Vísir


Vísir - 16.12.1969, Qupperneq 9

Vísir - 16.12.1969, Qupperneq 9
V í S I R . Þriðjudagur 16. desember 1969. Síðast^ vika var sann- kölluð vertíðarvika á Al- þingi. Eftir lognmollu- legt haust í pólitíkinni tóku stórtíðindi að ger- ast. Fram kom á nokkr- um dögum hvert frum- varpið og tillagan ann- arri stærri. Þingsálykt- unartillaga ríkisstjórnar innar um aðild íslands að fríverzlunarbandalag inu kom fram föstudag- inn 5. desember, og á eftir fylgdu stórfrum- vörp um tolla, söluskatt og réttindi útlendinga. Þá voru f járlögin í deigl- unni. Mörg stórmálin rekur nú á fjörur þingmanna, ' A‘ jWj Vertíðarvika á Alþingi Mál þessi voru strax tekin til meðferðar, og fjörugar umræður byrj- uðu, bæði innan þing- hússins og utan. Öll þjóð in fylgdist með, og nú fóru menn að fá slcoðan- ir um EFTA, lærðir og leikir, og voru flestir fylgjandi bandalaginu, þegar á hólminn kom. „Brýn nauðsyn“ Dr. Gylfí Þ. Gíslason fylgdi EFTA-tillögunni úr hlaði á mánudag, og taldi okkur brýna nauðsyn að komast inn í banda lagiö án tafar. Sagði ráðherr- ann, aö við yrðum að stofna til útflutningsiðnaðar í ríkum mæli, ef við ættum ekki að dragast aftur úr nágrönnum okkar um lífskjör. Iðnaðarfram- leiðsla til útflutnings hlyti hins vegar að byggjast á því, að við ættum opna markaðj fyrir vör- urnar, en þyrftum ekki að klifra yfir háa tollmúra. Gengjum við í EFTA, þá féllu niður tollamir, sem EFTA-ríkin hafa nú sett á vörur, sem fluttar eru inn til þeirra frá löndum utan banda- lagsins. Við það sköpuðust möguleikar fyrir okkur til að selja þessum þjóðum afurðir okkar i miklu stærri stíl en ver ið hefur. „Slakur undirbúningur“ Ólafur Jóhannesson, prófess- or talaði fremur gegn EFTA-að- ild en hitt. Hann á vandratað meðalhófiö, þar sem Framsókn- arflokkurinn er klofinn í mál- inu. Kunnugir fullyrða, að meiri hluti framsóknarmanna á land- inu vilji aðild að EFTA, en harð snúinn tninnihluti sé á móti. Ól- afur viil engan særa í flokknum. Því segir hann, að aðild að EFTA sé „ótímabær“ í þetta sinn, en kynni aö koma til greina síðar, enda sé honum vel til bandalagsins. Hafi ríkis- stjórnin svikizt um við allan undirbúning málsins og ekki stutt iðnaöinn til að laga sig að þeim aðstæðum, sem framund- an eru, ef við gerumst aðilar að þessu bandalagi. „Vörur hækka“ Lúðvík Jósefsson snerist önd verður gegn aðild að EFTA. I ræðu hans kom þó ekki fram sá heljarótti, sem einkennt hef- ur tal Magnúsar Kjartanssonar, flokksbróður hans, um „erlenda auðhringa og glötun sjálfstæð- is“, sem yrðu fylgifiskar EFTA- aðildar. Lúðvik taldi hins vegar, að aðild mundi verða til að hækka vörur hérlendis og rýra kjör verkafólksins. Brezki markaðurinn skipti okkur svo litlu, að við værum að fórna öðrum mörkuðum til einskis gagns. ‘ ff Björn með EFTA Eitt hið merkilegasta við um- ræðurnar um EFTA til þessa, er stuðningur nýja flokksins við áðildina. Kom það einkar skýrt fram hjá Bimi Jónssyni síðast liðinn föstudag. Bjöm kvaðst hlynntur aöild vegna íslenzks verkafólks, sem mundi bæta kjör sín, ef við gengjum i Frí- verzlunarbandalagið. Þá taldi Bjöm, að ríkisstjómin hefði unnið vel að undirbúningi máls ins, en óverjandi væri hins veg ar aö flýta því í gegnum þing- iö, eins og hún ætlaðist til, á- samt öörum stórmálum, svo sem lækkun tolla og hækkun söluskatts. Samkvæmt þessu mun hinn nýi flokkur „Samtök frjálslyndra og vinstri manna“, sem í daglegu tali er kenndur við þá Hannibal og Bjöm, styðja EFTA-tillöguna á Alþingi og annars staðar. Hannibal féll Nokkurt fjaðrafok einkenndi föstudaginn 5. desember. Hópur ungmenna hafði hark í frammi fyrir utan þinghúsið, og féll Hannibal þar fyrir stúlku einni, sem mótmælti EFTA og ríkis- stjórninni. „Fall er fararheill", hugsaði Hannibal og gekk í hús ið. Taumhald á útlending- um Á eftir tillögunni um aðild að EFTA fylgdu frumvörp um réttindi útlendinga tii atvinnu- rekstrar hérlendis, í iðju og iðnaöi og verzlunaratvinnu. Þessi frumvörp komu fram til að tryggja, að erlendir vinnu- veitendur gætu ekki í krafti EFTA-samningsins smogiö inn í atvinnurekstur á íslandi og gerzt um of fyrirferðarmiklir. Ákvæði sjálfs EFTA-samnings- ins um þetta eru nokkuð óljós, en talið er, að reynsla Norð- manna í þeim efnum bendi ótví rætt til þess, að engin vand- ræði muni stafa af ásælni er- lendra vinnuveitenda hérlendis. Svo segja sumir að útlending- ar hafi engan áhuga á að stofn- setja fyrirtæki á hinu kalda og litla Islandi, svo að ekki þurfi að vera að þessu. Ríkisstjómin vill þó hafa ráðin í hendi,,sér og geta haft taumhald á út- lenzkum, ef þeir sækja hingaö að einhverju ráði. Fæðingar- og kvensjúk- dómadeild Fjárlög voru til umræðu þessa viku. Stjórnarandstæð- ingar báru fram breytingartil- lögur um mörg hundruð millj- óna framlög til atvinnuaukning- ar. Sögðu þeir að ekki mætti hið sama gerast og i fyrra, að liöi á næsta ár, áður en hafnar væru aðgeröir til að spoma gegn atvinnuleysi þúsunda, og yrði strax að byrja að gera ráð- stafanir. Algert samkomulag varð hins vegar í fjárveitinganefnd og á Álþingi um aðalbreytingar, sem gera skyldi á fjárlagafrumvarp inu, eins og það kom fram f haustbyrjun. Var þar helzt um að ræða miklar hækkanir á út- gjöldum til heilbrigðis- og skóla mála, og frá samvinnunefnd samgöngumála komu tillögur um aukningu framlaga til flutn inga. Merkast af þessu er lík- lega fjárveitingin og lántaka til byggingar fæðingar- og kven- sjúkdómadeildar við Landspítal- ann, sem talin er brýn þörf á. Þá verður stórlega bætt við Land spítalann á annan hátt og hann fær nýjar lóðir með makaskipt- um ríkis 0o borgar á Arnarhóli og fleiru annars vegar og lóð- um. Skólar um allt land fá mikið aukin framlög samkvæmt breyt ingartillögum fjárveitinganefnd ar, en þær voru allar samþykkt ar nær einróma við aöra um- ræðu seinna í vikunni. Tillögur stjórnarand- stæðinga felldar Hins vegar voru allar breyt- ingartillögur stjórnarandstæð- inganna felldar með meirf at- kvæöamun en styrkleikahlut- föll á þingi gefa til kynna. Var mörgum framsóknarmönnum lítt gefið um sumar tillögur al- þýöubandalagsmanna. Tollar og skattar breytast Tollskrárfrumvarpið kom fram á miðvikudag og var þar gert ráð fyrir tollalækkunum, sem kosta ríkissjóð nær 500 milljón ií, í -töpuðunt ithKjiuhjrí menn. Á móti verður söluskatt- urinn hækkaður í 11%, éins og greinir í öðru frumvarpi, er fram kom rétt á eftir. Nú velta menn því fyrir sér, hvað sé uppi á teningnum, hvort vörur hækki eða lækki og hvaða vör ur hækki og hvaða vörur lækki í verði. Almenningur hefur mestan áhuga á svörum við þeim spumingum, en tölspek- ingar sitja með sveittan skall- ann í öllum greinum og reikna og reikna, hvað muni gerast í sinni grein. Að sjálfsögðu eru öllum mál- um ríkisstjórnarinnar tryggður framgangur vegna meirihluta hennar á þingi. Þannig gerumst við væntanlega aöilar að EFTA í marz, og tollar lækka um svip að leyti og söluskattur hækkar. Fjárlög verða afgreidd með því sniði, sem nú er á frumvarpinu eftir breytingamar, þótt lítils háttar breytinga sé enn að vænta við lokaumræðuna. Alþingi einkenndist í fyrra haust af illvígum deilum. Þá voru tilraunir gerðar til að mynda þjóðstjórn allra flokka, og urðu menn sizt vinsamlegir eftir þær, og þóttust allir hafa verið sviknir. Efnahagsástandið var voveiflegt og gengislækkun ekki lengur umflúin. Svo kom gengislækkunin sjálf og föru- nautar hennar, ráðstafanir vegna gengislækkunar í atvinnu greinunum. Vantrauststillaga var borin fram og felld. Þetta tímabil fyrir einu ári var gjörólíkt því „friöarskeiði", sem kalla má, að nú hafi verið á Alþingi, þar til síöustu rúma viku, þegar tillagnaflóð fór yfir þingmenn. Þótti mörgum þá nóg um, og varð sú raunin, að endanlagri afgreiðslu ýmissa stórmála verður frestað' fram yfir áramót, og geta þingmeon hugsað ráð sitt á jólanðttunni. mnm V □ Frost eða frostleysa? Ekki er hann Svavar Gests hætis hót lakari en Davlð Frost. Þættir þessa heimsfræga Breta eru alveg eins leiðinlegir og hjá Svavari. Skelfing geta mennirn- ir annars dregiö leiðinlega og lúna skemmtikrafta fram í dagsljósið. Svavar ætti hins vegar ekki að reyna aö „stæla“ þennan Frost, Honum fer þaö illa úr hendi, auk þess sem hann var skemmtilega neyðarlegur I útvarpinu í „dentfð". En eins og er, þá sé ég ekki neina ástæðu fyrir sjónvarpið að vera að borga mönnum fyrir að koma ókeypis auglýsingum á framfæri. — TV. □ Hvar er öll þjónustan? f fyrra heyrðum við Reyk- víkingar af þvf, að snjóað hefði á Akureyri, og þá hefðu leigubfl- stjórar þar hætt akstri og látið lögreglunni eftir fólksiflutninga innanbæjar. Þetta þöttu mikil' fim. Nú gerist það hér f Reykjavík aðfaranótt sunnudags, að ’ann kyngir niður snjó, og þá hurfu leigubflstjórar af götunum mn , Ieið og þeir voru búnir að „fleyta rjómann“ af traffkinni úr sam- komuhúsunum, en starfsfólk sjúkrahúsa, sem þurfti til vinnu, og aðrir, sem þurftu á milli húsa, urðu að kvabba á lögregl- unni um far. Er þetta annars hægt? Finnst leigubílstjórum þetta eðlilegt, með tilliti til þess hve hart þeir ganga fram í því, að aðrir fái ekki að stunda leiguakstur? Ein tekjulind leigubílstjóra. □ „Stórþjóðin“ vill ekki jólakveðjur Hvaða nöldurseggir og hversu stór er sá hópur gagnrýnenda er vilja láta fella jólakveðjur frá fslendingum erlendis burt úr út- varpsdagskránni á jóladag Ég hef grun um það, að útvarpsráð hafi tekið þessa ákvöröun um dagskrárbreytingu að fremur lítt athuguðu máli. Sá hópur er á- reiðanlega fjölmennur, sem vill láta viðhalda góöum og gömlurn sið útvarpsins með jólakveðjum- ar frá fslendingum erlendis. Ber þar fyrst að nefna ætt- ingja þeirra, sem eru staddir er- lendis, þá vini og kunningja, en maöur hefur einmitt frétt óbein- línis af fjölda kunningja sinna. með því að heyra frá þeim kveðjurnar f útvarpinu jóladag- ana. Þessar jólakveðjur eru orðn-' ar hefð, tengd jólunum en af slfku eigum við ekki of mikið. Stórþjóöin íslendingar er til allrar hamingju ekki orðin það stór, að hún hfafi ekki tök á- því að sinna hverjum einstakl-, ingi innan heildarinnar. Hlustandi. HRINGID ( SlMA 1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.