Vísir - 16.12.1969, Síða 1

Vísir - 16.12.1969, Síða 1
Mjólkurverkfalli frestaB ISIR 59. árg. — Þriðjudagur 16. desember 1969. — 280. tbl. Kjaradeila mjólkurfrædinga sennilega leyst • Samkomulag náðist í veigamiklum atriðum í kjaradeilu mjólkurfræðinga við mjólkurbúin í nótt og varð því að samkomulagi að fresta verkfalli mjólkurfræð- inga, sem átti að hefjast i nótt, um óákveðinn tíma. — Heldur ósennilegt er, að til verkfalla komi. Samkomulag- ið náðist undir kl. 4 I morg- un, en þá hafði samninga- fundur með sáttasemjara staðið frá kl. 9 í gærkvöldi. Vilja ekki smita Akureyrínga — Togarinn Kaldbakur i sóttkvi við Grimsey. Helmingurinn af skipshöfninni liggur i in- flúensu. — Byrjað að bólusetja við veikinni i Reykjavik i morgun $ Við viljum ógjarna smita nágrannana, sagði Sverrir Valdimarsson, skipstjóri á Akureyrar- togaranum Kaldbak sem liggur við akkeri út við Grímsey, nýkominn úr siglingu frá Englandi, en þar geisar heiftarleg in- flúensa um þessar mund ir, pest, sem farið hefur eins og eldur í sinu um alla sunnanverða Evr- ópu að undanförnu. — Það liggur helmingurinn af mannskapnum, sagði Sverr- ir, en þeim er heldur að skána flestum, Margir veiktust mjög fljótlega eftir að við komum til Grimsby .— Sverrir sagði að þetta væri fremur slæm pest, henni fylgdi hár hiti og háls- bólga. — Það er ekki afráðið ennþá, sagði hann, hvenær við förum í land. Meiningin var að skipið yrði á veiðum til jóla og kæmi þá og landaði á Akureyri, en það segir sig sjálft að skipshöfnin er lítt fær um að sinna veiði- störfum fyrst um sinn. — Á meðan er skipið eins konar sóttkví. Héraðslæknirinn á Ak- ureyri mæltist til þess að skipið kæmi ekki nin fyrr en nauðsyn krefði vegna infiúensunnar. — Þótt skipverjar á Kaldbak hafi þennan varann á er eins vist að veikin berist fljótlega til landsins. þar sem samgangur er jafna mikill við England, ekki sízt vegna söluferða skipa, sem eru mjög tíðar og daglega eru bátar að koma úr siglingu á hina og þessa staði á landinu. í morgun var byrjaö aö bólu- setja gegn innflúensunni í Heilsuverndarstöðinni, en bólu- efnið barst þangað í gær. — Byrjað er á að bólusetja, veik- burða fólk, sem má illa við veikinni og enn fremur starfs- fólk, sem sízt má forfallast, svo sem slökkviliðsmenn og fleiri slíka. Skrifstofa Borgarlæknis sagði blaðinu í morgun að ekki hefði ennþá komið upp neitt tilfelli í borginni, sem öruggt væri að telja innflúensu, en menn bú- ast við að henni skjóti upp þá og þegar. Ákveðið var í nótt að skipa undimefnd með fulltrúum öó Mjólkurfræðingafélagi Islands og Vinnuveitendasambandi Is- lands til að ganga frá minnihátt ar atriðum. Næturfundir hafa verið haidn ir undanfarna daga til að leysa þetta mál, eins og oft gerist í kjaradeiium hér á landi. 1 fyrri- nótt stóð fundur til kl. 4.30 að morgni, en hann hófst kl. 4 á sunnudag. Undirnefndin kemur fyrst saman á fimmtudag og er þvi ljóst, aö ekki kemur til verk- falla fyrr en í fyrsta lagi á föstudag, þar sem mjólkurfræð- ingar verða aö boða verkfall með sólarhrings fyrirvara. Eitt skip í land af öllum flotanum Litlu jólin Síðasti skóladagurinn fyrir litlu jól og jólafríið er í barna- skólum borgarinnar i dag. Litlu jólin verða haldin í skólunum á morgun og á fimmtudag. Skóla börnin vinna því af miklu kappi í dag að skreytingu á stofunum, teikna á töfiurnar og æfa jóla leiki. Sum fá að halda sérstök bekkjarjól. Síðasti kennsludagurinn fyrir jólafrí var haldinn hátíðlegur hjá 5. bekk DV í Austurbæjar- bamaskólanum, í morgun. — Kennslubækurnar fengu að 'vera ósnertar, en hins vegar var mo;rn af jólastemmningu. Það eru skemmtilegir skóla dagar fyrir yngstu kynslóðina þessa dagana og tilhlökkunin tii mestu hátíðarinnar. jólanna, vex nú með hverjum deginum. Aðeins eitt skip hélt til lands af síldarmiðunum í morgun, en mikill floti er nú á miðunum norður á Jökultungunum, þar sem síldín fannst síðast í nótt, Skipin köst- uðu í gríð og erg í gærkvöldi fyrst í Jökuldjúpinu, en þar var síldin svo lítil að naumast borgaði sig að hirða hana, síðan færði flotinn sig norðar og þar fékkst ágæt síld það litla sem það var. Aflinn var frá þremur tonnum upp í 30. Sveinn Sveinbjörnsson NK var með 30 tonn og er væntanlegur til Kefla víkur í dag. Gígja. Ásberg og Ljós fari voru meö 20 tonn hver, Gísli Ámi meö 15 tonn, en aðrir með þaðan af minna. Blíðuveður var á miðunum og bíða skipin nú til kvölds eftir því að síldin slæöist upp á yfirborðið. Torfumar, sem finnast virðast mjög gisnar og erfitt að ná neinu magni úr þeim. Veiði hefur gengið svona til núna lengi. Það heyrir til und- antekninga, ef næst í sæmilegt kast. •«*>**** Bragi Ólafsson, aöstoðarborgarlæknir, átti annríkt í morgun vfð bólusetningu gegn inflúensunni. 40 milljónir í sandinum — Skipið stendur svo til rétt á sandinum og flýtur nærri því á flóði. Það er verið að undirbúa aðgerðirnar við að ná því á flot og við erum vongóðir um að það takist, sagði Sigurgeir Jóhanns- son í Bakkaseli í viðtali við Vísi í morgun, en hann er formaður björgunarsveitarinnar í Meðal- landi og stjórnaði björgunarstörf unum, þegar Halkíon strandaði þar skammt frá Skarðsfjöruvita á sunnudagsmorguninn. Mönnum þykir að vonum sár- grætilegt að horfa upp á 40 rrtilljón ir grafast í sandinn, en skip eins og Halkion er naumast hægt að fá fyrir minna verð. Hann er 264 lest- ir, smíðaður 1964. Báturinn er ekkert skemmdur, Seinustu forvöð fyrir jólapóstinn í dag þriöjudag 16. desember eru síöustu forvöð að póstieggja jólabréf, sem berast eiga í borg ina fyrir jólin. Póststofan í Reykjavík og póstútibúin á Laugavegi 176 og Langholtsvegi 82 verða opin í dag tii kl. 24. sagði Sigurgeir. Það eru 2 vakt- menn við skipið og þrír af áhöfn- inni eru hérna hjá mér. Varðskip- ið Ægir kom hér í gær, en varð að snúa aftur, vegna þess hve brimiö var mikið, — Hefuröu trú á að hann fljóti yfir grynningarnar úti fyrir. — Hann gerir það kannski ekki með eigin vélarafli, en hann ætti að sleppa á flóði með hjálp. -- Nú eru ráðagerðir uppi um að fá þungavinnuvélar til aðstoðar við björgun skipsins, sem væntanlega verður reynd innan tíðar. VandræðsibariiBð, James Bond heitir grein í blaðinu í dag og segir þar frá þessum furðufugli sem George Lazenby leikur nú f kvikmyndum í stað Sean Conn ery. Sjá bls. 4. Vertíðsirvika í þinginu Eftir lognmollulegt haust kom „vertíðarvika“ í þinginu. Sjá bls. 9. *

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.