Vísir - 12.12.1969, Side 16
VISIR
Föstudagur 12. desember 1969.
Ganga Grikkir
sjálfir úr
Evrópuráðinu?
„Hotvapa bylting í fískveiium"
— Verður l'iklega til jbess að hringnót leggist
niður, segir Páll Guðmundsson, skipstjóri
1 • Grísk fréttastofa, sem talin er
, túlka sjónarmið stjómarinnar,
gaf í morgun í skyn, að Grikkland
' kynni að segja sig úr Evrópuráð-
i inu á fundinum í dag. Væri mælir-
inn fullur, og Grikkir hefðu sætt
móðgunum. „Hellas þolir ekki í-
hlutun í innanríkismál,“ segir þar.
Annars spáði fréttastofan „harðri
baráttu" á fundinum í dag, en taldi
ekki útilokað, að eitthvert sam-
komulag næðist á síðustu stundu
um málamiðlun. — Sjá bls. 7.
PÁLL Guðmundsson skip-
stjóri lýsti því yfir á fundi
með útgerðarráði nú fyrir
skemmstu aö hinar nýju flot-
vörpur, sem nú hafa verið
teknar í notkun í þýzkum
skuttogurum myndu að lík-
indum verða til þess að veiði
með hringnót legðist niður að
mestu. — Hringnótin hefur
til skamms tíma verið af-
kastamesta veiðitæki ís-
lenzkra báta, við sfldveiðarn-
ar, og eins hafa nætur verið
notaðar með góðum árangri
við þorskveiðar sem kunn-
ugt er.
Páll hefur sérstaklega kynnt
sér gerð þýzku flotvörpunnar og
skýrði hann frá, að vörpur þess-
ar væru einnig fariö að nota
sem botnvörpur á góöum botni.
Væri einn höfuðkostur vörpunn-
ar að opið á henni væri marg-
falt stærra en á venjulegum
vörpum. Taldi hann mesta opn-
unin sem náðst hefði væri 40x
60 metrar eöa um 25.800 ferfet.
Hins vegar er venjuleg opnun
botnvörpu 2.200 ferfet.
Til þess að hagnýta þessa
nýju vörpugerð yrði hins vegar
að auka vélaafl skipanna veru-
lega frá því sem nú er og
einnig að auka afl togvindu. —
Einnig taldi Páll að skuttogarar
stæðu talsvert betur að vígi en
síðutogarar til veiða með flot-
vörpunni og öðrum togvörpum,
þar sem reikna mætti með að
10—15% af vélaorku síðutog-
ara færi forgörðum þar sem á-
takið í drætti er ekki beint.
Búast má viö að nýsmíði tog-
ara veröi hagað þannig, að unnt
verði að hagnýta hina nýju veiði
tækni, og einnig að hún verði
notuð f, auknum mæl; við síld-
veiðar á næstunni, en tilraunir
hafa lítillega verið gerðar 1 þá
átt hér við land. Meðal annars
hefur síldarleitarskipið Árni
Friðriksson verið meö flotvörpu
í seinni leiööngrum sínum í
haust, — í tilraunaskyni.
Htingaleikur við sítdina
undir Jökli í nótt
— Mikið kastað — litil veiði
Miklð var kastað á miðunum út, neitt. Aflinn eftir nóttina var þetta
af Jökli f nótt, en veiðin varö ekki frá 2 tonnum upp í 20 tonn hjá
að sama skapi mikil. Fleet skipanna þeim skipum, sem hirtu um að til-
fengu aðeins fáeinar síldar, eða ekki I kynna um afla. — Öminn RE var
Mikið fræðirit um
hafísinn komið út
— á sama tima og hafisinn lónar við land
á Hornstróndum
Um leið og fyrstu fréttir berast
af því að ísjakar lóni 1 víkum á
Homströndum, kemur út veglegt
fræðir.t, „Hafísinn“, frá Almenna
bókafélaginu.
í bókinni fjalla 23 innlendir fræði.
menn úr ýmsum greinum raunvís-
inda og sagnfræði um hafísinn, or-
sakir hans og afleiðingar.
Stígondamenn
voru saklausir
„Það fánnst ekkert um borð í
bátnum af því, sem saknað var héð-
an úr Ólafsfirði," sagði Sigurður
Guðjónsson, bæjarfógeti á Ólafs-
firði, én leitin um borð í bátnum
varð þó til þess að hreinsa bátverja
á Stígandg af öllum grun um kopar.
hnupl.
„Þó bað ég varðskipsmenn um
að taka með sér nokkra smákopar-
hluti, sem þeir fundu um borð í
bátnum, til þess að bera þá við ým-
is stykki hérna, og kanna hvort
þeir eigi við, en okkur hafa ekki
borizt þessir hlutir ennþá," sagði
bæjarfógeti.
I Er þessi bók sennilega einstök
I að sínu leyti þar sem gera má ráð
fyrir að fáar þjóðir eigi hafísinn
sem sinn „landsins forna fjanda“.
Bókin Haffsinn hefur að geyma
megin hluta þess er kom fram á
hafísráðstefnunni, sem haidin var
snemma á þessu ári. Meðal þess var
fjallað um veðurfar og hafstrauma,
uppruna hafíss, hegðun hans og ferð
ir, og einnig gerð grein fyrir veður-
farssveiflum á norðurhveli jarðar
og heimildum um hafís allt frá for-
sögulegum tíma til vorra daga. Að
lokum eru hagnýt vandamál, skyld
hafísnum, tekin til meðferðar, svo
sem fsing skipa og áhrif kólnandi
veðurfars á fiskigengd og jarðar-
gróður.
Ritstjóm bókarinnar hafði Mark-
úis Á. Einarsson á hendi, en útgáfu-
ráð skipuðu Trausti Einarsson,
Hlynur Sigtryggsson, Sigurður Þór-
arinsson og Unnsteinn Stefánsson.
Bókin er 552 bls. f stóru broti,
auk margra ljósmynda em í henni
um það bil 250 skýringakort og
uppdrættir. Hún er prentuð í Set-
bergi og bundin í Félagsbókbandinu.
Torfi Jónsson sá um útlit og teikn-
aði kápu.
Niðurgreiðslur á
kjöti og smjöri
Rfkisstjórnin mun greiða niður verð
á kjöti og smjöri til þess að hækk-
un söluskattsins úr Tí/i% í 11%,
sem nú er lögð til, valdi ekki hækk-
unum á þessum nauðsynjavörum al
„lennings.
Mjólk hækkar ekki vegna hækk-
unar söluskattsins, þar sem enginn
söluskattur er greiddur af mjólk.
Þá mun ellilífeyrir hækka og
þær bætur, sem fylgja þeim lífeyri,
um 6%.
með 20 tonn. Um miðnætti var tek-
iö aö bræia á miðunum og sum
skipanna voru að lóna inn í morg-
un til hafna.
Engin veiði var f Breiðamerkur-
dýpi og þrjú skip, sem síöast seldu
síld ytra úr Norðursjó, em nú á
heimleið. Mun skipum vera farið
að fækka mjög þar um slóðir. En
Austfirðingar hafa einkum verið
þar að veiðum. — Síldarflotinn
virðist því ætla að taka jólafríiö
snemma aö þessu sinni, enda ekki
eftir miklu aö sælast á miðunum.
Níu erindi á Veiði-
málaráðstefnunni
Erindaflutningur er
opinn óllum, sem áhuga
hafa og stuttar fyrir-
spurnir leyfðar
Veiðimálaráðstefna Landssam-
bands stangaveiðimanna árið
1969 hófst að HÖtel Sögu í morg
un, en Landssamband stanga-
veiðimanna hefur um nokkurra
ára skeið haft mikinn áhuga á
að efna til slíkrar ráðstefnu
manna, er vinna að fiskiræktar-
og veiðimálum í landinu.
Á ráðstefnunni, sem hófst kl. 10
í morgun og á sama tíma á morgun,
laugardaginn 13., verða flutt fjöl-
mörg erindi. í dag heldur Þór
Guðjónsson, veiðimálastjóri erindi
um þróun veiðimálanna á lslandi.
Dr. Jónas Bjarnason talar um fram.
leiðslu fiskafóðurs úr íslenzkum
hráefnum, og Steingrímur Her-
mannsson, forstjóri Rannsóknar-
ráðs ríkisins ræðir um nauðsynlegar
rannsóknir á íslenzkum veiðivötn-
um til grundvallar skynsamlegri
nýtingu þeirra. Alls verða flutt sex
erindi í dag og þrjú á morgun.
Einnig ávarpar Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarráöherra ráðstefnuna.
Erindaflutningur er opinn öllum
sem áhuga hafa á þessum málum
og stuttar fyrirspurnir eru leyfðar.
Áslí kuldanum
Já, það veitir svo sannarlega ekki af, að halda á sér hita þessa
dagana og nota til þess öll tiltæk ráð. Þetta unga og ást-
fangna par var heldur ekki í neinum vandræðum. Þarna gengu
þau arm í arm um götur miðbæjarins í hörkugaddinum með
bros á vör, rjóð og sælleg, þegar flestir aðrir máttu sætta si.rr
við að norpa um með bláar kinnar og sultardropa á nef-
broddinum. Já, það er munur að vera ungur og ástfanginn.
t