-
ússon, frá Flankastöðum.
Vísir, 16. okt. 1919.
BLÖÐ OG TÍMARIT #
Heilsuvernd 5. hefti 1969 er ný-
komiö út. Úr efni ritsins má
nefna: Hrörnunarkvillar, menning
arkvillar, eftir Jönas Kristjáns-
son. Hugleiðingar um störf og
stefnu N.L.F.I. eftir Árna Ásbjarn
arson. Um kransæðasjúkdóma,
eftir Björn L. Jónsson. Hófleg
áfengisneyzla og lifrin. Læknaðist
af liöagigt. F.kki er allt matur sem
í magann kemur. Svissneskir boró
siðir. Geðsjúkdómar læknaðir með
föstum. Ánamaðkurinn, eftir Ni-
els Busk. Hungri afstýrt. Á víð
og dreif o. m. fl.