Vísir - 16.12.1969, Page 13

Vísir - 16.12.1969, Page 13
V 1 S I R . Þriðjudagur 16. desember 1969. ANATEX \drengjaskyrtan g úr Velour, sem breytist úr venjulegri skyrtu I rúllukraga-skyrtu með því að renna lásnum upp. Lltir rauðar m/bláum lás, bláar m/rauðum lás, gul-drapp m/brúnum lás. Stæröir 2 . 4.6.8. FALLEG ★ HANDHÆG ★ ÞÆGILEG Ueril.UBtUB Blftnmyri 1 -s 83366 VENJUL KRAGI RÚLLUKRAGI JPyrir flesta eru miklar og margar veizlur framundan, bæði um jól og áramót. Matur og drykkur verður á borðum og kveikt er á kertum. Fyrir há- tíðarnar eru sparifötin tekin til Strax, þegar þau verða eldri en litla hnátan á myndinni, og fara að bjarga sér sjálf, vill það koma fyrir að þau helli niður á sig. og hreinsuð. Einnig þarf stund- um að bregða fljótt við og hreinsa bletti, sem koma á föt- in, þegar svo mikill matur er hafður um hönd. Oftast eru það blessuð börnin, sem vilja hella ofan á sig eða aðra við þessi tækifæri. ííér eru ráð til að hreinsa ýmsa bletti, og er ekki úr vegi að geyma þessar ráðleggingar, því maður veit aldrei hvenær maður getur átt það á hættu að fá bletti á föt sín. Bezt er auð- vitað að bregða fljótt við og hreinsa þá eins fljótt og mögu- leiki er á. Öll efni, sem nota á til blettahreinsunar á að geyma í læstum hirzlum og út af fyrir sig svo engin hætta sé á, aö börn nái í. Blóðblettir. Hreinsaðir með köldu saltvatni til aö byrja meö, þá volgu salmiakssápuvatni og síðast volgu vatni. Blek. Með volgu vatni, sítrónu sýruupplausn, volgu vatni, volgum salmíakssápulegi og volgu vatni. Ávaxtablettir. Á bómullar og léreftsefnum: dýfið í sjóðandi vatn, þá salmíaksupplausn, volgt vatn, oxal-edikssýru, volgt vatn, spritt, volgt vatn. Önnur efni: volgan salmíakssápulög, volgt vatn, oxal-edikssýruupp- lausn, volgt vatn, spritt, volgt vatn. Súkkulaði. Kalt vatn, volgt salmíakssápuvatn, volgt vatn. Fitublettir. Hreinsiefni fyrir feiti fæst í apótekum, volgt sápuvatn, volgt vatn. ís. Kalt vatn, volgt salmíaks- sápuvatn, volgt vatn. RjómL Sama hreinsun og á ísblettum. Mjólkurblettir. Sjá ís. Kaffi. Volgt salmíakssápuvatn volgt vatn. Te. Sama aðferð og við kaffi- bletti. Vax. Vætið með vatni, skrapið varlega af, strauið yfir á pappír og síðast er notað Blettol. Tyggigúmmí. Kalt vatn, skrap ið varlega af og síðast hreinsaö með Blettol. Rauövín. Stráiö saltiv á blett- inn og látið bíða í klukkutíma, burstið af eða ryksjúgið, þá salmíakssápuvatn, volgt vatn. Sósa. Hreinsiefni fyrir fitu þá volgt, salmíaósskápuvatn, volgt vatn, spritt og volgt vatn siðast. Egg. Rauðan. Volgt sápuvatn, volgt vatn. Hvítan. Kalt vatn, volgt salmíakssápuvatn, volgt vatn. Sviti. Vólgt salmíakssápuvatn, volgt vatn, sítrónusýruupplausn volgt vatn. Varalitur. Hreinsiefni fyrir fitu, þá spritt, síðan oxal-ediks- sýruupplausn, volgt vatn, volgt salmíakssápuvatn, volgt vatn. Skósverta. Hreinsiefni fyrir fitu, þá spritt, edikssýruupp- lausn, volgt vatn, volgt salmíaks sápuvatn, volgt vatn, natrium- perboratupplausn volgt vatn. Andlitskrem. Hreinsiefni, sápuvatn, volgt vatn. Hér útskýrum við nánar nokkur af þeim efnum, sem not- uð eru við blettahreinsanirnar. Efnin er hægt að fá í apótekum. Oxal-edikssýruupplausn er búin til úr tveim siéttfullum tsk. oxalsýru, sem sett er í V2 dl af volgu vatni. Hrærið vel í þar til sem mest af duftinu hef- ur leystst upp. Blandið saman við þetta annað hvort þrem hlut um ediksspíra (um það bil ‘i2l/2 að styrkleika) eða 1 hluta ediks- sýru (um þaö bil 44%) og þrem hlutum vatns. Edikssýruupplausnin á að vera 8%. Hlutföllin eru 1 hluti ediksspíra á móti einum af vatni eða 1 hluti ediksspíra á móti 7 hlutum af vatni. Sítrónusýra. Þrjár sléttfullar tsk. sítrónusýra, sem leyst er upp í 2l/2 dl af volgu vatni. Salmíakssápuvatn. Blandið 1 hluta salmíakupplausnar saman við 1 hluta sápuvatns. Kalt saltvatn. Ein sléttfull msk. af venjulegu borðsalti er levst upp í 5 dl af vatni. Gamlan kjól er hægt að endurnýja með prjónuðu vesti. S/ðo vesf/ð ó v/ð margt ■prjónavestið síða, sem sést á myndinni er ein útgáfan af hinni þægilegu tízku, sem mest ber á í vetur. Prjónavestið er hægt að nota við kjól eins og á myndinni og t. d. endurnýja með þvl gamlan kjól. Það er einnig hægt að nota það á ýmsa aðra vegu, við blússu og síðbux- ur eða blússu og pils eða peysu og síðbuxur. Fjölskyldan ög Ijeimilid Þaö er líka hægt aö bregða því yfir samkvæmiskjólinn, ef hrollur sækir að þeim, sem í honum er. Það sem skiptir ekki minna máli en vestið sjálft er það skart sem notað er við það. Falleg hálsfesti, keðjur, hálsmen, næla, sem heldur vestinu saman að framan o. s. frv. Hægt er aö endurnýja gamlar flíkur ótrú- lega með .þessu móti og nú eru skartgriþir úr gerviefnum mest í tízku þannig að endurnýjunin , á ekki að. kosta of mikið. VERÐLISTINN Laugavegi 116 (Húsi Egils Vilhjálmss.) Sími 83755. Telpnakápur st. 4—14 Táningakápur Frúarkápur st. 36—50 Heilsársdragtir st. 36—50 VERÐLISTINN .... ÝMSAR AÐFERÐIR TIL AÐ NÁ BURTU BLETTUM

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.