Vísir - 12.12.1969, Page 7
V l S'I R . Föstudagur 12. desember 19gJ.
MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Griska stjómm ræðst á Norður-
löml, Vestur-Þýzkaland og Ítalíu
— Akveðið um brottvisun i dag
Gríska herforingjastjórnin
réðist í gærkvöldi heiftar-
lega á Vestur-Þýzkaland,
Ítalíu og Norðurlönd. —
„Verðum við reknir úr
Evrópuráðinu, táknar það,
að meirihluti ríkja þess
slær á framrétta v:::r.rhönd
Hellas.“
Skoriö verður úr í dag, hvort
Grikklandi verði vikið úrEvrópuráð
inu eða ekki. Gríska herforingja-
stjömin átti í gærkvöidi í illdeilum
við sænsku stjórnina. í mótmæla-
orðsendingu til Svía segir, aö ung-
menni í Stokkhóimi hafi í fyrra-
dag móðgað og ógnað grískum
sendifulltrúa og konu hans, og bii-
stjóri þeirra hafi verið barinn nið-
ur. Hafi þetta gerzt, þegar gríski
fulltrúinn gekk út eftir afhend-
ingu Nóbeisverðlauna.
„Slíkir óafsakanlegir atburðir
munu gerast, meðan Svíar gera
ekki þær nauðsynlegu ráöstafanir
að hegna hinum ábyrgu“, segir í
orðsendingunni.
Illt hefur veriö milli Svíþjóöar og
Grikklands frá því að herinn tók
völdin í Grikklandi árið 1967.
Gríska stjórnin hefur ítrekað sakað
Svíþjóð, Noreg og Danmörku
um íhlutun í innanríkismál
sín. Það eru og fulltrúar þessara
ríkja, sem nú ieggja að Evrópuráð
inu að víkja Grikkjum burt á fundi
þess í dag.
í ásökunum sínum í gærkvöldi
minnti gríska stjórnin á mannfall
Grikkja í síöari heimsstyrjöldinni
og bar saman við mannfall Dana
»V.’.
Danskir mófmælo
meðferð ú „svörtu
hlébörðunum#/
„Srortu hlébarðamir“, félags-
skapur mjög róttækra svertingja í
Bandaríkjunum, hefur átt í átökum
við lögreglu síðustu vikurnar, og
margir fallið af „hlébörðunum“.
Nær daglega berast fréttir af blóð-
ugum bardögum í stórborgum
Bandaríkjanna, þegar „hlébarðar"
verjast handtöku og hefja skothríð
á lögreglumenn, Einn hefur þegar
verið sakaöur um ráðagerð um
morð á Nixon forseta, og nokkrir
hafa þegar fengið dauðadóm fyrir
ofbeldisverk.
Hópur Kaupmannahafnarbúa gekk
fram fyrir skjöldu til að mótmæla
því, sem þeir kölluðu „ofsókn á
hendur svörtu hlébörðunum.“
Stilltu þeir sér upp fyrir framan
sendiráð Bandaríkjanna, og 39
þeirra báru spjöld með nöfnum
þeirra hlébarða, sem fallið hafa
fyrir lögreglunni eða hafa verið
dæmdir til dauða og bíða aftöku.
„Vestrænar þjóðir
verða að velja milli
Suður-Afríku og okkar
— segir Kaunda, forseti Zambiu
Á ELLEFTU STUNDU.
Papadopoulos beitir skömmum og
háfti.
og Norðmanna. „ítalir bera ábyrgð
á ofbeldisverkum gegn mörgum
ríkjum, Eþiópíu, Albaniu og Grikk-
Iandi“, segir þar.
Staðan í Evrópuráðinu í morgun
benti til þess, að tillagan um brott
vísun Grikklands kynni að hljóta
% atkvæða, sem tilskiliö verður.
V.V.V'.’.V.V.V.V.V.'.W
■ //
Stöðvum bernaðarstuðn-
ing við Grikkland"
— segir utanrikisnefnd Bandarikjabings
UTANRÍKISNEFND Bandaríkja
þings hefur mælt meft því, aft
hætt verði ölluni hernaðariegum
stuðningi við herforingjastjórn-
ina grísku til þcss að sýna, að
Bandaríkin styðji ekki þessa
stjórn.
„Bandaríkin eiga ekki að veita
þeim ríkjum hernaðaraðstoð,
sem fara eftir reglum, sem við
sjálfir fordæmum," segir í yf-
irlýsingu nefndarinnar.
Áður haföi öldungadeildin á-
kveðin ákveðiö að fresta þvi að
staðfesta skipun Henry Tasca
sem ambassadors Bandaríkj-
anna í Aþenu, en Bandaríkin
höfðu ekki haft þar ambassador
um langt skeiö. Er þess nú beð-
ið, hvort Grikklandi verði vikiö
úr Evrópuráðinu.
.V.V
„Vestrænu rikin verfta brátt aft
velja milli Suður-Afríku og ann-
arra Afríkuríkja, er um ræftir hern-
aft og fjárfestingu.“ Svo mælti
Kenneth Kaunda, forseti Zambíu i
sjónvarpi í gærkvöldi.
Hann varaöi ríki Atlantshafs-
bandalagsins við að rjúfa bann
það, er Sameinuðu þjóðirnar hafa
sett á vopnasölu til Suöur-Afriku.
„Suður-Afríka og stuðningsmenn
hennar hafi byrjað mikla baráttu
í átt til ofbeldis. Aðaltilgangurinn er
aö fá einstök NATO-ríki til að rjúfa
bannið á vopnasölu og styrkja her
landsins."
„Rökin um nauösyn Suður-Afr-
íku sem mótvægi við Sovétríkin á
Indlandshafi eru eins og að ráða
moröingja til að vernda sig“, sagði
forsetinn að lokum.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
HJOLASTILLINGAR
MOTORSTILLINGAR LJÚSflSTILLINGAR
Látið stilla í tíma.
Fljót og örugg þjónusta.
1 3-100
2000 kr. út og
1000 á mánuði
Notið tækifærið og eignizt góð og vönduð borð-
stofuhúsgögn á vægu verði og með einstaklega
góðum greiðsluskilmálum.
Aðeins 2000— kr. út og 1000— kr. á mánuði.
Trésmiðjan VIÐIR hf.
Laugavegi 166. — Símar 22222 — 22229.