Vísir - 16.12.1969, Blaðsíða 7
VlSIR . Þriðjudágur 16. desember 1969.
7
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Sprengiagin i Búnaðarbankanum i
Milan&. Lögregiuþjónar rannsaka
hér gólf Búnaðarbankans (Banca
Nazionale dell ’Agricoltura) í Míl-
anó eftir sprengjutilræði fyrir
nokkrum dogum. Á gólfinu liggja
Iík fólks, sem fórst í tilræðinu.<s>-
Nixon kallar heim 50 þús. frá Víetnam
NIXÓN, Bandaríkjaforseti,
tilkynnti í ræðu sinni í gær
kvöldi, að hann mundi
kalla heim 50 þúsund her-
menn til viðbótar frá Víet-
nam. Nemur þá fjöldi
þeirra, sem forsetinn hefur
kvatt heim, 110 þúsundum.
Heimkvaðningunni á að
vera lokið hinn 15. apríl
næsta ár.
Nixon sagði, að greinargerö, er
hann fékk frá sir Robert Thompson,
sem stýröi sigurför Breta á hendur
skæruliðum kommúnista í Malasíu
um árið, hafi orðið til þess, að
hann fækkaði enn i hernum í Víet-
nam.
Thompson sagði forsetanum, að
nú hefðu Bandarikin góða aðstööu
til að ná friöi með sæmd og varö-
veita sjálfstæði Suður-Vietnam. —
„Þessi greinargerð er í samræmi
viö aðrar slíkar, er ég hef fengið
um ástandið," segir Nixon.
Nixon harmaði, hve litlar fram-
farir hefðu oröið við samningaborö-
ið í Paris, frá því að hann flutti
sjónvarpsræðu í nóvember. „Við
samþykkjum aldrei lausn Víetnam-
málsins, sem felur f sér að í Suður
Víetnam verði kommúnistisk ríkis-
stjórn,“ sagði Nixon.
Grunaður tilræðismaður
stökk út um glugga
Sfjórnleysmgjar og kommúnistar handteknir i Milanó
£ Jámbrautarverkamaður, 41
árs, sem handtekinn hafði
verið, grunaður um hiutdeild í
sprengjutilræðunum í Mflanó,
hentí sér út nm glugga í nótt á
aðalstoðvum Rgregiunnar og
beið bana.
MaönrJon iséx Giuseppi Pinelli, og
lézt hann á sjúkrahúsi af meiðslum
þeim, er hana Want við fallið. Hann
var í hópi stjómleysingja.
Pinelíi stökk út. þegar lögreglan
hafði skilið hann einan í herbergi,
þar sem harm hafði verið til yfir-
heyrslu.
Samtals em 22 aðrir undir grun
og sitjá i fangelsi. Lðgreglan í
Róm handtók í gærkvöldi fimm
meðiimi hins marx-lenini stíska
kommúnistaflokks ítala. Flokkur-
inn lýsti því yfir eftir handtökurn-
ar, að hann væri andvigar sprengju-
tilræöunum, sem væru tilgangslaus-
ar og deyddu fólk.
Heimildir innan lögreglunnar í
Mílanó sðgðu, að yfirvöld hafi
fengið upphringingu frá lækni, sem
kvaðst hafa hjúkrað fimm ungmenn
um eftir sprengingarnar. Fékk hann
nöfn þeirra og sagði hann, að sár
þeirra bentu til, að þau hefðu átt
Dubcek sendiherru
í Tyrklundi
• Alexander Dubcek hefur verið
skipaður sendiherra i Tyrklandi,
sem er valdalítil staða. Má því
segja, að þessi fyrrverandi for-
ingi Tékka hafi verið sendur í
„útlegð“.
• Krustjev hinn sovézki hafði svip
aöa aðferð við andstæðinga sina,
sem hann gerði á sínum tíma að
sendiherrum, forstjórum og
bankastjórum, til þess að koma
þeim „úr Ieik“ í stórpólitíkinni.
Vinsældir Dubceks munu vafa-
laust hafa hindrað, aö hann yrði
dreginn fyrir dóm.
þátt i verknaðinum. Fjórtán fórust
í sprengingunum.
Reynt að stofna til
fundar Gowons og Ojukwu
Fimmti fundur styrjaldaraðila hefst
SENDINEFND Bíafra kom til
Addis Abeba í Eþiópiu í morgun
til að hefja þar viðræður um
friöarsamninga við fulltrúa Níg-
eríu. í nefndinni eru þfir full-
trúar undir forystu dr. Plius
Okigbo.
Létu Bíaframenn í Ijós von um
að aðilar getl náð samkomulagi
um fund þeirra Yakubu Gow-
ons, leiðtoga Nigeríu, og Odu-
mcgwu Ojukwu leiðtoga Biafra.
Dr. Okigbu sagði í Libreville
i gær, að þetta væri í fyrsta sinn
að Nígeríumenn tækju þátt í við
ræöum án skilyrða, en aðílar
hafa hitzt fjórum sinnum áður.
Þá settu Nígeriumenn jafna sér-
stök skilyröi fyrir viðræðunum,
áöur en þær hófust.
Bandankin hjálfuðu Israels-
menn á herstöðvum í Libíu
//
# „íbúar Líbíu saka Bandaríkja-
menn mn að hafa notað stöðvar
sínar hér til að þjálfa hermenn
ísraels, flugmenn og skemmdar-
verkamenn,“ sagði Muhammed
Gaddafi, formaður byltingarráðsins
í gærkvöldi.
„Þá getum við ekki haft hér her-
menn rikis, sem er flækt i styrjald-
//
ir eins og Víetnamstríðið. Við von-
um, að Bandaríkin, sem telja sig
forysturíki frjálsa heimsins, muni
styrkja Líbíubúa í tilraunum þeirra
til að halda frelsi sínu. Við þökkum
þá aðstoö, sem Bandaríkin hafa
veitt okkur,“ sagði Gaddafi að lok-
um.
Goldberg krefst rann-
sóknar á „pardusamálinu
GOLDBERG, fyrrum fulltrúi hjá
Sameinuöu þjóðunum, krafðist i
gærkvöldi, að rannsókn færi
fram á skiptum lögreglu og
„svörtu pardusanna“ í Bandarikj
unum. Sagöi Goldberg, að vera
mætti að reglur væru brotnar á
þessum félagsskap róttækra
svertingja.
Margir hafa fallið af „svörtu
pardusunum" víða i stórborguni
Bandaríkjanna síðustu vikurnar,
og virðist lögreglan gera átak til
að uppræta félagsskapinn.
A UGL ÝSING
um úthlutun lóðu undir íbúðurhús í Reykjuvík
10. janúar 1970 rennur út frestur til
sem hér segir:
að sækja um byggingalóðir, svo
1. Einbýlishúsalóðir:
48 lóðir við Kvistaland, Traðarland, og Vogaland (Fossvogi).
2. Raðhúsalóðir:
Fyrir 69 íbúðir við Logaland, Ljósaland og Sævarland (i Fosstfogi).
92 íbúðir í Breiðholti III, samtals 161 íbúð.
3. Fjölbýlishúsalóðir:
Fyrir 96 íbúðir á fjölbýlishúsalóðum við Markland, Seljaland og Snæland
(í Fossvogi).
Fyrir 46 íbúðir á fjölbýlishúsalóðum við Vesturberg (Breiðholt III).
Hverju stigahúsi verður aðeins úthlutað einum aðila eða fleiri, sem
sækja um sameiginlega.
Stefnt er að því að auglýstar lóðir verði byggingarhæfar á árinu 1970
og að úthlutun fari fram fyrir 15. febrúar n. k.
Skipulagsteikningar og upplýsingar um gatnagerðargjöld o. fl. eru fyrir
hendi á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, III. hæð.
Eldri umsóknir eru ekki teknar gildar og óskast endurnýjaðar skv. aug-
lýsingu þessari.
Erfðafestuhafar og/eða samningsaðilar, sem fengið hafa fyrirheit um
lóðaúthlutanir eru jafnframt beðnir um að leggja inn umsóknir.
Umsóknareyðublöð eru í Skúlatúni 2.
BORGAR STJÖRINN f REYKJAVÍK.