Vísir - 28.10.1969, Side 1
Mildi að ekki
varð stórslys
Aðfaranótt 21. okt. sl. varð það
slys norðan við jarðgöngin á Siglu-
fjarðarvegi, að fólksbifreið sem
kom frá Siglufiröi, ók á handrið
það, sem er á vegarkantinum.
Tveir menn voru í bifreiðinni og
slasaðist bifreiðarstjórinn talsvert,
en farþegánn, sem var í aftursæti,
sakaði ekki. Málið er f rannsókn.
-Þrj-
Mun bifreiðinni hafa verið ekið
á miklum hraða, svo bifreiðastjór-
inn haföi ekki svigrúm til
þess að beygja inn á ak-
brautina. Hékk bifreiðin þar á
brún hengiflugsins, og er það tal-
in sérstök heppni að hún skyldi
ekki steypast fram af í sjó niður.
Handriðið losnaði allt af staurun-
um sem héldu því, og glerbrotin úr
bifreiðinni þeyttust lengst 14 'metra
frá slysstaö í akstursstefnu. Bifreið
in er talin mjög illa farin m.a. er
vélin alveg ónýt.
„Hrein kurfeisis-
hehttsókn"
9 Okkur er ekki kunnugt um ann-
að en að heimsókn flotamála-
ráðherrans sé hrein kurteisisheim-
sókn, sagði Pétur Thorsteinsson,
ráðuneytisstjóri utanrikisráðuneyt-
isins í viðtali við Vísi í morgun í
sambandi við heimsókn flotamála-
ráðherra Bandaríkjanna til íslands
í dag.
Eins og kunnugt er, hefur Banda-
ríkjastjórn lýst því yfir, að herstööv
um þeirra verði fækkað erlendis og
dregið verði úr starfsemi þeirra,
sem eftir verða að einhverju leyti.
Mun Nixon-stjórnin skýra frá því
á morgun með hverjum hætti þessi
samdráttur verður.
Flotamálaráðherra, John H.
Chafee, mun ræða við utanríkisráð-
herra. Emil Jónsson, í fyrramálið,
en hann heldur áfram ferð sinni á
morgun.
Þess má geta, að fólki hefur
smám saman verið fækkað í her-
stöðinni hér á landi allan þennan
áratug eða síðan flotinn tók við
rekstri herstöðvarinnar á Keflavík-
urflugvelli.
Dani flytur prjónastofu sína
frá N-Jótlandi til Akraness
Mun veita 40-60 konum vinnu — Fimmta prjónastofan á Skaganum
• Danskur prjónaverk-
smiðjueigandi hefur nú
fengið inni í húsnæði því
sem sokkaverksmiðjan
Eva hafði á Akranesi og
hyggst setja þar upp
prjónaverksmiðju. Verk
smiðja þessi á að prjóna
úr hespulopa frá Ála-
fossi.
Verksmiðjueigandinn Gunnar
Stokholm, var hér á landi til
þess að kynna sér aöstæðurnar
á Akranesi og mun hann senda
fyrstu prjónavélina til landsins
eftir áramót. Hann hefur um
tveggja og hálfs árs skeið rek-
ið prjónaverksmiðju í Hurup,
þorpi á Norður-Jótlandi og þar
hefur verið notaður íslenzkur
hespulopi. Mun þessi verk-
smiðja verða flutt að verulegu
leyti til Akraness.
Ásbjörn Sigurjónsson á Ála-
fossi, sem veitt hefur Stokholm
ýmsa fyrirgreiðslu hér á landi,
sagði í viðtali við Vísi í gær,
að ætlunin væri aö verksmiðj-
an kæmist í gang með vorinu.
Reiknað er með tíu manna
starfsliði í sjálfri prjónastof-
unni, en Ásbjörn sagði að reikn-
að væri með að 40 til 60 konur
fengju vinnu viö aö setja peys-
ur og annan prjónavarning verk
smiðjunnar saman, svo aö þarna
yröi ekki um svo litla atvinnu-
bót fyrir Akurnesinga að ræða.
Verksmiðjan í Hurup hefur
selt framleiðslu sfna á markaöi
i Evrópu, en Stokholm rekur
einnig tízkuverzlun í Færeyjum.
Sagði Ásbjörn aö mjög hag-
kvæmt væri fyrir slíkt fyrir-
tæki að starfa hér, þar sem slíkt
sparaði flutninga á hráefninu,
en til þess að hægt verði að
selja framleiðsluna á Evrópu-
markað yrðu Islendingar að
ganga í EFTA og sagði Ásbjöm
að framtíð þessarar verksmiðju
færi því mjög eftir því hvort af
EFTA-aðild yrði eða ekki.
Þrjár prjónastofur hafa starf
að á Akranesi til skamms tíma
og eru þær hálft í hvoru sprottn
ar upp úr sokkaverksmiöjunni
Evu, þar sem eigendur þeirra
kynntust prjónaframleiðslu. Ein
þessara verksmiðja hefur tals-
verðan vinnukraft og hefur
keypt húsnæði það, sem Mjólk
urstöðin á Akranesi hafði, undir
starfsemi sína. Hinar tvær eru
smærri í sniðum og auk hinnar.
stóru, sem nú er verið að koma
á laggimar mun fimmta prjóna-
stofan vera í uppsiglingu á
Skaga, en hún verður smá £ snið
um fyrst um sinn aö minnsta
kosti.
16 ára unglingar með brugg-
stöð í hesthúsi á Akranesi
ÞEIR ætluðu ekki að búa við
áfengisskort í vetur piltamir,
sem í gær voru teknir við brugg
un í hesthúsi rétt ofan við Akra-
nesbæ í gærdag. Þeir höfðu kotn-
iö bruggtækjum mjög vel fyrir í
hesthúsinu og vom að sjóða,
þegar lögreglan kom að þeim.
Áttu þeir þá á annað hundrað
lítra af gambra, en vom búnir
að sjóða eitthvað smávegis af
honum.
Þessa sérstæðu bruggstöð áttu
fjórir piltar, að því er lögreglan
telur, þar af tveir ekki nema um
það bil sextán ára gamlir. Eigend-
HmSÍSíS
íbúar á Lögbergs-
leið skrifa undir
mófmæli
• Innan tíðar verður engan
strætisvagn að finna á þessum
slóðum við Lögberg, því nú stendur
til að leggja leið 12, Lögbergsleið-
ina, niður. íbúamir f Lögbergslandi
og á bæjunum ofan við Geitháls og
| íbúar við Rauðavatnið eru nú að
safna undirskrifitum undir áskorun
til Strætisvagnana um að hætta við
þessa ákvörðun.
• Fréttamaður Vísis fór nú um
daginn með Lögbergsvagninum
í eina ferð og spjallaði við farþeg-
ana um ferðirnar þangað upp eftir
og erfiðleikana, sem óhjákvæmilega
verða af vagnleysinu þar uppfrá.
— sjá bls. 9 / dag
urnir voru flestir á vappi í kring-
um bruggstaðinn, þegar lögreglan
kom að, en sumir yfir suðunni inni
í húsinu í nábýli við hestana.
Lögreglan hellti brugginu niður
og tók bruggstööina £ sína vörzlu.
Einhver kvittur mun hafa verið
kominn um þessa vfnframleiðslu
unglinganna, enda er talsverð um-
ferð þangað inn að hesthúsunum í
Kalmannsvik fyrir innan Akranes
bæði af hestamönnum og öðrum,
sem fara þangað gjarnan i skemmti-
göngu.
Að sögn lögreglunnar á Akranesi
virðist talsvert hafa.borið á brugg-
tilraunum upp á síðkastið, þó aö
ekki geti það kallazt nein brugg-
alda. Og hitt mun sjaldgæfara að
sextán ára unglingar taki til við
þessa iðju.
„Hverju eruð þér aðstela?"
• Það er handagangur i öskjunni
á útsölu í verzlun í miðborg-
inni. Kona ein kemur inn, stingur
hönzkunum sínum varlega i vasann.
Fruntaleg og klaufaleg afgreiöslu-
stúlka svífur á hana og spyr
„hverju hún sé að stela“. Þetta
gerðist nýlega í Reykjavík, og á
bls. 9 í dálkinum Lesendur hafa
oröið, segir konan, sem varð fyrir
þessu, frá þessum leiöa atburði.
— sjá bls. 9