Vísir - 16.12.1969, Blaðsíða 2
... OG SKJÓTA SVO!
„Áfram svo KR-ingar, skjótið
þi8“. Og KR-ingar skoruðu
markið á siðustu sekúndunum.
Þetta var aðeins „fyrri hálfleik-
urinn“ í taugastríði Jóns Ftiö-
steinssonar, þjálfara KR í fyrra-
kvöld, þegar leikimir f 1. delld-
inni fóru fram. Hans lið hreppti
fyrstu stigin sín, — en að þess-
um leik loknum byrjaði barátt-
an fyrir hans eigið félag, Fram.
Og enn vann sá aðili, sem hann
hvatti. Ánægður hefur þessi
kunni forustumaður, þjálfari og
dómari, haldlð heim á leið að
leikjum loknum.
Á myndinni eru auk Jóns
Friðsteinssonar (Iengst til
vinstri) þeir Gunnar Hjaltalín,
leikmaður í KR, og Sveinn
Kristjánsson, e'inn forystu-
manna handknattleiksmanna
í KR. Og það er auðvitað 16.
mark XR, sigurmarkið, sem þeir
eru að fagna.
Vikugamalt félag
hlaut sigurinn
• Hið árlega innanhúsknatt-
spyrnumót Iðnnemasambands ís-
lands var haldið í Keflavík sunnud
daginn 14. desember. Að venju var
mikill áhugi ríkjandi meðal iðn-
nema varðandi mótið, og sendu
ails 11 félög víðs vegar að, 17 lið
til keppninnar.
Úrslit mótsins urðu þau, að
Félag múraranema í Reykjavík
sem sendi eitt lið til keppninnar,
sigraði b. lið Iðnnemafélags Akra-
ness £ úrslitaleik mótsins með 6
mörkum gegn 3 eftir harðan og
spennandi leik og varð sigurveg-
ari mótsins. í öðru sæti varð b
lið Iðnnemafélags Akraness, og x
þriðja til fjórða sæti urðu a lið
Iðnnemafélags Akraness og Félag
iðnnema Hafnarf. Þess má geta aö
Félag múraranema var endurstofn-
að fyrir aðeins viku síðan, svo ætla
má aö sigurinn veröi hinu nýja
félagi hvatning til frekari dáöa.
Formaður Iðnnemasambands ís-
lands, Magnús E. Sigurðsson af-
henti sigurvegurunum til varð-
veizlu hinn gullfagra bikar sem
gefinn var af rakarastofu Geirlaugs
Ámasonar og Harðarbakaríi á
Akranesi.
Nýtt
heimsmet
i tugþraut
Óiympíumeistarinn í tugþraut
Bill Toomey, Bandarikjunum, seltti
í síðustu viku nýtt heimsmet I tug
þraut á móti f Santa Barbara i
Kalifornu. Hann hlaut 8417, sem er
98 síigum betra en eidra heimsmet-
ið. Þjóðverjinn Kurt Bendlin átti
það. Toomey varð Óiympíumeistari
í Mexíkó 1968 — og nú í vikunni
mun hann kvænast hinni kunnu,
ensku íþróttakonu Mary Rand, sem
meöal annars sigraöi á Ólympíuleik
unum í Tokíó í langstökki.
L EIG A N s.f.
Vinnuvélar tii leigu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og tleygum
RafknOnir Steinborar
Vatnsdœlur ( rafmagn, benzín )
J arðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Víbratorar
Stauraborar
Slípirokkar
Hitablásarar
HOFDATUNI M- - SÍMI 23JJSO
.
•V
FLOKKAGLÍMA Reykjavíkur
fór fram aö Hálogalandi fyrir
nokkru, en það mun væntanlega
vera í síðasta sinn sem Háloga-
land verður nýtt sem vettvangur
fyrir þetta jafnan skemmtilega
glímumót, sem hefur veriö fast-
ur liður í vetrardagskrá reyk-
vískra glímumanna síðan 1947.
Þrjú félög tóku þátt í þessu móti
Ármann, Víkverjar og K.R., en
Víkverjar viröast vera að hasla
sér æ stærri völl í þessari íþrótt.
Mótið tókst í alla staði mjög vel
og vakti það athygli, hversu allar
tímasetningar og mótsstjóm gengu
vel fyrir sig, en oft hefur það ver-
ið eitt hið erfiðasta hlutskipti á-
horfenda, að finna sér eitthvað til
dundurs meöan beðiö var eftir aö
glímur hæfust, eða stjórnendur
sætu að ráðstefnu £ miðju móti.
Glfmustjóri var hinn gamalkunni
glimumaður Guðmundur Ágústs-
son, yfirdómarar Ólafur Guðlaugs-
son og Garðar Erlendsson. Með-
dómarar Gisli Guðmundsson, Sig-
urður Sigurjónsson og Skúli Þor-
leifsson. Ritarar Ólafur Sigurgeirs-
son og Kristmundur GuömUnds-
son. Tfmaverðir Matthias Guð-
mundsson og Hjörtur Elíasson.
Fánaberi var Sigtryggur Sigurös-
son.
Hörður Gunnarsson formaður
glímudeildar Ármanns setti mótið
og fór nokkrum orðum um starf-
semi glímuráðs Reykjavíkur á liðn-
um árum.
í fyrsta flokki varð sigurvegari
Sigtryggur Sigurðsson K.R., lagöi
hann keppinauta sína örugglega og
virtist ekki fá þá keppni að meta
Sigtryggur Sigurðsson.
megi glfmuhæfni hans á komandi
keppnistímabili. I ööru sæti varð
Sigurður Jónsson U.V., er hann
vaxandi glímumaður, léttur og
sækinn, en gætir ekki þeirrar var-
kárni fyrir mótbrögðum andstæð-
inga, sem skapa Sigtryggi yfir-
burði. Ingvi Guðmundsson varð
þriðji, Ingvi er ávallt skemrhtilegur
glimumaður, gamalreyndur keppn-
ismaður sem ekki er vanur að
gefa hlut sinn baráttulaust, en
hann átti enga sigurmöguleika í
glímum sinum gegn Sigtryggi og
Siguröi og virtist vera eitthvað
miður sín.
■.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.
Yel þegin ráð |
siivai
ctT C
VISIR
© Væntanlega mun margur
golfmaðurinn láta sig
dreyma um iðjagrænar golf-
flatir nú um hátíðina, þegar
hann rennir augum yfir ný-
útkomna golfbók, „Má ég
gefa yður ráö“, sem enginn
annar en Jack Nicklaus hefur
samið.
Grágás í Keflavík á þakkir skild
ar fyrir að gefa þessa bók út.
Hún er frábær í allri gerð, lit-
myndir prýöa hverja síðu og
textinn hefur verið þýddur
mjög smekklega af Einari
Guönasyni. Er frágangurinn all-
ur slíkur að athygli mun vekja
meðal þeirra, sem vit hafa á
bókagerð.
Jack Nicklaus þarf ekki að
kynna fyrir golfáhugamönnum.
Hann hefur um árabil verið
einn frægasti golfsnillingur
heims og sá launahæsti jafn-
framt. Bók þessi, sem heitir á
frummálinu Take a Tip from
Me, er myndskreytt af Francis
Golden.
Ekki er neinum blöðum um
það að fletta að margir munu
hafa bæði gagn og gaman af
þessari bók, svo skemmtilega
er frá henni gengið.
V í SIR . Þriðjudagur 16. desember 1960.
Sigtryggur síðasti
sigurvegarinn á
Hálogalandi?